Morgunblaðið - 09.07.1963, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 09.07.1963, Qupperneq 15
Þriðjudagur 9. júlí 1963 MORGVTSBLAÐIÐ 15 Belladonna, Perroux (fyrirliði), Forquet og Garozzo. — Grein sr. Benjamins Framhald af bls. 10. sína. Talið er að bók þessi muni vekja feikna athygli í Englandi og kannske valda byltingu í guð- fræði þar. Ekki hefi ég heyrt þess getið, að margir hafi orðið til að rífa klæði sín út af henni, enda eru Bretar rólyndir menn og geta spjallað um hlutina í bróðerni og öfgalaust. En ráð- leggja vil ég S.A.M. að lesa ekki þessa bók né neitt það, sem hagg að getur kreddum hans, því að hver veit nema hann fái flog af vandlætingasemi og rjúki í að skamma biskupinn. En það á ekki við að skamma biskupa. Við höfum þá aðallega til skrauts í fallegu fötunum sínum, og er það náttúrlega óttalegt glappaskot af þeim að láta nokkurn tímann nokkra skoðun í ljós. Þess vegna bið ég biskupnum griða, og vona að S.A.M. stökkvi ekki í hann, þó að ég hafi dregið hann inn í þetta mál. Enda hefur hann sennilega ekki heyrt getið um þennan snjalla gagnrýnanda S.A.M. hér norður á íslandi, ann- ars hefði hann varla þorað að skrifa þessa bók. ELDURINN OG ASKAN Fyrir rúmum tuttugu árum flutti dr. Sigurður Nordal nokkra FJÓRÐA starfsári Vogaskóla lauk með uppsögn landsprófs- deilda 17. júní, en öðrum gagn- fræðadeildum og barnadeildum var slitið 31. maí. í skólanum voru alls 1402 nem endur, í 52 bekkjardeildum, 939 í 35 barnadeildum og 463 í 17 gagnfræðadeildum. Af þeim voru 193 í 3. og 4. bekk, sem skiptust í alm. bóknámsdeildir, landsprófs- deildir og verzlunardeildir. í skólanum voru því 10 aldurs- flokkar allt frá 7 ára deildum til 4. bekkjar gagnfræðastigs, en Vogaskóli er fyrsti samskólinn, sem byggður er og starfræktur hér á landi (fyrir bæði barna- og gagnfræðastig\. Auk skólastjóra og yfirkenn- ara störfuðu 55 kennarar við skól ann, 36 fastir kennarar og 19 stundakennarar. Félagslíf skólanemenda var fjölþætt og gott, en þrengsli háði þó mjög ýmsum æskilegum þátt- um tómstundastarfs. Til nýjunga má telja, að barnastúka var stofnuð 1. des. sl. með 11 og 12 ára börnum/ Hlaut hún nafnið Vinir, og starfaði vel og við mikla þátt- töku nemenda, en undir leiðsögu kennara . Vorferðir voru farnar að lokn. um prófum. 12 ára börn fóru eina dags för um byggðir Borgarfjarð «r, gagnfræðingar fóru um hvita- sunnu austur um Skaftafells- sýslu að Skeiðarársandi, en á sama tíma ferðuðust nemendur landsprófsdeilda um Snæfells- nes og Borgarfjörð. Heppnuðust ferðir þessar hið bezta, nemend- fyrirlestra um andleg mál í ís- lenzka útvarpið og kallaði hann þessi erindi: Líf og dauða. Þar sagði hann margt viturlegt og benti meðal annars á, að prest- arnir væru að steindrepa kristin- dóminn með andlegu volæði sínu. „Neisti heilags anda er að kafna í ösku útbrunninna kenn- inga og siða. Enginn andlegur leiðtogi hefur haft djörfung og þrek til að moka öskunni burt“. Ekki segir þessi ágæti rithöf- undur þetta af því að hann sé neinn óvinur Krists eða afneit- andi þeirrar lífsskoðunar, sem hann flutti. Hann segir: „Ég er ekki jafnfullviss um nokkurn hlut og það, að lifandi trúarlíf í hreinasta skilningi þess orðs, er hið æðsta hnoss, sem nokkur maður getur öðlazt . . . við höf- um ekkert betra fengið í stað kristninnar". Þetta var því ekki sagt af neinni óvild til