Morgunblaðið - 13.03.1964, Side 28
Svo sem kunnugt er tóku jöklarannsóknamenn, sem flugu yfir Vatnajökul í haust, eftir stór-
um jökulsprungum. norðanvert við svonefnt Pálsfjall á suðvestanverðum Vatnajökli. Sprung-
ur þessar voru nýlegar, þvi á síðastliðnu vori var jökullinn ósprunginn þarna, enda hafa
ferðamenn lagt leið sína um þessar slóðir á undanförnum árum, er þeir hafa farið til Gríms-
vatna. Björn Pálsson flugn:aður tók meðfylgjandi mynd af jökulsprungum þessum í fyrra-
dag.
Dr Sigurður um jökulsigið
og iökulsprungur
FRETTAMAÐXJR blaðsins átti
stutt viðtal við dr. Sigurð
í>órarinsson í gær, en hann
flaug yfir Vatnajökul ásamt
fleiri vísindamönnum í fyrra-
dag. Sigurður sagði, að sprung
urnar umhverfis Pálsfjall
stæðu í sambandi við það, að
Síðujökull (suðvestanverðu í
Vatnajökli) hefur skriðið tals-
vert fram undanfarið. Árið
1946 skreið jökullinn einnig
fram, en á árabilinu, sem síð-
an er liðið hefur jökullinn
aftur gengið saman vegna hlý-
viðra, eins og íslenzkir jöklar
hafa yfirleitt gert í seinni
tíð. En nú hefur jökullinn
aftur skriðið nokkuð fram,
eins og getið var. Um orsakir
þess, hvað Sigurður erfitt að
segja.
Eru þetta miklar sprungur
við Pálsfjall?
í>etta er.u miklar, Ijótar og
„dauðadjúpar sprungur" sagði
Sigurður.
Stendur þetta ef til vill í
sambandi við jökulsigið vest-
ur af Grímsvötnum?
Nei, það tel ég ekki.
Það jökulsig myndaðist við
hlaupið í Skaftá á dögunum,
sem kunnugt er. Frumorsök-
in er sjálfsagt jarðhiti af ein-
hverju tægi. Hvort þar hefur
verið um bein eldsumbrot að
ræða er ekki hægt að segja
með óyggjandi vissu. Að
minnsta kosti mun sá eldur
'þá ekki hafa náð yfirborði
jarðar.
En hvað um brennisteins-
fýluna, sem barst norður yfir
öræfin?
Hún hefur borizt frá Skaftá,
þar sem hún brauzt fram úr
jöklinum. Þar er vatnið mjög
„concentrerað“ og lyktsterkt,
enda fannst brennisteinsfýlan
alla leið til Akureyrar, en
játa ber, að Akureyringar
virðast allra manna lytktnæm-
astir a. m. k. ef tum brenni-
stein er að ræða. En auðvitað
hefur sunnanáttin einnig átt
sinn þátt í þessu bætti Sigurð-
ur við að lokum.
Teipur uppvísar að
peningaþjófnuðum
5 telpur stálu nær 20,000 krónum
Fleiri koma við sögu
1 VETUR hefur oft borið við að
telpur hafa verið teknar til yfir-
heyrslu hjá rannsóknarlögregl-
unni vegna þjófnaða. Síðustu
daga hafa verið yfirheyrðar
fimm telpur á aldrinum 10—14
ára, vegna þjófnaða. Segir rann-
sóknarlögreglan að mikil brögð
hafi verið að því að telpur hafi
stundað þjófnaði í vetur, og
aldrei meira komið til lögregl-
unnar af slíkum málum á jafn
skömmum tíma og nú.
Hér er um allmarga telpna-
hópa að ræða, eða 10 til 12 telp-
ur samtals. Hafa þær stundað
þjófnaðinn tvær eða fleiri saman
í sundurgreindum hópum, sem
ekki þekktust inrabyrðis.
Þjófnaðina hafa þær aðallega
etundað í verzlunum í borginni,
ýnrúst með því að stela úr hand-
töskum kvenna þar sem þær hafa
staðið í þröng við búðarborð, eða
þá fengið að máta föt og farið
á baik við, en venjulega geyma
búðarstúlkur þar veski sín. Hafa
telpurnar þá notað tækifærið og
stolið úr þeim fé.
Ein af þessum telpum hefur
þrívegis verið yfirheyrð af rann-
sóknarlögreglunni í vetur vegna
slíkra þjófnaða, sem hún hafði
framið. Hefur telpu þessari verið
sleppt aftur, en búm haldið
áfram uppteknum hætti.
Þá ’hefur borið við að telpum-
ar hafa farið í mannlausar íbúð-
ir, leitað þar að fjármuraum, og
tekið þá peninga, sem þær hafa
fundið.
Hér mun vera uim að ræða
miikla fjármuni, sem telpurnar
hafa stolið. Þaranig munu þæx
fimm, sem síðast voru yfirheyrð-
ar, hafa stolið alls nær 20 þúsund
krónum. Af því náðist í 5 þúsund
krónur, en hinu höfðu þær sóað,
m. a. í sælgæti, bíóferðir og ýmsa
óhófssemi.
