Morgunblaðið - 27.09.1963, Síða 24
"fíorden's
VORUR
BRAGÐAST BEZT
sparið og
notiö Sparr
209. tbl. — Föstudagur 27. september 1963
Ekkerf hœgt aö smala frá Hofsjökli norður « byggÖ
Gangnamenn heim eftir 5
daga árangurslausa leit
Gangnamenn af Landmannaafrétti ókomnir
GANGNAMENN á Eyvindar-
staðaheiði, Skagfirðingar og Hún
vetningar, komu seint í fyrra-
kvöld til byggða í einum hóp og
höfðu ekkert getað smalað
vegna óvegurs á öllu heiðarsvæð-
inu suður að Hofsjökli. Verður
að fresta göngum þar til lægir,
og ekki er hægt að vita hvernig
Donskir toll-
verðir fundu
smygl í
Bokkofossi
DANSKIR tollverðir gerðu
mikla leit í Bakkafossi, er
hann kom til Kaupmanna-
hafnar frá Stettin s.l. sunnu-
dag. Fundust í skipinu um
60 flöskur af Vodka og kassi
af sígarettum, sem ekki var
undir löglegum innsiglum.
Var þetta tekið og skv.
fréttum í dönskum blöðum
hefur eigandinn hlotið þunga
sekt. Þess skal getið að Bakka
foss var á leið til Reykjavík-
ur, en kom við í Kaupmanna-
höfn vegna smábilunar.
fé reiðir af þar fram frá. Sunn-
anmenn á Landmannaafrétti, 30
—40 talsins, sem áttu að koma
til byggða í gær, voru ókomnir
í gærkvöldi og ekki væntan-
legir fyrr en í dag. — En
samkvæmt fréttum frá Galtalæk
var veður orðið þurrt, N-kaldi
og heldur bjart til fjalla.
í gær var aftur á móti réttað
í Hrunamannarétt og Skafthóls-
rétt í ágætu veðri og Skeiðarrétt
á að vera í dag. Fóru Hreppa-
menn aftur inn fyrir afrekstrar-
girðinguna í fyrrakvöld og fundu
um 100 kindur, sem fluttar voru
á bílum til byggða. Ein fannst
dauð í krapagili og er hætt við að
svo sé um fleiri, að sögn frétta-
ritara. Fara gangnamenn aftur á
fjöll á laugardag. Óttast menn
að fé sé í fönn inni á afréttinni.
Mikill snjór á allri
Eyvindarstaðaheiði
Fréttaritari blaðsins á Blöndu-
ósi átti í gær tal við Sigurjón á
Brandsstöðum, einn gangna-
manna á Eyvindarstaðaheiði og
fékk hjá honum frásögn af göng-
um.
Eyvindarstaðaheiðarmenn lögðu
upp á laugardag og fóru þá í
venjulegan náttstað í Ströngu-
kvíslarskála. Á sunnudag var
éljaveður, en leit gekk þó sæmi-
lega. Á mánudaginn var ágætt
/#
...fólkið hefur
svo mikið frelsi/
sagði Valgerður Stefánsdóttir
á 100 ára afmælinu
i
F Y R S T A afmæliskveðj an,
sem Valgerði Stefánsdóttur,
Reynimel 48, barst á 100 ára
afmælisdaginn í gær, var
blómakarfa frá borgarstjóran-
um. Síðar í gær heimsóttu
hana fjöldi góðra kunningja
og var hún hin hressasta.
Fréttamaður Mbl. leit þar
líka inn inn kaffileytið og
settist á rúmstokkinn hjá Val-
gerði og rabbaði við hana
góða stund, en hún hefur ver-
ið rúmliggjandi síðustu tvö
árin. Það var kalt úti svo
að við vöktum athygli á því,
að veturinn væri aftur að
ganga í garð.
„Já, sá 101.“ Svo hló hún.
„Þetta er langur tími. En það
er til lítils að koma til mín
að leita frétta. Það er ekki
merkilegt sem ég hef að segja.
Orðin 100 ára, það er allt og
sumt“.
