Morgunblaðið - 13.03.1964, Side 1

Morgunblaðið - 13.03.1964, Side 1
28 síður Afstaða flokkanna til handritamálsins óbreytt — segir Gylfi Þ. Gíslason, men ntamálaráðherra VEGNA íréttar í Morgun- blaðinu í gær um skrií danska blaðsins „Aktuelt“ um handritamálið, sneri Mbl. sér til Gylfa Þ. Gísla- sonar, menntamálaráð- herra, og spurði hann um þróun málsins. Hann sagði: „Mér er kunnugt um, að af- staða þeirra flokka, sem stóðu að samþykkt laganna um afhendingu handritanna, á sínum tíma, er óbreytt.“ Þá hefur Mibl. fengið forystu- grein þá úr „Aiktuelt“, sem vitn- að var til hér í blaðinu í gær, og er hún á þessa leið, í íslenzkri þýðingu: „íslendingar hlakka til að veita móttöku handritunum, sem yfir- gnæfandi meirihluti danska þingsins hefur lofað þeim. ísland er reiðubúið að veita gjöfinni móttöku eftir næstu þingkosn- ingar, sagði Gylfi Þ. Gíslason, menntarnálaráðherra, í Aiktuelt nýlega. En um leið eru danskir visindamenn reiðubúnir til að gera það, sem þeir geta, til þess að fá afhendingu gjafarinnar frestað. Þeir hafa mótmæli á takteinum. Ekki hafi verið lapp- að upp á handritin. Aðeins lítill hluti safnsins hafi verið ljós- myndaður. Afhendingarlögin standist ekiki. Framhald á bls. 2. Hlaut 8 ára fangelsi og 10,000 $ sekt Chattanooga, Tennessee, 12. marz. — AP-NTB. ^ JAMES Hoffa, for- seti hins valdamikla sambands bandarískra flutningaverkamanna, var í dag dæmdur í átta ára fangelsi og 10.000 dollara sekt. Var hann sekur fund inn fyrir héraðdómstóli í Tennessee 4. marz sl. um að hafa reynt að hafa áhrif á afstöðu kviðdóm- enda í máli er rekið var árið 1962 gegn honum sjálfum. Mesta refsing fyrir slíkar sakir er 10 ára fangelsi og 10.000 dollara sekt. ★ Samband bandariskra flutningaverkamanna tel ur 1.7 milljónir félaga og er hið fjölmennasta sinnar teg- undar í heiminum. Hoffa hefur árum saman ráðið þar lögum og lofum og ekki þótt vandur að meðölum. Hann hefur a.m.k. fjóirum sinnum mátt svara til saka fyrir dómstólum, en jafnan verið sýknaður. Hoffa hefur ákveð ið að áfrýja dómi þessum. Fremst í röð hinna erlendu gesta við útför Páls Grikkjakonungs gengu Gústaf Adolf, Svíakonungur; Friðrik, Danakonungur; Júlí- ana, Hollandsdrottning; Baldvin, Belgíukonungur, og Ólafur, Noregskonuugur. Myndin var símsend frá AP í gærkvöldi. Iltför Páls Grikkjakonun gs í gæn Nær milljón manna fylgd- ist með útförinni í Aþenu Talið er, að allt að einni milljón manna hafi safnazt saman á götum í Aþenu í morgun, þar sem útför Páls Grikkjakonungs var gerð með mikilli viðhöfn, í glampandi sólskini. ■$- Eftir að Chrvsostomos, erkibiskup af Aþenu hafði sungið sálumessu í grísk-kaþólsku dómkirkj- unni, var kista konungs flutt til Tatoi-hallarinnar utan við borgina og jarð- sett í grafreit konungsfjöl- skyldunnar í hallargarðin- uni. Að útförinni lokinni komu hinir fjölmörgu tignu gestir, þjóðhöfðingjar, stjórnarleiðtogar, prinsar, prinsessur o. sv. frv. saman í konungshöllinni inni í borginni og vottuðu ekkju- drottningunni, Friðrikku og konunginum unga, Konstan- tín 13. samhryggð sína. Kista konun.gs hafði legið á viðhafnarbörum í kirkjunni frá því á mánudag. I gærkveldi var kirkjunni lokað og ekki opnað aftur fyrr en skömmu áður en ekkjudrottningin og kanungurinn komu til mess- unnar. Þegar mörgum klukku- stundum áður en útförin skyldi hefjast höfðu tugþúsundir manna safnazt saman umhverfis kirkjuna og fagnaði mannfjöld- inn konunginum og móður hans, er þau komu þangað. Talið er, að hátt í milljón manna hafi verið á götum úti í dag, þar sem líkfylgdin fór um á leið til Tatoi-hallarinnar. Við sálumessuna, sem stóð yfir í 50 mínútur aðstoðuðu fimmtíu prestar. Leið yfir einn einn þeirra undir messunni og var hann borinn út. Að mess- unni lokinni báru liðsforingjar úr lífvarðarliðinu kistuna út úr kirkjunni og koniu henni fyrir á fallbyssuvagni. Yfir mannfjöldanum hvíldi grafarþögn, er kistan var borin út og margir grétu. Er lik- fylgdin lagði af stað frá kirkj- unni var öllum kirkjuklukkum Aþenu-borgar hringt. Næst kistunni gengu Konstantín, konungur, og Friðrikka, ekkj u drottning, og því næst aðrir úr fjölskyldu konungs. Af erlend- um gestum gengu fremstir Baldvin Belgíukonungur, Júlí- ana, Hollandsdrottning, Gustaf Adolf, Svíakonungur, Ólafur Noregskonungur og Friðrik Danakonungur, þar næst gengu Heinrich Liibke, forseti V.- Þýzkalands og Makarios, erki- biskup, forseti Kýpur, — síð- an meðal annarra drottning Danmerkuir ásamt dætrum sín- um, Philip, prins eiginmaður Englandsdrottningar, frú Lady Bird Johnson, forsetafrú jBandaríkjanna og Harry S. Tru man fyrrverandi fórseti Banda- ríkjanna. Ennfremur Norodom Kantol, prins frá Cambodia, og Asfa Wossen, prins frá Eþíópíu, og þrír krúnulausir konunpjar, þeir Umberto frá Ítalíu, Michael frá Rúmeniíu og Simeon frá Búlgaríu. Við mót gatna Sofíu, drottn- ingar og Konstantíns, konungs, var gert hlé á líkfylgdinni. Stigu ættingjar hins látna og Framihald á bls. 27 Meiri von um lög- gæzlu- sveitir New York, 12. marz. — AP — NTB — í kvöld virtist heldur miða til hins betra um' stofnun friðarsveita Samein- uðu þjóðanna á Kýpur. Er haft eftir áreiðanlegum heim- ildum í New York, að kostn- aðarhlið málsins hafi að mestu verið leyst. Bandaríkjastjórn hefur heitið að leggja fram tvær milljónir dollara til lög- gæzluliðs SÞ á eynni, brezka stjórnin heitir einni milljón Framhald á síðu 27 Mynd þessi af James Hoffa var tekin eftir að kvið- dómurinn hafði komizt að þeirri niðurstöðu, að hann væri sekur. Hoffa dæmdur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.