Morgunblaðið - 27.09.1963, Side 17
rf Föstudagur 27. sept. 1963
MORGUNBLADIÐ
17
i
María Þ. Cjarnadóttir - Kveðja
í D A G er til moldar borin frá I
Dómkirkjunni í Reykjavík hús-
freyjan María Þuríður Bjarna- i
dóttir, eiginkona Eiríks Jónsson-
ar járnsmiðs að Starhaga 14, en j
hún andaðist að Heilsuverndar- j
stöðinni í Reykjavík mánudag- i
inn 16. þ. m. eftir nokkurra daga
legu þar.
María sáluga er 75 ára að
aldri, er hún hnígur nú að foldu.
Hún fæddist að Mosum á Síðu
27. apríl 1888. Foreldrar hennar
voru þar búandi hjón, Bjarni
Jónsson frá Mörk á Síðu og Sig-
ríður Þarvarðardóttir prests
Jónssonar á Prestbakka. Hún ólst
upp í foreldrahúsum á Mosum
og dvaldi þar með þeim til tví-
tugs aldurs, en þá fór hún til
Reykjavíkur til atvinnu í visf-
um. Foreldrar hennar munu hafa
haft við fremur erfiðan fjárhag
að búa, bújörð ekki kostamikil,
en barnahópur stór. Þeim hjón-
um varð fimmtán barna auðið,
einhver létust í bernsku, en flest
komust þau til þroskaaldurs. Nú
eru aðeins fimm á lífi þeirra
systkina, þrjár systur og tveir
bræður.
Fám árum eftir að María fór
úr föðurhúsum, andaðist faðir
hennar. Brá móðir hennar þá
búi og flutti til Maríu dóttur
sinnar, og héldu þær saman heim
ili, þar til María giftist, og eftir
það var hún lengstum á hennar
vegum og yngri dætur hennar
um sinn.
María giftist 21. nóv. 1914
Eiríki Jónssyni járnsmið frá
Keldunúpi á Síðu. Hann hefur
nú nærri tvö ár yfir áttrætt, er
hann sér á bak konu sinni eftir
nærri fimmtiu ára sambúð. Þeim
varð þriggja barna auðið. Dóttur
sína misstu þau á öðru aldursári
í spönsku veikinni 1918, en son-
ur og dóttir eru á lífi og þrjár
barnadætur.
María heitin var mesta merk-
iskona. Bóklegs lærdóms naut
hún lítið, svo sem títt var um
börn fátækra foreldra hér á landi
um og fyrir aldamótin. En hún
hafði ánægju af góðum bókum
og hvers konar fróðleik, enda
átti hún til þeirra að telja. Móð-
ir hennar var mjög greind kona,
og systir hennar, María Þorvarð-
ardóttir skáldkona, var orðlögð
gáfukona, og með þeim Maríu
voru hin nánustu kynni. Hús-
móðir var María sáluga í fremstu
röð. Fyrstu hjúskaparárin voru
húsakynni ekki ætíð sem full-
komnust, en það hygg ég, að fleir
um heimilisvinum þeirra hjóna
en mér verði í minni, hve þar
var allt snyrtilegt og fágað og
smekklega fyrir komið því, sem
til var að tjalda, enda leit hún
á það sem lífshlutverk sitt að
búa manni sínum og börnum
ánægjulegt heimili, þar sem
margir frændur og vinir nutu
einnig margra ánægjulegra
stunda. Alltaf var veitt stór-
mannlega, þegar gesti bar að
garði, þótt stundum hafi ekki
verið af miklu að taka fyrstu
hj úskaparárin.
María heitin var stórbrotin
kona, gerði mikinn mun þess,
sem henni var að skapi, og hins,
sem hún var móthverf, viðkvæm
í lund, en ekki gjörn á að flíka
tilfinningum sínum. Sá, sem átti
Maríu að vin, átti einlægan vin.
Mörg síðari æviárin átti María
við mikil og þrálát vanheilindi
að stríða. Þá var henni það
mikil blessun, að leiðir þeirra
hjónanna og dóttur þeirra hafði
aldrei skilið. Þau hjónin áttu
alla tíð sameiginlegt heimili með
henni, og manni hennar, eftir að
hún giftist. Nutu þau gömlu hjón
in þar hvors tveggja í senn: dótt-
urástríkis og sonarumhyggju af
hendi tengdasonarins í þeim
mæli, sém bezt verður á kosið,
enda þegið og metið að verðleik-
um. Sem ein heild nutu þrír ætt-
liðir þeirra farsælu samvista for-
eldra, barna og barnabarna, sem
truflazt hafa um of í umbylting-
um síðari tíma.
Þegar ég nú sendi Maríu síð-
ustu kveðjuna og manni hennar
samúðarkveðju vegna fráfalls
hennar, er mér efst í sinni einlæg
þakklætistilfinning fyrir nær
hálfrar aldar kynni, þar sem
aldrei hefur fallið skuggi á ein-
lægni vináttunnar. Og Maríu
minnist ég sem mikils persónu-
leika, sem sérhver vinur hennar
mun telja sér mikinn ávinning
að hafa kynnzt.
Gunnar Benediktsson.
LÖGMANNAFÉLAG ÍSLANDS
Framholdsaðalfundi
félagsins sem halda átti 27. þ. m. er frestað til
11. okt. n.k.
STJÓRNIN.
Amerískar og japanskar
SKÁPHÖLDUR
í mjög fjölbreyttu úrvali.
NYTT - IMÝTT
PRIMAVERA þurrkhengin í baðherbergi á svalir.
Sendum heim og setjum upp ef óskað er.
Sendum í póstkröfu um allt land.
BJÖRN G. BJÖRNSSON
heildsala — smásala
Freyjugötu 43 sími 17685.
HLJÓMLEIKAR
í Austurbæjarbíói. Forsala aðgöngumiða hefst kl. 3
í dag. — Sími 11384.
Tilboð óskast í
Chevrolet 1954
í því ástandi, sem bifreiðin nú er í eftir veltu.
Bifreiðin verður til sýnis við Bifreiðaverkstæði Árna
Gíslasonar, Súðavogi, Reykjavík, föstudaginn 27.
sept. n.k. milSli ksl. 13-—18 e.h. Tilboð merkt:
„Chevrolet“ óskast send skrifstofu Samvinnutrygg-
inga, herbergi 214 fyrir kl. 12, mánudaginn 30.
sept. n.k.
Sendisveinn
Okkur vantar röskan og ábyggilegan sendisvein
strax. Þarf helzt að geta unnið allan daginn.
Upplýsingar daglega frá kl. 4—6 e.h.
OTTO A. MICHELSEN, H.F.
ÍBM á íslandi
Klapparstíg 25 — 27,
Sími 20560 (2 línur).
Organista
vantar að Landakirkju í Vestmannaeyjum. Æski-
legt væri að organistinn gæti tekið að sér forstöðu
Tónlistarskóla og önnur skyld störf. — Allar nánari
uppl. veitir Söngmálastjórn Þjóðkirkjunnar og for-
maður sóknarnefndar Friðfinnur Finnsson sími 166
Vestmannacyj um.
SÓKNARNEFNDIN.
73orden's vorur
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Teigabúðin, Kirkjuteig