Morgunblaðið - 22.02.1964, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.02.1964, Qupperneq 14
14 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 22. febr. 1964 Ég undirritaður þakka gjafir og allan hlýhug, sem mér var sýndur á áttræðisafmælisdaginn og bið Guð að blessa ykkur alia, vinir mínir. Jóhann M. Einarsson. Hjartans þakkir til allra þeirra mörgu vina og vanda- manna, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, skeytum og hlýjum handtökum á 50 ára afmæli mínu 3. febrúar sL — Sérstaklega þakka ég póstmönnum i Reykjavík fyrir rausnargjöf. Hjalti Signrjónsson. Iðnfyrirtæki óskast Vil kaupa gott en ekki mjög stórt iðnfyrirtæki. — Einnig kæmi til greina stofnun fyrirtækis, með áhugasömum kvenmanni, sem helzt hefði þekk- ingu á að taka upp snið og sníða. — Hef vél til að „decorera“ með barnafatnað og fleira. Önnur iðngrein kemur til greina. Tilboð sendist afgr. MbL merkt: „Iðn — 9282“. Kranabílar 3 kranabílar til sölu. ca- 4—5 tonna, 6—8 tonna og 20—25 tonna. Einnig stór jarðýta. Upplýsingar í símum 34033 og 34333 næstu daga. TrésmíSaverkslæði í nágrenni Reykjavíkur sem er að hefja starfsemi sína getur tekið eldhúsinnréttingar nú þegar til af- greiðslu. Eingöngu fagmenn. Vönduð vinna. — Viðskiptavinir leggi nafn og heimilisfang til afgr. Mbl. fyrir miðvikudag nk., merkt: „Húsgagna- smiður — 9278“. H eildsölufyrirtœki óskar eftir að ráða ungan, reglusaman mann í sölumennsku og skrifstofustjórn strax. Tilboð merkt: „9279“ sendist afgr. Mbl. Vélsmiðir Tveir vanir vélsmiðir óskast. Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan hf. Reykjavík. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför ARNÞRÚÐAR LILJU GUNNBJÖRNSDÓTTUR Þorbjörn Guðfinnsson, Oddrún Jóhannsdóttir, Gunnbjörn Egilsson, Jóhanna Gunnbjörnsdóttir, Jakob Jakobsson, Marta Pétursdóttir, Guðfinnur Þorbjörnsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför SIGURÁSTAR i fSDÓTTUR Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Bára Ólafsdóttir. — Fiskifræðingarnir Framhald. af bls. 11 því er séð verður lagt. í hendur j fiskimálastj óra. Hvar er að finna skýringu á þessu fiskimálastjóri góður? Líklega álitið nóg að skýra Fiskiþinginu frá öllum aðgerðum fiskimálastjóra í þessum efnum, í því trausti að fiskifulltrúarnir skýri svo öllum almenningi frá því raunverulega, sem gerst befur. Er hér vissulega um það mál að ræða, sem alla N-lsfirð- inga varðar um og vilja fyigjast með. Hví ekki ag birta allar niðurstöður, sem þetta varða í riti Fiskifélagsins, biaðsins Ægis. sem gera má ráð fyrir að allir útvegsmenn Og margir sjomenn kaupi og lesi. Það er annars ótrúlegt (en satt) að helztu ráðamenn þjóð- arinnar skuli með oddi og egg ganga fram í því að uppræta og gjöreyða helztu uppeldisstoðv- um ungfisks á ísafjarðardjúpi •og innfjörðum þess. Því miður er aldt útlit fyrir að sömu stefnu verði haldið fram, hvað aðra firði snertir kring um landið, eða hvað vakir fyrir þeim mönnuxn, sem á ári hverju gera út leiðangra kringum landið til þess að Ieita að nýjum rækjumiðum og kosta til þess ógrynni fjár, þegar rækj- an er að þrjóta faér í ísafjarð- ardjúpi og Arnarfirði, eíns og rækjuveiðimenn hér halda fram. — Ég held að forsjálum bænd- um „yrði ekki um sel“ ef leyft væri „Pétri og Páli“ að ganga í hagann og drepa nýfædd eða hálfvaxin unglömb undan ánum. Hvað yrðj þá um stofn- inn? Við höfum nokkra reynslu í þessu. Allt bendir til þess að botn- inn geti áður en varir dottið úr reekjuveiðunum hér við Djúp og ber ekki að sýta það. Við Djúpmenn vitum að allir inn- in Vébjarnamúps og Óshóla eru tæmdir öllu fiskungviði, þar sem það áður hélst og óx upp í friði til viðhalds fiskistofninum. Við vitum að allt „skark“ rækju- trollsins eftir mararbotni fjarð- anna i hart nær 30 ár hefur valdið miklu raski og breyting- um frá því sem áður var. Við vitum að hverskonar sjávargróð- ur