Morgunblaðið - 26.09.1963, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.09.1963, Qupperneq 1
24 síðui* Skýrsla Dennings lávarðar um Profumó málið: Öryggi Bretlands ekki hætt Ber blak af leyniþjónustínni Sagt, að siðspilling hafi ekki aukizt meðal brezkra ráðamanna London, 26. september — AP-NTB •Jt Hálfri stundu eftir miönætti í nótt var birt skýrsla Dennings. lávarðar, um mál Profumo, fyrrverandi hermála- radherra Bretlands, og ungfrú Christine Keeler, sem valdið hefur svo miklum úlfaþyt og æsingi í Bretlandi og víðar. I fckýrslunni staðhæfir lávarðurinn, að orðrómurinn um að Profumo hafi látið af hendi leyndarmál, er varða öryggi brezku þjóðarinnar, eigi Við engin rök að styðjast, og telur ekki, að spilling hafi aukizt meðal opinberra embættismanna í æðstu stöðum. ■Jr I.ávarðurinn sýknar brezku leyniþjónustuna af á- kærum um að hafa sýnt vanrækslu með því að koma ekki í veg íjrir áframhaldandi samband hermálaráðherrans og ungfrú Keeler, og segir enga stofnun þarlenda hafa heimild tii að stjórna hegðun ráðherra. „Er það víst og bezt“, segir í skýrslunni, „meðan ekki er lögregluríki í Bretlandi“. •Jr Denning lávarður hef- ( aðrir áhrifamenn hafi komið ur átt samtöl við meira en 150 manns, þar á meðal Mac- millan, forsætisráðherra, og allmargar vændiskonur. — Hann gerir ekki tilraun til þess að hreinsa ráðherra brezku stjórnarinnar af þeim orðrómi, að þeir hafi haft mök við vændiskonur eða tek ið þátt í ýmis konar kynferðis svalli. Segir í skýrslunni, að niðurlægjandi og siðspillandi svallveizlur hafi verið haldn- ar, en ekki hafi fundizt sönn- ur fyrir því, að ráðherrar eða þar nærri. . Lávarðurinn segir það hafa sannazt, að nokkrar mann- eskjur hafi haldið veizlur, þar sem átt hafi sér stað allskyns kynferðissvall og kynvilla. Vitað sé um dæmi þess, að maður nokk ur hafi borið fram málsverð, klæddur svartri grímu einni fata, og ofurlítilli dulu um sig miðjan. Segir lávarðurinn, að sér hafi skilizt á þátttakendum í sam- kvæminu, að hér hafi verið um gamanmál að ræða, maðurinn hafi leikið „þræl“, og verið bar- inn milli þess, sem gestir skemmtu sér við kynmök. — Lávarðurinn kveðst hafa fengið upp nafn þessa manns, og rætt^ við hann. Því fari fjarri, að þetta sé brezkur ráðherra, er bendl- aður hafi verið við slíka hegðun. Segir lávarðurinn manninn skammast sín mjög fyrir atferli sitt. Þá segir hann ennfremur, að læknirinn Ward, sem nú er lát- inn, hafi óefað verið viðstaddur nokkur slík samkvæmi, og ung- frúrnar Christine Keeler og Mandy Rice-Davies, að minnsta kosti einu sinni. ■yt Lávarðurinn drepur einnig í skýrslunni á „hauslausa mann- inn á myndinni“, sem hefur verið ein hneykslissagan enn, og komst á kreik í skilnaðarmáli hertoga- hjónanna af Argyll. Hafði her- toginn í fórum sér mynd af manni í lítt sæmandi ástandi, en höfuðið vantaði. Var sagt, að þar væri kominn brezkur ráðherra, og hefði sá greitt hertoganum Framh. á bls. 23 MEÐFYLGJANDI mynd lýsir betur en nokkur orð þeirri sorg, er ríkir meðal blökku- manna í Birmingham eftir lát blökkustúlknanna f jögurra, sem fórust, er sprengju var varpað að sunnudagaskóla í borginni. Þessi villimannlega aðferð andstæðinga blökku- manna hefur vakið viðbjóð um gervöll Bandaríkin og minnstu munaði að til blóð- Vissi enginn? FYRIRLESARA brezka út varpsins sagðist svo frá í nótt, eftir að Denning- skýrslari var birt, að lávarð urinn hefði komizt að raun um, að Profumo-málið heyrði ekki undir forsætis- ráðherra heldur fyrst og fremst innanríkisráðherra. Öll meðferð málsins benti hinsvegar til þess að hvorki ráðherrum, stjórn- arandstöðunni né almenn- ingi hefði verið þetta ljóst — m.a. hafi Brooke innan- ríkisráðherra alls ekki ver- ið viðstaddur, þegar stjórn in fjallaði fyrst um mál Profumos. ugra óeirða kæmi í Birming- ham. Síðan hafa orðið margar sprengingar í borginni, en eng inn valdið mönnum skaða. — Síðast í fyrrinótt