Morgunblaðið - 26.09.1963, Qupperneq 14
Í4
MÓRGÚNBLADfO
Fimmtudagur 26. scpt 1963
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér vin-
áttu á 80 ára afmæli mínu 5. sept. síðastliðinn.
Guðm. Halldórsson, Grundarstíg 5.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig'
á sjötugsafmæli mínu þann 10. september s.l. með
heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Andrés Björnsson, Snotrunesi.
Fjölskyldu minni, vinum og kunningjum nær og f jær,
er heiðruðu mig með höfðinglegum gjöfum, hlýjum
kveðjum og blómum á sjötugsafmæli mínu 10. sept.
s.l. þakka ég af heilum huga. Öllum þessum vinum
mínum sendi ég kærar kveðjur, og, bið guð að blessa
þá í nútíð og framtið.
Eiður Sigurjónsson frá Skálá.
Ungllngspiltur
óskast nú þegar til starfa í vörngeymslu
vorri.
Landssmiðian
Svampfóðraðir
nylonfrakkar
á karlmenn. — Amerísk snið.
Verzl. Sel
Klapparstíg 40.
,t,
Móðir okkar
INGIBJÖRG BENÓNÝSDÓTTIR
frá Isafirði,
andaðist þriðjudaginn 24. sept. — Jarðsett verður á
Isafirði.
Börnin.
Kveðjuathöfn um eiginmann minn
ÁSMUND JÓNSSON
skáld, frá Skúfsstöðum,
verður í Dómkirkjunni í Reykjavík í dag fimmtudag
kl. 10,30 árdegis. Athöfninni í kirkjunni verður út-
varpað. Jarðsett verður síðar frá Hóladómkirkju í
Hjaltadal. Kransar afbeðnir en þeim sem vildu minnast
hins látna er bent á Slysavarnafélag íslands og Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra.
Irma Weile Jónsson.
Innilegar þakkir sendum við öllum, sem sýndu okkur
hluttekningu við andlát og jarðarför
GUÐBJARGAR TÓMASDÓTTUR
Hvilft, Önundarfirði.
Jón R. Sveinsson, synir og tengdadætur.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
MARÍA ÞURÍÐUR BJARNADÓTTIR
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, föstudaginn 27.
sept. kl. 10,30 f. h. Athöfninni verður útvarpað.
Eiríkur Jónsson, Jón Eiríksson,
Helga Eiríksdóttir, Guðmundur Jónsson,
og bamabörn.
Innilegar þakkir og kveðja til allra nær og fjær sem
heiðruðu minningu manns míns og föður okkar
OSYALDS EYVINDSSONAR
Jóhanna Guðmundsdóttir,
Sophía Osvaldsdóttir,
Davíð Osvaldsson,
Anna Osvaldsdóttir,
Guðrún Osvaldsdóttir,
Guðmundur Osvaldsson.
— Minning
Framh. af bis. 11
Vorið 1914 dvelur Ágúst um
tíma við sjóróðra á Flateyri. Þar
kynnist hann eftirlifandi konu
sinni ElísabetU Önnu Guðha-
dóttur, er þa var ráðskona í
Torfahúsi hjá bróður sínum Ás-
gedri Guðnasyni, sem þá var
orðinn útgerðármaður ö,g seinna
kaupmaður á Flateyri. Vorið
eftir ræðst Elísabet káupakona
að Sæbóli ti'l Ágústar, og uan
haustið, — 18. nóvember 1916
gifta þau sig, og hafa búið á
Sæ-bóli síðan við rausn og sóma.
Þau hjónin eignuiust fjögur
mannvænleg börn, sem öll eru
nýtir þjóðfélagsþegnar, -— Guð-
mundujr elztur, þá SteinUnn og
Guðni, en Jónína yngst, gift á
Flateyri. Fjölskylda Ágústar og
Elisabetar á Sæbóli hefur verið
samihent og þrjú elztu sy&tkynin
hafa að jafnaði verið heima að
einhverju leyti ár hvert.
