Morgunblaðið - 30.10.1963, Page 17
Miðvikudagur 30. okt. 1963
MORGU N BLAÐIÐ
17
að auglýsing i stærsta
og útbreiddasta blaðmu
borgar sig bezt.
ATLAS
KÆLISKAPAR, 3 stærðir
Crystaí Kiny
Hann er konunglegur!
★ glæsilegur útlits
A hagkvæmasta innréttingin
stórt hraðfrystihólf með
„þriggja þrepa“ froststill-
ingu
★ 5 heilar hillur og græn-
metisskúffa
★ í hurðinni er eggjahilla,
stórt hólf fyrir smjör og
ost og 3 flöskuhillur, sem
m.a rúma háar pottflöskur
A segullæsing
★ sjálfvirk þíðing
ilr færanleg hurð fyrir hægri
eða vinstri opnun
A innbyggingarmöguleikar
ATLAS
FRYSTIKISTUR, 2 stærðir
Kæliskápar leysa geymsíuþörf
heimilisins frá degi til dags,
eu frystikista opnar nýja
möguleika. Þér getið aflað
matvælanna, þegar verðið er
lægst og gæðin bezt, og
ATLAS frystikistan sér um
að halda þeim óskertum mán-
uðum saman. Þannig sparið
þér fé, tíma og fyrirhöfn og
getið boðið heimilisfólkinu
fjölbreytt góðmeti allt árið.
ATLAS GÆÐI OG 5 ÁRA
ÁBYRGÐ
Lang hagstæðasta verðið!
Sendum uni
allt land.
BAHCO
LOFTRÆSAR
fyrir stór og smá húsakynni
skapa hreinlæti og vellíðan
heima og á vinnustað. —
Margar stærðir, m. a.
BAHCO SILENT
[kHPJ með innbyggðum rofa
og lokunarbúnaöi úr
ryðfríu stáli.
Hentar mjög víða og er auð-
veld í uppsetningu: lóðrétt,
lárétt, í horn, í rúðu o. s. frv.
BAHCO
'barikett
ELDHUSVIFTA
með skermi, fitusium, inn-
byggðum rofa, stilli og ljósi,
BAHCO er sænsk gæðavara
BAIICO E R BEZT!
Sendum um
allt land.
O. KORME RUPHAMfEM
;; Simi 12606 - Suðurgotu 10 - RcykJAvik
Abeins
SHEAFFER’S
býður yður
öryggisklemmuna. — Ýtið á
hana einu sinni og ritoddur-
inn kemur fram, ýtið á hana
aftur og ritoddurinn hverfur.
Þér getið aldrei fest þennan
penna í vasa yðar með rit-
oddinn í skrifstöðu. Það varn-
ar því að þér fáið blek í föt
yðar. Biðjið um Sheaffer’s
kúlupenna í næstu ritfanga-
verzlun.
SHEAFFER5
KOWME RU P-HAMSEM
Simi 12606 - Suðurgöai 10 Rcykjavik
SHEAFFER’S umboðið
á íslandi:
Egill' Cnttormsson
Vonarstræti 4. — Sími 14j89.
— Thor Thors
Fraimihald af bls. 13.
að þeir skyldu inna framlag sitt
af hendi einnig fyrir liðinn tíma,
ef samkomulag næðist um önnur
fjármálaatriði, sem enn eru óút-
kljáð varðandi ráðstafanir á
eignum Belgíu í Kongó. Ráð-
herrann kvaðst vona að unnt
yrði að finna lausn á nýlendu-
málum Afríku, sérstaklega varð-
andi port tgölsku nýlendurnar
Angola og Mozambique, og lagði
áherzlu á, að ákvarðanir S.Þ.
þyrftu að vera skýrt markaðar
en einnig hóflegar og viturlegar.
Frelsi allra Afríkuríkja blasti nu
við og sjálfstæði þeirra, því að
ekki væri unnt að stöðva þróun-
ina við landamæri Angola. Um
alþjóðamál kvað M. Spaak, að
friðsamleg sambúð ætti ekki að-
eins að vera á milli NATO-ríkj-
anna og Varsjáríkjanna, heldur
yrði þessi andi að ríkja meðal
allra þjóða heimsins, og sérstak-
lega minntist hann _ á sambúð
Arabaríkjanna og ísraels. Það
vakti sérstaka athygli þegar M.
