Morgunblaðið - 26.09.1963, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.09.1963, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 2G. sept. 1963 MORGUNBLAÐID 13 33 íslenzkir kennarar komnir úr Danmerkurför Rœtt við Tryggva Þorsteinsson, fararstjóra 33 ÍSLENZKIR kennarar eru nýkomnir heim eftir mánað- ardvöl í Danmörku, þar sem þeir voru í boði Norræna fé- lagsins og dönsku kennara- samtakanna. Fararstjóri var Tryggvi Þorsteinsson, yfir- kennari á Akureyri. Mbl. átti fyrir skemmstu samtal við hann um ferðalagið, og fer frásögn hans hér á eftir: — Þetta ferðalag var eiginlega liður í kennaraskiptum milli Is- lands og Danmerkur, sem hófust árið 1951 að tilstuðlan þáverandi sendiherra Dana í Reykjavík, frú Bodil Begtrup, og Helga Elías- sonar, fræðslumálastjóra. Alls hafa danskir og íslenzkir kenn- arar sótt hvorir aðra heim 10 sinnum, og hafa 80 íslenzkir far- ið til Danmerkur, en 40 danskir heimsótt ísland á þessu tímabili. — AðJjessu sinni var upphaf- lega ráðgert, að 20 kennarar færu, en umsóknir urðu um 70 og niðurstaðan varð sú, að 33 fóru. 27 þeirra voru úr Reykjavík og nágrenni, en 6 annars staðar að af landinu. Þetta voru bæði kennarar við gagnfræðastigs- skóla og barnaskóla. Norræna fé- lagið og kennarasamtökin dönsku og íslenzku önnuðust undirbúning fararinnar. Þátttak- endur þurftu aðeins að greiða fargjaldið, en dvölin f Danmörku var þeim algjörlega kostnaðar- laus, og stóðu danskir aðilar straum af henni. Ráðgert er, að danskir kennarar komi hingað næst sumarið 1965, en þá er fyr- irhugað norrænt kennaramót hér á landi. — Við héldum frá Reykjavík í tveimur hópum hinn 2. ágúst, annar með Dronning Alexand- rine, en hinn með Heklu, og flest- ir komu svo heim með Gullfossi hinn 5. september. — í fyrri ferðum hafa íslenzku kennararnir búið á heimilum danskra starfsbræðra, en í þetta skipti hélt íslenzki hópurinn sam an allan tímann, meðan dvalizt var í Danmörku. — Frá 8.—11. ágúst vorum við í Kaupmannahöfn, og þá daga buðu ýmsir borgarhlutar okkur í heimsókn sinn daginn hver, þannig að allir þessir dagar voru til þess ætlaðir frá morgni til kvölds. Aðallega skoðuðum við skóla og ýmsar stofnanir þeim tengdar, t.a.m. sálfræðilegar rannsóknarstöðvar. Allt starf þar var skýrt vandlega með greinar- góðum erindum. Auk þess var komið í ýmsa sumardvalastaði fyrir nemendur, sem skólarnir eiga í nágrenni borgarinnar. — Hinn 11. ágúst var farið til Sönderborg á Jótlandi og verið þar í íþróttaskóla, sem er með lýðháskóíasniði, í hálfan mánuð. Þar voru um 200 manns í sum- ardvöþ og voru allir gestirnir danskir nema við. Þetta var fólk á ýmsum aldri og úr ýmsum starfsgreinum — ekki sérstak- lega kennarar — sem þarna voru sér til hvíldar og, hressingar og Tryggvi Þorsteinsson gat notið fræðslu um leið. Þarna voru flutt þrjú erindi á dag um ýmis efni, en einkum um sögu Danmerkur, listir, bók- menntir og menningarsögu. Þar að auki voru handavinnunám- skeið af ýmsu tagi. Gestir gátu tekið þátt í samtalsnámskeiðum um listir, bókmenntir og sögu, þ.