Ágúst á Sæhó'li var glaðlyndur
og góðlyndur. Hann var pruð-
menni og snyrtimenni í allri
umgengni. Hann var félagslynd-
ur og var einn af stofnendum
U.M.F. Vorblóm á Ingjaldssandi,
og bændafélagsins Eining og tók
virkan þátt í félagslífi sveitar
sinnar. Hann margfaldaði ræktað
land jarðar sinnar, og hýsti hana
nýtízkulega á síðustu búskapar-
árum sínum. Hann var duglegur
ferðamaður og fær með afbrigð-
um, og bjargaði því fé úr ófær-
um og svelti jöfnum höndum
fyrir sjálfan sig og aðra. Þær
eru ótaldar ferðirnar, sem hann
fór út í Purku og Völlur og inn
í Núp, eða á Skagahlíðar. Hann
vildi öllum liðsinna, sem bágt
áttu, og sótti oft lækni handa
sjúkum og kom stundum kalinn
á höndum og fótum til byggða
úr slíkum svaðilförum. Búpen-
ing sinn hirti hann og ræktaði
svo að til fyrirmyndar er og naut
þar dyggilega samstarfs barna
sinna og konu. Fjárbúi hans var
viðbrugðið og fyrr á árum átti
hann að jafnaði föngulega sauða-
hjörð fagurlega vaninhyrnda.
Ágúst var stétt sinni til sóma
og skarð hans sem bónda er
vandfyllt.
Dagarnir eru stuttir. Águst
hefur vikið burtu. í þetta sinn
er hann einn á ferð. Karlmann-
lega hvarf hann frá verki. Líf
hans varpar birtu yfir samtím-
ann, — lengir daginn, — og
hjálpar nútímanum að fóta sig og
rótfesta á kvikri kjarnorkuöld.
Jón Ingiberg Bjarnason.
Vaxinn upp á Vestur-fjörðum
vænsti sveinn í hýra dalnum,
þar sem fögur brostu á börðum
blóm við þér y fjallasalnum.
Brimsins gnýr þar berst að
landi, —
ból þér tókst á Ingjaldssandi.
Fannst hér blíður, ást og yndi
allt er þráði sveinsins hjarta.
Út með sjó og upp að tindi
æskuvorið lék sér bjarta.
Hreifstu með af hýrum vonum,
hjartans þrám og framkvæmd-
onum.
Hér fór vorsins vökumaður
viljans stáli hörðu gæddur.
Ötull drengur, handa-hraður
harðri brynju í var klæddur.
Brast ei kjark í bylgjum hörðum
brattra heiða á Vestur-fjörðum.
Snemma hafin garpsins ganga,
gæfan virtist leika í spori.
Yfir brúnum, enni, vanga
áform lýstu karlmanns þori.
Hugur djarfur, happaslyngur.
Heill þér mæti Vestfirðingur.
Setið hefur á Sævarbóli
sæmdarmaður heiðursdaga.
Árla morguns oft á róli, —
iðja græna lfta haga.
Dýrðarsýn í dásemd skoða, —
Drottins verk í morgunroða.
Sjá og dáðst frá Sævar-bóli
sólina fögru gylla æginn,
lifðir í hennar líknar — skjóli
langan starfs- og ævidaginn.
Lifs er gjafi og ljóssins geima
lýsi hún þér til æðri heima.
Guðmundur Guðmundsson
Sendisveinn
óskast allan dagiiin.
Slippfélagið í Reykjavík
Mýrargötu 2.
Sendisveinn
Sendisveinn óskast 1. okt. n.k. -— Uppl. á
skrifstofu vorri Suðurlandsbraut 4.
Olíufélágið Skeljungur hf.
Leiga af frystihólfum
þarf að greiðast fyrir 1. október,
annars verða hólfin leigð öðrum.
Ishús Hafnarfjarðar hf.
Ráðskonu
vantar að Núpsskóla í vetur. Gott kaup. Upplýs-
ingar gefur Fræðslumálaskrifstofan sími 18340 og
skóiastjórinn, sími um Þingeyri.
MlMIR
HAFNARST RÆlI 15
S IM I 22865
Síðúegistímar í ensku
Vegna þeirra sem ekki fengu
tíma á kvöldnámskeiðum verða
stofnaðir síðdegisflokkar næst-
komandi mánudag. Innritun
kl. 1 — 7.
Karlmannafðt
í glæsilegu úrvali.
♦ ♦ *
Stakir tweed jakkar.
Ný efni, nýir litir.
* * *
Stakar terylene buxur
Allar stærðir.
* * *
Laugavegi 27.