Morgunblaðið - 22.02.1964, Side 13

Morgunblaðið - 22.02.1964, Side 13
r taugardagur 25. t'ehr. 1964 MORCUNBLAÐIÐ 13 EFTIR stjórnarbyltinguna í eyríkinu Zanzibar í síðasta mánuði hafa um 4 þús- und eyjarskeggjar flúið land, flestir þeirra til Tanganyika. Eru þetta aðallega Arabar og aðrir menn ættaðir frá Asíu, en lítil vinátta er milli þeirra og annarra.íbúa Zanzibar. Zanzibar hlaut sjálfstæði 9. desember s.l., og gaetti þá strax nokkurrar óánægju með skipan mála. Þótti blökku- mönnum, sem eru þarna í miklum meirihluta, Aröbum fengin of mikil völd. Af 304 þúsund íbúum eru 242 þús- 'A ■■■■■ ■•; ■ •J. - * í **- ,>* ****** * 'ÍÍH. Flóttamenn frá Zanzibar koma til Dar es Salaam í Tanganyika. Kynþáttadeilur á Zanzibar Sendifulltrúum vísað ur landi und blökkumenn, en 42 þús. und Arabar ,og um 18 þús- und Indverjar. Sögðu tals- menn blökkumanna að ekki væri nóg að Bretar hættu gæzlustjórn á eyjunum, held- ur þyrfti að leysa íbúana und- an stjórn Araba og soldáns þeirra. Fór svo að soldáninn hélt ekki völdum nema í einn mán uð, en var þá hrakinn úr landi eftir byltinguna. Þegar sjálfstæði eyríkisins var staðfest í desember, varð Zanzibar eitt af brezku Sam- veldislöndunum, og minnst þeirra allra, aðeins 2.640 fer- km. Eftir byltinguna var hins vegar ekki ákveðið hvort land ið yrði áfram í Samveldinu. VIÐURKENNA EKKI STJÓRNINA. Ýms ríki viðurkenndu fljót- lega nýju byltingarstjórnina á Zanzibar, en þeirra á meðal voru hvorki Bandaríkin né Bretland. Leiddist byltingar- stjórninni þófið, og tilkynntií stjórnum þessara tveggja landa ,að ef viðurkenning fengizt ekki, yrði sendifull- trúum ríkjanna vísað úr landi. Þegar hér var komið sendi J ohnson, Bandaríkj af or seti, þá Frank Carlucci, sérfræðing í Afríkumálum við utanríikis- ráðuneytið, og William C. Leonhardt, sendiherra í Tanga nyika, til Zanzibar til við- ræðna við Abeid Karume for- seta og stjórn hans 'um mál- ið. Talið var að nokkuð hafi miðað í samkomulagsátt og viðurkenning væri á næsta leiti. En Zanzibar-stjórn hafði gefið Bandaríkjunum og Bret landi ákveðinn frest til að viðurkenna byltingarstjórnina og sá frestur rann út á fimmtu dag án þess að samningar hafi tekizt. Tilkynnti þá Ab- dul Rahman Babu, utanríkis- ráðherra að frekari frestur væri ekki veittur, sendifulltrú arnir yrðu að fara. Lauk þar með viðræðum að sinni, og héldu sendifull- trúarnir frá Zanzibar á fimmtudag ásamt þeim Carl- ucci og Leonhardt. Þennan sama dag hafði Duncan Sand- ys, samveldismálaráðherra Breta, skýrt frá því í þinginu að verið væri að kanna af- stöðu annarra Samveldisríkja til viðurkenningarinnar. ★ Ekki er vitað hvað næst verður. En Babu, utanríkisráð herra, sagði að viðræðunum loknum á fimmtudag, að sendi fulltrúarnir væru velkomnir aftur til eyjarinnar, strax og viðurkenning er fengin. [1)1 Bifreiðatjón og tjónbætur • r' Einar Asmundsson skrifar um bifreiðamdl sitt VEGNA blaðaskrifa sem nú undanfarið hafa orðið um bifreiðaákeyrslur lögreglubíls, snem/ma á síðastliðnu ári og tjónabætur, tel ég rétt að segja sögu málsins í aðalatriðum. ★ m í marzmánuði síðastliðið ár, 1963, vildi það til að ein af bifreið um lögreglunnar keyrði með ofsa hraða á bifreiðina R—13535, þar sem hún stóð á stæði fyrir utan húsið Hverfisgötu 42. Bifreiðin R —13586 stórskemmdist þar em hún kastaðist lengdir sínar og stöðvaðist eða klemmdist upp að húsinu, sem þó varð til þess að mennirnir í lögreglubílnum slös- uðust lítið eitt. Hefði óefað orð- ið þarna stórslys á mönnunum í lögreglubílnum, sem þá hefði lent ó, eða farið inn um stóran búðar- glugga. Bifreiðin var fjarlægð, sennilega af lögreglunni eða fyr- ir hennar tilstilli. Síðan hefi ég ekki séð eða haft neitt með bif- reiðina að gjöra. Daginn eftir að þetta slys vildi til, hringdi lögreglustjóri til min og um leið og hann baðst afsök- unar á þessu óhappi og tjóni sem hér hafði orðið, þá taldi hann að sjálfsögðu myndi lögreglustjóra- embættið