Morgunblaðið - 26.09.1963, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
' Fimmtudagur 26. sept. 196i
Rllviðri á ^Jorðurlandi
og Vestfjörðum
gangnamenn
80 kindur
hrakningum, sjóhús
sjó á Rauðasandi
fauk á Höfðasfrönd
Blönduósi, 25. sept.: —
t A-Húnavatnssýslu var versta
veður í gær og nótt og alls staðar
kominn mikill snjór. Ekki tókst
að koma öllu sláturfé til Blöndu
óss og í dag vantaði 300 kindur í
fulla fjártölu. Féð átti að koma
úr Vindhælishreppi og Svína-
vatnshreppL Allir flytja slátur-
féð á bílum, en miklir örðugleik
ar voru vegna snjóþyngsla og
hríðar.
Vegurinn í Norffurárdal er al-
gjörlega ófær bílum, en í dag er
veriff að brjótast með fé frá Þver
á. Er það rekið niður á Skaga-
strandarveginn en mun verða
tekið þar á bíla.
Svínvetningabraut er víða ó-
fær og miklar truflanir hafa orð
ið á fjárflutningum þaðan. í dag
var reynt að senda bíl eftir fé
fram í Vatnsdal, en hann varð
að snúa við í Vatnsdalshólum
vegna snjóþynglsa.
Nokkrir bændur í austanverð
um Vatnsdal eru nú að reka slát
urfé áleiðis til Blönduóss og mun
það verða tekið á bíl norður í
Þingi.
Ekki er víst, hvort hægt verð
ur að ná fullri fjártölu á morg
un.
Mjólkurflutningabílar, sem
fóru í Langadal, Svínavatns-
hrepp, og Vatnsdal komu til
Blönduóss 6—8 klst. seinna en
venjulega og bíllinn, sem fór
fram Langadal komst ekki nema
að Gunnsteinsstöðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Bólstaðahlíð sL nótt gistu gangna
menn úr Seiluhreppi að Stafni
Eggert Gíslasoo.
í Svartárdal og fóru þaðan fram
á heiði í morgun. Urðu þeir að
snúa við vegna snjóþynglsa og
gátu hvorki smalað fé né hross-
um.
Gangnamenn úr Lýtingsstaða-
hreppi komu einnig niður að
Stafni í dag án þess að geta nokk
uð smaiað. En ekkert er vitað
um gangnamenn úr Eyvindar-
staðaheiði.
Skagfirðingar, sem ætluðu að
reka fé úr Skrapatungurétt í gær
norður yfir Þverárfjall og Kolug
afjall komust ekki nema að Þver-
á í Norðurárdal, en lögðu á fjall
ið í morgun.
Hvammstanga, 25. sept.: —
Hríffarveffur gerði hér seinni-
partinn í gær og hélzt í nótt meff
allmikilli snjókomu. Færð er
sæmileg eftir affalvegum.
Réttaff var í Mifffjarffarétt i
fyrradag og var því lokiff um
hádegi í gær. Fengu menn hið
versta veffur heim meff fjársafniff
og komust sumir ekki alla leiff
vegna veffursins. I dag er sums
staðar verið að draga fé úr fönn.
Fjárleitirnar fóru fram í sæmi
legu veðri, en skyggni var ekki
sem bezt. Er leitarmenn voru að
leggja á heiðina vildi það slys
tiL að Sigurjón Sigvaldason,
bóndi á Urriðaá, féll af hestbaki,
er hestur hans fældist
Var Sigurjón fluttur í sjúkra
hús á Hvammstanga og er líðan
hans sæmileg eftir atvikum.
I*að fannst gangnamönnum tíð
indum sæta, að er þeir voru
nokkru fyrir norðan mörk Borg
firðinga og Miðfirðinga, hittu
þeir leitarmann frá Borgfirðing-
um með tvo hesta til reiðar.
Kvaðst hann hafa átt að leita að
Arnarvatni og farið niður með
varnargirðingunni, sem er á af-
réttarmörkunum. Leitarmenn
komu honum í skilning um, að
hann væri að fara mikið út af
fétti leið og fylgdu honum suður
fyrir girðingu aftur og í Úlfs-
vatn, en þar var þá flokkur Borg
firðinga, er dvaldi þar þessa nótt.
Bæ, Höfðaströnd, 25. sept.: —
í fyrrinótt gekk mikið óveður
með fannkomu yfir Skagafjörð
austanverðan. Urðu af því mikl-
ar truflanir á rafmagni og sam-
göngum, símastaurar brotnuðu
og stórt sjóhús fauk og átta
menn lentu í erfiðleikum með fé.
Síðdegis í gær var enn sjókoma,
og munu bílar hafa setið fastir
víðsvegar í sköflum. Féð er allt
komið í hús, og mjög þröngt á
því hjá þeim sem ekki eru farnir
að siátra. Birni segist svo frá:
Rafmagnslaust varð frá Skeiðs
fossvirkjun og nálægt Bæ töld-
um við 12 símastaura, sem höfðu
lagzt út af. Á Hofsósi hefur raf-
magnslína skemmzt mikið, og
er sums staðar erfitt að aka um
götur í þorpinu vegna þess að
strengirnir liggja niðri. Af þess-
um sökum er því sums staðar
rafmagnslaust.
