Morgunblaðið - 28.07.1963, Qupperneq 22
22
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 28. júlx 1863
Vandamál konunnar:
Þær SVÖRTU slétía hárið
Þær HVÍTU krulla það
Svona hafa flestar stúlkur og
allar telpur hárið hvers-
dagsiega.
ALLAR KONUR vilja hafa
fallega hárgfeiðslu og hafa
með tímanum verið fundin
upp alls kyns vélabrögð til að
ná því mai-kmiði. En hvað er
falleg hárgreiðsla? Það virðist
vera að fá hárið til að liggja
öðruvísi en það er af guði
gert. Að þeirri niðurstöðun
komst ég, þegar ég sl. vetur
sat í fyrsta skipti í hár-
greiðslustofu einni í Federal
Palace Hotel í Nigeríu í
Afríku. Þarna sátum við hlið
við hlið, hvítar og svartar,
þær hvítu kepptust við að fá
hárið til að krullast og rísa,
en þær svörtu reyndu með öll
um ráðum að slétta úr sínu
hári.
Hárgreiðslumaðurinn, Edd-
ie Michell, sagði mér að það
væri helmingi erfiðara að
slétta hár svertingjanna en að
greiða hvítum konum svo vel
færi, a.m.k. vildi helzt engin
af hárgreiðslukonunum hans
greiða kynsystrum sínum, ef
þær gætu komizt hjá því. Það
væri svo mikil vinna. Aðferð
in er í stuttu máli þessi:
Fyrst er borin feiti í hrokk
ið hárið, til að vernda það og
síðan er það sléttað með heitu
knxllujárni, lokkur eftir lokk.
Krullujárnið hefur nokkurs
konar greiðu og spaða, en er
ekki vafið upp á það, eins og
krullujárnin okkar í gamla
daga. Eftir þá meðferð stend
ur hárið strítt út í loftið, og
hægt að setja í það stórar
rúllur og greiða það líkt og
hár hvítra kvenna. Hárið er
mjög stíft og óþarfi að „túb-
bera“ það. Þegar hárlagningin
fer að fara úr, verða lokkarn
ir ekki sléttir, i^eldur hrokkn
Slétt hár er draumur allra
svartra kvenna. Um leið og lít
ið stúlkubarn fæðist með
nokkra svarta hártoppa,
hrokkna ofan í hársvörðinn,
byrjar móðirin að hafa af
þessu áhyggjur. Strax og nokk
ur tök eru á, fer hún að vefja
hárið upp í smá vöndla og
binda það með svörtum
tvinna. Og þannig eru allar
litlar telpur um höfuðið og
fullorðnar stúlkur reyndar
líka. Þær hafa hárið þannig
upp snúið hversdagslega, til
að reyna að hafa það sem slétt
ast þegar mikið liggur við.
Það er mikil fyrirhöfn að
greiða sér og þarf helzt hjálp
til þess, enda þarf ekki að
vefja það upp á hverjum degi,
Hárinu er skipt í ferninga eða
rendur, hver kafli vafinn upp
og sívafinn svörtum tvinna,
Standa hároddarnir þá í allar
áttir. Aðrar flétta lokkana í
örfínar rennur við hársvörð-
inn, til að reyna að hafa teygt
á hárinu. Slétt strítt hár er
þeirra takmark, og mikið er
fyrir því haft að fá það.
Á meðan ganga íslenzkar
stúlkur með rúllur og pinna
í hárinu, jafnvel á almanna-
færi, til að hafa það ekki slétt
og hangandi þegar míkið ligg-
ur við. — E. Pá.
ír.
Fyrst er hárið sléttað með heitu járni og síðan strítt hárið vafið upp. Þá gctur hárgreiðslu-
maðurinn, Eddie Mitchell, greitt það líkt hárinu á hvítum konum.
Gamli Landakotsspítalinn
stendur fram á haust
ENN dregst nokkuð að rífa
gamla Landakotsspítalahúsið, þar
að tafir hafa orðið á að ljúka í
nýrri byggingunum rannsóknar-
stofum, sem flytja átti í úr gamla
spítalanum og lagfæra ýmislegt,
að því er blaðið fékk upplýst hjá
dr. Bjarna Jónssyni yfirlækni í
gær.
Áformað hafði verið að rífa
gamla spítalahúsið 1. ágúst.
Nokkuð er síðan séð varð fyrir
að sú áættun gæti ekki staðizt
c kvaðst dr. Bjarni efast um að
hægt yrði að byrja 1. september.
Gamla spítalahúsið á að hverfa
og þar á að byggja litla skrif-
stofubyggingu, sem tengir sam-
an nýrri húsin. Á þar að vera
anddyri, skrifstofa, móttaka fyrir
sjúkrahúsið, fatageymsla og þess
háttar. Hafði verið gert ráð fyrir
að slá upp fyrir þessu húsi í
haust og steypa það í vetur.
Róm 25. júlí
AÐ MINNSTA kosti einn maður
lézt og margar byggingar
skemmdust í jarðskjálftum, sem
í morgun urðu ca 100 km. NA
af Róm. Fórnarlambið var vist-
maður á elliheimili sem kastaði
sér í ofsahræðslu út um glugga,
og lézt af meiðslum nokkru síðar.
I þorpinu Amatrice og nágrenni
bjóst fólk til þess að sofa undir
berum himni þriðju nóttina í
röð, en jarðskjálftahræringar
hafa verið þar sl. tvo sólarhringa
Vinyl grunnmálning er algjör nýjunf.
Vínyl grunnmólníng sporar yður erfiði
tíma og fyrirhöfn.
Vínyf grunnmólning f>ornor 6 V3.-V/2 kfst.
Vinyf grunnmófning or wtfuff sem grunn-
mólning úti og inni á tré, járn og stoin.
Yfir Vinyf grunnmáfninguno má máfa meS
•llum algengum málningartegundunw