Morgunblaðið - 27.09.1963, Síða 2
AO/Ð
Föstudagur 27. sept. 1963
Hœkkun á gjaldskrá pósts og síma:
Ársfjðrðungsgjald símans 640 kr.
Burðargjöld hækka um 50 aura
skeyti 20-25%
og
HINN 1. október næstkomandi
gengur í gíldi ný gjaldskrá fyrir
póst og síma. í fréttatilkynningu
frá Póst- og símamálastjórninni
segir:
Síðan síðasta gjaldskrá var gef
in út, hafa laun opinberra starfs-
manna hækkað um 40%, og kaup
annarra, svo og ýmislegt verðlag,
hefur hækkað mikið. Af þeim
ástæðum var orðið óhjákvæmi-
legt að hækka gjaldskrána, ef
komast átti hjá stórhalla hjá
stofnuninni. Svipaðar hækkanir
hafa orðið að undanförnu í
ýmsum löndum.
Sú hækkun, sem nú verður
hér, ásamt áætlaðri aukningu á
viðskiptunum, á að auka heildar
tekjur stofnunarinnar um 19%,
og er talin svara til tæplega
þriðjungs úr vísitölustigi.
Hækkunin er ekki hlutfalls-
lega eins á öllum liðum. Sumir
hækka ekki, eins og t. d. gjald
fyrir símskeyti og símtöl til út-
landa, sem eru bundin af milli-
ríkjasamningum, og sama gildir
um flugpóstgjald.
í Reykjavík og öðrum sjálf-
virkum stöðvum verður ársfjórð
ungsgjaldið fyrir allt að 600 sím-
Ársfjórffungsgjald
heimilissíma meff
600 símtölum
en hækkar yfirleitt um 20%.
Stofngjaldið hækkar í Reykjavik
úr kr. 3.200.00 í kr. 3.500.00 eða
um 10%, en við handvirkar stöðv
ar í kaupstöðum úr kr. 2.500.00
í kr 2.800.00 eða um 12%.
Burðargjald fyrir almenn bréf
allt að 20 g hækkar um kr. 0.50,
hvort sem er innanbæjar, innan-
lands eða til útlanda, og verður
á staðartaxta kr. 3.50, á ríkis-
taxta og til Norðurlanda kr. 4.50
(eða kr. 6.00 með fluggjaldi) og
til annarra landa kr. 5.00 (í stað
kr. 4.50 áður). Skrásetningar-
gjald ábyrgðarbréfa verður kr.
5.00 (í stað kr. 4.50 áður).
Venjuleg innanbæjarskeyti
hækka um 20%, en utanbæjar
um 25%.
Símaefni 50% ódýrara
en erlendis
Þrátt fyrir það, að allt síma-
efni verður hér um 50% dýrara
en erlendis vegna aðflutnings-
gjaldanna, og að meðallengd
notendasímalínu er hér mun
meiri en í þéttbýlinu erlendis,
verða símagjöldin hér þrátt fyrir
hækkunina mun lægri en víðast
hvar erlendis, eins og eftirfar-
andi samanburður sýnir:
Símskeyti innanlands
10 orffa
fsland .... kr. 640.00 kr. 12 (innanb.) — kr.
Noregur .... — 1.103.00 kr. 24.00
Finnland .... — 657.00 — 24.10
Svíþjóð .... _ 580.00 — 20.70
Danmörk .... — 743.00 — 12.40
Bretland .... — 1.170.00 — 18.00
Þýzkaland .. — 1.420.00 — 16.20
Frakkland .. — 1.670.00 — 21.80
töl innanbæjar kr. 640.00, sem
svarar til 20% hækkunar. Yfir-
símtölin kosta kr. 1.10. Á hand-
virkum stöðvum fer afnotagjald-
ið eftir þjónustutíma stöðvanna,
Varðandi póstgjöldin, eru þau
í mörgum tilfellum lægri hér en
annarsstaðar, að undanskyldu
burðargjaldi fyrir almenn bréf,
sem verður hér fyrir 20 gramma
Falleg kynning á
norrænni málaralist
KOMTN er út á vegum Bóka-
útgáfu Helgafells og Ríkis-
útvarpsins listkynningarbókin
„Norræn málaralist“, og hefur
Bjöm Th. Björnsson iistfræffing-
ur annazt ritstjórn útgáfunnar.
