Morgunblaðið - 27.09.1963, Page 20

Morgunblaðið - 27.09.1963, Page 20
20 MORGUN BLADIÐ Fostudagur 27. sept. 1963 BRJÁLADA H , • 0» - . ' ■ ' . rrT7BnPTW rmnnnc ÚSIÐ • i í UUXOiiUlJ X 11 JL UlllliJLllU — Skrúfjárn, gaffall o" penni. Hvað í ósköpunum hef ég þá gert ' við tappatogarann? Sjálfur hef ég mjög litla bekk- ingu á því, og það lítið er, er mest fyrir tilviljun. En þó yeit é*. að það hefur mjög svipuð áhrif og stryknín, enda hélt ég, að það væri það. >að er unnið úr sömu jurt....... — Strychnos — nux vomica, greip Fry fram í með ákafa. — í»að veldur þvi, að maður stend- ur á öndinni með krampakennd- um flogum, svo tekur við mátt- leysi og ákafur skjálfti. Síðar verður lömunin enn meiri og vöðvarnir stirðna. Fæturnir teygjast út, hryggurinn svignar aftur á bak. . . . Hann þagnaði skyndilega. Já, sagði hann, eins og hann hefði hlaupið á sig, og hóstaði. — Já, Charlie, en þetta brúsín. Haltu áfram. Charlie var eins og hinir að horfa á gamla manninn, með ein kennilegu augnaráði. — Já, sagði Charlie, — en mér íinnst nú allra merkilegast, að venjulegur undirmaður í lögregl unni.skuli þekkja til þess. — Eigið þér við, sagði Toby, og stóð upp og gekk að hópr.um. •— Eigið þér við, að Gurr hafi sagzt halda, að hún hefði tekið brúsín? — Hann gaf í skyn, að það gæti verið brúsín, sagði Charlie. I>ér skiljið, ég var þarna uppi hjá lögreglumönnunum og sagði þeim frá, hvernig ég hefði fund- ið hana og fór að geta mér þess til, að hún hefði tekið stryknín. Og þá var það, að Gurr, sem virðist nú ekki vera neitt yfir sig menntaður — hefur að minnsta kosti aldrei komið í efna rannsóknarstofu — sagði: — Gæti ekki hugsazt, að það væri brúsín? Mér finnst þetta dálítið enikennilegt. Toby kinkaði kolli. — Jú, hér um bil það einkennilegasta sem . . . En einmitt í þessu bili kom þessi snögga hreyfing, sem hlaut fyrr eða síðar að verða á Evu Clare. í rauninni var það glasið sem brotnaði, sem fékk Toby til að hrökkva við. Eva hafði bölvað hressilega og fleygt um leið glasinu, sem hún hélt á, á stein- stéttina úti fyrir gluggadyrun- um. — Æ, ég vildi að fólk væri ekki að sleppa sér svona, sagði Toby og færði sig frá en greip um leið um hnakkann á sér, rétt eins og hljóðið hefði lent þar og meitt hann. Eva snarsneri sér við. — Hve nær á þetta að verða búið? æpti hún. — Hvenær á allt að komast í samt lag hér? Hvenær eigum við að losna við þessa lögreglu héðan? Æ, glápið þið ekki öll á mig eins og einhverjir blábján- ari — Góða Eva, sagði Lisbeth Gask, þurrlega, — þú ættir ekki að drekka svona mikið, en úr því að þú ert að því, hvort sem er, þá fáðu þér einn til. — En hvenær? segi ég. Hve nær á okkur að hætta að líða eins og veggjalús undir smásjá? — Hjálpi mér, sagði litli mað- urinn í stuttbuxunum, — þú þarft enga smásjá til að sjá veggjalýs. Þessar líka rokna hlussur- I íbúðinni minni í Reg- entstræti. . . . — Eva, sagði Lisbeth valds- mannlega. — Hversvegna hring- irðu ekki í hann Max og biður hann að koma hingað? — í íbúðinni, sem ég var að nefna, sagði Reginald Sand, — var ég að æfa mig að skjóta gaflokum á þær. Milli klukkan þrjú og fimm á morgnana á sumr in, var oftast hægt að sjá nokkr- ar. Ég var vanur að hafa mörg gaflok tilbúin hjá rúminu mínu, og af ég vaknaði, þá. . . . — Það þýðir ekkert að vera að hringja hann upp, sagði Eva. Hann á að hafa fyrirlestra .mið- vikudaga og laugardaga næsta mánuð allan. Hún gekk að skápn um og fékk sér aftur í glas. Vilja einhverjir fleiri? Hún gekk aft- ur að glugganum. — Nei, þetta er eitthvað það bölvaðasta, sem fyrir gat komið. Lisbeth horfði á Evu og svip- urinn var óvenju háðslegur. Hún sagði: — Druna var rétt að segja okkur frá einkennilegum hlut, sem hún tók eftir. Það var ein- kennilegt og ég tók eftir því líka, en áttaði mig bara ekki á sam- bandinu.......Halló, Roger. Hún brosti til Rogers