Morgunblaðið - 22.02.1964, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
r
Laugardagur 22. febr. 1964
Unnið að bættri aðstöðu í höfninni
Bryggjuiengd nú 3 kílómetrar
— umræður um hafnarmál
í horgarstjórn
Á borgarstjórnarfundinum s.I.
fimmtudag skýrði Geir Hall-
grímsson, borgarstjóri, frá því,
að bryggjulengd í höfninni sé
nú um 3 kílómetrar. Aukningin
frá árslokum 1955 sé um hálfur
kilómeter í fiskibátabry L^jum
eirgöngu. Þetta kom fram í
utnræðum um tillögu Guðmund-
ar Vigfússonar, þar sem hann
leggur til, að hafnarstjórn sé
falið að láta hefja nauðsynleg-
an undirbúning að aukningu
bryggjurýmLs í höfninni.
t framsöguræðu sinni taldi
Guðmundur nauðsynlegt að
bæta afgreiðsluskilyrði fiski-
skipaflotans í vesturhluta hafn-
arinnar. Þá þurfi að kanna, —
hvort ekki sé tímabært að rýma
athafnasvæði slippfélaganna og
sjá þeim fyrir aðstöðu á öðrum
stað.
UNNIÐ AÐ BÆTTRI
AÐSTÖÐU í HÖFNINNI.
Geir borgarstjóri kvaðst vera
sammála flutningsmanni tillög-
unnar um það, að auka þyrfti
bryggjurými, einkum í vestur-
höfninni.
í vetur hefði verið unnið að
bryggjugerð við norðurgarðinn.
Gert væri nú ráð fyrir nýrri
bryggju út af Faxaverksmiðj-
unni í fjárhagsáætlun hafnar-
innar. I>á væru nokkrir mögu-
leikar til bryggjusmíði í krikan-
um við Fiskiðjuverið, en fram-
kvæmdir þar strönduðu þó á
skipasmíðastöðinni.
í>að væri ranglt hjá tillögu-
manni, að ekki hefði verið unnið
ötullega að þessum málum. Það
væri þröng á þingi, að vísu, en
fiskibátum hefði fjölgað ört og
einnig aðkomubátum, sem
legðu upp hér í Reykjavík. —
Borgaryfirvöldin hefðu mikinn
hug á því að auka bryggjurýmið
í vesturhöfninni.
ATHAFNASVÆÐI
SLIPPFÉLAGANNA.
Um aðstöðu slippfélaganna,
sagði borgarstjóri, að hafnar-
stjórn hefði ekki viljað fram-
lengja lóðarsamning við skipa-
smíðastöð D. Þ. Þá muni einnig
hægt að kanna, hvort flytja
þurfi athafnasvígði Slippfélags-
ins, þegar lóðasamningur sá
rennur út innan skamms. í sam-
bandi við athuganir á nýju hafn
arstæði væri athugað um at-
hafnasvæði skipabygginga og
viðgerðarskipa í borginni.
Borgarstjóri lagði til, að til-
lögu Guðmundar yrði vísað til
umsagnar hafnarstjórnar o@
kæmi málið þá síðar til kasta
borgarstjórnar að fenginni um-
sögn ef með þyrfti.
Tillögumaður kvaðst ekki
vera á móti því að vísa málinu
ÚTFLUTNINGUR
Maður, sem er vanur útflutningsverzlun óskast til
starfs nú þegar. — Reglusemi og gott kaup. — Til-
boð, merkt: „Deildarstjóri — 9280“ sendist afgr. Mbl.
RÉTT INGAV ERKF ÆRI
Verð kr. 3,573.-—
— Ennfremur fyrirliggjandi —
TOPPLYKLASETT
TOPPLYKLASKÖFT
TOPPLYKLASKRÖLL
STAKIR TOPPAR
STJÖRNULYKLASETT
OPNIR LYKLAR
VATNSPUMPUTENGUR
FLATTENGUR
VENTLASLÍPITÆKI
KÓNARAR 3/16” — 5/8”
HRINGJAKLEMMUR
RÖRSKERAR
VERKFÆRASKÁPAR
Lougavegi 178
Sími 38000
Geir Hallgrímsson.
til hafnarstjómar, en hefði þó
fremur kosið afgreiðslu borgar-
stjórnar. Tilgangi sínum væri þó
náð, því að hann hefði einkum
haft í huga að koma hreyfingu
á málið.
Aðrir ræðumenn voru Þórir
Kr. Þórðarson og Björn Guð-
mundsson. Tillögunni var síðan
vísað samhljóða til umsagnar
hafnarstjórnar.
Á borgarstjómarfundinum s.l.
fimmtudag var framtíð Reykia-
víkurfbarvallar tekin á dagskrá
að beiðni Alfreðs Gíslasonar.
í nmræðum um málið sapði
Geir Hallerímsson, borgarstjóri
ma., að ekki væri nóg að við-
staðsetningu flugvallarins og
urkenna ýmsa örðugleika af
krefiast þess, að völlurinn verði
lagður niður. Það yrði jafn-
framt að leysa vandamálið um
flugþjónustu við Reykiavík.
einkum innanlandsflug. Unnið
hefði verið ötullega að rannsókn
um þessa máls, en endanleg
lausn hefði ekki fengizt enn. En
stefna borgaryfirvaldanna hlvt-
ur að verða mótuð, þegar heild-
arskipulíp borgarinnar verður
afgreitt í sumar. Útlit er fyrir,
að Reykiavíkurflugvöllur verði
áfram nýttur vegna flugþjón-
ustunnar, a.m.k. fyrir innanlands
flug og það millilandaflug, sem
notast eetur við völlinn óstækk-
aðan. Ör talkniþróun í flugmál-
um getur í framtíðinni auðveld-
að mjög lausn þessa vanda-
máls.