á.m. um sögu íslands og ís- lenzkar fornbókmenntir. Þá kennslu hafði á hendi Jón Þor- steinsson, ættaður frá Dalvík, sem verið hefur erlendis frá 1936 og er nú kennari við þennan skóla. — Annan hvern dag var farið í ferðalög til ýmissa ná- lægra staða, sem vert þótti að skoða, ýmist vegna sögulegrar helgi eða minja eða þá einhverra stofnana eða framkvæmda. Þess- ar ferðir voru mjög vel undir- búnar, flutt erindi um leiðirnar og staðinn, sem heimsóttir voru, og oftast sýndar kvikmyndir eða skuggamyndir þaðan, áður en far ið var af stað. — Margt var gert til að gera dvölina skemmtilega. Tvö kvöld lék Symfóníuhljómsveit Suður- Jótlands fyrir okkur í einhverj- um bezta hljómleikasal, sem til er í Danmörku. Hljómsveitin er nýstofnuð, og var þetta í fyrsta skipti, sem hún lék opinberlega. Þar að auki var flutt stofutón- list og sitthvað fleira til skemmt- unar haft. Eitt kvöld var^ alger- lega helgað kynningu á íslandi, og sáum við um þá dagskrá. —Frá Sönderborg fórum við svo 24. ágúst og vorum einn dag í Hindsgavl á Fjóni, en héldum síðan til Kaupmannahafnar aft- ur. Þá voru skólar teknir til starfa af fullum krafti, og dög- unum, sem þá voru eftir, var aðal lega eytt í skólum borgarinnar. — Við sáum og heyrðum nátt- úrulega margt athyglisvert, m.a. komum við í mörg nýtízkuleg skólahús og kynntumst danskri fræðslulöggjöf, sem er mjög merk. En einna athyglisverðast fannst okkur flestum sálgæzlu- starfið í skólunum. Árið 1925 var farið að veita sálfræðilegar leið- beiningar í skólum, og þekktist það þá óvíða eða hvergi í heim- inum. Þær annast sérstök leið- beiningastofnun, Skolepsykolog- isk kontor, en við hana starfa 18 sálfræðingar, sem verða að hafa minnst 5 ára kennara- reynslu auk sálfræðimenntunar sinnar, og hefur hver sitt svæði að annast um. Auk þeirra starfa svo margir eftirlits- og aðstoðar- menn, sem hafa skemmra nám að baki. Enn fremur vinna nokkrir almennir læknar við stofnunina, því að hún hefur, auk sálgæzlunnar, eftirlit bæði með heyrnardaufum og sjóndöprum börnum. Ríkið greiðir allaii reksturskostnað. Hvaða skóli sem er getur leitað til stofnunarinnar og óskað rannsóknar og aðstoðar við einstaka nemendur, sem af- brigðilegir þykja. Algengast er, að þar sé um þá að ræða, sem geta ekki fylgt jafnöldrum sín- um eftir í námi og hafa þá að jafnaði greindarvísitöluna 75—• 90, en líka nemendur með hátt- ernis-, skapgerðar- eða líkams- annmarka. Auk skólanna geta sjúkrahús, barnaverndarnefndir og foreldrar óskað eftir aðstoð stofnunarinnar. — Þegar skóli vill láta rannsaka nemanda, en foreldrar hans eru tregir til eða vilja það alls ekki, er sá háttur á hafður stundum, að málinu er skotið til barnaverndarnefndar, sem fær þá í hverju einstöku til- felli foreldravald yfir barninu samkvæmt dómi, svo að rann- sóknin geti farið fram. Þá er hægt að koma barninu fyrir til skammrar dvalar í upptökuheim- ili, meðan á rannsókn stendur. — Við komum í einn skóla, þar sem voru 320 börn, öll eitthvað afbrigðileg, þó að maður sæi það ekki, þegar litið var fljótlega yfir hópinn. Þarna starfa 33 kennarar auk annars starfsliðs. Af öllu þessu má sjá, að Danir eru ekk- ert að horfa í peninginn, þegar um það er að ræða að bjarga ungmennum frá að verða sér til ógæfu og þjóðfélaginu til vand- ræða. — Ég vil svo að lokum mega koma á framfæri þakklæti okkar til Norræna félagsins í Dan- mörku og kennarasamtakanna þar fyrir að skipuleggja dvöl okk ar og stuðla að því, að förin var farin, en hún varð okkur öllum bæði lærdómsrík og ánægjuleg í alla staði. — Sv. P. SR GISLI BRYNJOLFSSON: ; BU ER LANDSTOLPI !: - I I SKYLT er að helga Guð- mundi Jósafatssyni þennan þátt. Svo mjög gerir hann