„Það þykja nú allstórar
fréttir", sögðum við, en henni
fannst ekki mikið til þess
koma.
„Og hverju mundir þú
þakka langlífið?“ spurðum
við.
„Ég veit ekki hvað skal
segja. Ég hef alltaf haft nóg
að starfa — og gengið glöð
og kát að mínum störfum.
Lífið er skemmtilegt.“
„Og þú varst alltaf hraust
fyrr á árum?“
„Já, mér varð varla mis-
dægurt. Vinnan var mikil og
erfið, maður mátti ekki vera
að neinu þar fyrir utan. Ég
var alltaf hraust"
„En hvað vekur þig helzt
til umhugsunar, þegar þú
gerir samanburð á lífinu eins
og það var í þinni æsku —
og núna“.
„Frelsið, frelsið — fólkið
hefur svo mikið frelsi til þess
að gera allt, sem því dettur
í hug. Áður var það vinna og
aftur vinna, fólkið var eilíft
upptekið við sína vinnu og
gat ekki litið upp. Annað
dugði ekki“.
Valgerður hefur verið blind
í 15 ár, en fósturdóttir henn-
ar les fyrir hana úr blöðun-
um daglega — og á útvarpið
hlustar hún alltaf — og fylg-
ist vel með. Hún vissi, að
hann var farinn að kólna úti
— en það skiptir hana ekki
máli, því það er hlýtt í kring
um hana.
veður, en um kvöldið byrjaði að
snjóa og var orðið afleitt veður
á þriðjudagsmorgun. Allmargir
gangnamenn lögðu þá af stáð, en
urðu að snúa við vegna hríðar.
í gærmorgun var enn mikil hríð
og kl. 12.30 lögðu allir af stað í
einum hóp til byggða án þess að
geta smalað. Venjulega eru
menn 4—5 klst. að fara þá leið
lausríðandi, en nú voru gangna-
mennirnir 10 klst. og komu nið-
Framh. á bls. 23
Bóndi klemmist
undir dráttarvél
ÓLAFSFIRÐI, 26. sept. — Mý-
varður Jónsson, bóndi i Garði,
varð ‘fyrir slysi, er dráttarvél
hans valt út af veginum skammt
frá bænum. Varð hann undir
vélinni og mátti ekki tæpara
standa að hjálp bærizt til að
ná honum undan henni, því hann
hafði 4 rif brotin og átti þá
þegar mjög erfitt um andardrátt-
Mývarður var á leið frá Ólafs-
firði á miðvikudag á dráttarvél
og með kerru aftan í, er hann
þurfti að víkja út á vegarbrún-
ina vegna bíls, sem hann mætti.
Hestur skilinn
eftir slusnður
til ólífs
í FYRRINÓTT var ekið á hest
frá Hveragerði hjá Krossi í Ölf-
usi og hann skilinn eftir svo
mikið slasaður að hann fannst
dauður í gærmorgun. Á staðn-
um þar sem ekið hefur verið á
hestinn var nokkurt traðk, svo
fólk hefur farið út úr bíl. Hef-
ur hesturinn komizt 14 m út
af veginum og sýnilega barizt
þar um, þar til hann dó liggj-
andi á barði.
I gærkvöldi fannst svo annar
hestur uppi í fjalli, illa skorinn,
og talið líklegt að hann hafi líka
orðið fyrir bílnum.
Ökumaðurinn hefur ekkert
látið til sín heyra síðan. Allar
líkur benda til að talsvert sjái
á bílnum og biður lögreglan á
Selfossi þá sem kynnu að geta
gefið upplýsingar um að snúa
sér til lögreglunnar í Reykja-
vík eða á Selfossi og skorar á
ökumanninn að gefa sig fram.
Hefur dráttarvélin sennilega
runnið til, þannig að hún valt
niður af nokkuð hárri vegarbrún
og lenti hjólið ofan á bóndan-
um. Þrír menn voru nærstadd-
ir og tókst þeim að lyfta drátt-
arvélinni ofan af manninum,
sem átti erfitt með að draga
andann undir þessu fargi. Munu
a.m.k. 4 rifbein hafa brotnað í
Mývarði. Ekki var hægt að
flytja hann til Akureyrar og
liggur hann heima og líður eft-
ir atvikum.