á botninum er lífgjafi ung- viðisins, jafnframt því, sem hann veitti seiðunilm vörn fyrir mörg- um hættum. Við vitum ekki hvort nokkurntíma muni gróa um þau sár. sem rækjuveiða- trollið hefir valdið á botni fjarð- anna í fjölda ára tímabili. Við vonum að það geti orðið einungis við algera friðun fram- vegis á okkar friðsælu og þýð- ingarmiklu uppeldisstöðvum, áður en rækjuveiðarnar komu til sögunnar. Við vonum að innan skamms tíjna komist sú friðun á, sem nauðsynleg er og að móðir náttúru gefist aftur friður til að fylla upp í skörðin, sem fyrir skammsýni mannanna hafa verið höggvin í fiskirækt okkar á þýðingarmiklum upp- eldisstöðvum og veiðistöðvum. Góðir menn. Gætið varhuga við að láta þegjandi viðgang- ast að hlevna rækjuveiðatrollun- um inn á fjörðinn ykkar. hvar sem hann er við landið, þó rækja kunni að fyrirfynnast þar. Hafið það fyrir satt að rækjan er uppáhalds fæ»a fvrst og fremst þorksins, okkar aðal- nytjafiskins. o<? fái hún (ræki- an) að vera í friðj þar sem nú er til á fjörðunum, má nokkurn- veginn eiga það vist, ef fiski- ganga kemur á þær slóðir. þá staðnæmist hún þar fremur en ella. Þetta vitum við sem stund- að höíum fiskveiðar við ísafjarð- ardjúp, gjörla. Takið ekki mark á þeim fráleitu kenningu sumra rækjuveiðimanna, að fiskurinn „sé hræddur vi» rækjuna" og flýji hana. Þeta er hin mesta villukenning. Jón Jónsson segir í grein sinni: „Það má í rauninni segja, að okkur berj siðferðisleg skylda til þess að nýta til fulls þau veiðisvæði. sem eru undir okk- ar edgin lögsögu og aðrar þjóðir fá ekki að nota". — Tiltölulega fátt fólk hér í béraðinu, svo að segja eingöngu í Isafjarðarkaup- stað hefur haft nokkra atvinnu, á stundum vegi.a rækjuveið- anna. Gróði fyrir þjóðarbúið af veið- unum má heita hverfandi. en óhætt að segja mjög skamm- góður og dýrkeyptur gróðL Viðurkenndar uppeldisstöðv- ar ungfisks hér við Djúpið hafa verið gjöreyðilagðar og enginn veit hvort eða hvenær þær koma ag gagni aftur sem slíkar. Óhætt að segja hundruð milljóna hverskonar fiskseiða hefir verið tortímt og engum komið að gapni vepna SDell- virkja rækiutrollsins grunnt og djúpt i Djúpinu. „Sjaldan er góð vísa of oft kveðinn". Svo segir gamalt máltækL Enda þótt ég í blaðagreinum áður um rækjuveiðar í ísa- fjarðardjúpi o. fl. hafi oft vitn- að í skýrslur dr. Bjarna Sæ- mundssonar frá árinu 1908 um fiskirannsóknir í ísafiarðar- dþipi og viðar, þykir mér rétrt að taka hér upp nokkug úr þessum skýrslum til glöggvunar þeim, sem virðast meta lítils, að því er séð verður, nefndar skýrslur og umsögn þessa merka vísindamanns um margt þessu máli viðkomandi, sem rætt er um hér að framan. Ég byrja þá á lýsingu vísinda- mannsins á veiðarfærum þeim, sem hann notaði við rannsókn- imar hér á innfjörðum Djúps- ins: „1. Lítil þéttriðuð botnvarna (hleravarpa) til þess að draga á eftir vélbát, lengdin á botnteini 24 fet. möskvavídd V4. og %. þuml. hlerarnir 11x55 cm.“ „2 Varpa með sekk s. n. ála- varpa til þess að draga að landi með handafli, 25 faðma löng, möskvavídd 0«—1.1 cm. Dráttar strengur 55 faðmar. Lýsingu á öðrum veiðarfær- um. sem fiskifræðingurinn hafði með sér tel ég óþarft að taka hér upp, var það síldarvarpa úr grisnum dúk notuð við yfirborð sjávar. tveir netháfar og botn- skafa til að veiða allskonar botn- dýr (skelfisk o. fl.) Mér gafst færi á að skoða þessi smágerðu veiðarfæri fiski- fræðinesins. sem helzt mátti Jíkja við barnaleikföng saman- Jxirið við rækjutrollið. sem fast að 30 árum tiefir verið dregið eftir botni ísafjarðardjúps og innfjarða þess. Við skulum nú heyra um aflabrögðin hjá fiski- fræðingnum í þessar smágerðu fyrst-töldu 'vörpur hans, hlera- vörpuna og álavörpuna, sem var landnót dregin með handafJi: „í Hestfirði var afJinn i 4 drátt um 139 þorskar og 249 ufsar. auk 8 annara fiskitegunda 32 af tölu. Stærð þorsksins 3,7-24 em. í Skötufirði í 10 