Alfreð Gíslason hóf umræðurn
ar um þetta mál. Hann flutti
langa ræðu, þar 9em hann
kvaðst rekja alla sögu þessa
máls. Bæjarstjórn hefði mót~
mælt flugvallargerðinni 1940 og
enn 1946. Síðan
hefði lítið verið
giert til þess að
loka flugvellin-
um, sem væri
borginni til
mikils ama. —
Hann sagði
nefndir og sér-
fræðinga hafa
unnið skelegg-
tega að málinu og ekki virtust
borgaryfirvöldin hafa mikinn
ahuga á því að koma flugvell-
inum brott, en það væri nauð-
synlegt hið fyrsta vegna hættu,
hávaða og væri völlurinn borg-
inni fjötur um fót í byggjingar-
máluim.
Ræðumaður nefndi ekki flug-
þjónustuna við borgina, né til-
lögur um lausn þess vanda, ef
völlurinn yrði lagður niður. í
lok máls síns las hann upp mikið
skjal um afstöðu sína til flug-
vallarmálsins og óskaði bókunar
á því. Var það í stórum dráttum
endurtekning á ræðu þeirri, —
sem hann hafði lokið við að
flytja.
TRYGGJA VERÐUR
FULLNÆGJANDI
FLUGÞÍÓNUSTU
VIÐ BORGINA.
Geir borgarstjóri kvaddi sér
hljóðs að lokinni ræðu Alfreðs.
Hann sagði, að ef hin langa og
raunar tvítekna ræða væri kruf-
in til mergjar kæmi það í ljós,
að efni hennar væri eingöngu
sú skoðun, að æskilefjt vaari að
leggja flugvöllinn niður. — Það
væri auðvitað réttur borgarfull-
trúans að hafa þá skoðun, en
honum hefði þó með öllu láðst
að greina frá tillögum sínum um
flugþjónustuna við borgina. Hin
neikvæða skoðun, að leggja völl
inn niður, er ekki hið eina, sem
skiftir okkur máli, sagði borgar
stjóri, heldur einnig hið já-
kvæða, hvernig verður flugþjón
ustunni við Reykjavík fullnægt,
ef völlurinn yrði aflagiður. Hið
síðarnefnda væri raunar aðal-
atriði þessa máls,
Borgarstjóri rakti síðan sögu
flugvallarins í stuttu máli. Hann
hefði verið gerður, þrátt fyrir
mótmæli bæjarstjórnar á sínum
tíma. Síðan hefði gildi flugsins
fyrir borgina vaxið mjög og orð
ið svo snar þáttur, að mál þetta
verði ekki leyst, án þess að
tryggja um leið fullnægjandi
flugþjónustu fyrir borgina. —
Það væri skoðun sérfræðinga, að
Reykjavíkurflugvöllur væri nú
svo þýðingiarmikill fyrir borg-
ina að gera verði ráð fyrir hon-
um næstu 20 ár a.m.k. fyrir
innanlandsflug, nema til komi
annar völlur, eigi miklu fjær en
á Álftanesi. Erum við reiðubú-
in til þess að samþykkja nú slík
ar framkvæmdir og meðfylgj-
andi skaittlagningu.
ÝTARLEGAR
RANNSÓKNIR
OG TÆKNI
AUÐVELDA
LAUSN MÁLSINS.
Stefna okkar í þessu máli ætti
því að vera sú, að innanlands-
flugið við Reykjavík geti farið
um völlinn í náinni framtíð. —
Ekki sé leyft að stækka völlinn,
enda stefni þróunin í þá átt, að
flugvélar þær, sem annast milli-
landaflug fari um Keflavíkur-
flugvöll, sem er of fjarri fyrir
innanlandsflugið. Ör þróun flug-
mála, t. d. lóðrétt flugtak o. fl-
geta auðveldað mjög lausn þessa
vanda í framtíðinni. Einnig ýtar
legar rannsóknir og álitsgerðir,
sem unnið hefur verið að. Ef til
þess kemur að hægt verður að
loka Reykjavíkurflugvelli, sagði
borgarstjóri að lokum, þá fær
borgin þar mikilvægt svæði, sem
getur komið sér vel þegar önn-
ur svæði hafa verið nýtt.
Lady Baden
Powell 75 ára
í DAG, 22. febrúar, verður Lady
Baden Powell, alheimsforingi
kvenskáta 75 ára.
Lady Baden Powell hefur
þrisvar heimsótt íslenzka skáta,
síðast 1962, þegar haldið var upp
á 50 ára afmæli skátahreyfing-
arinnar á íslandi.
Lady Baden Powell var kona
Lord Baden Powell of Gilwell,
sem var stofnandi skátahreyfing
arinnar.
Lady Baden Powell hefur frá
fyrstu tíð helgað starfskrafta
sína skátahreyfingunni og enn í
dag er hún á stöðugum ferða-
lögum að heimsækja skáta í hin-
um ýmsu löndum, þar sem skát
ar eru starfandi. Skátar um all-
an heim minnast í dag þeirra
hjóna, en Lord Baden Powell
var einnig fæddur 22. íebrúar.
(Frá BÍSj,