Morgunblaðið - 27.09.1963, Síða 23
1 Fostu&agur 27. sept. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
23
mmr ............ - 1 " 1 ul- """
Kellavíkurveguirinra
opiaaður smám saman
NÝI steypti Keflavíkurvegurinn
er að smákoma í not, en veðrið
tefur nokkuð, þar sem verið er að
fylla upp í raufarnar með mal-
biki og erfitt að athafna sig við
það í þessari bleytu.
Nýlega var opnaður 2 km kafli
af veginum frá Hvaleyrarholti
og suður í Kapelluhraun og um
helgina verður opnaður til um-
Aflaskipið Sigurður
Sigurður með 275 lestir
af Nýfundnalandsmiðum
Aflahæstur að
verðmæti
a
magni
sl. ári
og
TOGARXNN Sigurður mun nú
vera aflahæsti íslenzki togar-
inn, hvort heldur er miðað
við magn eða verðmaeti aflans.
Hann kom núna inn í vikunni
með 275 lestir af fiski, sem p||
hann fékk á Nýfundnalands-
miðum, þar sem hann hafði ;
verið einn íslenzkra togara að
veiðum, en á heimamiðum hef *
ur aflinn verið mjög lélegur. |||i
Var þá liðið nákvæmle.ga eitt
ár frá því núverandi skip-
stjöri, Auðunn Auðunsson, tók
við skipinu (22. sept.).
Á þessu eina ári hefur skip-
ið aflað 4260 lestir af fiski.
Auk þess voru keyptar 250
lestir af síld, sem skipið
sigldi með og seldi ásamt eig-
in afla á erlendum markaði.
Af þessu aflamagni var
2800 lestum landað hér heima Auðunn Auðunsson,
að yerðmæti upp ur sjo 8,3 skipstjóri á Sigurði.
millj. krona. 1460 lestir af
fiski og 250 lestir af síld voru fyrir 10,8 millj. króna að frá
seldar á erlendum markaði dregnum tollum og löndunar-
kostnaði erlendis, samtals
19,1 millj. króna.
Þegar sá afli,. sem togarinn
landaði hér heima, hefur ver-
ið flakaður og fullunninn, en
hann tvöfaldaðist við það að
verðmæti, nemur heildar gjald
eyrisverðmæti þess afla, sem
fengizt hefur á Sigurð þetta
eina ár samtals 27,4 millj. kr.
Almennt mjög léleg aflabrögð
Aflabrögð togaranna al-
mennt eru samt mjög lítil, þó
komi ein og ein sæmileg ferð.
Er afli Sigurðar eina veru-
lega aflamagnið sem landað
hefur verið í Reykjavík lengi,
að því er Hallgrímur í Togara
afgreiðslunni tjáði blaðinu.
Jón forseti landaði í gær 100
lestum af heimamiðum og
hafa aðrir yfirleitt haft svipað
magn eftir túrinn að undan-
förnu.
Skipin sem siglt hafa, hafa
einnig farið með lítinn afla.
T. d. seldu 8 togarar erlendis
í vikunni frá mánudegi til
fimmtudags, og höfðu frá
65,5 lestum upp í 150 lestir
hver.
• Rusk og Home
ræðast við
New York, 26. sept. (NTB).
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Breta og Bandaríkjanna,
Home og Dean Rusk, ræddu
ástandið í alþjóðamálum, er
þeir komu saman til fundar
í aðalstöðvum Sameinuðu
þjóðanna í New York í dag.
Haft var eftir áreiðanlegum
heimildum, að ráðherrarnir
hefðu rætt væntanlega aðild
Breta að sameiginlegum
kjarnorkuflota Atlantshafs-
bandalagsins og ágreinings-
efni Austurs og Vesturs.
• Kosningar
í Grikklandi
Aþenu, 26. sept. (NTB).
