Morgunblaðið - 20.10.1963, Page 3

Morgunblaðið - 20.10.1963, Page 3
Sunnudagur 20 okt. 1963 MORGUNBLAÐIÐ 3 Frú Bjarnveig og maður hennar, Snorri Sigfússon, fyrrv. námsstjóri, standa milli tveggja verka íóns Engilberts. Til vinstri er „Gull og silfur“, sem Iistamaðurinn lauk við á þessu ári, en til hægri er eldri mynd, „Súlur á Þingvöllum". Auðsætt er að Bjarnveig hefur valið myndir frá mismunandi æviskeiðum listamaunanna, og gefur það gjöfinni meiri safnsvip. Frú Bjarnveig kveöur góöa vini gefur Arnesingum málverkasafn sitl — Mér hafa aildrei fundizt myndirnar jafnfaliegar og nú þar sem þær hanga í Boga- salnum, sagði Bjarnveig bvort sem ástæðan er sú, að hér er húsrýmið gott og Hjörleifur Sigurðsson, lisbmálari, hefur komið þeim fyrir á einstak- lega smekklega hiátt, eða þá að ég finn að skilnaðarstundin er ekki langt undan. Þessar myndir eru góðvinir minir. Ég 'hef eignazt þær á 30 til 40 áruim. í gær aflhenti Bjarnveig Bjarnadóbtir Árnessýslu að gjöf frá sér og sonum sinum Lofti og Bjarna M. Jóhanns- sonum 41 listaverk, sem mynda munu heildarsafn í nýja safnhúsinu á Selfossi. Verður þebta fyrsta málverka- safn utan Reykjavíkur. Myndirnar eru eftir 17 mál- ara, flestar eftir Ásgrím Jóns- son, frænda Bjarnveigar, eða 17 talsins. Ber þar hæst olíu- miálverkin „Tré í Húsafells- skógi” og „Hví'tá og Eiríks- jöikuill” og tvær sbórar vatns- litamyndir, „Eiríksjökull og Hv.'/tá” og Haust á ÞingvöU- um”. Eftir Gunnilaug Ó. Sohving eru 5 oliumálverk og 1 vatns- litamynd. Eftir Þorvald Skúla- son eru 3 olíumálverk. Tvö olíumáilverk eru eftir Jón Engiiberts, annað nýfuligert, en hitt frá fyrri árum. Hinar myndirnar .eru eftir Eirík Smiitlh, Finn Jónsson, Gunn- laug Blöndal, Gunnar S. Magnússon, Hörð Ágústsson, Jóhann Briem, Jóhannes S.- Kjarval, Jón Jónsson, Jón Stefánsson, Jón Þorleifsson, Snorra " Arinibjarnar, Sverri Haraldsson og Veturliða Gunn arsson. Hér fer á eftir ávarp það, sem frú Bjarnveig flutti við aflhendinguna: Herra forseti fslands, sýsiu- maður Árnessýslu, og aðrir virðulegir gestir. Ég leyfi mér að bjóða yður öll velkomin hingað í dag til þess að litast hér um veggi og sjá með eigin augum þessi listaverk, sem ég hefi verið svo djörf að bjóða Árnessýslu til eignar. Ég hefi alla ævi haft mikið yndi af góðri myndlist, og smábt og smátt á 30 — 40 árum eignast það safn mál- verka sem bér er. Hefur það gerzit með ýmsu móti, eins og t.d. með þeirri venju um ára- bil, að leggja mánaðarlega smáupphæðir til hliðar í sér- stakan máilverkasjóð, sem var svo við og við notaður þegar taekifæri bauðst. Voru þá líka ýmsir af málurunum mér hlið hollir þegar um kaup var að ræða. En um málverk Ásgrims Jónssonar, frænda mins, sem hér eru, er það að segja, að sum þeirra færði hann mér að gjöf á hátíðum og tyllidögum, og mun hafa með því viljað votta mér þakklæti sitt fyrir margskonar 'hjá'lp, er ég veitti honum á efri árum hans, er heilsa hans og þrek tók að bila. Og þó réði kannski einna mestiu um þebta örlæti hans, að hann þóttist viss um þá fyrirætlun mína, að mynda- safn mitt yrði á sínum bíma aLmenningselgn. Og nú mun það fara heim á æskuslóðir hans. Þannig má segja að þetta máliverkasafn mitt hafi orðið til. Þessi listaverk hafa prýtt heimili mitt lengur eða skem- ur, og eru orðin mér mjög