Morgunblaðið - 27.09.1963, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
r
Fostudagur 27. sept. 1963
OTðQMnfrlftfrlfr
Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arm Garðar Kristinsson.
Útbreiðsiustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakiö.
NIÐURGREIÐSL UR
¥Tm langt skeið hafa niður-
^ greiðslur verið við lýði
hér á landi og hefur þeim
verið hagað á ýmsan hátt, en
fyrst og fremst hafa landbún-
aðarvörur verið greiddar
niður.
Allar stjórnir hafa undan-
fana áratugi barizt við verð-
hækkanir og verðbólguþró-
un og hafa oft beitt niður-
greiðslunum, þannig að þær
hefðu sem mest áhrif á vísi-
tölu framfærslukostnaðar og
Stundum hefur hún vísvit-
andi verið fölsuð með þess-
um hætti.
• Niðurgreiðslur eru ekki ein
göngu íslenzkt fyrirbæri, þær
hafa víðar verið notaðar á
mismunandi vegu og geta
undir ákveðnum kringum-
stæðum átt rétt á sér.
Mönnum má þó ekki sjást
yfir það, að þegar vöruverð
er greitt niður, er það gert
jmeð þeirra eigin peningum.
Það verður auðvitað að taka
fé til niðurgreiðslnanna af
borgurunum á einhvern hátt.
Viðreisnarstjórnin hefur
afnumið allar útflutningsupp
hætur og stefnt í þá átt að
lækka niðurgreiðslur, enda
eiga þær helzt ekki að vera
yaranleg úrræði heldur grip-
ið til þeirra, þegar sérstak-
lega stendur á.
Að undanförnu hefur bú-
VÖrUverð hækkað verulega,
og er hækkunin meiri, vegna
þess að niðurgreiðslur eru ó-
breyttar að krónutölu, og
hækkunin verður þess vegna
meiri að hundraðshluta. Hér
er því stefnt í þá átt að draga
fremur úr niðurgreiðslunum
en auka þær og er þar rétt að
farið.
Áður hafa niðurgreiðslur
verið afnumdar, t.d. af kar-
töflum, og gjarnan mætti
draga frekar úr þessum út-
gjöldum og stefna að því að
þau falli með öllu niður.
AUSTURVIÐ-
SKIPTIN
Fnn hafa augu manna beinzt
^ að austurviðskiptunum,
að þessu sinni vegna erfið-
leika þeirra, sem verið hafa
við afhendingu Austurlands-
síldarinnar til Rússa.
Allir íslendingar eru sam-
mála um það að hafa við-
skipti við kommúnistaríkin,
að svo miklu leyti sem þau
geta talizt hagkvæm, en marg
háttaðir erfiðleikar hafa ver-
ið í sambandi við þessi við-
sk'pti og nauðsynlegt að
menn geri sér grein fyrir,
hvernig á þeim stendur.
Meðan íslendingar voru í
stöðugum gjaldeyrisvandræð
um voru þeir tilneyddir að
hafa víðtæk viðskipti við
löndin austan 'járntjalds. í
samningum við fulltrúa þess-
ara landa var ísland hinn
veiki aðili og það vissu við-
semjendur okkar, sem hag-
nýttu sér þá aðstöðu til hins
ítrasta.
Auðvitað reyna verzlunar-
fulltrúar kommúnistaríkj-
anna að fá keyptar vörur á
sem lægstu verði og jafn-
framt að selja sína fram-
leiðslu á sem hæstu verði.
Þegar þeir vissu, að íslend-
ingar höfðu ekki í annað hús
að venda, gátu þeir þess
vegna sett okkur stólinn fyrir
dyrnar og eru ótaldar þær
fjárhæðir, sem við höfum af
þessum sökum skaðast um.
Þegar gjaldeyrisstaða okk-
ar styrktist og við gátum
keypt fleiri vörutegundir á
frjálsum mörkuðum varð
miklu auðveldara að semja
við kommúnistaríkin og við
náðum í ýmsum tilfellum hag
kvæmari viðskiptakjörum en
áður.
