Morgunblaðið - 21.03.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.03.1964, Blaðsíða 23
!r Laugardagur 21. marz 1964 ^ MORCUNBLAÐIÐ 23 186 bœkur frá Cyldendal í vor M.a. IslendingasÖgur, Ijóð Steins Steinarrs og Fóstbræðrasögu Gunn- ars Gunnarssonar MEÐAL 186 bóka, sem út koma hjá Gyldendal í vor eru íslendingasögur I—III, Ferð án fyrirheits eftir Stein Stein- arr og Fósthræður Gunnars Gunnarssonar. Þeim hókum, sem Gylden- dal gefur út á vorin fjölgar með hverju ári. Þær eru nú 186, en 1962 voru titlarnir ekki nema 130. Meðal stórra verka á þessu vori er minningarútgáfa verka Karen Blixen í sjö bindum og hluti af heildarútgáfu verka Sör- ens Kirkegaards. íslendingasögurnar I—III eru þýddar af.dönskum skáldum og myndskreyttar af Johannesi Larsen. Þær komu fyrst út í Dan mörku 1930 í tilefni af þúsund ára afmæli Alþingis. Þær voru ófáanlegar í mörg ár, en 1960 var ný útgáfa prentuð. Hún er nú einnig uppseld. Það er Poul P. M. Pedersen, sem þýðir Ijóð Steins Steinarrs, bókin er um 200 síður og nefnist á dönsku „Rejse uden Mál.“ Háteip;spresta- kall Sr. ARNGRÍMUR Jónsson, sem skipaður hefur verið prest- ur í Háteigsprestakalli, hefur fengið leyfi kirkjustjórnarinnar til þess að sitja áfram í Odda til næstu fardaga. Sr. Erlendi Sigmundssyni hefur verið falið að annast prestþjónustu fyrir hann í Háteigsprestakalli þangað Mýr togbátur Jörundur II. Rúm fyrir 2 herpinætur a bdtapalli í einu SL. LAUGARDAG kom til Reykj avíkur nýr togbátur, JÓrundur II, eign Guðmundar Jörundssonar útgerðarmanns, og von er á systurskipi hans, Jörundi III innan mánaðar. Togbátarnir eru báðir byggðir í Selby í Englandi hjá Cochrane & Sons Ltd., en þar hafa fjölmargir íslenzkir togarar verið byggðir. Jör- undur II er 267 lestir að stærð með 800 ha vél. Skipið á að geta fiskað á fernan hátt, verið við síldveiðar, á tog- veiðum, þorskanetjaveiðum og línuveiðum. Vegna togveið anna er innsett stærri skrúfa og komið fyrir um borð öll- um togútbúnaði. í skipinu eru einangraðar aluminium- lestar með kælibúnaði. Þetta er fyrsta skipið sem búið er þannig að það geti haft tvær herpinætur á bátapalli sam- tímis. Sérstök áherzla var lögð á að skipið hefði mikla kjöl- festu og eru m. a. ballesta- geymar undir lest o^g í báð- um endum þess. Skipstjóri er Runólfur Hallfreðsson frá Akranesi og kom hann með skipið heim. Jörundur II er farinn á veiðar með þorska- nót. Jörundur III, systkurskip Jörundar, er í byggingu í Englandi og verður tilbúið innan mánaðar. tiL (Reykjavíkurprófastdæmi) Steindór Stein- dórsson, á grasa- fræðmgafundi STEINDÓR Steindórsson, yfir- kennari við Menntaskólann á Akureyri, fer utan í dag til þess að sitja fund grasafræðinga, sem hefst n.k. mánudag í Stolz- enau í Vestur-Þýzkalandi. Á fundi þessum verður rætt um kerfi gróðurfélagsfræðinnar. — Mun fundurinn standa í 2—3 daga. Grískur vasi. Mynd úr fyrsta hefti nýs bókaflokks, sem nú kemur út hjá Gyldendal. Fóstbræður Gunnars Gunnars- sonar eru nú í vasabókarbroti í þeim bókaflokki Gyldendals, sem nefnist Traneböger. Af nýjum ljóðabókum, sem koma út í vor, má nefna: „Rinke- sten“ eftir Poul Borum og „Spor“ eftir Bundgaard Povlsen. Nýr bókaflokkur hefst, sem nefnist „Saga málaralistarinnar.