Clare, sem var í þessu að koma inn. — Gillett, sagði hann. — Þeir vilja talá við Gillett næst. Hvar er hann. Allir litu kring um sig. — Nú, hann er ekki hér, sagði hann. — En hann var hérna fyrir rétt svo sem augnabliki. — Hvert hefur hann farið? spurði Roger, með óþreyju. — Hvernig ættum við að vita það? sagði Lisbeth. — En lögreglustjórinn þarf að tala við hann. — Segðu honum þá bara að finna hann. Roger fór út. Toby sagði lágt við Drunu: — Gillett, er það ungi maðurinn í rifnu skyrtunni? — Já. — Þetta vissi ég, að það vant- aði einhvern. — Það vantar líka litla kubb inn hann vin yðar. — Hann vantar nú svo oft og enginn saknar hans. Vanner kom inn. Hann var ennþá fyrtnari en hann var van- ur. — Ég sagði, að enginn mætti fara héðan ennþá, sagði hann. — Það þýðir lítið að jagast i okkur fyrir það, sagði Lisbeth. — Við höfum ekkert farið. — Hvar er hr. Gillett. — Hann er ekki falinn hérna inni. — Hvenær sáuð þið hann sið- ast? Charlie svaraði: — Frammi í ganginum, þegar krakkinn var að . . . halda þessa sýningu. Ég stóð næstur honum. En ég hélt að hann hefði farið hingað inn. Hann var svo þögull nema . . . þegar hann er ekki . . . þið vitið, hvað ég á við. — Það veit ég ekki, sagði Vanner. — Hann á við, sagði Lisbeth, að því undanteknu, þegar hr. Gilet er að lesa lygagreinar í blöðunum, einkum um vísindi . . og tónlist er annað, sem fer í taugarnar á honum, og erlend stjórnmál . . . sem sagt, ef ekkert af þessu er efst á baugi, þá situr hann bara og hugsar, og enginn tekur eftir, hvort hann er nær- staddur eða ekki. — Kannski hann sé bara far- inn heim til sín, sagði Adolphus Fry. — Ég skipaði svo fyrir . . . En Fry setti upp háðsglott og sagði: — Skipa Colin Gillet fyr- ir! Hann mundi taka það sem persónulega móðgun. — Hvar á hann heima? spurði Vanner. — í þessum kofa við Grænastíg, er það ekki? — Það er ekki fimm mínútna gangur, ef farið er gegn um skóg inn, sagði Fry. Vanner sendi lögregluþjón út af örkinni til að finna Gillet í kofanum hans. Toby sá lögreglu- þjóninn leggja af stað yfir gras- völlinn í áttina að skógarjaðr- inum og sá hann hverfa milli trjánna. Hann heyrði Vanner kalla á Fry yfir í hina stofuna . . Toby fór líka út í garðinn. Brot- in úr glasinu, sem Eva hafði mölvað brökuðu undir fæti hans. Hann gekk út á grasvöll- inn. Þetta var tennisvöllur, vand lega hirtur með hvítum strikum, sem voru greinileg í rökkrinu. Hann sneri sér við og horfði á húsið stundarkorn. Þetta var snoturt hús og garðurinn vel hirtur. Toby stakk upp í sig vindlingi, og eldspýtan blossaði upp í myrkrinu. Hann gat séð inn um upplýstar húsdyrnar, hvar Druna Merton klúkti á stólbrík- inni hjá Carlie Widdison, og hann gat séð Lisbeth Gask ham- ast að prjóna og Fry koma inn og setjast hjá Evu, sem hafði lagzt endilöng á legubekk, og þau töluðu saman, alvarleg í bragði. Annar upplýstur gluggi gaf til kynna, hvar hann hafði venð að tala við Vanner. Toby var enn að horfa á þenn- an glugga og smábölva með sjáif um sér. En þá snerti eitthvað handlegginn á honum og hann hrökk ósjálfrátt við. — Nú! sagði hann þégar hann sá hver maðurinn var. — Hvar hefur þú alið manninn, Georg? — Hvað var þetta, sem þú varst að segja? sagði Georg, — Ég var ekki neitt að segja, svaraði Toby. — Víst varstu það. Þú varst að tala við sjálfan þig. — Var það? Þá hef ég líklega verið að segja: „Fimmtán pund í seðlum og fimmtán í ávísun“, því um það var ég að hugsa. Hann gekk nokkur skref og Georg við hlið hans. Toby sagði frá viðtalinu við Vanner og því, sem þar kom á eftir. Síðan end- urtók hann: — Og hvar hefur þú alið manninn, Georg? — O, ég var bara að líta kring um mig. Georg lækkaði röddina enn meir. — Tobbi, þegar þú varst strákur, varstu þá hrædd- ur við zeppelína? — Nei, Georg . . . sjáðu nú til . . . — Varstu það, Tobbi? — Ekki svo að ég muni. — Það var ég heldur ekki. Krakkar eru svo vitlausir. En ég sagði alltaf, að ég væri það. — Georg, ef einhver hefur verið að telja þér trú um, að þú ættir að láta sálgreina þig, þá get ég vísað þér á ágætan mann. sem tekur ekki nema þrjú pund fyrir hvert viðtal og gefur .