Að því er Austurlandssíld
varðar þá spretta erfiðleik-
arnir líka vafalaust af því, að
Rússum er ljóst, að þessa
vöru getum við ekki selt ann-
að og þess vegna geta þeir
boðið okkur birginn.
FRJÁLS
VIÐSKIPTI
Tlússar og önnur kommún-
istaríki reka veruleg við-
skipti við hinn frjálsa heim.
Þannig hafa Rússar til dæm-
is nýlega ákveðið að kaupa
mikið magn af hveiti frá
Kanada til þess að bæta úr
brýnni þörf, sem skapast af
niðurlægingu rússnesks land-
búnaðar sem byggist á hinu
kommúníska kerfi.
Þessi viðskipti Rússa og
hinna kommúnistaríkjanna
eru yfirleitt frjáls, þ.e.a.s. að
þau greiða í hörðum gjald-
eyri fyrir þær vörur, sem þau
kaupa og eins fá þau greitt
fyrir þá vöru, sem þau flytja
út.
Gagnvart okkur er allt ann-
ar viðskiptamáti. Þar er um
að ræða vöruskiptaverzlun og
við höfum yfirleitt sett okk-
ur á bekk veikari aðilans og
orðið að sæta þeim viðskipta-
kjörum, sem Rússar hafa boð-
ið. —
Morgunblaðið er ekki þeirr
ar skoðunar, að viðskiptin við
kommúnistaríkin mundu
leggjast niður, ef frjálsræði
ríkti í þeim viðskiptum eins
—• *** * — ■ ^ **» **- ~ -,*■ v r*in—mvir
Adenauer og de Gaulle á flug vellinum sJ. laugardag.
Síðasta heimsókn Aden-
auers í embætti?
UM síðustu helgi fór Konrad
Adenauer, kanzlari V-Þýzka-
lands í einkaheimókn til
Frakklandsforseta, de Gaulle,
og dvaldist hjá honum og
konu hans í Rambouillet —
höllinni. Er það sennilega
siðasta heimsókn Adenauers
þangað í embætti kanzlara,
því að senn líður að því að
Ludwig Erhard taki við em-
bættinu.
Þótt um einkaheimsókn
væri að ræða, sýndi de Gaulle
kanzlaranum margvíslegan
sóma, sem venja er við opin-
berar heimsóknir hann tók
sjáifur á móti honum á Villa-
coublyflugvellinum og lét fara
fram hersýningu honum til
heiðurs.
Kanzlarinn og forsetinn óku
síðan saman beint til hallar-
innar, en í næstu bifreið óku
þær madame de Gaulle og
dóttir Adenauers, og var í fór
með honum.
Það mun hafa verið Aden-
áuer, er átti frumkvæðið að
þessum fundi þeirra de
Gaulle, sem er hinn fimm-
tándi á síðustu fimm árum.
Þeir voru fyrr á þessu tíma-
bili stundum kallaðir í gamni
„kærustuparið“, og seinna var
talað um „gömlu hjónin", —
en fréttamenn hafa velt því
mjög fyrir sér að undanförnu,
hversu haldgott „þýzk-franska
hjónabandið" verði, eftir að
Adenauer lætur af kanzlara-
embættinu. Þeir minnast þess
þó, að hann verður eftir sem
áður formaður flokks Kristi-
legra demókrata og þannig
líklegur til mikilla áhrifa á
Bonn-stjórnina.
Fréttamenn benda einnig á,
að eftir að utanríkisráðherr-
arnir Gerhard Sohröder og
Couve de Murville ræddust
víð síðast, hafi Sohröder og
talsmaður „sveigjanlegrar“
stefnu. Þá taldi „Sunday Tele
graph“ sig hafa vitneskju
um, að þeir ráðherrarnir
hefðu ekki orðið á eitt sáttir
um ýmis mikilvæg atriði, m,.a.
Moskvu-sáttmálann um tak-
markað bann við kjarnorku-
tilraunum og hugsanlegan
griðasáttmála milli NATO og
Varsjár-bandalagsins. Schröd-
er fór beint til Washington
frá París — til viðræðna við
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og fleiri ráð-
herra þar.