Spaak sagði, að það væri hrylli-
legt og ófyrirgefanlegt að hindra
Khrushchev, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, í viðleitni hans
til að koma á friðsamlegu sam-
starfi í heiminum. Eins og kunn-
ekkert heimaland vegna þess,
að Arabaríkin, sem hafa nóg
landflæmi og nægilegt verkefni,
hafa af pólitískum ástæðum ekki
viljað veita viðtöku þessu ætt-
fólki sínu. Alvarlegasta hlið máls
ins eru þó hótanir Araba um
tortímingu ísraels.
Þá munu fjárhagsmálin og
tækniaðstoð við einstakar þjóðir,
einkum þaer, sem eru skemmra
á veg komnar á þróunarbraut-
inni, verða eitt af hinum jákvæð
ustu viðfangsefnum þessa þings.
Þar hafa ýmsar stofnanir S.Þ.,
svo sem tækniaðstoðin og hinn
sérstaki sjóður, unnið stórfeng-
legt hlutverk á undanförnum ár-
um, en hér veltur mest á því,
hvað ríkin vilja leggja af mörk-
um í þessu skyni’, svo að Sam-
íinuðu þjóðirnar megi öðlast afi
Eitt af erfiðustu viðfangsefn-
um þessa þings eru fjármál stofn
unarinnar sjálfrar. öngþveitið og
vandræðin í fjármálum stafa að-
allega af því, að margar þjóðir
hafa færzt undan því að greiða
framlög sín, bæði til varnar
liðs Sameinuðu þjóðanna í ná-
lægum Austurlöndum og til
varnarliðsins í Kongó. Ógoldin
framlög til varnarliðsins í ná-
lægum Austurlöndum námu
hinn 30. september nú í ár sam-
tals um 35 milljn dollara, og
ugt er, er M. Spaak fyrrverandi | langstærsti skuldarinn eru So
forstjóri NATO-samtakanna. j yétríkin með rúmlega 15.6 millj.
Ráðherrann lauk máli sinu dollara. Samtals skulduðu öll
með því að segja, að nú væri I kommúnistaríkin þennan dag
SIGRÚN SVEINSSON MIR
löggiltur dómtúlkur og
skjalaþýðandi í þýzku.
Sími 1-11-71.
framundan hið stóra augnablik,
hið mikla tækifæri til þess að
koma í framkvæmd þeim hug-
sjónum, að stofnun okkar gæti í
sannleika orðið sameinaðar þjóð-
ir, sameinaðar undir merki hug-
sjóna alþjóðlegs réttlætis, skiln-
ings og bræðralags mannanna.
Þessu tækifæri mættum við ekki
glata.
Allsherjarþingið hefur nú af-
greitt í bili málið um gæzlu
mannréttinda í Suður-Vietnam.
Þar hafa Búddatrúarmenn talið
sig vera ofsótta af forseta og
ríkisstjórn landsins, og tókst alls-
herjarþinginu að ná algeru sam-
komulagi um það, að* taka boði
ríkisstjórnar Suður-Vietnam um,
að rannsóknarnefnd S.Þ. skyldi
kynna sér þessi mál á staðnum.
Forseti allsherjarþingsins hefur
nú útnefnt nefnd, og skipa hana
þrjú Asíuríki, þar af tvö, sem
aðhyllast Búddatrú, tvö riki frá
Afríku og tvö frá Latnesku
Ameríku, sem eru kaþólskrar
trúar. Nefnd þessi á að skila á-
liti sínu til þessa ^llsherjarþings
og verður þá málið rætt að
nýju.
jSTú eru nefndir allsherjarþings
ins teknar til starfa, og munu
þær fjalla um hin einstöku
vandamál. Pólitíska nefndin fær
afvopnunarmálin erfn einu sinni
til meðferðar, og virðist mér
það einasta skynsamlega, sem
þetta þing geti gjört sé að vísa
málinu í heild til 18-ríkja nefnd-
arinnar, sefn fjallað hefur um
afvopnunarmálin undanfarin ár,
og haft bækistöðvar sínar í Genf.