Bókin er prýdd 32 heilsíffu lit-
myndum af málverkum og auk
þess rúmlega 80 svart-hvítum
myndum. Er bókin hin fegursta,
og prentun og frágangur eins
og bezt verffur á kosiff.
Þeir Vilhjálmur Þ. Gíslason,
útvarpsstjóri, og Ragnar Jóns-
son forstjóri ræddu við frétta-
menn I gær í tilefni af
útkomu bókarinnar. Skýrðu þeir
svo frá að listaverkabók
þessi ætti sér langan aðdrag-
anda. Fyrir mörgum árum á-
kváðu útvörpin á Norðurlöndum
• íhaldsflokkurinn
sigrar í Ontario
’ Toronto, 26. sept. (NTB).
1 ÞINGKOSNINGUNUM, sem
fram fóru í Ontario, stærsta
fylki Kanada í gær unnu
íhaldsmenn mikinn sigur.
Hafa þeir nú 78 þingsæti,
frjálslyndi flokkurinn 23 og
sósíaldemókratar og nýir
demókratar sjö samtals. Þetta
er í sjöunda skipti, sem íhalds
flokkurinn hefur meirihluta
á þingi Ontario.
að efna til kynningar á nor-
rænni málaralist, og voru ritaðar
greinar, erindi flutt og myndir
birtar um þetta efni. Að kynn-
ingunni lokinni var ákveðið að
gefa út yfirlitsbók um norræna
málaralist á öllum Norðurlönd-
unum, og kom sú fyrsta út 1951.
Alls kom bókin út á fjórum
tungumálum, dönsku, finnsku,
norsku og sænsku, í um 250 þús-
und eintökum. Ekki stóðu við-
komandi ríkisútvörp þeinlínis að
útgáfu bókanna, heldur var bóka
útgáfufélögum falið að annast
hana. Allar litmyndir voru prent
aðar sameiginlega hjá þekktu
dönsku fyrirtæki. Bókin var í
fimm köflum, einum frá hverju
Norðurlandanna, og ritaði Björn
Th Björnsson kaflann um ísland.
íslenzka útgáfan er aðeíns í fjór-
um köflum, og er kaflanum um
ísland sleppt þar sem mikið af
því, sem þar var birt, hefur áður
komið hér fram á prenti. Voru
það m. a. átta litmyndir af mál-
verkum þeirra Kjarvals, Ásgrims
Jónssonar, Jóns Stefánssonar
og (Muggs).
Alls staðar á Norðurlöndum
vakti þessi málverkakynning
mjög mikla athygli, og er bók-
in nú hvergi fáanleg lengur,
Gefur bókin skemmtilegan sam-
anburð á málaralist á Norður-
löndunum auk margskonar upp-
lýsinga um listaverk og lista-
menn, og er hin eigulegasta.
bréf kr. 3,50 (staðartaxti) — kr.
4.50 (ríkistaxti), en er í Finn-
landi kr. 4,69 (bæði innanbæjar
og utan), en aðeins kr. 3,00 í
Noregi, kr. 2,91 í Svíþjóð og kr.
2,19 í Danmörku, en þar eru þau
flutt mjög ódýrt með járnbraut
unum, og meðal-bréfburðarfjar-
lægð pr. bréf er þar margfalt
styttri. Skráningargjaldið fyrir
ábyrgðarbréf verður hér kr. 5,00,
en kr. 5,40 í Noregi, kr. 5,35 í
Finnlandi, kr. 5,80 í Svíþjóð, kr.
3,72 í Danmörku, en kr. 9,00 í
Bretlandi. Fyrir 2 kg. böggla
verður burðargjaldið hér kr.