Það kemur víðast fram af
blaðaskrifum á Vesturlöndum,
að sennilega verði væntanlegir
stjórnendur V-Þýzkalands
ekki eins eftirlátssamir við
stefnu Frakka gagnvart Bret-
um og Bandaríkjamönnum, og
Adenauer hefur verið. — Þó
hefur Ludwig Erhard nýlega
sagt í ræðu, að ekki verði
um meiri háttar breytingar á
utanríkisráðstefnu V-Þjóð-
verja að ræða á næstunni.
Ekki þurfi að óttast, að þeir
taki að velja milli Bandaríkj*
anna og Frakklands, því að
hvorirtveggja séu vinir Þjóð-
verja og þeir muni því ekki
stuðla að neinni breytingu á
samskiptum þeirra. En frétta-
menn spyrja jafnframt, hvort
ekki sé hugsanlegt, að V-Þjóð
verjum verði þröngvað í þá
aðstöðu að verða að velja
annaðhvort eða . . .
!
!
■
og öðrum. Þvert á móti er
ástæða til að ætla að góð við-
skiptasambönd gætu komizt
á og viðskiptin í heild yrðu
heilbrigðari.
Kommúnistaríkin leggja á-
herzlu á aukin viðskipti við
hinn frjálsa heim og oftast
eru þau — eins og áður segir
— frjáls. En þá vaknar spurn-
ingin um það, hvers vegna
við getum ekki haldið uppi
frjálsum og heilbrigðum við-
skiptum við kommúnistarík-
in eins og aðrir.
Ef slík viðskipti kæmust á,
þyrftu menn ekki að deila um
það, hvort sölur til kommún-
istaríkjanna og vörukaup það
an væru heppileg eða ekki,
þá mundu viðskiptin byggj-
ast á því, hvort menn fengju
jafngóð eða betri kjör þar en
annars staðar og þannig væri
hag okkar bezt borgið.
Vonandi tekst að þoka þess-
um málum í átt til frjálsræð-
is til gagns fyrir alla aðila.
Erlendar
fréttir
í stuttu máli
• BEN BELLA TILKYNNIR
Algeirsborg, 25. sept. —
NTB: —
Ben Bella, forseti Alsír, til-
kynnti í dag, að innan skamms
muni stjórnin taka í sínar
hendur eigur velmegandi óð-
alsbænda á hinni frjósömu
Mitidja-sléttu, rétt sunnan við
Algeirsborg. Ennfremur sagði
hann, að stjórnin myndi taka
í sínar hendur rekstur mikil
vægustu olífuolíu-hreinsunar-
stöðvarinnar í Alsír, sem er
nú í eigu Mustapha nokkurs
Tamzali.
Forsetinn lýsti þessu yfir,
er hann kom ásamt William
Tubman, forseta Líberíu í
heimsókn á nýtt samyrkjubú
í nágrenni Bouvarik á Mitidja
sléttu.
• KÚBUSIGLINGAR
BANNAÐAR
Aþenu, 25. sept. - NTB: —
Stjórn Grikklands hefur lýst
yfir banni við því, að skip, er
sigla undir grískum fána,
stundi siglingar til Kúbu. Út-
gerðarfélög er brjóta í bága
við það bann eiga á hættu há
ar sektir og eigenduí þeirra
fangelsisdóma, — og skip-
stjórar er sigla skipum undir
grískum fána til Kúbu eiga
á hættu að missa skipstjórnar
réttindi í tvö ár.
Kampmaim hættii
þingmennsku
Kaupmannahöfn, 25. sept. NTB
• Viggo Kampmann, fyrrver-
andi forsætisráðherra Danmerk
ur, hefur tilkynnt forseta danska
þjóðþingsins, að hann óski eft-
ir því af heilsufarsástæðum, að
vera leystur frá þingstörfum
frá og með 1. október næstkom-
andi.
Kampmann, sem er 52 ára að
aldri, lét af embætti forsætis-
ráðherra í september 1962, er
hann fékk a.ðkenningu að hjarta-
slagi. Hann varð pingmaður ár-
ið 1953. «