í DAG gaf Páll Grikkjakon-.
ungur út tilskipun um, að
þing landsins skyldi rofið og
efnt til kosninga 3. nóv. n.k.
í gær baðst Pipinelis for-
sætisráðherra lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt, en talið
er að stjórn hans muni sitja
þar til kosningarnar hafa
farið fram.
— Níðbréf
Framh. af bls. 1
Sænski sérfræðingurinn,
sem ákærandinn kallaði fyrir
i dag, reyndi að mótmæla
kenningu Norðmannsins, en
er yfirheyrzlum lauk í dag,
var ákveðið að láta fara fram
nánari rannsókn á ritvélum
þeim, y a til greina geta
komið.
— Gangnamenn
Framh. af bls. 24
ur að Fossum í Svartárdal kl.
10.30 um kvöldið.
Mjög mikill snjór var á
allri heiðinni. Á framleiðinni
hafði skafið í þykka skafla,
en á norðurheiðinni var snjór
jafnari og færi verra. Allir
gangnamenn voru vel út hún-
ir og leið vel, þrátt fyrir ill-
viðrið.
í framhluta Svartárdals er
mjög mikill snjór, en minni norð
ar. Er alveg óráðið hvað gert
verður eða hvenær farið í göng-
urnar.
Mikill snjór í A-Hún.
Veður í Austur-Húnavatns-
sýslu fór í gær batnandi en var
þó hvergi nærri gott. Mikill
snjór er um allt héraðið og sam-
göngutruflanir miklar. Ganga
mjólkurflutningar þar erfiðlega.
Sláturflutningar til Blönduóss
stóðu yfir langt fram eftir nóttu.
En þó tókst ekki að ná fullri
fjártölu í gær. Af þeim sökum
varð að hætta slátrun fyrr en
venjulega. Hins vegar var búizt
við að slátrun hefjist aftur kl. 8
í gærkvöldi, en þá var von á fé
úr Vatnsdal. Óttast er að fé hafi
fennt víða og margir hafa þegar
fundið fé í fönn. Hins vegar hafa
ekki verið tök á að fylgjast vel
með fénu. Og víða hefur það lít-
inn haga og stendur sums stað-
ar í svelti. — Bj. B.
Frá Vestfjörðum bárust þær
fréttir í gær til viðbótar fyrri
fjárskaðafréttum, að 9 kindur
hefði hrakið í djúpa framræslu-
skurði á Kirkjubóli í Valþjófs-
dal og fundist þar dauðar. Hefur
veðráttan þar um slóðir tafið
mjög fjárrekstra og slátrun og
víða þurft að grafa fé úr fönn
undanfarna sólarhringa.
ferðar 5 km. kafli til viðbótar
eða suður undir Hvassahraun.
Og seinasti kaflinn, sem nær
suður í Kúagerði verður vænt-
anlega opnaður fljótlega upp úr
mánaðamótum, að því er vega-
málastjóri upplýsti í gær.
' *
Ohagslæður
vöruskipta-
jöfnuður
í ágústmánuði var vöruskipta-
jöfnuðurinn óhagstæður um 47,5
millj. kr. og á tíma-bilinu frá
janúar til ágústloka um 596,9
millj. Var flutt út fyrir 2351,3
millj., en inn fyrir 2.948,2 millj.,
þar af skip og flugvélar fyrir
133.1 millj. kr; í ágústmánuði
var útflutningurinn fyrir 274,7
millj. kr. en innflutningur fyrir
322.2 millj.
Arið 1962 var vöruskiptajöfn-
uðurinn janúar til ágúst óhag-
stæður um 57,5 millj. kr. og í
ágúst hagstæður um 6.1 millj.