sér tíðrætt um afkomu bænd- anna þriggja sem ég sagði frá í Mbl. 24. ág. G.J. byrjar grein sína í Tímanum 7. sept. með því að prenta eftir mig ummæli um viðsjárlega meðferð á tölum. Síðar í grein sinni sannar hann átakanlega að þau ummæli mín eru sönn. Hann leitar sér upplýsinga um innkaupsverð á traktor- um í aprílmánuði og ágúst og hyggst sanna að 1. bóndi í grein minni hafi farið með staðlausa stafi. En það getur þó hver maður sagt sér sjálf- ur, að ekki hefur nokkur bóndi gagn af dráttarvél, sem stendur strípuð á hafn- arbakka í Reykjavík. Til þess að hún komi honum að gagni þarf að leggja fram meira' fé en rétt og slétt innkaups- verð vélarinnar án þess að kaupa með henni svo mikið sem sláttuvél. Samanburður- inn, sem bóndinn gerði var annars vegar: þær upplýs- ingar sem hann fékk um verð vélarinnar þegar hann gerði pöntunina (sbr. „mér var sagt hún mundi kosta“) hins veg- ar það sem hún raunveru- lega kostaði til hans komin, tilbúin til notkunar. Allur sá talnagrúi sem G.J. tilfærir, afsannar á engan hátt þá grein, sem bóndinn gerði fyr- ir vélakaupum sínum. G.J. gerir mikið úr því hvað erfiðara sé fyrir bændur að kaupa dráttarvél nú saman- borið við það sem var 1957. En hvað segir reynslan sjálf um þetta? Arið 1957 voru fluttar inn tæplega 400 trakt- orar. í ár er talið að inn- flutningurinn nemi næstum 700. Aukningin er ca. 75%. Þessi staðreynd talar skýrara máli um getu bænda til að afla sér dráttarvéla heldur en „mjólkur mál“ G.J. þótt hann skreyti það mörgum tölum. Þá komum við að öðrum bóndanum, þeim sem byggði fjósið — treysti sér ekki til þess fyrr en hann fékk við- reisnarlánið. Fyrst er bezt að leiðrétta smávegis misskiln- ing, sem stafar af ónákvæmni í orðalagi. Að „taka saman" notaði ég í merkingunni að „leggja saman", enda er það ekki óalgengt hér. Bygging fjóssins stóð yfir á annað ár. Allan þann tíma var bónd- inn að taka efnið út smám saman í verzlun sinni og það var skrifað á margar nótur með annarri úttekt. Þegar hann fékk lánið var hann ekki búinn að „taka það allt saman“ eins og hann orðaði það, enda þótt fjósið væri „komið upp“. — Enda þótt G.J. sleppi úr orði (,,saman“) þegar hann hefur eftir mér setningu og feitletrar hana, tel ég víst að hann hafi misskilið þetta á heiðarlegan hátt en sé ekki að snúa út úr eins og sumir munu eflaust ætla. — Ekki sízt þegar þeir lesa framhald greinar hans. Þar kemur G.J. með hinar furðulegustu bolla leggingar um mat bóndans á hjálp nágrannanna við fjós- bygginguna. Segir, að þar sannist að „ekkert fyrnist fljótar en velgjörðir“. „Hjálp nágrannanna er ekki til þess að telja hana,“ o.s.frv. Ég get ekki að því gert — og tekur mig þó sárt að segja það —að mér finnst þetta ó- heiðarlegur — að ég ekki segi skammarlegur málflutningur. Og með öllu er hann ósam- boðinn því málefni, sem um er rætt, og að G.J. skuli grípa til slíkrar túlkunar á máli mínu sýnir vel hve hæpinn hann telur málstað sinn. Athugum þetta lítið eitt nánar. Kostnaðinn við bygging- una telur bóndinn fram í þrennu lagi. 1. Efniskaup. Alla liði þeirra hefur hann ekki enn „tekið saman“ (lagt saman), svo að hann veit ekki upp- hæðina nákvæmlega, en hann gerir ráð fyrir að lánið, sem hann þegar hefur fengið úr Stofnlánadeildinni nægi til að greiða hana og kannske vel það. 2. Fagvinna, — smíði og raflögn til að ljúka greiðslu á því þurfti