“ Er hann í 12 myndskreyttum heft- um og fjallar um málaralist í hinum vestræna heimi sl. 20 ald- ir. í hverju hefti eru 64 heil- síðu litprentanir. — S-Viet Nam Framhald af bls. 1. smala saman bændunum og voru þeir hálshöggnir. Nýjasta dæm- ið um grimmd kommúnista gerð- ist fyrir fjórum dögum í Nhi Binh, sem er rúmlega 30 km. fyrir sunnan Saigon. Gerðu Viet Cong árás á bæinn og tókst að ná hluta hans á sitt vald. Þegar að var komið, og kommúnistar hraktir á flótta, fundust fjöl- mörg lík kvenna og barna, sem stungin höfðu verið til bana með byssustingjum. Athugcr.ssmd vegna sjónvarpsiundaf FORMAÐUR Stúdentafélags- ins fór þess á leit við mig s.l. miðvikudagskvöld, að ég tæki ásamt Vilhjálmi Þ. Gíslasyni út- varpsstjóra að mér framsögtu á fundi Stúdentafélagsins sem halda á í dag. Virtist tilefni þess vera það, að ég er einn þeirra 60, sem undirritað hafa yfirlýs- ingu þá um sjónvarp, sem ný- lega var send Alþingi. Fór ég þess á leit, að umræðu efnið yrði rýmkað nokkuð, þann ig að unnt væri að ræða sjón- varpsmálin í heild, eins og þau nú horfa við með hliðsjón af þeirri erlendu sjónvarpsstöð, sem hér er starfrækt. Fékk ég þau svör, að umræðuefninu yrði ekki breytt. Síðar átti ég tal við út- varpsstjóra, og skýrði hann mér frá því, að hann hyggðist ein- ungis ræða fyrirhugjað íslenzkt 6jónvarp. Að féngnum þeim upp- lýsingum, taldi ég mér ekki tfært að taka að mér framsögu, enda mundi útvarpsstjóri gera — Iþróttir Framhald af síðu 22. ur, og endurnýjaður að öllum þægindum og útbúnaði. Hafa al- drei verið betri skilyrði en núna til að taka þar á móti gestum. Nýr vegur hefur verið lagður í Jósepsdal, og er öllum bílum fært þangað. Nánari upplýsingar um páska- dvölina í Jósepsdal verða veitt- «r í skrifstofu Ármanns í íþrótta húsinu við Lindargötu á mánu- dagskvöld og þriðjudagskvöld kl. 8-10, sími 1-36-56. Verða þá einnig seldir dvalarmiðar fyrir páskadagana í Jósepsdai, efninu full skil og ólíklegt, að nokkuð sem máli gæti skipt bæri á milli um skoðanir okkar á ís- lenzku sjónvarpi. Ekkert hef ég við það að at- huga, þótt íslenzkt sjónvarp sé tekið til umræðu á fundi í stúd entafélaginu, enda þótt ég fyrir mitt leyti hefði talið eðlilegra, að málin væru rædd í heild, svo sem áður gireinir. Hins vegar vil ég gera athuga- Skemmtun skóla- barna HAFNARFIRÐI. — Hin árlega skemmtun skólabarnanna var í gær og endurtekin tvisvar í dag fyrir fullorðna. Eru þessar skemmtanir barnanna ævinlega vel sóttar, enda jafnan vel til þeirra vandað og skemmtiatriðin fjölbreytileg. Leggja börnin og kennarar þeirra mikla vinnu í allan undirbúning, sem er ekki svo lítill. Á skemmtunum þess- um eru m.a. sýnd leikrit, sungið, leikið á hljóðfæri, sýndir þjóð- dansóu- og fleira. Strandamenn í kaffiboði ÁTTHAGAFÉLAG Stranda- manna hefur undanfarin ár haft þann sið að bjóða eldri Stranda- mönnum og velunnurum til kaffidrykkju. Nú verður þetta kaffiboð í Ská^kbeimiUnu kl. 3 á sunnudag. ^ semd við frétt af fundi þessum, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, þar sem sagði eftirfarandi: „Þótt umræðuefni stúdentafé- lags fundarins sé íslenzkt sjón- varp má gera ráð fyrir að sjón- varpsmáiin í heild verði rædd.“ Ég hef ekki hugsað mér að hefja umræður um sjónvarpsmál in í heild á fundi þessum, enda er það ekki á dagskrá fundar- ins og hefur ekki fengizt tekið á hana. Tel ég það takmarkaða kurteisi við frummælanda að fara að sveigja umræður inn á annað svið, sem einungis snertir aðalefnið óbeint, og kynlegt af forráðamönnum eða formanni þess að gera ráð fyrir að það verði gert, einkum þegar höfð er í huga afstaða formanns, sem nú hefur lýst verið. Sigurður Líndal Morgunn er kominn út MORGUNN, tímarit Sálarrann- sóknafélags íslands, júlí—desem- ber 1963, er kominn út. Meðal efnis er sem hér segir: Líf eftir dauðann, eftir Benjamín Krist- jánsson; Endurfæðing J.A. þýddi; Hversu traust eru sönnunargögn fyrir endurholdgun