Morgunblaðið - 20.10.1963, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 20. okt. 1963
Ólafur Bjamason dósent og
yfirlæknir varði í gær dokt-
orsritgerð sína um legkrabba
mein. Athöfnin fór fram í
hátíðasal Háskólans og hófst
kl. 2. Próf. Davíð Davíðsson,
forseti læknadeildar, stýrði
athöfninni og andmælendur
voru dr. med. próf Júlíus
Sigurjónsson og Pétur H.J.
Jakobsson, dósent. Var mik-
ill fjöldi lækna og annarra
áheyrenda viðstaddur vörn-
ina.
Doktorsefnið lýsti í upphafi
tildrögum og efni ritgerðar-
sinnar um krabbamein í legi, g&j íir hátiðasalinn meðan á doktorsvöminni stóð. stóff. Fremst til hægri sitja andmælendur:
sem hann hafði lagt fram til
doktorsvarnar. í fyrsta kaflat*r> me^- próf. Júlíus Sigurjónsson og Pétur H.J. Jakobsson, dósent.
Andmælendur.
Að ræðu doktorsefnis lok-
inni gaf stjórnandi fyrri and-
mælanda, dr. med. próf. Júlí-
usi Sigurjónssyni orðið. Fjall-
aði hann einkum uim tölur og
skýrslur, sem birtar eru í rit-
gerðinni. Síðari andmælandi
Pétur H. J. Jakobsson dósent
fjailaði einkum um sjúkdóm-
inn og flokkun hans í ritgerð
inni. Gerðu þeir athugasemd-
ir, en luku lofsorði á doktors-
ritgerðma, sem þeir töldu
merka, ekki sízt þar sem ekki
hefur áður verið hér á landi
gert tilraun til að flokka
þennan sjúkdóm og hvernig
hann hagar sér.
Hinn nýi doktor
Hinn nýi doktor, Ólafur
Bjarnason, er fæddur á Akra-
nesi 2. marz 1914, sonur
Bjarna skipstjóra og útgerðar-
manns Ólafssonar, og konu
hans, Elínar Ásmundsdóttur.
Nýr doktor í Háskólanum í gær
-r > ~
Olafur Bjarnason varði ritgerð um legkrabbamein
er gefið stutt yfirlit yfir breyt
ingar á fólksfjöldanum á ís-
landi á því athugunartíma-
bili, sem ritgerðin fjallar um.
í öðrum kafla er rakið hvern
ig efmviðar til þessara athug-
ana var safnað og á hvaða
frumgögnum þær byggjast,
þ.e.a.s. sjúkraskrám sjúkra-
húsa, vefjagreiningum og
krufningsskýrslum Rann-
sóknarstofu Háskólans og dán
arvottorðum geymdum í Hag
stofu íslands.
1 þriðja kafla er fjallað um
þá, sem látizt hafa úr leg-
krabba á íslandi á athugunar-
tímabilinu. >ar kemur frsnn,
að legkrabbamein sem dánar
orsök fannst ekki skráð á
dánarvottorði fyrr en eftir
1915 og nær því dánarvott-
orðaathugunin aðeins yfir
tímabilið 1916-1955. Við at-
hugun á þessum tölum kvað
doktorsefnið koma í ljós veru
lega aukningu þeirra sem lát-
izt hafa úr legkrabbameini
á tímabilinu og segir að aukn
ingin sé einnig greinileg þótt
tillit sé tekið til fólksfjölg-
unar. Sé dánartíðni úr leg-
krabbameini á íslandi borin
saman við dánartíðni úr þeim
sjúkdómi í öðrum löndum sjá
ist að dánartíðnin sé svipuð
á íslandi og hinum Norður-
löndum, nema í Danmörku,
sem hefur greinilega hæsta
dánartíðni af þessum löndum.