kær og samgróin sem ein órjúfanleg 'heild. Hefi ég leit- ast við að veita þeim öllum þann umibúnað, sem slífcum dýrgripum hæfir. Þess vegna hefi ég t.d. sent flestar vatns- litamyndirnar og teikningarn- ar til erlendra kunnáttumanna til þess að fá þeiim þann um- búnað sem beztur er og varan legastur. Aiflar myndirnar sem hér eru á veggjum gef ég Árnes- sýslu, og vonast til að hinn nýi málverkasal'Ur á Seltfossi og fordyri hans rúmi þar all- ar, en á Selfossi skal safnið staðsett. Málverkasafn þebta er gefið rf mér og sonum minum, Lofti og Bjarna Markúsi Jóhannessonum, flugmönnum, í heiðursskyni við móður mína Guðlaugu Hannesdóttur, en hún er Árnesingur, fædd og uppalin á Skipum í Stokiks- eyrarhreppi, er listlhneigð sjálf og á tM sliikra að telja, voru þau Ásgrímur Jónsson systra- börn. Ég lít svo á, að það sé mikils vert fyrir listmenningu þjóð- arinnar, að listasöfn séu stað- sebt sem víðast, og vænti ég þess, að íbúurn hinna fögru sveita og þorpa austanfjalls verði það menningarauki að eignast þetta safn málverka, sem er hið fyrsta, staðsett utan Reykjavíkur. Og ekki sízt vænti ég þess, að skólar Sr. Eiríkur Eiríksson: Veggurinn - dyrnar ^ 19. sd. eftir trinitatis. Guðspjallið Mt. 9, 1-—8. GUÐSPJALL dagsins er um lækningu lamaða mannsins: „Og sjá, menn færðu til hans lama mann, sem lá í rekkju; og er Jesús sá trú þeirra, sagði hann við lama manninn: „Vertu hug- hraustur, barnið mitt, syndir þín- ar eru fyrirgefnar“.“ Ein tízkan var að strika yfir allar kraftaverkasögur Nýja- Testamentisins. Nú viðurkenna fleiri en áður staðreynd þeirra. Aðeins greinir menn á um uppsprettu þessara máttarverka, en kristnir menn telja hana vera almáttugan Guð. Það er athyglisvert, hvernig Jesús byrjar lækningu sína. Hann segir: „Vertu hughraust- ur------“. Það er eins og hann telji víst, að sjúklingurinn sé fyrst og fremst hugveikur eða, að sú sé rótin vanheilsu hans. Og við ályktum að við orð Jesú verði maðurinn hugsterkur og afleiðing þess sé hinn líkam- legi bati. Við segjum: „Hraust sál í hraustum líkama“. Meiningin er þá oftast, að líkamsrækt leiði til andlegrar heilbrigði. Vafalaust er það rétt, en hinu megum við sízt gleyma, að sálar- hreystin viðheldur oft líkams- kröftunum. Maður með banvænan sjúkdóm stjórnaði stóru fyrirtæki langa hríð. Stundum þurfti hann að gera margar atrennur til þess að kom- ast stuttan spöl milli heimilis og skrifstofu sinnar. Við hverja nýja tilraun komst hann nokkrum skrefum lengra og loks alla leið! Hugarhreystin ein heldur líf- inu í mörgum manni og gerir það áhrifaríkara og til meiri bless- unar en hugsanlegt væri ella. Það skiptir því miklu máli, hvað það er, sem fær hughreyst ‘okkur í ríkustum mæli. Það er sagt, að Jónas Hall- grímsson hafi verið heilan dag að þýða upphafsorð Mynsters- hugleiðinga: „Önd mín er þreytt, hvar má hún finna hvíld?