Morgunblaðið - 27.09.1963, Side 22
1. deildar
krýnt í Njarðvík!
ÚRSLITALEIKUR 2. deildar,
hin örlagaríka barátta sem ræð-
ur því hvaða lið kemst í 1. deild
ísl. knattspyrnu næsta sumar,
verður n.k. laugardag kl. 5 síð-
degis. Þar mætast Breiðablik í
Kópavogi og Þróttur, en þau
báru sigur úr býtum í riðlum 2.
deildarliðanna.
★ ÞAR OG HÉR
í öllum löndum Evrópu er það
með stærstu leikjum hvers árs
þegar barátta um sæti í 1. deild
er háð. Allt er fínt og fágað
í kringum þá og spenningurinn
oftast gífurlegur.
En hér gerizt það að ekki er
hægt að hafa leikinn í höfuðborg
inni. Þess í stað er það lítið bæj
arfélag suður með sjó sem legg-
ur til grasvöllinn, leikvanginn í
Ytri-Njarðvíkum. Þar er að von
um slæm aðstaða fyrir áhorf-
endur og leikmenn, en ekki' völ
á öðru betra.
★ BÚIÐ AÐ LOKA
— Það er búið að loka
Laugardalsvellinum og við
fáum þvert nei við að hafa
Houstmót í
knottspyrnu
HAFNARFIRÐI — Haustmót í
knattspyrnu milli FH og Hauka
hefst á íþróttavellinum á morg-
un kl. 4. Þá keppa 2. og 4. flokk-
ur og kl. 2 á sunnudag meistara-
flokkur, 3. og 5. flokkur.
Félögin tóku að keppa aftur
saman í fyrra eftir nokkurra ára
hlé, en höfðu leikið um nokkurra
ára skeið sameiginlega.
Ensko
knnttspyrnnn
Markhæstu leikmennirnir í Englandi
eru dú pessir:
1. deild:
mörk:
GREAVES (Tottenham) 11
BAKER (Arsenal) 8
LAW (Manchester U.) 8
McEVOY (Blackbum) 7
HUNT (Liverpool) 6
PACE (Sheííield U.) 6
2. deild:
DAWSON (Preston) 13
GIBSON (Middlesbrough) 9
KIRBY (Southampton) 7
O’BRIEN (Southampton) 7
CALDER (BURY) 6
WHITE (Huddersfield) 6
3. deild:
LISTER (Oidham) 9
LEIGHTON (Bdfnsley) 8
ATYEO (Bristol City) 7
DOUGAN (Peterborough) 7
HUDSON (Coventry) 7
LIVESEY (Watford) 7
4. deild:
McILMOYLE (Carlisle) 9
DYSON (Tranmere) 8
SMITH (Darlington) 7
SPENCE (Southport) 7
TOWERS (Aldershot) 7
leikinn þar, sögðu stjórnar-
menn í KSÍ. Annar grasvöll-
ur er ekki í Reykjavík. Mela
völlurinn mun ásetinn og erf-
itt að finna hentugan tíma
fyrir leikinn, auk þess sem
malarvellir ættu að heyra til
liðinni tíð, þó svo sé ekki í
Reykjavík.
★
Sem sagt þeir vilja sjá 22
kandidata í 1. deild berjast um
hnossið verða að finna ráð og
leiðir til að komast 40 km leið
fram og til baka. Er þetta fyrsta
flokks aðstaða fyrir knattspyrnu
íþróttina?
í ...........
Puskas hélt uppi heiðri Real
en Everton er úr keppninni
Arsenal burstaði urvalslið tfafnar með 7—1
TVEIR leikir Evrópubikar-
keppninnar sem sérstaka athygli
vöktu fóru fram í fyrrakvöld, ann
ar í Milano og hinn í Glasgow.
Á báðum stöðum voru þéttsetn-
ir vellir af áhugasömum knatt-
spyrnuunnendum og það svo í
Glasgow að ÖII met voru slegin.
Á f Glasgow
í Glasgow mættust lið Real
Madrid og Glasgow Rangers.
Leikurinn var mjög jafn og
skemmtilegur og voru Rangers-
menn meira í sókn. í hálfleik
stóð 0-0.
í síðari hálfleik var sama sag-
án, Rangersmenn sóttu meir, en
fengu ekki skorað. Real Madrid
tókst hins vegar að tryggja sér
sigurinn með marki er Puskas
skoraði.
★ í Milano
í Milano mættust Milan og
enska liðið Everton í síðari leik
sínum í keppninni. Fyrri leik-
urinn fyrir viku á velli Ever-
ton lauk með 0-0. Og nú tókst
Milan mönnum að skora einu
sinni. Það nægði, þeir halda á-
fram í keppninni um bikarinn
en Everton er úr sögunni.
ic Aðrir Evrópubikarsleikir
Ýmsir aðrir leikir fóru fram
í keppninni um Evrópubikarinn.
Hollenzku meistararnir Eind-
hoven kepptu við Danmerkur-
meistarana Esbjerg. Hollending-
arnir sóttu Dani heim til Esbjerg
en unnu samt með 4-3 eftir að
staðan í hálfleik var 2-1 Dönum
í vil.