kirkjunn- ar, það voru varnarorð vinar, sem til vamms sagði. Meistarinn skírir sína læri- sveina af heilögum anda og eldi. Trúfræðilegir juðarar skrifa rit- smíðar sínar í öskunni, hugsun þeirra leggst eins og þoka yfir sólskinslönd guðsvitundarinnar og þannig umsnúa þeir iðulega fagnaðarerindi drottins í ólundar lega fjarstæðu. En líklegast fyrirgefur guð þeim, því að þeir vita hvað þeir gera. Benjamín Kristjánsson. ur nutu fagurra byggða í veður- blíðu undir leiðsögn kennara sinna og skólastjóra. Framkoma nemenda var í hvívetna til mesta sóma. Barnaprófi luku 127 nemendur og stóðust allir. Ágætiseinkunn hlutu 15 þeirra. Hæstu einkunnir hlutu: Pétur Thorsteinsson 9,44), Þorvaldur Karl Helgason (9,38), og Erna Jónsdóttir (8,32). í 1. bekk gagnfræðastigs hlaut Sólveig Jónsdóttir hæstu eink- unn í skólanum. Ágætiseinkunn hlutu einnig Svandís Sigurðar- dóttir (9,37) og Steinunn Sigurð- ardóttir (9,11). Unglingaprófi lukú 134 nem- endur og 133 stóðust það. Hæstu einkunn hlaut Kristín Hannes- dóttir (9,47). Aðrir, sem hlutu ágætiseinkunn: Baldur P. Haf- stað og Hrafnhildur Ragnarsdótt- ir (9,35), Stefán Friðfinnsson (9,25), Þorlákur Helgi Helgason (9,11) og Birgir Jakobsson (9,00). Landspróf þreyttu 52 'nemend- ur. Prófið stóðust 50 nemendur, þar af hlutu 37 framhaldseink- unn (6,00 eða meira), sem veitir rétt til setu í menntaskóla eða kennaraskóla. Hæstu einkunn hlaut Guðrún J. Zoega (9,04 í landsprófsgreinum). Er það sér- staklegt afrek, þegar þess er gætt að Guðrún er mjög ung, verður 15 ára 8. sept. n.k. Gagnfræðaprófi luku 52 nem- endur og stóðust allir. í almennri bóknámsdeild varð Aðalsteinn Hermannsson hæstur (8,24), en í verzlunardeild hiaut Áslaug Harðardóttir hæstu einkunn Fjórar vasa- bækur eftir Paul Gallico NÝLEGA hefur Penguinútgáfan sent frá sér fjórar bækur eftir Paul Gallico og nefnast þær Jennie, Blóm handa frú Harris, frú Harris fer til New York og Ást á sjö kjörbúðum. Paul Gallico er Bandaríkja- maður af ítölskum og austurrísk- ,um ættum, fæddur í New York árið 1897. Hann stundaði nám við Columbia háskólann og á árun- um 1922 til 1936 vann hann sem blaðamaður íþróttaritstjóri, við dagblaðið Daily News. Þá keypti hann hús uppi á hæð einni í South Devon og settist þar að með hundinn sinn og 23 ketti. Hann varð frægur rithöfundur með bók sinni „The Snow Goose“, sögu um Dunkirk, sem út kom 1941 og varð metsölubök. í stríð- inu starfaði hann sem stríðsfrétta ritari með ameríska hernum. Paul Galico býr nú að nokkru leyti í París og hefur skrifað bækur, sem njóta mikilla vin- sælda. (8,36). Þessir fyrstu gágnfræðing ar skólans heiðruðu skóla sinn með myndarlegri og fagurri gjöf. Gáfu þeir mikla fánastöng og ís- lenzkan fána. Drógu þeir fánann að húni fyrir útan skólann fyrsta sinni, er skólastjóri hafði afhent þeim gagnfræðingaskírteini. Yið uppsögn deilda lýsti skóla- stjórinn, Helgi Þorláksson, skóla- starfi, þakkaði kennurum og nem endum vel og trúlega unnin störf. Margir nemendur hlutu verðlaun fyrir námsafrek, frábæra háttvísi og vel unnin trúnaðarstörf að skóla. og félagsmálum. Samband ísl. samvinnufélaga veitti þrem- ur gagnfræðingum myndarleg bókaverðlaun, en þeir hlutu eink- unnina 10 í bókfærslu. Þessar og aðrar gjafir og hlýhug allan í garð skólans þakkaði skólastjóri. Að lokum mælti hann ýmis árnaðar- og þakkarorð til braut- skráðra