Morgunblaðið - 21.03.1964, Blaðsíða 1
24 síðui1
IGÖMUL bóndakona í Viet um Viet Cong kommúnista,
Nam reynir að forða syni sín- frá hernr.innum stjórnarinn-
um, sem var í sftæruliðasveit- ar.
Ljósmynduðu her-
æfingar Rússa
„Erlendir sérfræbingar" i A-Berlin,
bera njósnir á bandariska flugmenn
Berlín, 20. marz (NTB)
„ERLENDIR flugmálasérfræðing
ar“, sem ekki eru nánar tilgreind
ir í fréttum, áttu í dag tal við
fréttamenn frá AFP fréttastof-
unni í Austur-Berlín. Sögðu sér-
Fulltrúoi púfu
í Búdopest
Búdapest, 20. marz — (NTB)
SKÝRT var frá því í Búdapest í
dag að tveir háttsettir fulltrúar
Páfaríkisins hafi nýlega lokið
leynilegum viðræðum við ung-
versk yfirvöld um hugsanlega
lausn Mindzenty-málsins og ann-
arra vandamála kaþólsku kirkj-
nnnar i Ungverjalandi.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum að annar fulltrúanna,
Agostino Casaroli, hafi einnig
rætt við Mindzenty kardínála,
aem leitaði hælis í bandaríska
aendiráðinu í Búdapest eftir ung-
versku byltingupa 1956, og hef-
«r búið þar síðan.
Fulltrúarnir munu hafa farið
huldu höfði í Búdapest, en þó
voru sjónarvottar að því þegar
Casaroli heimsótti bandaríska
sendiráðið á sunnudag. Álitið er
að viðræðurnar við ungversk
yfirvöld hafi lofað góðu, þótt
ekki sé búizt við endanlegri lausn
vandamálanna fyrst um sinn.
fræðingarnir að fundizt hafi
ljósmynndavélar og filmur í
bandarisku RB-66 vélinni, sem
skotin var niður yfir Austur-
Þýzkalandi fyrir tíu dögum, og
geti þessi gögn leitt til þess að
bandarisku flugmennirnir verði
drengnir fyrir rétt, sakaðir um
njósnir.
Séfræðingarnir segja að sér-
stök tæki hafi verið í flugvél-
inni til að eyðileggja ljósmynda-
útbúnaðinn, en að tæki þessi hafi
ekki verkað. Telja þeir að þetta
geti kotnið Bandarikjunum í
slæma klípu.
Á svæði því, sem flugvélin
flaug yfir áður en hún var skot-
in niður, fóru fram heræfingar
Rússa, og segja Sérfræðingarnir
að ljósmyndavélar flugvélarinn-
ar hafi verið í gangi þar til hún
hrapaði til jarðar. Ef til vill hafi
myndirnar, sem teknar. voru,
komizt í hendur Rússa og verði
notaðar sem sönnunargögn við
hugsanleg njósnaréttarröld.
Eftir því sem bezt er vitað
munu flugmennirnir þrír hafðir
i haldi í Austur-Þýzkalandi. Einn
maður áhafnarinnar, Harold W.
Welch, meiddist er hann lenti í
fallhlif sinni, og er bann í rúss-
nesku hersjúkrahúsi í Magde-
b'urg. Þar fékk bandarískur her-
læknir að ræða við hann fyrir
skömmu. Ekki er vitað hvar hin
ir flugmennirnir, David I. Hol-
land og Mervin J. Kessler, eru í
haldL
Vaxandi grimmd í Viet-Nam:
á borgur-
um, konum og börnum
Saigon, 20. marz — (AP) —
M I K I L grimmd hefur nú
færzt í bardagana í Suður-
Vietnam og bitnar að miklu
leyti á óbreyttum borgurum.
Ekki eru það einungis komm-
únistar Viet Cong, sem hér
eiga hlut að máli, heldur
einnig hersveitir stjórnarinn-
ar í Saigon. Og stöðugt
streyma til höfuðborgarinnar
fréttir um fjöldamorð á kon-
um og börnum.
Ofbeldisverk eru ekki ó-
þekkt í Vietnam, því íbúarn-
ir hafa búið við svo til stöð-
ugar óeirðir í 20 ár. En þau
hafa aldrei verið meiri en nú,
þegar Viet Cong og stjórnar-
herinn keppast um að ná yf-
irráðum á stórum landsvæð-
um. —
Báðir aðilar safna að sér vopn-
um, og keppast um að hafa þau
sem mikilvirkust. Viet Cong
sveitirnar fá megnið af vopnum
sínum frá Norður Vietnam, en
auka vopnabirgðirnar með árás-
um á birgðastöðvar stjórnarhers-
ins. Stjórnarherinn fær mest af
sínum vopnum .frá Bandaríkj-
unum.