Á Bæ á Höfðaströnd fauk stórt
sjóhús, sem staðið hefur í 3 ætt-
liði, mjög traustlega byggt 1888,
gríðarstórt og öflugt hús.
Á þriðjudaginn voru menn hér
í göngum, en hér eru aðeins eins
dags göngur. Voru gangnamenn
kaldir og blautir er þeir komu
heim, en ekkert hafði orðið að
þeim.
Hér stendur yfir slátrun, og
gekk illa með féð úr dölunum,
þar sem átti að slátra í dag.
Fóru menn snemma af stað með
reksturinn í slyddu og þurftu að
moka sig sums staðar með féð
gegnum 2 m. skafla á leiðinni.
Komu þeir til Hofsóss síðdegis og
var féð þá orðið slæpt og upp-
gefið.
Við höfðum haft spurnir af því
að bílar hafi verið að festast í
sköflum úti um vegi. Héraðs-
læknirinn tjáði mér áðan að hann
kæmist ekki út í Fljót nema í
bíl með keðjur á öllum hjólum
og alls ekki lengra en út í Haga-
nesvík. Vonandi rætist þó úr
þessu um leið og lægir.
Patreksfirði, 25. sept.: —
í gær gerði slæmt veður af norð
austri með snjókomu og mátti
heita bylur til fjalla. Réttir
höfðu farið fram sl. mánudag
og var fé yfirleitt geymt heima
við hús, en svo illa vildi til, að
á Rauðasandi, Rauðasandshreppi
hrakti mikið af fé til sjávar og
er vitað þegar að einn bóndi af
sex, sem eru á Rauðasandi,
missti þar 60 dilka og ær. Var
þetta bóndinn í Gröf, Þorvald-
ur Bjarnason, er varð fyrir þess
um skaða. Ennfremur hafa þeg
ar fundizt 13 kindur frá Lamba
vatni, sem höfðu hrakið í
skurði. Eins og gefur að skilja
er þetta tilfinnanlegt tjón fyrir
þá, sem fyrir þessum missi hafa
orðið. — Trausti.
GRÍMSSTÖÐUM, Mývatnssveit,
25. sept. — Hér er nú batnandi
veður. Gangnamennirnir, sem
sneru við heim í gær komu til
byggða í gærkvöldi, en lögffu
aftur af staff í morgun. Tefjast
göngur því um einn dag. Kom-
inn er allmikill snjór og slæmt
smölunarveffur vegna dimmviffr
is. Um tíma í gær var skyggni
varla meira en 100 m. Nú er
smalað suður í Herðubreiðar-
lindir.
Áður fyrr voru þetta 5 daga
göngur. En nú er farið á bíl-
um og féð tekið á bíla, svo stund
um er hægt að ljúka því á einum
degi. Annars er aðalgangnadagur
inn á morgun. Eiga menn von á
að erfitt verði að reka féð fyrir
snjó, en þar sem komið er ágætt
veður, ætti það að vera í lagi.
Áður en farið var í göngurnar,
fann ferðafólk, sem fór suður
með Jökulsá tvö lömb við Upp-
typpinga. En mjög fágætt er að
finna fé þar framfrá. Lömbin
voru frá Húsavík og kom ferða-
fólkið með þau til byggða.
í dag ætluðu bílar, bæði lang-
ferðabílar og minni bílar að kom
ast austur yfir MöðrudalsöræfL
Komu trukkur og veghefill frá
vegagerðinni að austan, og ætl-
uðu að hjálpa bílunum aftur
austur yfir, svo vegurinn opnast
þá að einhverju leyti — Jóhann-
es.
Það batnar ekkert þó
maður hafi áhyggjur
segir húsfreyjan á Fossum
STAFNSRÉTT er sem kunn
ugt er ein stærsta rétt á land
inu. Þangað smala Austur-
Húnvetningar og Vestur
Skagfirðingar fé sínu niður,
allt framan frá jöklum. Rétt-
Haraldur Agústsson.
Sigurpáll og Guðm. Þóröarson
eru báðir hættir síldveiðum
in stendur fremst í Svartár-
dal, á mótum hans og Fossa-
dals, og skammt frá réttinni
er bærinn Fossar, fremsti
bær þar frammi í dölunum.
í gær átti að rétta í Stafns
rétt, hin fræga hrossarétt
þeirra Húnvetninga og Skag-
firðinga. Mbl. hringdi í Fossa
í gær og fékk í símann hús-
freyjuna, Jónu Sigurðardótt-
ur.
— Þeir eru ekki komnir
niður, sagði hún. Það hefur
verið hríðarveður hér í gær
og dag. Svo það verður ekki
af réttum í dag.
— Hefur ekkert heyrzt frá
þeim? Hvenær fóru þeir?
— Þeir fóru á laugardag.
Nei, það hefur ekkert frétzt.
Þeir hafa tafist vegna veðurs.