eftir próf. Chari; Víðar er reimt en á ís- landi, eftir Caroline Gunnarsson; Sálarrannsóknir og kristnar hug myndir um dauðann, eftir dr. phil Cleoburg; Kristindómurinn og önnur trúarbrögð, eftir dr. Kristian Schelderup bisikup; Sál arfriður, sannfæring um annað líf, eftr séra Jón Auðuns; Hug- lækningar, eftir Árna Óla. Ritstjóri Morguns er séra Jón Auðuns dómprófasúu- og er þetta 44. árgangur. — Saurar Framh. af bls. 24 um var Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur. Annar fréttamað- ur blaðsins, sem skrapp að Saur um síðdegis í gær hefur það eft- ir honum, að hann telji ekki að þarna sé um jarðskjálfta að ræða, úr því bærinn hreyfist ekki og hvorki myndir á veggj- um né dót á hillum, heldur að- eins einstaka húsmunir svo sem skápur og borð. Leit að kraftsviðum Mbl. leitaði í gær til ýmissa til að fá álit manna um hvað þarna væri um að vera. Einn af yngri vísindamönnum benti blaðinu á eftirfarandi: Við Duke háskóla í Bandaríkj- unum hefur prófessor J.B. Rhine gert tilraunir með hugsanaflutn- ing. Hefur hann ha/t tvo hópa af fól'ki sinn í hvoru herbergi. Ann- ar flettir upp spilum, sem stokk- uð eiru mekaniskt og á hinn að geta sér til um hvað hverfi af þeim 5 tegundum spila sem um er að ræða. Segir prófessorinn að ef tilviljun réði þá ætti hann að geta að meðaltali upp á 5 hverju spili, en við tilraunirnar hafi fólkið getið miklu otftar rétt en svo, og sé statdsiskt útilokað að þetta sé tilviljun. Þama virðist vera fyrirbærið hugsanaflutning ur. En til að flytja merki þarf orku og orkan þarf að geta bor- izt í einhverju kraftsviði, eins og hljóðbylgjur berast. í lofti og radiobylgjur í rafsegulsviði. Ef hugsanaflutningur getur átt sér stað, þá er líklegt að til sé eitt- hvert kraftsvið sem þessi flutn- ingur geti átt sér stað í. Og ef til er eitfhvert þvílikt kraftsvið þá getur það flutt orku. Nú hef- ur Rhine gert tilraun með að láta vél velta um teningum. Að með- altali á hver tala að koma upp í eitt skipti af hverjum sex. Sið an hefur hann haft fólk í kring og látið það hugsa sterkt um það að fá ákveðna tölu upp. Pró- fessor Rhines segir líka að að meðaltali komi þær tölur sem fólk hugsar sér það miklu oftar, að líkurnar séu mjög litlar til að um tilviljun sé að ræða. Því vill hann halda því fram, að fólk geti haft einhver áhrif á þetta kraftsvið og kallar þetta „psy- cho kinetic power“ eða PKP. Þetta eru einu vísindalegu rann- sóknir sem vitað er til sem gætu bent til að í náttúrunni væri á ferðinni einhvers konar kraft- svið, sem er okkur eins dular- fullt og rafsegulsviðið var mönn- um fyrir 100 árum. Til að vera vísindalega þenkj- andi eiga menn ekki að fussa og sveigja og segja að þetta geti kki átt sér stað né hið gagn- stæða, heldur væri ráðlegt að fara með öll þau mælitæki sem geta útvíkkað mannleg skilning- arvit á staðinn og sjá hvort nokkrar breytingar kæmu fram á þeim mælitækjum samfara þessum fyrirbærum. Og aðspurður um hvaða tæki væru hugsanleg til að útvíkka mannleg skilningavit. Sagði þessi ungi visindamáður að af þeim sem til eru í landinu mætti nefna segulsviðsmæli, þyngdar- sviðsmæli, rafsviðsmæli. Síðan þyrfti að hafa segulband, kvik- myndavél og svo kannski infra- rauðan og útfjólubláan kíki. Væri hugsanlegt að finna mætti eithverjar breytingar með þeim. Þó þarna sé eitthvert óþekkt kraftsvið um að ræða, þá þurfi það ekki að vera neitt yfirnátt- úrulegt, því allt sem skeður í náttúrunni fylgi einhverjum lög málum og sé aðeins dularfullt á meðan við ekki þekkjum þau lögmáL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.