Meðal nýrra vopna, sem stjórn
arherinn beitir, eru íkveikju-
sprengjur. Sprengjurnar eru
fylltar eldsneyti og kveikja í
öllu, sem fyrir þeim verður. í
gær tók stjórnarherinn þorp eitt
skammt frá landamærum Kam-
bodia, og hafði áður verið varp-
að íkveikjusprengjum á þorpið.
Segja bandarískir sérfræðingar,
sem voru með hersveitunum, að
hryllileg sjón hafi mætt þeim
í þorpinu. Þar lágu lík íbúanna
á víð og dreif og sums staðar
skaðbrenndar konur og börn,
sem aðeins biðu dauðans. En
meðal íbúanna fundust lík
margra Viet Cong hermanna og
vopn þeirra hjá þeim.
Kommúnistar hafa reynt að
hindra framsókn stjórnarhersins
með því að halda íbúum þorpa,
sem þeir hafa tekið, í gislingu.
Þannig var það t.d. þegar 300
Viet Cong hermenn tóku þorpið
Ben Cau fyrir nokkru. Yfirmenn
stjórnarhersins ókváðu engu.að
síður að hefja skothríð á þorpið,
og gjöreyddu því með íkveikju-
sprengjum. Tugir borgara féllu,
en með þeim allir Viet Cong
hermennirnir.
Talsmenn stjórnarinnar segja
að þessi grimmd gagnvart íbú-
unum sé nauðsynleg, o‘g til orð-
in vegna framkomu kommún-
ista. Segja þeir að kommúnistar
hiki ekki við að útrýma heilum
þorpum til að koma í veg fyrir
að íbúarnir gangi í lið með
stjórnarhernum. Og í Kien Hoa
héraði létu kommúnistar sér fátt
um finnast nú fyrir skömmu þeg-
ar bændur í héraðinu neituðu
að borga sérstakan skatt til að
standa straum af herkostnaði
Viet Cong. Létu kommúnistar
Framhald á bls. 23.
Dublin, 20. marz.
— (AP-NTB) —
IRSKI leikritahöfundurinn
Brendan Behan lézt í
Dyflinni í kvöld, 41 árs
gamall. Þjáðist hann af
sykursýki og gulu og hafði
verið meðvitundarlaus að
mestu síðustu fimm sólar-
hringana. Eiginkona skálds
ins, Beatrice, og Stephén
faðir Behans, voru við
Brendan Behan látinn
Höfundur leikritsins „Gisl
aðeins 41 árs
var
stödd er dauðann bar að.
Fyrr í dag höfðu verið gerð
ar tvær skurðaðgerðir á Be-
han til að reyna að bjarga lífi
hans. Segja læknar að aðgerð
irnar 'hafi verið til þess ætlað
ar að auðvelda andardráttinn,
en engar frekari skýringar
voru gefnar. ,
Brendan Behan fæddist i
Dublin 9. febrúar 1923. Ungur
að árum gek'k hann í írska
lýðveldisherinn, sem barðist
fyrir því að ná sex héruðum
Norður írlands undan stjórn
Breta og sameina þau írlandi.
16 ára gamall var hann hand
tekinn fyrir að undirbúa
sprengjutilræði í Liverpool og
sendur á gæzluheimili fyrir
afbrotaunglinga. Árið 1942,
tæpu ári eftir að Behan losn-
aði af gæzluheimilinu, var
hann dæmdur til 14 ára fang-
elsisvistar fyrir að skjóta lög-
regluþjón. Sat hann inni I
f jögur og hálf t ár. Þegar hann
var látinn laus ákvað hann að
snúa sér að ritstörfum. Starf-
aði hann við dagblöð, en not-
aði frístundir til að semja
fyrsta leikrit sitt „The Quare
Fellow“. Þegar leikritið kom
út 1956 vakti það mjög mikla
athygli og flutti frægð höf-
undarins víða um heim. Næst
kom svo leikritið „The Host-
age“ árið 1959 (þ.e. „Gísl“,
sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu
um þessar mundir), og hlaut
það leikrit frábærar móttök-
ur. Þetta eru þekktustu leik-
húsverk 'hans, en einnig hefur
hann sikrifað bókina „Borstal
Boy“, sem varð metsölubók
í Bretlandi.
I)i