9.50 (staðartaxti) — kr. 19,00
(ríkistaxti), en í Noregi er það
kr. 22,00—57,00 eftir lögun
böggla, í Finnlandi kr. 23,43, í
Svíþjóð kr. 16,60, í Danmörku
kr. 9,45. Burðargjald fyrir póst-
ávísanir allt að kr. 200.00, verð-
ur hér kr. 4,50, en kr. 6,03 í
Noregi, kr. 4,00 í Finnlandi, kr.
5,80 í Svíþjóð, kr. 4,96 í Dan-
mörku, kr. 6,00 í Bretlandi.
Reykjavík, 26. sept. 1963.
Ólafsvíkurvegur
MYNDIR þessar eru teknar
af veginum fyrir Ólafsvikur-
enni, en þar er mjög erfið
vegarlagning. Nýlega var frá
því skýrt í fréttum, hve
litlu munaði að grjóthrun
lenti á verkamönnum. Þeir
voru nýgengnir út úr kaffi-
skúrnum, sem 70—80 punda
steinn fór í gegnum þakið á,
og eftir að hafa farið gegn-
um sæti sem einn mannanna
nýlega sat í valt hann út um
skúrhliðina. Annar steinn,
um 40 pund að þyngd fór inn
inn um skúrhliðina og inn
á gólf. Höfðu mennirnir ver-
ið kallaðir út til að vinna
við vörubíl, þegar hrunið
byrjaði og hlupu þeir undir
annan kaffiskúr og skýldu
sér þar.
Þessar myndir sýna vegalagn
inguna fyrir ennið og kaffi-
skúrinn og grjótið.
Bráðabirgðastjórn í
Dóminíkanska lýðveldinu
Leynivínsuli
reyndi nð
flýjn
SL. miðvikudagskvöld varð lög-
reglan vitni að leynivínsölu bif-
reiðarstjóra eins í Reykjavík. Er
bifreiðarstjórinn varð lögregl-
unnar var lagði hann á flótta, en
lögreglan elti. Tókst henni að
stöðva leigubifreiðina eftir elt-
ingaleik um götur borgarinnar,
og ók leigubílstjórinn á mikilli
ferð. Hann mun nú þurfa að
standa fyrir máli sínu fyrir saka-
dómi.
Santo Domingo 26. sept.
(NTB-AP)
í DAG skipaffi herinn í Dómín
íkanska lýffveldinu þriggja
manna bráffabirgffastjórn, en
sem kunnugt er steypti hann
stjórn Juans Bosch forseta af
stóli í gær.
Engar fregnir hafa borizt af
blóffsúthellingum í Dóminík-
anska lýðveldinu vegna stjórnar
byltingarinnar, en fregnir frá
landinu eru ritskoðaffar og síma-
samband rofiff.
Juan Bosch fyrrv. forseti var
væntanlegur til Puerto Rico í
dag, en allt bendir til þess að
hann sé enn í haldi í forsetahöll-
inni í San Domingo.
Hinir nýju ráðamenn Dómíní
kanska lýðveldisins eru Ramon
Tapie, sem var ráðuneytisstjóri
bráðabirgðastjórnarinnar, er fór
með völd áður en Bosch var kjör
inn forseti, Emilo de ios Sant-
os og Manuel Tavares, sem báð-
ir hafa gegnt opinberum embætt
um.
í dag birti frænka Juans
Bosch bréf, sem hún sagði, að
forsetinn hefði ritað. í bréfinu
er skorað á þjóðina að snúa ekki
baki við lýðræðinu.
— Eisenhower
Framh. at bls. 1
herzlu á að ekki megi líta á þetta
sem opinbera skýrslu heldur að-
eins nefndarálit.
í skýrslunni segir, að Georg
Humphrey, sem var fjármálaráð-
herra í stjórn Eisenhowers, hafi
m. a. hagnazt á braskinu. Hann
er eigandi stórfyrirtækis sem
stjórnin seldi verksmiðju á 7,9
milljónir dollara. Verksmiðjan
var nýbyggð og hafði kostað
22,8 millj. doilara.