Morgunblaðið - 30.10.1963, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 30. okt. 1963
Hafnargarffurinn, sem brotnaði í Grindavík í flóðinu um fyrri helgi. (Ljósm. Hilmar Helgason).
20-30 metra kaíli brotn-
aði úr hafnargarðimim
Trytycfja að jarðir
haidist í ábúð
Frétfir frá Grmdavík
GRINDAVÍK, 26. okt. — Þeg-
ar flóðbylgjan gekk hér á
land um síðustu helgi, brotn-
aði 20—30 metra langur
kafli úr hafnargarðinum hér
í Grindavík. Álíka langur
kafli er mjög siginn og sprung
inn.
Þetta er mesta flóð, sem
hér hefur orðið í 30 ár. Gekk
sjór allt upp á götur þorps-
ins.
MIKLAR
FRAMKVÆMDIR
Hér hefur verið mikil vinna
í sumar, enda var humar-
veiði góð, og miklar fram-
kvæmdir voru hér. Vegir voru
lagðir, og grjóti ekið í hafn-
argarð, sem er 350—400 metr-
ar á lengd. Á að dæla sandi
upp úr höfninni inn fyrir
garðinn og gera þar bryggj,-
UNDIRBÚNINGUR
UNDIR SÍLDVEIÐAR
Hjá Fiskimjöli og lýsi h.f.
hefur verið unnið að undir-
búningi síldar- og vetrarver-
tíðar. Lýsisgeymir, sem tek-
ur 600 tonn af lýsi, var byggð
ur, og einnig mjölskemma,
sem rúmar 1.600 tonn af
mjöli. Fengin hefur verið ný,
sjálfvirk vog, og bætt við
skilvindu. Er nú allt tilbúið
til þess að taka á móti síld.
Bátar hafa lítið getað far-
ið út vegna veðurs og ekki
komizt á miðin .nema Hrafn
Sveinbjarnarson III, sem hef-
ur fengið 2,700 tunnur af
stórri og feitri síld í 4 eða
5 ferðum. Síldin hefur öll far-
ið í frystingu.
19 ÍBÚÐARHÚS f SMÍÐUM
Hér er verið að byggja mik-
ið, en mjög háir framkvæmd-
um, hve erfitt er að útvega
iðnaðarmenn. T.d. eru 19 íbúð
arhús nú í smíðum, og búið
er að grafa fyrir fleirum.
Byggð var ein hæð ofan á
Hraðfrystihús Grindavíkur.
Þar verða íbúðir starfsfólks
og mötuneyti. Þetta er um
900 fermetra gólfflötur. Þá er
verið að stækka íbúðir hjá
Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða
um 150 fermetra.
TVÆR KJÖRBÚÐIR
f SMÍÐUM
Einnig er Verið að setja hér
upp tvær kjörbúðir. Önnur
er við Eikabúð, 250 fermetr-
ar, og hin hjá Kaupfélagi Suð-
urnesja, um 300 fermetrar.
SLYS
Þegar verið var að rífa
vinnupalla utan af Hrað-
frystihúsi Grindavikur á
mánudag, vildi svo illa til, að
töluvert stykki hrundi úr
þeim. Með því duttu tveir
menn, Jón Einarsson, verk-
stjóri, sem meiddist á brjósti,
og Haraldur Haraldsson, sem
meiddist á baki og læri. Báð-
ir hafa legið rúmfastir síðan,
en eru nú á batavegi og líður
sæmilega. Báðir eru þeir bú-
settir hér. — G.Þ.
FJÓRIR þingmenn ^esturlands-
kjördæmis, þeir Halldór E. Sig-
urðsson, Sigurður Ágústsson,
Jón Árnason og Ásgeir Bjarna-
son hafa lagt fram í Samein-
uðu Þingi, þingsályktunartitiögu
um ráðstafanir til að tryggja, að
hlunnindajarðir haldist í ábúð,
og athugun á því, hvers vegna
góðar bújarðir fari í eyði. Til-
Iagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni að skipa þriggja
manna nefnd og sé hún þannig
skipuð, að búnaðarmálastjóri og
landnámsstjóri" séu sjálfkjörnir,
en landbúnaðarráðherra skipi
þriðja nefndarmanninn án til-
nefningar.