Finnska liðið Haka, sem hér
var í sumar mætti Luxemborg-
arliðinu Jeunesse dcescx. Leik-
urinn fór fram í Helsingfors og
unnu Haka-menn með 4-1 (2-1
í hálfleik). Þetta var líka leikur
í Evrópubikarskeppninni..
Þá mættust spánska liðið Bene
fica og meistaralið N-Irlands.
Leikurinn var í írlandi og lauk
með jafntefli 3-3.
ic Danir burstaðir rækilega
Fyrir utan Evrópubikars-
keppnina er önnur keppni
Evrópuliða í gangi svokölluð
„borgarkeppni“. í þeirri
keppni mættust Arsenal (sem
keppir f. Lundúni) og úrvals-
lið Kaupmannahafnar í fyrra
kvöld. Leikurinn var í Dan-
mörku. Arsenal vann með 7-
1, stóð 5-0 í hálfleik.
Úr leik Vestmannaeyinga og
Vals. Björgvin markvörður
var oft síðastur Valsihanna til
varnar. Svo var hér og átti
hann því ekki minnsta þátt í
sigri Vals 2-0.
Ljósm. Bjarnl. Bjarnl.
IMýtt
Evrópumet
SEXTÁN ára gamall rússnesk
ur sundmaður Viktor Masanov
setti á sunnudag nýtt Evrópu-
met í 100 m baksundi á móti
sem fram fór í Múnchen. Tími
hans var 1.01.5 mín. Gamla
Evrópumetið átti C. Rora ítalíu
1.01.9.
Þorsteinn Hallgrimsson skrifar frá París:
Isl. liðið á flestum svið-
um betra liði Englands
SÍÐASTI leikur fslands í
keppninni var gegn Englandi
og var þetta jafnframt leikur
um 3-—4 sæti í mótinu. ísland
vann verðskuldaðan sigur með
63 stígum gegn 53 og náði
þar með 3 sæti í mótinu. Meg-
um við vera mjög ánægðir
með þann árangur, sem er
miklu betri, en búist var. við.
Leikurinn var mjög
skemmtilegur vel leikinn og
spennandi einkum þó síðari
hálfleikurinn. íslendingarnir
byrjuðu mjög vel og náðu
fljótt nokkurra stiga forustu.
Um miðjan hálfleik voru þeir
6 stigum vfir Í7—11, en þá
tóku Englendingar sig mjög
á, og skoruðu nokkrar körfur
í röð og komust yfix 18—17.
Bættu þeir enn við forskotið
og unnu hálfleikinn með 29
stigum gegn 22. Á þessu tíma-
bili léku Englendingar mjög
vel bæði í sókn og vörn. Eink-
um var miðherji þeirra 1,95
m. á hæð, hættulegur, en hann
skoraði langflest stig af þeirra
hálfu.
í seinni hálfleik héldu Eng-
lendingar - áfram með sama
hætti og hættu enn við for-
skotið og komust 11 stig yfir
35—24. Var manni þá hætt að
lítast á blikuna og orðinn von
lítill sigur. En íslenzka liðið
tók sig mjög á og næstu mín-
útum skoruðu þeir hverja
körfuna á fætur annarri marg
ar mjög fallegar. Tókst þeim
að ná yfirhöndinni 38—37 og
það sem eftir var hálfleiksins
stækkaði bilið smám saman og
leiknum lauk með sigri ís-
lands 63 stig gegn 53.
Óhætt er að fullyrða að
þetta hafi verið bezti leikur
íslands í keppninni. Þeir
höfðu á flestum sviðum yfir-
burði yfir Englendinga, sér-
staklega hvað hraða og leik-
aðferðir snertir. Það sem ég
var ánægðastur með í leikn
um var það hvað íslending-
unum tókst nú fyrst að út-
færa þær leikaðferðir er þeir
höfðu æft fyrir keppnina.
Gáfu þær góða raun einkum
í síðari hálfleik. Þá náði liðið
oft góðum leiftursóknum og
oft komust þeir mjög laglega
í gegnum ensku vörnina, eink
um Gunnar og Anton. Hitinn
í skotunum og vítum var
einnig miklu betri en í fyrri
leikjum liðsins. Beztu menn
í liðinu voru Anton og Gunn-
ar en Tómas og Kristinn áttu
einnig góðan leik. Stighæstir
voru Anton með 17 stig Gunn-
ar með 13 Kristinn með 14
og Agnar með 8 stig.
í síðasta leik mótsins, sem
jafnframt var úrslitaleikur
mótsins áttust við Frakkar og
Svíar. Frakkar sigruðu auð-
veldlega með 68 stigum gegn
34. Áttu Frakkar mjög glæsi-
legan leik og sýndu svo ekki
varð um villzt að þeir voru
í sérflokki í keppninni. Að-
eins eitt lið heldur áfram úr
þessum riðli. Það verða Frakk
ar og munu þeir taka þátt
í úrslitakeppninni sem háð
verður á Ítalíu í apríl næst-
komandi. Verður fróðlegt að
fylgjast með árangri þeirra
þar.