Barnaverndarnefnd hefur feng
ið mál telpnanna til meðferðar í
vetur, eftir því sem þau hafa
fallið til.
Pólvcrjar reyna
að draga togara
sinn á ílot
ÁKVEÐIÐ hefur verið að reyna
að draga pólska togarann Wis-
lok út, en hann liggur nú á þurru
á Krosssandi. Munu Pólverjar
sjálfir reyna að ná togaranum á
flot. Björgun h.f. mun ekki taka
þátt í björgun togarans, þar eð
samningar tókust ekki milli við
komandi fyrirtækja, en Björgun
mun lána tæki til verksins.
Pólskur björgunarsérfræðing-
ur mun stjórna verkinu í landi
og íslendingar vinna þar undir
hans stjórn. En siðan mun
pólska dráttarskipið Koral reyna
að draga togarann út, sennilega
í stórstrauminum um helgina.
Ýsu veiii í nót veld
ur vandræðum
Fiskurinn fullur af rotnandi æti.
• •
þarf sérstaka meðferð — Orðug-
leikar á löndun í Eyjum
UPP HAFA komið nokkur vand-
ræði vegna hinnar tiltölulega
nýju veiðiaðferðar, sem í því
felst að veiða fisk í nót á yfir-
borði sjávar. 1 Vestmannaeyj-
um Kafa frystihúsin orðið að láta
nótabáta sitja að nokku á hak-
anum vegna manneklu, svo og
vegna þess hve afli þeirra, sem
er mestmegnis ýsa, er seinunn-
inn. Þá var í fyrrakvöld og í gær
lesin upp í útvarpi tilkynning
frá fiskmatsstjóra, þar sem fisk
framleiðendum er bent á þá
hættu, sem sé því samfara, að
vinna fisk með rotnandi æti,
nema öli bezta meðferð sé við
höfð. Mun í þessari tilkynningu
einkum átt við afla nótabátanna,
sem veiða fiskinn, þar sem hann
er í torfum vegna silis.
Fréttaritari Mbl. í Vestmanna
eyjum símaði eftirfarandi frétt
í gær:
UNDANFARNA daga hefur bor-
izt mikið af ýsu á land hér í Vest
mannaeyjum af nótabátum. —
Ýsa þessi hefur verið smá og
yfirleitt seinunnin. Frystihúsin
hér í Eyjum eru um þessar mund
ir mjög liðfá, og hefur af þeim
sökum safnast svo mikið af fiski
fyrir hjá þeim, að þau hafa ekki
treyst sér til þess að taka á móti
allri þeirri ýsu, sem umrædlir
bátar hafa fiskað. Vsan hefur
fengizt grunnt, uppi undir Land-
eyjasandi.
Fiskvinnslustöðvarnar hafa því
séð sig tilneyddar að takmai ka
•það magn, sem þau geta tekið
við af nótabátunum.
Eins og er, hefur einnig verið
takmörkuð eitthvað móttaka á
fiski, aðallega ýsu, af botnvörpu-
bátunum. Þróun málanna hefur
því orðið sú, að frystiihúsin hafa
tilkynnt viðkomandi bátum ým-
ist að þau gætu ekki tekið af
þeim nema ákveðið magn suma
dagana, eða þá ekkert dag og
dag.
Óánægja mun ríkja meðal sjó-
manna vegna þessa ástands, en
allir skilja þó að ekki þýðir að
taka af bátunum það sem ekki
er hægt að nýta.
Um afla netabátanna gildir
nokkru öðru máli, þar sem
lcappkosta verður að taka afla
þeirra daglega, svo ekki safnist
fyrir í netum þeirra. Þegar ofan
á þeirra afla bætist mikið magn
af hinni seinunnu ýsu nótabát-
Framhald á síðu 27
Rafmagnsmenn ná jámfleygnum xir háspennukaplinum.
(Ljósm. Mfol.: Sv. Þ.).
Ráku járnfleyg í 6000
volta háspennustreng
SÍÐDEGIS í gær voru menn að
vinna við að festa meters lang-
an fleyg í jörðu til að festa
staur er afmarka á lóð við Gagn
fræðaskóla verknáms við Braut-
arholt. Þeir ráku fleyginn niður
með sleggjum, og lenti hann í
600 volta háspennukapli. Ekki
sakaði mennina, en rafmagn fór
samstundis af húsum fyrir inn-
an Nóatún og ofan Laugaveg,
svo og umferðarljósum á horn-
inu. Þar eð unnið var með sleggj
um með trésköftum hélt engma
um teininn er hann lenti í há-
spennulínunni, enda er útleiðsl
an svo snögg, þegar það gerist
að öryggin fara undir eins.
í gær vann rafmagnsveitan að
því að ná upp strengnum og var
búist við að viðgerð yrði lokið
um miðnætti.