sjá svo um að tjónið yrði að fullu bætt. Nokkrum dögum eftir ákeyrzl- una mætti ég hjá umferðadóm- stólnum út af þessu máli og gaf (þar skýrslu um hvað ég vissi um málið og um leið er þar skráð hvaða bótakröfur ég gjöri, sem efnislega eru þær, að bifreiðin verði greidd á því verði sem hún hefði verið seljanleg fyrir tjónið að álitd tveggja bifreiðasölu- manna, og væri þá tekið tillit il aldiurs, (tveggja ára) og kíló- metrafjölda í keyrzlu. Auk þessa dagpeninga í þann tíma þar til ég gæti aflað mér annarrar bif- reiðar af ekki lakari gerð en sú sem eyðilögð var. Strax eftir eyðileggingu bifreið arinnar fól ég einum af' þekkt- ustu hæstaréttamálafærslumönn um borgarinnar að semja og ná samikomulagi um tjónið við tjón- valdana og tryggingafélag þeirra en þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- ir frá hans hendi munu þeir efcki hafa verið við mælandi um nein- ar bætur. En þar sem ég hefi ekki trú á að þetta mál eins og það er tilkomið yrði af tjónvald- anurn gert að dómsstólamáli, þá hefi ég nú beðið í nær heilt ár eftir samkomulagstillöguim, en án árangurs. Fljótlega eftir eyðileggingu bif- reiðarinnar gjörði ég pöntun á bifreið af svipaðri gerð hjó um- boði Mercedes Benz hér á landi og fékkst loforð um afgreiðslu- tíma sem yrði ekki undir þremur mánuðum. Ég þurfti að fara til útlanda í júnímánuði og í endaðan júní fór ég til Stuttgart og tók á móti bif reiðinni þar sem hún var skrá- sett á þýzkt tollnúmer. Ég keyrði bifreiðina til Kaupmannaihafnar Og setti hana þar í skip til flutn- engin breyting orðin um bóta- ings heim. Þegar bifreiðin kom heim var greiðslur vegna eyðilagða bílsins, og þar sem ég átti óumdeilanlega verðmæti hans inni hjá lögreglu- embættinu auk dagpeninga vegna afnotamissis, þá fól ég lögfræð- ingi mínum að skrifa bréf til dómsmálaráðuneytisins þar sem farið var þess á leit við það að það leyfði vegna þessara sérstöku málavaxta, að nýi bíllinn mætti keyrast á tollnúmeri þar til tjón- ið yrði bætt og fengi til þess sam- þykki tollyfirvalda. Þó þessari málaleitan væri ekki svarað bréf lega, þá hafði ég ástæðu til að halda að viðkomandi aðilar hafi álitið að hér væri farið fram á svo sanngjarna ósk að þeir hafi ekki talið að hægt væri að synja, og viljað bæta þar að litlu leyti fyrir þá vanrækslu sem lögreglu- stjóraembættið sýndi í þessu máli. í því tilfelli að bifreið fró þeim fyrirtækjum sem ég veiti for- stöðu hefði valdið tilsvarandi tjóni. þá hefði ég talið að sú skylda hvíldi á mér að sjó um að tjónið yrði bætt að fullu. Ef við- komandi tryggingafélag hefði ebki getað staðið við sínar kuld- bindingar að öllu eða einhverju leyti, þá hefðu mín fyrirtæki tal ið sér sóma síns vegna skylt að bæta tjónið að fullu, eða beita sér fýrir samkomulagi í málinu, þar sem við hefðum ebki talið okkur hafa efni á öðru gagnvart því mörgu ágæta fólki sem ég hefi hér samstarf með um rekst- ur fyrirtækisins „stofnunarinn- ar“, og svo þeim þúsundum af góðum viðskiptamönnum sem eiga við okkur hagstæð við- skipti sem verða að byggjast á gagnkvæmu trausti en ekki á refjum og klækjum. Þetta sjónarmið mun áreiðan- lega ekki eiga við mín fyrirtæki ein. Þetta hlýtur að vera starfs- aðferð allra þeirra fyrirtækja og stofnana, bæði í opinberum- og í einkarekstri, sem leitast við að gjöra rétt Og þola eklti að gjöra öðrum órétt. Að Iögreglustjóraemibættið sé í hópi þeirra fyrirtækja og stofn- ana sem hafa þær sérstæðu starfs aðferðir að það hirðir ekiki um þó að það valdi stórtjóni án þess að það sé gjört nokkuð frá þess hendi að bæta tjónið, eða leita samkomulags um tjónbætur. Þetta er mál út af fyrir sig sem varðar ekki þetta mál einungis, en sú almenna athygli sem þetta mál hefur vakið er áreiðanlega í og með um þessar sérstæðu starfs aðferðir þessarar mikilvægu stofnunar. Innan þessarar stofnunar er mér kunnugt um að starfa bæði í hærri og lægri stöðum margir vel starfhæfir og greindir menn, sem