Vélbdtur söbk
i Mjóuiirði
Neskaupstað, 26. sept — Lít-
ill vélbátur, Björgvin frá Nes
kaupstað, 7 lestir að stærð,
sökk í Mjóafirði s.l. nótt.
Hafði bátnum verið lagt við
legufæri um kvöldið, en um
morguninn var báturinn sokk
inn.
í dag fór vélbáturinn Sæ-
faxi héðan og með honum
tveir kafarar, sem skyldu
reyna að koma vír í bátinn
og draga hann á land. Tókst
þetta og er Sæfaxi nú kom-
inn með Björgvin hingað. Er
báturinn óbrotinn og ó
skemmdur og befur sennilega
gleymzt að loka fyrir botn-
krana. — Á.L.
I GÆR var frá því skýrt í
blaðinu að grænlenzk hjón úr
bændaför Grænlendinga til
itslands hafi haldið hátíðlegt
silfurbrúðkaup sitt á Hvann-
|eyri. Mynd þessi var tekin viff
iþað tækifæri af silfurbrúð-'
hjónunum í þjóðbúningum
sínum.
Enn ein-
hver síld
ÞEGAR Mbl. hringdi í síldar-
radioið á Seyðisfirði kl. 10 í
gærkveldi, voru starfsmenn þess
að pakka saman og hætta. Þeir
höfðu þó þær fregnir að færa
að leitarskipið Þorsteinn .þorska
bítur væri um 50-60 mílur út
af Seyðisfirði og kringum það
síldarbátar, sem væru að fá
hana. En ékki voru komnar frétt
ir um einstaka báta eða hve
mikla síld þeir hefðu fengið.
Veskið ionnst
í öskutunnu
í FYRRADAG var stolið veslá
með 400 kr. frá konu í skrifstofu
einni hér í bæ, en auk þess var
í töskunni bankabók með 16000
kr. innstæðu. — í gærmorgun
fannst veskið í öskutunnu við
hús í miðbænum. í veskinu var
bankabókin og inni í henni 100
kr. í reiðufé, en hinsvegar var úr
því horfin pyngja með 300 kr. í
seðlum og skiptimynt.
Segja tegarasjómenn
upp samningum?
SJÓMANNAFÉLÖGIN eru nú aff
leita álits félaga sinna um það
Fólkseklu við irúgung ú
síldurplönum
NESKAUPSTAÐ, 26. sept. — Nú
er verið sem óðast að taka út
sild, meta hana og ganga frá
henni til útflutnings. Það er gíf-
urleg vinna við þetta og vantar
fólk í stórum stíl, einkum nú þar
sem skólafólk er að hætta. Horf-
ir til vandræða á sumum plön-
í viðtali við einn starfsmann
íslenzka síldarmatsins í dag,
sagði hann mér, að íslenzka síld-
armatinu þættu rússnesku mats-
mennirnir fara stífara í matið nú
en undanfarin ár. En þó mætti
segja að gengi snurðulaust milli
íslenzka og rússneska matsins að
öðru leyti. — A. L.
hvort segja beri upp samningmu
við togarasjómenn, sem gerðir
voru eftir langa verkfalliff í júlí
1962 og eru atkvæðagreiffslur um
þetta hafnar eða að hefjast í fé-
lögum undirmanna á togurunum.
Þarna er um að ræða Sjómanna
félag Reykjavíkur, Sjómannafé-
lag Hafnarfjarðar, Sjómanna-
deild verkamannafélagsins Þrótt-
ar á Siglufirði, Sjómannadeild
Verkalýðsfél. Akraness og Mat-
sveinafélag SSÍ.
Ef samþykkt verður að segja
samningunum upp, verður að
gera það fyrir 1. október, en samn
ingarnir falla þá úr gildi 1. des.