Að sjálfsögðu rhun þessi nefnd,
þar sem stórveldin eiga sæti á-
samt 8 svokölluðum óháðum
ríkjum, fylgja nú eftir fast og
örugglega þeirri friðsamlegu
stefnu, sem nú hefur nýlega
komið fram í alþjóðamálum.
Auk samkomulagsins um bann
gegn atómsprengingum, eru
Bandaríkin ; og Sovétríkin um
það bil að ná samkomulagi um
bann gegn því að senda atóm-
vopn upp í himingeiminn. Það
yrði þá enn nýtt skref á hinni
löngu og erfiðu leið til fulls
samkomulags um algera og al-
menna afvopnun, sem- er eitt af
mestu hugsjónamálum mann-
kynsins.
Hin sérstaka pólitíska nefnd
mun nú á ný fá deilumál ísra-
els og Arabaríkjanna til athug-
unar, en ekki horfir vænlegar
enn í þeim málum en áður frá
því að Ísraelsríki var stofnsett.
Aðalvknöamálið á þessu sviði
eru örlög rúmlega einnar mill-
jónar- flóttamanna, sem talið er
að vilji leita til sinna fyrri heim-
kynna, en það telur ísrael hættu
legt öryggi landsins og hefur
þetta fólk því lifað á stuðningi
Sameinuðu þjóðanna og á sér
meir en tuttugu og eina milljón
dollara en Kína átti einnig ó-
greitt um 4V2 milljón dollara,
Argentína rúmlega $ 900,000,
Mexico nær $600,000 og Perú
um $100.000. Það má búast við
að Suður-Ameríkuríkin reyni að
greiða framlög sín, en kommún-
istaríkin neita ennþá að leggja
nokkuð af mörkum, þar sem þau
telja aðgerðir þessar ólöglegar
og kostnað við þær þessvegna
sér óviðkomandi. Sama gildir um
framlög til varnarliðsins í
Kongó. Þar skulda Sovétríkin
um 37 milljónir dollara. Einnig
hefur Frakkland neitað að
greiða framlag sitt, en skuld
þess er nú orðin um $16,150,000,
og þar næst kemur Kína með
6Vz millj. dollara skuld. Belgía
átti þá ógreitt um 3,2 millj. doll-
ara, en eins og ég gat um áðan,
mutlHBelgía nú semja um greiðslu
á þessu framlagi sínu að fengn-
um frádrætti á þeim kröfum,
sem Belgir telja sig eiga á hend-
ur Sameinuðu þjóðunum. Sam-
tals voru ógreiddir til friðarráð-
stafanna ú Kongó um síðustu mán
aðarmót um $99,500,000. Það gef
ur að skilja, að einhver verður
að greiða þessa nær því 135
millj. dollara, sem Sameinuðu
þjóðirnar vantar samtals til að
ljúka skuldum sínum. Það er
einnig annað vandamál í þessu
sambandi. Alþjóðdómstóllinn hef
ur úrskurðað að framlög til þess-
ara friðarráðstafana eigi að greið
ast af öllum þjóðum samtak-
anna, eins og önnur útgjöld Sam
einuðu þjóðanna. Nú er svo á-
kveðið í sjálfum sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna, að það land,
sem skuldar meir en framlag
sitt um tveggja ára skeið, skuli
glata atkvæðisrétti sínum. Ef
So’vétríkin, Frakkland og aðrir
hafa ekki goldið þessi lögmætu
framlög sín í ársbyrjun 1964,
kemur að því, að kveða verður
upp dóm um það, hvort þessi
tvö stórveldi *og öll hin ríkin
skuli glata atkvæðisrétti sínum.
Það er augljóst mál til hverra
vandræða mundi draga, ef slík
niðurstaða yrði óhjákvæmileg,
því þessi ákvörðun mundi geta
jafngilt dauðadómi yfir samtök-
um þjóðanna. Það virðist næsta
óhugsandi, að ef stórveldin eru
nú að semja um friðsamlega
lausn vandamálanna, þá verði
ekki einnig samið um að halda
lífinu fjárhagslega í samtökum
Sameinuðu þjóðanna, því hvert
skal leita að vettvangi til við-
ræðna allra þjóða, þegar búið
er að kyrkja Sameinuðu þjóð-
irnar fjárhagslega? Því verður
að treysta í lengstu lög, að þessi
helgasta von og öflugasta vopn
mannkynsins í heild til að
tryggja friðsamlega samvinnu
þjóðanna, verði ekki drepin af
fjárhagslegum ástæðum og sam-
tökin lögð í rústir. Hvað ætti
þá að taka við í alheimsmálum?