Af öðrum löndum, sem tekin
eru til samanburðar, sker
ísrael sig algjörlega úr með
mjög lága dánartíðni úr leg-
krabbameini.
f fjcrða kafla er á það bent,
að dánarmeinaskráningin gefi
ekki alltaf rétta mynd af tíðni
illkynjaðra æxla. Eigi þetta
ekki sízt við um krabbamein
í legi, þar eð mikill hluti
þeirra sjúklinga læknast. í
þeim kafla er frá því skýrt að
fyrsti sjúklingurinn var lagð
ui í St. Jósefsspítalann í
Landakoti þann 16. febr. 1995
og var þar um að ræða rúm-
lega sextuga konu austan úr
Árnessýslu, sem flutt hafði
verið á kviktrjám í blindhríð
vestur yfir Hellisheiði til
Reykjavíkur og kvað doktors
efni fróðlegt að bera saman
þær aðstæður, sem þá voru til
sjúkraflutninga milli lands-
hluta við það sem tíðkast í
dag. í þessum kafla kemur
fram að á árunum 1901—1905
var talið að einn sjúklingur
hefði sýkzt á landinu af leg-
krabba en á árunum IS'51—
1955 voru þeir 80. Segir dokt-
orsefni að þessar tölur gefi
ekki rétta mynd af aukning-
unni, en sé tekið tiliit til
fólksfjölgunar og borin sam-
an tímabilin 1906—1915 og
1946—1955 komi í ljós að um
tíföld aukning á tíðni þessa
sjúkdóms hafi átt sér stað á
þessu tímabili. En ekki beri
að treysta því að aukningin
sé svo mikil. í kaflanum er
einnig gerður samanburður á
tíðni legkrabbameins í
Reykjavík og annars staðar á
landinu. Þær tölur sýna, að
tíðni er mun meiri í Reykja-
vík en utan höfuðborgarinn-
ar og kemur það heim við
reynslu annars staðar frá með
al annars frá Norðurlöndum
þar sem tiðni legkrabbameins
er hæst í .hinum stærri borg-
um, en lægst í dreifbýlinu.
Einnig er gerður samanburð-
ur á tiðni legkrabbameins á
íslandi og hinum Norðurlönd-
um og kemur í ljós að ísland
er með lægsta tíðni en Dan-
mörk hæsta.
í fimmta kafla er fjallað umn
krabbamein í leghálsi. >ar
kemur m. a. fram að aldurs-
skipting sjúklinganna sýnir
að tíðni þessarar tegundar leg-
krabbameins er hæst á aldrin-
um milli fertugs og fimmtugs.
í þessum kafla er einnig gerð
grein fyrir því hve sjúkdóm-
urinn var langt genginn þeg-
ar sjúklingar komu til með-
ferðar. Kemur þar fram að
tveir þriðju sjúklinganna
höfðu haft einkenni lengur en
hálft ár áður en læknis var
leitað. Til samanburðar er
þess getið að í stór-
um sjúklingahópi, sem Truel-
sen athugaði í Danmörku
höfðu aðeins tæpur þriðjung-
ur haft einkenni svo lengi áð-
ur en meðferð hófst. Að lok-
um er svo meðferð lýst stutt-
lega og gerð tilraun til að
meta árangur hennar.
f sjötta kafla er fjallað um
krabbamein í legbol, aldurs-
dreifing rakin og smásjárat-
hugunum, sjúkdómseinkenn-
um og meðferð lýst. í sjöunda
kafla er stuttlega minnzt á
átta sjúklinga, sem höfðu sam
tímis krabbamein í legi og
eggjakerfum og í áttunda og
síðasta kafla ritgerðarinnar er
farið nokkrum orðugi um þau
sjúkdómstilfelli, sem ekki var
unnt að skipa í ákveðinn
flokk. Slíkum tilfellum hefur
farið hlutfallslega mjög fækk-
andi á síðari hluta athugunar-
tímabilsins eða úr 37,9% á ár-
unum 1916—25 niður í 13,5%
á árunum 1946—55.
Hann er stúdent frá MR 1935
og lauk embættisprófi í
læknisfræði frá Háskóla ís-
lands 1940. Hann stundaði
framhaldsnám í meinafræði í
Stokkhólmi 1945—47 og í Lon-
don 1949—50 og hefur síðan
farið námsferðir til Bandaríkj
anna, Bretlands og Norður-
landa. Hann var viðurkennd-
ur sérfræðingur í meinafræði
1953, aukakennari við lækna-
deild Háskólans frá 1953, skip
aður dósent í meinafræði 1959,
aðstoðarlæknir í Rannsóknar-
stofu Háskólans frá 1940 og
skipaður yfirlæknir þar 1963.