Þrjúr nýjur brýr
og tvö ræsi
AKRANBSI, 26. sept. — Geysi-
miklar samgöngubætur eru að
brúnum, sem steyptar hafa ver-
ið í Dalasýslu. Kristleifur Jó-
hannesson, brúarsmiður að
Sturlureykjum hefur í sumar
unnið með 22ja manna flokki
og byggt þrjár brýr yfir ár og
brúað tvö ræsi, 20 m langa brú
yfir Tunguá í Dölum, 20 m brú
yfir Laxá í Laxárdal, 8 m langa
brú yfir Hólkotsá í Dölum. Ræs-
in sem brúuð voru eru bæði í
Dalasýslu. Nú eru þeir að byrja
á að byggja 4 m langa brú yfir
Núpó í Eyiahreppi í Snæfells-
nessýslu. — Oddur.
— Forsætisráð-
herrafundur
Framh. af bls. 1
sagði Ólafur Thors, „að ánægju
legur samhugur ríkir með for-
sætisráðherrunum og stjórnar-
nefnd Norðurlandaráðsins, fyrst
og fremst um vandamálið varð-
andi endurskipulagningu starf-
semi ráðsins. Aðalatriðið er stofn
un fleiri fastanefnda, sem geta
undirbúið og fjallað um mörg
mál þannig, að fundir Norður-
landaráðsins geti einbeitt sér að
fáum mikilvægum málefnum.
Þá verður hægt að hafa fundina
styttri og vekja almennari áhuga
á þeim, en nú þegar má með
nokkrum rétti kalla ráðið papp-
írsmyllu, eins og Kaupmanna-
hafnarblað eitt gerði í dag“, sagði
forsætisráðherrann og bætti við:
„En það er einnig bakhlið á heið-
ursmerkinu, því að óttazt er, að
með hinni nýju skipan fjarlægist
ríkisstjórnirnar starfsemi ráðs-
ins, en þegar á heildina er litið,
eru kostir styttri og virkari
funda meiri en gallarnir“.
Ólafur Thors bauð ráðherrun-
um, að næsti fundur þeirra yrði
haldinn í Reykjavík og verður
hann sennilega næsta haust.
— Rytgaard.
Kaupmannahöfn, 26. sept.
— NTB —
Forsætisráðherrar Norðurlanda
og stjórnarnefnd Norðurlanda-
ráðs ræddu á fundi sínum í
Kaupmannahöfn, tillögur um
mál, sem tekin verða til með-
ferðar á 12. fundi Norðurlanda
ráðsins, sem hefst í Stokkhólmi í
febrúar nk. Helztu málin, sem
þar verða rædd, eru samvinna
Norðurlandanna með tilliti til
ástandsins í markaðsmálum Ev-
rópu og þróunar alheimsvið-
skipta og raunhæfar aðgerðir til
eflingar samvinnu Norðurlanda á
sviði menningarmála.
Meðal annarra mála, sem rædd
verða í Stokkhólmi, er tillaga
dönsku stjórnarinnar um stofn-
un norræns menningarsjóðs og
tillaga sænsku stjórnarinnar um
fastar liðssveitir Norðurlanda
hjá Sameinuðu þjóðunum.
Forsætisráðherrar Norðurland-
anna og stjórnarnefnd Norður-
landaráðs ræddu einnig tillögu
stjórnarnefndarinnar um endur-
skipulagningu starfsemi ráðsins
og var hún samþykkt. Tillagan
felur fyrst og fremst í sér, að
settar verði á fót fastanefndir,
sem starfi milli funda Norður-
landaráðs, og nefndarálit um hin
mikilvægari mál liggi fyrir, er
fundir ráðsins hefjist. Forsætis-
ráðherrarnir létu þó í ljós áhyggj
ur yfir því, að þetta nýja skipu-
lag veikti sambandið milli Norð-
urlandaráðsins og ríkisstjórna
Norðurlanda.
Samkomulag varð um, að til-
lögur, sem hingað til hefði ekki
verið hægt að taka til meðferðar
fyrr en þær hefðu verið lagðar
fyrir Norðurlandaráðsfund mætti
nú leggja fyrir fastanefndirnar.