“ í rauninni er það ekki dags- verk, heldur hið mesta ævistarf að þýða hugsun þessára orða, að lífsbók hvers og eins geymi hana óafmáanlega. Ef til vill finnurðu ekki til neinnar þreytu sálar þinnar, ó- fullnægjukenndar. Þú er ungur og hamingjusamur. Skáldið lætur jafnvel ungan mann segja: héraðsins kynni nemendum sínum verk þessara 17 lista- manna. En þau höfiuðskilyrði eru sett af minni hálifu fyrir þess- ari gjöf, að safnið verði jafn- an ein heild, en ekki sett á tvístring, og að það sé opið Eramh. á bls. 19 „Min gleði hún varð eii.s og visnað blað, eins og veggur hlæðist um það, sem eg unni“. Veggurinn er fortíð hins unga manns — synd hans. Ef til vill hrópar hér samvizka skáldsins sjálfs, endurminning frá gálausu nautnalífi æskuáranna. Veggurinn er syndin, að vera sekur við Guð, frammi fyrir dóm stóli hans, samvizkunnar. Sá er sjúkdómur margs lama mannsins, ungs sem aldins. „Syndir þínar eru fyrirgefnar". í þessum orðum er lækningin fólgin. Svarið er og þar við spurningunni mikilvægu, hvar þreytt önd mannsins megi finna hvíld. Að vera sáttur við Guð og samvizku sína er hin mikla lífs- hamingja. Norskt skáld bregður upp mynd af mesta dyggðahjúi: Leiguliði nokkur deyr á árs- tíma, sem er annasamur á óðals- setrinu. Hjáleigubónda þessum finnst það skortur á húsbóndahollustu að bregðast svona, er verst gegn- ir, og sendir eftir óðalsbóndan- um, að hann komi að banabeði hans, svo að hann geti beðið hann afsökunar á þessum forföllum.og megi kveðja hann þannig, að þeir séu hjartanlega sáttir. Vinnuhjúaverðlaun kannast menn varla lengur. við, og flest- um mundi þykja trúmennska sem þessi um of og varla trúleg raunar, en hana má til sanns veg ar færa í sambandi við Guðssam- félag okkar, að við leitum þess af allri sáttfýsi og þrá að öðlast vel- þóknun Guðs í lífi og dauða. Syndin er ófriður gegn Guði, hauststormurinn, kaldur og hrá- slagalegur, er fellir blöðin af meiði lífshamingjunnar og skilur þau eftir, visin og dauð á vegum vetrar og myrkurs. Leitastu við að lægja þenna storm, bægðu frá sál þinni árstíð skammdegisins, reyndu að láta huga þinn horfa við sól, Guðs- samfélagsins, að óveðrin lægi syndugs og sundraðs hjarta, svo að líf þitt verði undir merkjum góðu baráttunnar til friðar og farsældar. Er annars um nokkra baráttu að ræða? Fyrst Guð fyrirgefur, til hvers þá mannlega baráttan og viðleitnin til hins góða? Hver fær frelsazt án eigin verðskuld- unar og verðleika? Áttu ekki einhvern, sem þér þykir vænt um? Viltu bregðast honum? Ef til vill gerirðu það. En til þess kemur, að vegna þess að hann er þér betri en þú finnur, að þú átt skilið, muntu að lok- um reynast vináttu hans verður. Sá sem mestu miðlar öðrum finnst, að hann sjálfur sé í mestri þakkarskuld. Minnstu þess umfram allt, að baráttan er ekki þín einungis. Fætur þínir einir bera þig ekki yfir heiðina, þegar ófærð er þar. Hugur þinn sér hönd kveikja ljós í glugga handan heiðarinn- Þrjú málverkanna, Frá vinstri: „Höfnin i Reykjavík“, eftir Jón Þorleifsson, „Esjan og Laugarnestanginn", eftir Jón Stefánsson og „Við ströndina", eftir Jóhann Briem. ar. Hugur og hönd að baki því ljósi, er þér uppörvun að herða gönguna. Veggur erfiðleika og syndar fellur aðeins fyrir Ijósi máttar- orða frelsarans: „Vertu hug- hraustur barnið mitt, syndir þín- ar eru fyrirgefnar”. Og að endingu þetta: Blekktu ekki sjálfan þig með því að segia: »Ég viðurkenni ekki syndina. Veggurinn er hugarburður". Hins skaltu gæta: Veggurinn er óbein forsenda dyranna. Megi okkur auðnast að knýja dyr Guðs náðar í viðleitni og bæn, svo að við öðlumst hlut- deild í Guðssdýrð og mætti og hliótum lækningu og eilífan bata. Amen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.