Verkefni nefndarinnar séu:
1) Að kynna sér ástæður fyr-
ir því, að jarSir fara í eyði, og
sé einkum athugað, að hve miklu
leyti þær fara i eyði vegna þess,
að einstakir menn kaupi þær eða
sleppi ekki eignarrétti sínum af
þeim vegna laxveiði eða annarra
hlunninda.
•2) Að safna gögnum um
áhrif slíkrar þróunar á land-
búnað annarra þjóða og ráð-
stafanir þeirra þjóða til varnar
gegn henni.
3) Að semja frumvarp til
laga, sem tryggi það, svo sem
auðið er, að kojnið sé í veg fyr-
ir slíka þróun.
í sambandi við undirbúning
að lagafrumvarpi skal nefndin
athuga eftirfarandi:
1) Hvort ekki sé eðlilegt, að
jarðakaupasjóður ríkisins sé
skyldaður til að kaupa slíkar
jarðir, ef ekki fæst kaupandi,
sem tryggir^það, að þær séu I
ábúð, og þá sé kveðið á í lög-
um. um þessi jarðakaup jarða-
kaupsjóðs.
2) Hvort ekki sé jafnframt
eðillegt, að jarðakaupasjóður
selji þessar jarðir aftur, þegar
ábúandi fæst.
3) Hvort ekki sé eðlilegt og
réttmætt, þar til lög þau taka
gildi, er hér u«n ræðir, að gera eig
endum þeirra laxveiðijarða, sem
í eyði eru og síðar verða, að
greiða til sveitarsjóða viðkom-
andi sveitarfélaga skatt, sem
svarar meðalútsvari af viðkom-
andi jörð siðustu þrjú árin, sem
hún var í byggð, þó með þeim
hlutfallslegu breytingum, sem
orðið hgfa á útsvari til hækkun-
ar eða lækk,unar í sveitarfélag-
inw á því tímabili.
Höfðingleg gjöf
22. OKTÓBER 1963 voru mér
afhentar táu þúsund krónur að
gjöf til Blindravinafélags ís-
lands, sem verja slkal tiil segul-
bands kaupa. Gefendur óska ekM
nafna sinna gétið.
Fyrir þessa höfðinglegu gjöí
vil ég senda þessum örlátu gef-
endum mínar innilegustu þakk-
ir.
Blindravinafclag íslands
Þórsteinn Björnsson.
Akureyrarbær heiðrar
Egil Þórláksson
Kvöldvökuútgáfan gef
ur út 3 bækur í haust
NÚ í HAUST gefur Kvöldvöku-
útgáfan á. Akureyri út eftir-
greindar bækur:
Skáldkonur fyrri alda, II.
bindi, eftir frú Guðrúnu P.
Helgadóttur, skólastjóra.
í þessari bók eru meðal ann-
ars þættir um Ljósavatnssystur,
Steinunni í Höfn, Maddömuna á
Prestbakka, Látra-Björgu og
Vatnsenda-Rósu. Margt nýtt
kemur fram í bók þessari um
ævi og skáldskap þessara
kvenna.
Því gleymi ég aldrei II. bindi.
— í þessa bók rita 19 menn og
konur þætti um eftirminnilega
atburði úr lífi þeirra, þar á með-
al Sigúrður Nordal, prófessor,
Guðmundur skáld Böðvarsson,
Guðrún frá Lundi, Egill Jónas-
son, Húsavík, Ólafur Jónsson
ráðunautur, séra Sveinn Víking-
ur o. fl.
íslenzkar ljósmæður, II. bindi.
— í þessari bók birtast þættir
um 29 ljósmæður hvarvetna að
af landinu. Sumir þættirnir eru
ritaðir af ljósmæðrunum sjálf-
um. Þar 'segir frá mannúðar- og
líkarstarfi ljósmæðranna og æv-
intýralegum ferðalögum á sjó og
landi við hin erfiðustu skilyrði.
Víða bregður fyrir lærdómsrík-
um myndum af þjóðlífinu, eins
og það var um og eftir síðustu
aldamót og fram á síðustu ára-
tugina.
Frá Brauðskálanum
Langholtsvegi 126.
Seljum út I bæ köld borð,
smurt brauð og snittur.