nemenda og árnaði þeim öllum fararheilla til meira náms eða annarra starfa. Málflutningsskrifstofa JÓHANN RAGNARSSON Vonarstræti 4. — Sími 19085. héraðsdómslögmaður Benedikt Blöndal héraðsdomslögmaður Austurstræti o. — Sími 10233 ENSKA bridgesambandið hefur nýlega tilkynnt hvernig liðin á Evrópumótinu, sem fram fer í Baden-Baden, verði skipuð. — Kvennaliðið er þannig skipað: P. Gordon, R. Markus, A. Flem- ing, J. Moss, P. Juan og D. Shan- ahn. Fyrirliði verður hinn kunni spilari Harold Franklin. Lið þetta er mjög sterkt og er reiknað með að það endurheimti meistaratitil- inn, sem England missti óvænt á síðasta móti. Sveitin, sem keppir í opna flokknum fyrir England að þessu sinni, er eingöngu skipuð heims- frægum spilurum. Þeir hafa allir tekið þátt í heimsmeistarakeppn- um og samanlagt hafa þeir keppt í 61. skipti á Evrópumótum. Með- alaldur sveitarinnar er óvenju hár eða 52 ár, en þótt þá skorti ef til vill úthald, þá vegur reynsl- an upp á móti og vel það. Sveitin er þannig skipuð: J. Flint, M. Harrison-Gray, K. Konstam, T. Reese, B. Schapiro og J. Tarlo. Fyrirliði sveitarinn- ar er Louis Tarlo. Hér er um að ræða reynda spil- ara, sem yfirleitt geta spilað hvor á móti öðrum og notað þrjú kunn sagnkerfi jöfnum höndum, þ.e. Acol, Cab og Le Petit Majeur. Gera enskir bridgeunnendur sér góðar vonir um, að sveit þessari takist að sigra á þessu Evrópu- móti og þannig fá að taka þátt í næstú heimsmeistarakeppni. Allt bendir til að 18 sveitir muni keppa í opna flokknum á Evrópumótinu í Þýzkalandi og 16 sveitir í kvennaflokknum. Með- limir Bridgesambands Evrópu eru 19 og er því Portúgal ein'a landið, sem ekki sendir sveit til keppni í opna flokknum. Portú- gal, ísland og Pólland senda ekki sveitir til keppni í kvennaflokki. Útboð TilbOð óskast í smíði og uppsetningu skilveggja á 2. hæð í nýbyggingu Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Uppdrátta og lýsinga má vitja í Sparisjóð Hafnar- fjarðar miðvikudaginn 10. júlí 1963 milli kl. 2 og 4 síðdegis, gegn 500 kr. skilatryggingu. Sparisjóður Hafnarfjarðar. Ljósmæðraskóli íslands: Námsárið hefst 1. október næstkomandi. Nemendur skulu ekki vera yngri en 20 ára og ekki eldri en 30 ára. Heilsuhraustir, heilbrigðisástand verður nán- ar athugað í Landsspítalanum. Konur, sem lokið hafa héraðsskólaprófi eða gagnfræðaprófi ganga fyrir öðrum. Eiginhandarumsókn sendist forstöðu- manni skólans í Landsspítalanum fyrir 31. júlí n.k. Umsókninni fylgi aldursvottorð, heilbrigðisvottorð og prófvottorð frá skóla, ef fyrir hendi er. Umsækjendur, sem hafa skuldbundið sig til að gegna ljósmóðurumdæmi að loknu námi, skulu senda vott- orð um það frá viðkomandi oddvita. Landsspítalanum, 5. júlí 1963. Pétur H. J. Jakobssor.. Ath.: Umsækjendur ljósmæðraskólans eru beðnir að skrifa á umsóknina greinilegt heimilisfang, og hver sé næsta símstöð við heimili þeirra. Yfir 1400 nemendur í Vogaskóla sl. vetur HAPPDRÆTTI KÁSKÚLA íslands 7. fl. 1 á 200.000 kr. .. 1 - 100.000 — .. .26 - 10.000 — .. 90 - 5.000 — .. 980 - 1.000 — .. Auka vinningar: .. 200.000 kr. .. 100.000 — .. 260.000 — .. 450.000 — .. 980.000 — Á morgun verður dregið í 7. flokki. 1.100 vinningar að fjárhæð 2.010.000 krónur. / í dag eru seinustu forvöð að endurnýja. 2 á 10.000 kr. .. 1.100 .. 20.000 kr. 2.010.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.