sprungu tvær sprengjur, sem varpað var úr bifreið á hraðri ferð — með þeim afleiðingum að tvær íbúðir löskuðust og rúð- ur brotnuðu í nærliggjandi húsum. > Sölumennirnir umdeiidu fóru eins að í Bretlandi og irlandi SVO sem kunnugt er hafa orðið miklar umræður í blöð- um borgarinnar um sölumenn- ina frá bandaríska blaðsölu- fyrirtækinu Hi Fidelity Circulation Guild. Bárust blöð unum kvartanir um, að hér væru á ferðinni menn, er svikju út áskriftir á erlend tímarit, tækju greiðslu fyrir- fram, en settu enga tryggingu fyrir því, að greidd tímarit kæmust í hendur kaupenda. Morgunblaðið hefur fengið sendar úrklippur úr brezka blaðinu The Observer — frá 21. og 28 apríl sl., þar sem segir frá dvöl þessara manna í Bretlandi og Irlandi og er augljóst af skrifum blaðsins, að framkoma þeirra hefur verið þar með sama hætti og hér. Þar segir m. a. að út- gefandi timaritanna „Queen“ og „Go“ hafi 28. febrúar sl„ neitað fyrirtækinu um leyfi ttl þess að selja þessi rit þar sem honum féll ekki aðferð sú, er þeir beittu við sófnun áskrifenda. Það var 20. apríl, sem mað- ur nokkur í Lancashire skrif- aði „The Observer“, að hann hefði í júlí í fyrra (1962) orð- ið bráð tveggja ungra og elskulagra sölumanna, er töldu hann á að gerast áskrif- anda að bandarísku tímariti. Hann greiddi áskriftargjaldið, 14 £ 14s. 5d., ’fyrirfram, en þegar hann skrifaði blaðinu hafði hann ekki séð tangur eða tetur af því tímariti. Kvaðst hann aðeins einn af mörgum í sinni sveit, er hefðu þessa sögu að segja. 28. apríl skrifaði blaðið svo ýtarlega grein um mál sölu- manna Hi Fidelity Circulation Guild og fleiri fyrirtækja er beittu líkri aðferð og virtist nokkuð samband á milli þeirra allra. Þá segir blaðið að því hafi borizt mikill fjöldi kvartana frá fólki, er greitt hafi áskriftargjöld fyrir fram, en engin tímaritin eða hlöðin séð. Blaðið sagði, að bandaríska sendiráðinu í London hefði einnig borizt kvartanir, en talsmaður þess sagt, að málið væri ekki innan þess verkahrings. — Ennfremur sagði blaðið eftir talsmanni brezku leynilögreglunnar, að hún hefði gert fyrirspurnir um fyrirtækið og ekkert það komið í ljós, er réttlætti frek- ari aðgerðir í málinu af henn- ar hálfu. „The Observer“ sagði, að fyrirtækið Hi Fidelity Circul- ation Guild Inc, hefði aðal- skrifstofur í 331 Washington Street, Newmarket, New Jers- ey. Það hefði hafið starfsemi sína í Dublin, snemma ársins 1961, með þvi að opna skrif- Framh. á bls. 23 Bylting í Dominikanska lýiveldinu USA slitur stjórnmálasambandi Santo Domingo, 25. sept. (NTB) ■Jr Stjórnarbylting var í dag gerð í Dominikanska lýð- veldinu. Forseta landsins, Juan Bosch, og stjórn hans, var vikið frá völdum, en fyr- ir aðgerðum þessum standa yfirmenn hersins. Allt virðist með kyrr- um kjörum í landinu, forset- inn er kominn til Puerto Rico, að því er síðustu fregnir herma, en allmargir ráðherra hans eru í haldi í Santo Dom- ingo. Flugvöllurinn utan við borgina er lokaður, ströng rit skoðun er á fréttum og eftirlit með fjarskiptum. Vopnuð ör- yggislögregla er á verði við helztu staði í borginni og riddaralið gætir háskólans. ■Jr Bandaríkjastjórn hef- ur tilkynnt, að hún hafi slitið stjórnmálasambandi við Dom inikanska lýðveldið. f yfirlýsingu, sem liðsforingj- ar þeir, er að byltingunni standa, sendu frá sér í kvöld, segir, a3 Juan Bosch forseti og stjórn hanj hafi dregið þjóðina inn í alþjóða- deilur og skipað svo málum, að kommúnistar hafi átt auðveldan leik framundau. í yfirlýsingunni er kommúnista-flokkur landsins- ins lýstur í bann, stjórnarskráin numin úr gildi og þingið leyst upp. Tekin er upp að nýju sii stjórnarskrá, er gilti árið 1961 og sagt, að borgaraleg stjórn verði sett á laggirnar þegar er unnt sé. Undir yfirlýsinguna skrifa yfirmenn landhers, flughers og flota, nokkrir hershöfðingjar og yfirmaður lögreglu landsins. Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.