Sími 37940.
Akureyri, 26. okt.
Á SÍÐASTA fundi sínum sam-
Verðlagning
landbúnað-
arvara
Yfirlýsing frá Búnaðarsambandi
Suður-Þingeyinga varðandi úr-
skurð yfirdóms á verðlagningu
landbúnaðarafurða verðlagsárið
1963—1964.
Stjórn Búnaðarsaimibands Suð-
ur-Þingeyiniga lýsir óénægju
sinni yfir nýföllnum úrskurði
yfirdóms á verðlagningu land-
búnaðarvara, fyrir verðlagsárið
1963—1964, sera getur engan
véginn tryggt bændum fulilt
framleiðslukostnaðarverð bú-
vara, svo sem lög ákveða, þrátt
fyrir þá viðurkenningu, sem nú
faefur fengizt á því, að laun
bænda hafi verið skert á undan
förnuim árum með rangri verð-
skráningu. Sérstaklega telur
stjórnin úrskurð yfirnefndar um
takmörkun á verðtilfærslu kjöts
og mjólkur, gegn einrúma til-
lögum bænda, algjörlega óvið-
unandi. •
Hinsvegar lýsir stjórn B.S.S.Þ.
stuðningi við stefnu stjórnar
Stéttarsambandsins í verðlagsmál
um landbúnaðarins, en vill
leggja álherzlu á hvort ekki sé
fært að krefjast opin'berrar rétt
arrannsóknar á því hvort úr
skurður yfirdóms brjóti ekki í
bág við þáu ákvæði Framleiðslu
ráðslaganna, er tryggja átlu
bændum samibærileg laun við
aðrar stéttir í landinu, þar sem
augljóst er að nokkrir kostnað-
arliðir við búreksturinn, hafa
verið áaetlaðir óeðlilega lágir.
Fari nú rannsókn fram og í ljós
komi að kjör bænda hafi verið
skert með gerðardómi, verði
þess krafist af ríkinu að það
bæti bændastéttinni að fullu
sannanlegt tjón.
Árnesi 15/10 1963
Stjórn Búnaðarsambands
Suður-Þingeyinga
þykkti bæjarstjórn Akureyrar f
einu hljóði svofellda tiílögu frá
fræðstwráði:
„Fræðsluráð Akureyrar leggur
einróma til við bæjarstjórn Ak-
ureyrar að Agli Þorlákssyni
verði veitt 50 þús. króna heið-
urslaun úr bæjarsjóði Akureyr-
ar fyrir frábært og óeigingjarnt
starf um margra ára skeið i
þágu yngstu borgara bæjarins.**
Egill Þorláksson lauk prófi frá
Gagnfræðaskólanum á Akuréyri
1907 og kennaraprófi 1910 og
hefir stundað kennslustörf óslit-
ið síðan. Hann var kenari í Bárð-
ardal til 1916, barakennari á
Húsavík til 1939, en fluttist til
Akureyrar og gerðist kennari við
Barnaskólann. 1949 réðst hann
til Gagnfræðaskóla Akureyrar og
starfaði við hann til ársins 1959
er hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir. Nú um nokkurra
ára skeið hefir Egill rekið smá-
barnaskóla á heimili sínu og hafa
færri enn vildu komið til hán»
börum sínum til lestrarnáms.
Egill er annálaður lestrar- og
skrirftakennari og elskaður og
virtur af öllum, sem honum
kynnast fyrir mannkosti og ljúf-
mennsku. Mun það sannmæll
allra, sem til hans þekkja, að
hann sé vel að þessum heiðurs-
launum kominn.
Sv. P.
Skipta þau
með sér?
New York, 26. okit. — NTB
í GÆR, föstudag, tókst ekki
að s'kipa í það sæti Öryggis-
ráðsins, sem nú er autt. Stóðu
þó miklar umræður um mál-
ið, og greidd varu atkvæði.
Tvö lönd komu helzt tii
greina, Tékikóslóvakía og Mal
aysia, en hvorugt fékk þau
75 atkvæði, sem tilskilin eru.
Er síðast fréttist, á laugar-
dag, voru uppi raddir um, að
nauðsynilegt kynni að verða,
að löndin tvö skiptu með sér
setutímanum, tveimur árum.