Friðrik Steins-
son sjötugiir
FRIÐRIK STEINSSON, fyrrum
skipstjóri á Eskifirði og síðar
umsjónarmaður Sjómannaskól-
ans, er sjötugur í dag. Hann er
kvæntur Önnu Guðnadóttur frá
Karlsskála. Um langt skeið var
Friðrik umsvifamikill í atvinnu
lífi Eskifjarðar enda dugnaðar-
maður að hverju sem hann gekk,
fengsæll og farsæll. Á seinustu
árum hefur hann átt heima í
Reykjavík.
— Eruð þið farin að hafa
áhyggjur af þeim?
— Nei, það batnar ekkert
þó maður hafi áhyggjur.
— Hefur veðrið verið slæmt
allan tímann meðan gangna-
menn hafa verið á fjöllum?
— Nei, aðeins undanfarna
tvo daga. Annars er það held
ur að skána. Þó er enn þoka
og snjókoma og því ekkert
skyggnL
Háselahlutur á Sigurpáli mun
vera nálægt 200 þús. krónum
METSKIPIÐ á síldveiðunum
í sumar, Sigurpáll, er hættur
veiðum og var væntanlegur
heim í gærkvöldi. Að því er
Guðmundur Jónsson, Rafn-
kelsstöðum, sagði í gær fékk
Sigurpáll alls 31.689 mál og
tunnur í sumar, eða heldur
meira en Víðir II. fékk í
fyrra, sem var með um 31.390
mál og tunnur.
Sigurpáll fór norður á síld-
veiðarnar 7/6 sl. og var heldur
lengur á veiðunum en Víðir
II í fyrrasumar. Skipstjóri á
Sigurpáli er Eggert Gíslason.
Guðmundur bjóst við, að
hásetahlutur eftir sumarið
yrði nálægt 200 þúsund krón-
um á Sigurpáli, því um 12
þúsund tunnur af afla skips-
ins fór í salt. í fyrra varð há-
setahluturinn á Víði II. 170'
þúsund krónur, en saltað var
í 10 þúsund tunnur af aflan-
um.
Næst hæsta skipið á síld-
veiðunum er Guðmundur
Þórðarson, sem var með 29.124
mál og tunnur samkvæmt síð-
ustu síldarskýrslu, en frá
þeim tíma hefur skipið fengið
a.m.k. 750 tunnur. Skipstjóri
á Guðmundi Þórðarsyni er
Haraidur Ágústsson.
Guðmundur Þórðarson
hætti veiðum sama dag og
Sigurpáll og var væntanlegur
til Reykjavíkur í gærkvöldi,
; og
egur
öldi.
******
Gríska stjórnin
sagði af sér
Aþenu, 25. sept. — NTB: —
Panayotis Pipinelis, forsætisráð
herra Grikklands, lagffi í dag fyr
ir Pál konung lausnarbeiffni fyrir
sig og ráðuneyti sitL Aff því er
áreiffanlegar lieimildir herma hef
ur konungur enn ekki gefiff svar
við því hvort hann samþykkti
lausnarbeiðnina.
Ástæðan til afsagnar Pipinelis
er sú, aff hann vill með henni
reyna að lægja öldurnar í grisk-
um stjórnmálum, sem risið hafa
allhátt að undanförnu.
— Bylting
Framh. af bls. 1
Lögreglan réðist í dag til inn-
göngu í skrifstofur róttæka só-
síalistaflokksins í Santo Dom-
ingo og samtaka, sem kallast
»,14—júní flokkurinn". öll skjöl
og spjaldskrár voru flutt á brott.
en lögreglan leitar enn foringja
flokkanna. Jafnframt voru for-
ingjar hinna sex stjórnmála-
flokka landsins kallaðir saman
til fundar við herforingjana og
þeir beðnir að mynda bráða-
birgðastjórn, er setið geti að völd
um, þar til kosningar fari frarn
að nýju.
Juan Bosch forseti er 53 ára
að aldri. Hann tók við forseta-
embættinu 27. febrúar sl. og var
fyrsti forseti i 30 ár, sem tekur
við völdum eftir frjálsar og lýff
ræðislegar kosningar.
-- XXX ----
Frá því Rafael Trujillo einræff
isherra var myrtur í maí 1961
hafa þrjár ríkisstjórnir verið
við völd í landinu og uppreisnir
tíðar. Tvívegis hefur verið lyst
yfir hernaðarástandi.
Bosch kom síðdegis í dag flug-
leiðis til Ramey-flugvallarins 1
Puerto Rico, en hann mun ætla
til höfuðborgarinnar, San Juan
hið bráðasta. Hinsvegar eru
nokkrir ráðherrar hans í haldl
í Santo Domingo. Blaðamenn
hafa ekki fengið að ræða við
þá en talsmaður hinna nýju ráða
manna hefur sagt, að þeir munl
ekki sæta illri meðferð.
-- XXX ----
Talsmaffur bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins tilkynnti i
kvöld aff Bandaríkjastjóru
hefffi rofiff stjórnmála- og viff-
skiptamálasamband viff Dom-
inikanska lýðveldið.