dráttum 266 þorskar og 270 ufsa auk 7 ann- ara fiskitegunda 31 að tölu. Stærð þorsksins 2,8-33 cm. f Mjóafir®i í 8 dráttum 294 Fundarboð Aðalfundur samtaka um hitaveitu í Arnarnesi verð- ur haldinn í Nausti uppi, kl. 4 föstudaginn 28. febr. næstkomandi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Onnur mál. STJÓRNIN. þorskar og 273 ufsar auk 5 ann- ara fisktegunda. Stærð þorsks- ins_ 2,8-5,1 cm. í Reykjarfirði í 2 dráttum 4045 þorskar og 13 ufsar auk annara fisktegunda. Stærð þorks ins 3.0-13 cm. í ísafirði í 10 dráttum 2680 þorskar og 345 ufsar auk 135 annara fisktegunda. Stærð þorks ins 13-18 cm. Ég held nú, að aí uppgefnum afla dr. B. Sæm. hér að framan þurfi Jóni fiskifræðing ekki að verða skotaskuld úr þvi að reiJtna út, hver mundi seiðaafli aJlra rækjuveiðabátanna geta hafa orðið í þeirra stóru vörpur öll þau ár, sem rækjuveiðar hafa verið stundaðar hér 1 Djúpinu og innfjörðum þess. NeL Jón hefur velt stærra hlassi en þvi. ' Um, Skútufjörð sem er lang dýpstur allra innfjarða Djúpsins og sem einu sinni var allra fjarða fiskisælastur, segir Dr. Bjarni eftir að hafa kynnst fiski- lífinu þar: „Fjörðurinn er þannig að verða merkilegur fjörður fyr- ir fiskiveiðar við Djúpið. Hnísur og hrefnur sá ég á firðinum og I haust er leið höfðu verið þar marear hre^Dur og iafnveJ r' kr ir stærri hvalir er voru þar lengi.“ Fiskirannsóknir Dr. Bjama Sae mundssonar þetta ár 1908 taka og til Breiðafjarðar og Húna- flóa og innfjarða þeirra. í þess- ari skýrslu segir meðal annars: „Þorska og ufsaseiðin dvelja svo í fjörðunum fyrstu 2 árin og að minnsta kosti að nokkru leiti 3. árið, svo það má finna seiði á 1. 2. og 3. ári saman eins og sjá má á aflaskýrslu hér að fram- an. Þó varð ég aðeins var við eldri seiði en veturgömul, (l.fl.) í ísafjarðardjúpi, einungis þorsk- seiði. En þau fást oft á veiðar- , færi fjarðarbúa (þyrslingur), (við ísafjarðardjúp bútungur) og og smáuísi." „Má af því ráða. að þorskurinn, að minnsta kosti fer ekki úr fjörðunum fyrr en hann er orðinn tvændur (II. fl.).“ ..í haust (1908) var mikill þyrslings afli við Mið- og inndjúpið, býst ég við að það hafi verið fiskur sem í fyrsta sinn hefur. verið að leita til hafs á 3. eða 4. hausti.** „Firðirnir eru bví griðarstaðir þar sem seiðin vaxa upp í friðl fyrir eftirsókn mannanna og má það heita heppni þar, sem botn- vörpuveiðamar sem stundaðar era á gotstöðunum úti fyrir jnega yfirleitt teljxst hættnlegar fyrir alla þá ungfiska er lifa við botninn.“ Glöggt yfirlit yfir aflann er að finna á öllum þeim svæðum er dr. Bjami rannsakaði á um- getnu sumri. Þar segir ,hann meðal annars: „Af yfirliti þessu sést áð flestar fisktegundir feng- ust í ísafjarðardjúpi en fæstar á Breiðafirði." Dr. Bjarni Sæmundsson var þekktur fyrir á rannsóknarferð- um sinum, að vera spurull um allt það sem fiski og fiskveiðum kom við. t sjávarþorpunum hér við Djúpið gerði hann sér far um að kynnast sjómönnunum, tala við þá og spyrjast fyrir um hitt og annað, sem að starfi þeirra laut. Ekki stóð heldur á honum að fræða þá. væri hann spurður um eitthvað sem varð- aði fiskinn og fiskveiðaraar. Hafði hann af mörgu að taka í þeim efnum. Dr. Bjami vissi hvað hann var að gera þegar hann réði Einar Þorsteinsson bónda á Eyri í Skötufirði til þess að flytja sig milJi fjarða hér 1 Djúpinu, þar sem hann var þaul- kunnugur, og auk þess sérstak- lega glöggur maður á allt. sem kom fiski og fiskiveiðum við. Gat Einar til dæmis frætt dr. Bjarna um hvar aðaldvalarstaðir smá- fisksins (bútungsins) voru hér í Djúpinu, fór Einar með hann á þessi mið sem þeir gátu veitt sér fisk í soðið, sem þeir gerðu sér svo gott af, þó ekki væri 1 jafnvistlegum salarkynnum og núverandi fiskifræðingar eiga við að búa á rannsóknaríerðum Enginn vafi er á því að rækju- og dragnótaveiðar hafa oft heft Framhald á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.