Fundurinn samþykkti, að ríkis
stjórnir Norðurlandanna reyndu
eftir megni, að leggja frumvörp,
sem varða samnorræn málefni,
fyrir þing landanna á líkum
tíma.
Á fundinum var enn fremur
rætt um kynningu á Norðurlönd-
unum erlendis og samþykkt að
gefa út tvö rit á erlendum mál-
um, í þeim tilgangi. Munu þau
fjalla um samvínnu Norðurland
anna.
Nokkrir ljull-
vegir enn
lokuðir
í GÆR voru Möðrudalsöræfin
enn ófær bílum og einnig Siglu-
fjarðarskarð. Fjallavegir um
Austfjarðaheiðarnar voru flestir
orðnir nokkuð færir. En á Vest-
fjarðaleið var Þingmannaheiði
fær stórum bílum, en Botnsheiði,
Breiðadalsheiði, Gemlufallsheiði
og Hrafnseyrarheiði lokaðar.
Lágheiði, til Ólafsfjarðar, lok-
aðist í fyrradag. Voru þá bílar
uppi á heiðinni og báðum megin
við hana. Ekki var mjög mikill
snjór Ólafsfjarðarmegin, en
mikið snjóaði Fljótamegin. Á
heiðinni voru m. a. stórir bílar,
sem ætluðu þá leiðina til Siglu-
fjarðar. Heiðin var rudd, og var
í gær aftur fær bílum.
Hljóta lof
Framh. af bls. 6
málar kuldalegt landslag eða
andlit“.
STUART PRESTON, gagnrýn
andi „The New York Times“,
segir í fyrri viku: „Fimm
bandarískir samtíðarmálarar
sýna hjá Knoedlers . . . þeir
sanna, að bilið milli abstrakt
expressionisma og hægfara
realisma er ekki eins breitt
og æbla mætti, og ekki svo,
að krefjist baráttu . . þeir
fást allir við tjáningarbæra
reynslu. í stuttu máli, þá mála
þeir það, sem þeir sjá.
Andlits- og landslagsmynd-
ir Louisu Matthiasdóttur eru
svo aðgengilegar, aðferð henn
ar svo hrein, að myndirnar
gætu verið skornar úr litum,
í stað þess að vera málaðar
með þeim.
Leland Bell má líkja við
ofantalda þrjá (Hyde Solo-
mon, Nell Blaine og Louisa)
í því, að hann viðurkennir
mikilvægi hversdagsins og
þess venjulega, þótt túlkun til
finninga hans verki frekar
eins og leynilegar bendingar.
Þær geta verið vægar, ein3
og í hópmyndinni, sem virðist
vera gerð eftir gamalli ljós-
mynd. Þó vex tilfinningaþung
inn í tveimur sjálfsmyndum,
sem eru frábær verk, og ná
þar hámarki".
— Myndlista-
skólinn
Framh. af bls. 3
tónlist á undanförnum árum við
kennslu, og hefur gefið góða
raun. Hafa komið lofsamlegar
greinar og myndir um þessa
kennsluaðferð Jóns í bandaríska
tímaritinu School art.
Forráðamönnum Myndlistaskól
ans hefur verið það ljóst að ung-
lingar sem komið hafa í skólann
og ætlað að stunda nám í full-
orðinsdeildum gefast upp eftir
nokkurn tíma. Það er því ætlun-
in að þeir unglingar sem fara I
þessa deild geti fengið fræðslu
í sem flestum greinum myndlist-
arinnar við sitt hæfi og þarmeð
er brúað bilið sem var á milli
barnadeilda og fullorðinsdeilda.
Ráðin hefur verið skólastjóri
við skólann Páll J. Pálsson. Kenn
arar í vetur verða Ásmundur
Sveinsson, Hringur Jóhannesson,
Hafsteinn Austmann Jóhannes
Jóhannesson, Kjartan Guðjóns-
son og Jón E. Guðmundsson.