Eitt af hinum þýðingarmiklu
vandamálum þessa þings er að
bæta vin'nubrögð þingsins, eink-
um að komast hjá svo miklu mál
þófi sem hér hefur tíðkazt. Það
hefur orðið æ ljósara eftir því
sem þjóðunum hefur fjölgað
innan samtakanna, að miklum
tíma er á glæ kastað með al-
gjörlega þýðingarlausum ræðu-
höldum, sem engan tilgang virð
ast geta haft nema í áróðurs-
skyni, bæði á alþjóða vettvangi
og eins í heimalandinu. Þetta
vandamál he^pr verið rannsakað
af hendi hinna sérfróðu manna
og fellur nú í hlut þessa þings
að finna skynsamlegar úrbætur.
Ég vil ekki Ijúka máli mínu
án þess að láta þess getið hversu
almennra vinsælda og trausts for
stjóri Sameinuðu þjóðanna, U
Thant, nýtur hjá öllum sann-
gj.örnum og hugsandi mönnum.
Hann hefur á tveggja ára starfs-
ferli sínum sýnt mikla vitsmuni,
sanngirni, sjálfstæði og þraut-
seigju. Það var vandfyllt skarð-
ið, þegar Dag Hammarskjöld
féll frá, en það virðist hafa ver-
ið lán hinna Sameinuðu þjóða
að til var m.aður með hæfileik-
um og skapgerð U Thant, til
þess að taka þetta geysi vanda-
mikla og örlagaríka starf í sín-
ar hendur. Það fer einnig vel á
því, að nú þegar Asíu- og Afríku
ríkin hafa meiri hluta atkvæða
í samtökunum, að það skuli vera
Asíumaður, sem skipar hinn
æðsta sess í þjónustu samtak-
anna.
Eins og ég gat um áðan verða
efnahagsmál þjóðanna ein þýð-
ingarmestu viðfangsefni þessa
allsherjarþings. Á þessu máli eru
tvær hliðar, önnur er hugsjón-
in að hjálpa í tæknilegri þróun
og veita fjárhagslega aðstoð,
þeim þjóðum, sem nú eru á eftir
tímanum á sviði framfara og
menningar. Hin hliðin er fjár-
málahliðin og snýr að hinum
efnaðri þjóðum. Þar veltur allt á
því hversu mikið þær, bæði hin-
ar ríkustu þjóðir og aðrar, sem
lifa við bjargálnir, geta látið af
mörkum renna til hinna fátæk-
ari. En það er og verður eitt af
hættulegustu málefnum í heim-
inum, ef svo fer, að ríku þjóð-
irnar verða stöðugt ríkari, en
vandræðin og fátæktin aukast
hjá þeim, sgm nú eiga við verst
kjör að búa. Eins og mismunur-
inn á milli mannanna barna inn
an hvers þjóðfélags er stöðugt
viðsjárverðasta vandamálið og
orsökin óánægju og jafnvel ill-
inda, eins er mismunurinn á
milli þjóðanna á lífskjörum
þeirra ekki viðunandi og verður
ekki þolaður til langframa 1
þessari vorri veröld, sem nú er
orðin ein, með útsýn yfir allar
jarðir. Það verður að jafna kjör-
in millj þjóðanna og hinum fá-
tæku v<rður að hjálpa til bjarg-
álna.
ísler ,:ku sendinefndinni er það
fyllilega Ijóst, að við og þjóð
vor getum engu bjargi lyft, en
viljum af veikum mætti reyna
að ljá hverju góðu og farsælvi
máli lið, og leitast við að beina
athöfnum og aðgjörðum Samein-
uðu þjóðanna inn á jákvæðar
<*g heillavænlegar brautir til að
tryggja frið í heiminum og far-
sæld þjóðanna.
Til sölu
af sérstökum ástæðmn veitingastaður í fullum
gangi í nágrenni Reykjavíkur. Tilb. sendist afgr.
Mbl. merkt: „H. N. F. — 3937“ fyrir 4. nóv. n.k.