Kona Ólafs er Margrét Jó-
hannesdóttir, og eiga þau
þrjár dætur.
Ólafur Bjarnason ver doktorsritgerff sina.
4. starfsár IViusica IMova:
Fyrstu tónteikarnir í dag
ÞANN 8. nóvember n.k. verð-
ur dregið um hina glæsilegu
Mercedes Benz bifreið, sem vinn
ingur er í skyndihappdrætti
Sjálfstæðisflokksins. Verðmæti
bifreiðarinnar er 320 þúsund kr.
og í nóvembermánuði hreppir
einhver hana fyrir aðeins 100 kr.
>egar á fyrsta degi var mikil
sala í miðum, en betur má ef
duga skal. Með því að kaupa
happdrættismiða stuðla menn að
eflingu Sjálfstæðisflokksins og
eignast um leið möguleika að
eflingu Sjálfstæðisflokksins og
eignast um leið möguleika á hin-
um mikla ávinning, glæsilegri
einkabifreið fyrir aðeins 100 kr.
KAUPIf) MIÐA STRAX í DAG.
Skyndihappdrætti Sjálfstaeðis-
ftokksins
^ í dag, sunnudag, hefst
fjórða starfsár Musica Nova
með hljómleikum í Þjóðleik-
húskjallaranum kl. 3 síðdegis.
Félagið hefur jafnframt á-
kveðið efnisskrá þriggja ann-
arra hljómleika í vetur, en
auk þeirra verða væntanlega
aukahljómleikar með erlend-
um géstum.
Þá verður sú nýhreytni
tekin upp að selja áskriftir að
föstum hljómleikum og kost-
ar ársmiði þannig 150 krónur.
Veitir hann jafnframt rétt-
indi til afsláttar af öllum
aukatónleikum félagsins.
Á hljómleikunum í dag verða
leikin verk eftir fjóra höfunda,
Divertimento eftir M. Seiber,
Twee Stukken eftir P. Schat og
Adagio eftir Alban Berg, en ekk-
ert þessara verka hefur verið
flutt hér áður. Ennfremur verður
flutt tónverkið „Haustlitir“ eftir
>orkel Sigurbjörnsson, en það
var áður flutt á tónleikum fé-
lagsins árið 1960. Með einsöngs-
hlutverkið fer Sigurveig Hjalte-
sted.
Meðal hljóðfæraleikaranna eru
að þessu sinni tveir, sem aldrei
fyrr hafa leikið á tónleikum
Musica Nova, þau Rut Ingólfs-
dóttir, fiðluleikari, og Hafliði
Hallgrímsson, cellóleikarL
Eingöngu íslenzk tónverk
á apríl-tónlcikunum
Næstu tónleikar Musica Nova
verða í nóvember. >á verða flutt
verk eftir Honegger, Webern,
Stravinsky og Leif Þórarinsson.
Á þriðju hljómleikunum, í febrú-
ar, verða leikin verk eftir Boulez,
Webern og Schönberg. Ekkert
þessara verka hefur fyrr hevrzt
á tónleikum hérlendis.
f aprfl verffa svo hljómleflcar,
væntanlega einkar forvitnilegir,
því að þá verða eingöngu leiknar
íslenzkar tónsmíðar, samdar sér-
staklega fyrir hljóðfæraleikara
Musica Nova.
Fyiiilestnr
am notkun
leiknivéln
HR. MOGENS HANSEN verk-
fræðingur frá Danmörku flytur
fyrirlestur um notkun reiknivéla
í tækni og stjórnun (Elektron-
iske regnemaskiners andvendelsa
indenfor teknik og administral
ion) n.k. miðvikudag 23. okt kL
17,30 í L kennslustofu háskólan3,
Öllum er hemiill aðgangur.
(Frétt frá Háskólanum).