leitast við að gjöra skyldu sina í hvívetna, þrátt fyrir þau stóru mistök sem hér haia átt sér sitað. Seinnihluta janúarmánaðar síð astliðinn var bifreiðin R—13535 lögð hér fyrir utan húsið við stöðvamæli. Nokkrum dögum seinna koma stefnuvottar með bréf frá Vá- tryggingafélaginu h.f. og segjast eiga að færa mér lyklana að bílnum. Ég neitaði að taka við lyklun- um með þeim ummælum að ég teldi það mikið vafamál hvort bifreiðin væri í minni eign leng- ur. Vátryggingafélagið h.f. virð- it þarna hafa talið sig vera að bæta tjónið sem varð fyrir tæpu ári síðan. Bifreiðin MB 220 SE sem var ákeyrð, var að áliti bif- reiðasölumanna seljanleg á kr. 320—350 þúsund, var metin af bifreiðaviðgjörðamönnum á kr. 300 þúsund. Sú bifreið, sem Vátrygginga- félagið h.f. lagði hér fyrir utan, er að áliti bifreiðasölumanna seljanleg nú fyrir 200—210 þús- und, var metin af viðgjörða- mönnum á kr. 240 þúsund. Með öðrum orðum, bifreiðin sem var að verðmæti fyrir nærri ári síð- an (við skulum nefna lægstu töl urnar) kr. 300 þúsund, ætla þeir að bæta í dag með bifreið sem er að verðmæti kr. 200 þúsund. Auk þess tjónbætur vegna bif- reiðamissis í 300 daga, 400.00 kr. pr. dag, 120 þúsund. Sem sagt tjón að upphæð kr. 430 þúsund er krafizt að bæta af tjónvald- anum með 200 þúsundum eða ca. 45% af tjóninu. 55% er ætl- azt til af Vátryggingafélaginu og tjónvaldanum að eiga að falla í hlut bifreiðaeigandans að greiða. Nú má sjálfsagt segja að það er hver blindur í inni „sök“, og það sé í þessu tilfelli. Ég ætti að sjálfsögðu’að skilja það að ég er skyldur til að taka á mig meir en helming tjónsins. Það eru til menn sem hafa gefið mér þetta í skyn, en þeir eru sann- arlega fáir, en ég held að þrátt fyrir allt þá sé réttlætiskennd og dómgreind almennings svo mikil að hann muni vera næst- um einróma á mínu máli og ann arra, sem hlotið hafa slíkt tjón að mér beri fullar bætuy þar sem ég eigi enga söik í þessu máli. Við skulum hugsa akkur að í stað bílsins hefði það verið mað ur sem varð fyrii ákeyrzlunni. Hann hefði stórslasast, bein- brotnað með meiru. Hann hefði legið á sjúkrahúsi í 9-10 mán- uði og fengið þar allar nauð-. synlegar læknisaðgerðir og hjúkrun, sem tryggingarnar hefðu að sjálfsögðu greitt, en neitað um allar frekari tjón- bætur meðal annars á því að þeir hefðu vottorð í höndunwm (matsvottorð) um að maðurinn væri ekki í lakara ástandi en fyrir slysið. Ég bið læknana af- sökunar á samanburðinum. Það er rétt að geta þess, að þegar það var orðið sýnt að það sé ekki hægt að neyða mig til að taka á móti marg-umget- inni bifreið sem tjónfbætur, þá læifur lögreglustjóraembættið taka þýzka tollnúmerið af bílnum sem ég keypti fyrir þann sem eyðilagðist, og um getur hér að framan, svoleiðis, að þó Vátrygg ingafélagið eigi formælendur fáa í þessu máli, þá er að ekki algjörlega munaðarlaus einstæð ingur þar sem það virðist eiga svo mikilvægan aðila að. Einar Asmundssoo — SUS-s/ðon Framh. af bls. 17 Björnsson, auglýsingateiknari, fjallar um blöð og tímarit, sem út eru gefin af aðildarsambönd- um Æ.S.f. Síðan skiptast þátttak- endur í umræðuhópa, er taka fyr ir einstök vandamál. Síðari ráðstefnan fjallar um Ferðalög unga fólksins og verður haldin á sama stað laugardaginn 14. marz kl. 13,30. Framsögu hafa Helga Kristinsdóttir, varaform. Æ.S.Í., og ræðir um ferðalög inn- anlands, og Hörður Sigurgestsson, stud. oecon., er fjallar um utan- ferðir. Að öðru leyti verður sú ráðstefna með sama sniði. Félagsmálanámskeið Almennt félagsmálanámskeið var haldið 8.—9. febrúar sl. Ann- að slíkt námskeið er fyrirhugað 7.—8. marz og fer fram í Háskóla íslands. Verða þar flutt erindi og leiðbeiningar um ýmsa hagnýta þætti, ræðumennsku, fundar- sköp og fundarstjórn, reiknings- hald áhugamannafélaga og notk- un sýningartækja. Upplýsingar um þessar ráð- stefnur gefa stjórnir aðildarsam- bandanna og Æ.S.Í.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.