Morgunblaðið - 28.07.1963, Qupperneq 16
16
1U O R C V IV B T. 4 Ð I Ð
StmTradagur 28. júlí 1963
r
Guömundur Frímann
skáld sextugur
Á MORGUN, 29. júlí, er Guð-
mundur Frímann, sextugur. Um
hann og skáldskap hans mætti
skrifa langt mál. Það verður þó
ekki gert hér, heldur verður
þetta stutt afmæliskveðja frá
mér á þessum merku tímamót-
um í lífi hans.
Urigur kvaddi hann sér hljóðs
með ljóðakveri er nefndist:
Náttsólir, útgefið í Reykjavík
1922. Bókin fékk ekki allskost-
ar góða dóma, en í henni eru
þó snotur kvæði, sum að vísu
í grátljóðastíl, en það var tízku-
fyrirbrigði í islenzkum ljóðbók-
menntum fyrir fjörutíu árum.
Önnur fræg grátljóðskáld þeirra
tíma voru m.a. Kristmann Guð-
mundsson, Steindór Sigurðsson
og Sigurður Grímsson.
Eftir útkomu Náttsóla tók Guð
mundur Frímann þann kost að
láta ekkert frá sér fara í áratug.
Skáldið var í deiglu. En árið 1933
kom út í Reykjavík ljóðabókin:
Úlfablóð, undir dulnefninu Álf-
ur frá Klettstíu. Fróðir menn
vissu þó að höfundurinn var
Guðmundur Frimann. í þeirri
bók eru kvæði ágæt, en hún
mun þó ekki hafa vakið veru-
lega athygli, enda áhugi fyrir
ljóðlist þverrandi með þjóðinni,
þótt síðar keyrði þó um þverbak
í þeim efnum.
Árið 1937 verður að teljast
merkilegt bókmenntaár, því að þá
kom út Ijóðabókin Störin syngur
eftir Guðmund Frímann, Hún er
bæði að efni og frágangi lista-
verk. Einhverjir kunna að hugsa
sem svo, að litlu skipti hvernig
bækur séu gefnar út, ef inni-
haldið er gott. En það er mesti
misskilningur. Fer því bezt á að
hvað hæfi öðru. Störin syngur
var útgefin á Akureyri en þar
eru heimkynni höfundar. Bókin
er skreytt pennateikningum við
upphaf kvæðanna, og eru þær
teikningar eftir skáldið sjálft, en
Guðmundur Frimann er maður
listfengur mjög og var m.a. við
nám einn vetur hjá Einari Jóns-
syni, myndhöggvara, en það er
önnur saga.
Störin syngur markar tímamót
í íslenzkum skáldskap bundins
máls. í henni er nýr og ferskur
tónn. Með henni kom nýtt blóð
inn í ljóðbókmenntir vorar
Þó mun henni hafa verið tekið
heldur dauflega, og aldrei hefur
skáldið Guðmundur Frímann
hlotið þá viðurkenningu er hon-
um ber með réttu sem einn
fremsti Ijóðsnillingur vorra tima.
Laun heimsins eru söm við sig.
Ennþá stendur fyrir hugarsjón-
um mínum, ívafið sólgliti minn-
inganna, sá mikli bókmenntavið-
burður er Störin syngur kom út.
Ég var tæplega tvítugur, og
drakk í mig hvert kvæði bókar-
innar eins og þyrstur maður
svaladrykk. Það var mikil andleg
nautn. Ég var í sjöunda himni.
Hér var nýtt skáld af Guðs náð.
Slíkt var ekki daglegur viðburð-
ur í fábreytni íslenzkrar bókaút-
gáfu á árunum fyrir 1940 (og
raunar ekki síðan heldur). Og
þótt Guðmundur Frímann hafi
ort og gefið út fleiri en eina ljóða
bók eftir útkomu þeirrar bókar,
er um ræðir, og margt hefur
hann gert vel síðar og sumt með
ágætum, þá hefur hann samt
aldrei farið fram úr því bezta í
Störin syngur, enda ekki auðgert.
CARIO-sófasettið er með springi í baki og lausum svamppúðum í sæti. —
Á CARIO-sófasettið má velja: belgísk, þýzk, dönsk og íslenzk áklæði.
deildin tekur í umboðssölu notuð húsgögn, ef þér skiptið, og fáið ný í Skeifunni.
Skeifan annast þannig um allt. Selur yður ný húsgögn á góðum skilmálum og
annast fyrir yður sölu hinna gömlu. Ef yður vantar notuð húsgögn eða staka
muni þá komið í B-DEILDINA í KJÖRGARÐI.
B
SKEIFAN - KJOROARÐ! - SÍM1 16975
heitir þetta nýja og glæsilega sófasett
Af þeirri bók er hvert skáld full-
sæmt, en nóg um það.
Hér hefur í stuttu máli verið
rætt um skáldið Guðmund Frí-
mann, víkjum þá ögn að mannin-
um. Ekki setur skáldid niður við
þau kynni (Slíkt er þó ekki óal-
gengt). Til gamans skal ég segja
hér eina litla sögu sem lýsir
manninum vel. Er ég var eina
sinni sem oftar staddur á Akur-
eyri fyrir nokkrum árum, og gisti
hjá bókaútgefanda, góðum kunn-
ingja mínum, var ég vakinn einn
morgun og sagt að Guðmundur
Frímann vildi tala við mig. Er-
indið var að bjóða mér að keyra
mig í bíl sínum fram að Grund
í Eyjafirði og sýna mér staðinn,
en þangað hafði ég ekki komið
og stóð löngun mín til þess. Þetta
vissi Frímann. í stuttu máli: Ferð
in að Grund, viðstaðan þar og
heimferðin var ein sólskinsstund,
er ég geymi í sjóði minninganna.
Þannig er Guðmundur Frímann.
Heimili Guðmundar Frímanna
er mikið menningarheimili. Þar
er annað stærsta og merkasta
einkabókasafn norðanlands, og
eru bækurnar flestar innbundnar
í „privat“-band af Frímanni sjálf
um, enda er hann meistari í bók-
bandsiðn og kennari sem slíkur
við Iðnskóla Akureyrar, þar sem
bróðir hans Jóhann Frímann
(sem einnig er skáld) er skóla-
stjóri.
Kona Guðmundar Frímanns er
Ragna Jónasdóttir skipstjóra á
Akureyri, Hallgrímssonar, og
eiga þau fallegar dætur. Þangað
vildi ég gjarnan vera kominn, en
verð að láta mér nægja að senda
þeim kveðju úr fjarlægð með ósk
um gæfu og gengi, hér eftir sem
hingað til.
Lifið öll heil!
Reykjavík, 28. júlí 1963.
Stefán Rafn.
aS aug'vsmg ) stærsta
og úthreiddasta blaðinu
borgar sig bezt.
JBorgtwÞIftMft
Peningalán
Útvega peningalán:
Til nýbygginga.
— endurbóta á íbúðum.
— íbúðarkaupa.
Uppl. kl. 11-12 f.h. og 8-9 e.h.
Margeir J. Magnússon.
Miðstræti 3 A.
Sími 15385 og 22714.
Schannongs minnisvarðar
Biðjið um ókeypis verðskrá.
0. Farimagsgade 42,
Kþbenhavn 0. ^
V .• i