bóndinn að fá smávegis lán til viðbótar eig- in fé. 3. Önnur vinna (,,hitt“). Þá vinnu gat bóndinn sjálfur lagt fram með skylduliði sínu þrátt fyrir miklar annir. Auk þess fékk hann hjálp ná- grannanna við' steypuvinnuna o. fl. — þessa aðstoð telur hann síðast — en ekki sízt — m.a til að leggja áherzlu á hve hún notast vel og er hon um kærkomin. —. Þessa vinnu þarf bóndinn . ekki að borga nema í sama eftir því, sem hann getur þeg- hans til að greiða þau lán. ar nágrannar hans eru að Þyggja- En hún er jafnverð- mæt fyrir því og kemur vit- anlega fram í verði bygging- arinnar þegar hún er virt af þar til skipuðum matsmönn- um. Hins vegar kemur G.J. með þessa fjarstæðukenndu fullyrðingu: „Bóndinn lýsir því yfir að þetta „hitt “ sé ekki til að gera sér rellu út af. Það sé með öðrum orð- um svo lítils virði að það sé ekki teljandi hvað þá met- andi til verðs.“ Ég skil ekki hvað G.J. meinar með þessu? Á bónd- inn kannski að telja þessa hjálp nágrannarfna sérstak- lega fram til skatts? Láta meta hana út fyrir sig? Fá út á hana sérstakt lán? Þá er komið að þriðja bónd anum. G.J. telur sjálfsagt að hann hafi undirbúið stækkun búsins og framleiðsluaukn- ingu með framkvæmdum — (byggingum og ræktun) á dögum „ódýru lánanna“ fyr- ir daga viðreisnarstjórnar- innar. Ekki er því nú svo farið með þennan bónda, sem hér er um að ræða. Hjá hon- um er orðið of þröngt um skepnurnar — bæði í fjósi og. fjárhúsum, eins og hjá mörg- um, sem eru að stækka bú- in. Hins vegar vex töðufeng- urinn með ári hverju, því að hann ræktar alltaf eitthvað smávegis í sambandi við mat- jurta og grænfóðurrækt, eins og allir bændur ættu að gera. Það er rétt hjá G.J., að hann er hagsýnn atorkumaður en batnandi hagur hans bygg ist ekki að neinu „verulegu leyti á því sem áður var innt af höndum.“ — En það er annað, sem G.J. sannar með tilvitnunum sín- um í lántökur bóndans á Hann sannar hve ólík er aðstaða þeirra bænda, sem búnir voru að byggja áður en lánasjóðimir tæmdust og grípa varð til þeirra viðreisn arráðstafana sem koma lána- málum bænda á réttan kjöl — og hinna, sem þá áttu eft- ir að koma fyrir sig fótun- um. — Samt berst G.J. eftir mætti gegn því, sem gert er til að jafna þennan aðstöðu- mun með framlagi bænda til stofnlánadeildarinnar. Gæti það ekki kallast að vera van- skyggn á mál samtíðar sinn- ar? — G.J. gerir lítið úr því þótt bóndinn hafi ekki fengið grundvallarverð fyrir afurðir sínar. Telur það hafi munað svo litlu. Nokkuð vár það misjafnt eftir mjólkurbú- um og sláturstöðum og átti sér ýmsar orsakir, sem of langt er að rekja hér. Svo var það líka ólíkt eftir því hvaða búgrein er tekin og við hvaða ár er miðað. Ár 1957 vantaði t.d. 6 aura á hvern mjólkurlítra. Ár 1958 vantaði 15 aura á hvern mjólkurlítra. —■ 1961 62 gaf meðalkúabúið hins vegar 300 kr. fram yfir grund vallarverð. — Og svo gerður sé samanburður milli stétta Mundi nokkur launþegi gera sig ánægðan með að fá að- eins hluta af kaupi sínu eða launum? ★ Um svör G.J. við mínum „pínulitla eftirmála" get ég verið fáorður enda eru þau ekki nema lítill hluti af hans löngu grein. G.J. telur stofnlánadeildina gott mál „og, í eðli sínu drjúga bót frá fyrra skipu- lagi.“ Má þakka honum þessa viðurkenningu á starfi núv. -landbún.ráðh. í þessu máli. ■ árunum 1948-57 og aðstöðu Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.