þér þrjú viðtöl á viku í hálft ár, og telur þér trú um, að eina ástæðan til þess að þú vilt ekkj borga reikninginn hans sé sú, að þú ruglir í honum huga þinum saman við hann pabba þinn. Það gæti orðið gaman fyrir þig. En við skulum heldur tala um það seinna. í bili er meir áríðandi að vita; hvort bankar opna klukk- an tíu eða fyrr. — Enginn banki, sem ég þekki opnar fyrr en tíu, sagði Georg. En það var þetta með zeppelín- ana, Tobbi. Ég var ekkert hrædd ur við þá . . en ég var hræddur við djöfulinn. En þegar einhver spurði, hversvegna ég væri að öskra, þá fannst mér svo bjána- legt að segja, að ég væri hrædd- ur við gamla manninn, svo að ég sagðist alltaf vera hræddur við zeppelínana. Jæja, í kvöld þegar . . . — Fyrirgefðu, Georg, sagði Toby. Ég hefði átt að þekkja þessar djúpviturlegu athuganir þínar og ekki gera gys að þeim. Þú átt við, að það voru alls ekki neinir lögregluþjónar, sem krakkinn var hræddur við. aflíltvarpiö Föstudagur 27. september. 8:00 Morgunútvarp. 12:00 Hádegisútvarp. 13:15 Lesin dagskrá næstu viku. 13:25 „Við vinnuna": Tónleikar. 15:00 Síðdegisútvarp. 18:30 Harmonikulög. — 18:50 Tilkynn- ingar. — 19:20 Veðurfregnir. 19:30 Fréttir. 20:00 Efst á baugi (Björgvin Guð- mundsson og Tómas Karlsson). 20:30 Einsöngur: Victoria de los Ang- eles syngur lög eftir Duparc og Debussy. 20:45 Erindi: Skapgerðarlist (Grétar Fells rithöfundur). 21:10 Tónleikar: Partíta 1 B-dúr eftir Bach (Laurindo Almeida leikur á gítar, Virginia Majewski á víólu og Vincent De Rosa á franskt horn). 21:30 Útvarpssagan: „Herfjötur" eftir Dagmar Edquist; XVI. (Guðjón Guðjónsson). 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Kvöldsagan: „Báturinn" eftir Walter Gibson; VI. (Jónas St. Lúðvíksson). 22:30 Á síðkvöldi: Söngleikurinn „Oli- ver" eftir Lionel Bart, gerður eftir sögunni „Oliver Twist“ eft- ir. Dickens (Ron Moody, Georgia Brown, Paul Whitsun-Jones, Keith Hamshere o.fl. syngja með kór og hljómsveit. Stjórnandi: Marcus Dods. — Kynnir: Magnús Bjarnfreðsson). 23:45 Dagskrárlok. Laugardagur 28. september. 8:00 Morgunútvarp. 12:00 Hádegisútvarp. 13:00 Óskalög sjúklinga (Kristín Ann» í>órarinsdóttir). 14:30 Laugardagslögin. # 15:00 Fréttir. 16:30 Veðurfregnir. Fjör í kringum fóninn: Úlfar Sveinbjörnsson kynnir nýjustu dans- og dægurlögin. 17:00 Fréttir. — Þetta vil ég heyraj Teresia Guðmundsson fyrrver- andi veðurstofustjóri velur sér hijómplötur. 18:00 Söngvar í léttum tón. 18:30 Tómstundaþáttur barna og ung- linga (Jón Pálsson). 18:55 Tilkynningar. 19:20 Veðurfregnir. 19:30 Fréttir. 20:00 „Haust í New York": Percy Faith og hljómsveit hans leika bandarísk lög af léttara tagi. 20:25 Leikrit: „Donadieu" eftir Fritai Hochwalder, í þýðingu þorsteins Ö. Stephensen (Áður útv. i marz 1959). — Leikstjóri: Láruj Pálsson. Leikendur: Þorsteinn Ö. Stephensen, Helga Vaítýs* dóttir, Jón Aðils, Haraldur Björnsson, Lárus Pálsson, Ind« riði Waage, Róbert Arnfinnsson, Arndís Björnsdóttir og Gestur Pálsson. 22:00 Fréttir og veðunfregni*. 22:10 Danslög. 24:00 Dagskrárlok. KALLI KUREKI Teiknari; FRED HARMAN — Hvers vegna er allt þetta múð- ur? Sá gamli í felum einhvers staðar í runnum. Ég berjandi að dyrum. — Þegar Miggs fór, opnaði ég fyr- ir þér. Ég lét þann gar^a fá +öskuna með peningunum. Þú heldur þó ekki að Miggs hjálpi ræningjunum? — Nei, en einhver fréttir alltaf af því, þegar Miggs borgar bændun- um. Einhver hlýtur að bafa auga með skrifstofunni hans. En ég þekki í rauninni engan, sem orðið hefur fyrir '-""ás. Kannske er betts> bara slúður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.