Morgunblaðið - 21.03.1964, Side 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
r
Laugardagur 21. marz 1964
Nótafiskurinn
grotnar á leið í höf n
— þarí að slægja hann um borð
ÍORSKANÓTABATAR hafa að
undanförnu aflað vel og komið
með mikinn afla á land. T.d.
komu Reykj avíkurbátarnir með
geysimikinn þorskafla á miðviku
dag af miðunum nálægt Vest-
mannaeyjum. l>or9kurinn er stór
og fallegur, en svo fullur af átu
að hann þolir illa nokkra
geymslu, og kom til árekstra út
af þessu þegar það kom 1 ljós
að fiskurinn var léleg
ur þegar átti að fara að verka
hann. Var ferskfiskmatið kvatt
til og skoðaði það fiskinn. Mbl.
átti í gær tal við Njál Þórðarson,
forstjóra ferskfisksmatsins um
nótafiskinn, og taldi hann að
nauðsynlegt yrði að fara innan í
hann um borð.
Hann sagði, að fiskurinn sem
barst á land á miðvikudag hafi
verið slæmur og mjög sundur-
laus að innan, þó það væri stór-
eflis þorskur fallegur að utan.
Bátarnir hafi verið lengi í túrn-
um, þar eð þeir veiddu við Vest-
mannaeyjar, og þegar ekki er
farið innan í fisk svo fullan af
átu strax, fair hann strax að
skemmast.
Þannig var um ýsuna, em nóta
bátarnir fengu mikið af um tíma.
Þá var ákveðið að farið væri
innan í hana um borð ef einhver
bið yrði á að koma henni í
Stúdentafélags
fundur um
sjónvarpið
í DAG kl. 2 verður almennur
umræðufundur í Stúdentafélagi
Reykjavíkur um íslenzkt sjón-
varp. Fundurinn verður í Lido
og er öllum heimill aðgangur.
Frummælandi á fundinum verð
ur Vilhjálmur Þ. Gíslason, og
talar hann um íslenzkt sjónvarp.
Að ræðu hans lokinni verða al-
mennar umræður og má búast
við að þar verði sjónvarpsmálin
mikið rædd. En þau hafa
verið mjög til umræðu að undan
förnu, einkum síðan 60 nafnkunn
ir menn skoruðu á Alþingi að
takmarka sjónvarpsheimild varn
arliðsins við Keflavíkurflugvöll.
Kirkjutón-
leikar í
Hafnarfirði
ÁKVEÐIÐ hefir verið að endur-
taka tónleika þá er Söngflokkur
Hafnarfjarðarkirkju hélt kirkj-
unni 1. þ.m. undir stjórn Páls Kr.
Pálssonar organleikara. Þótbu
þessir tónleikar takast með ágæt-
um.
Söngflokkurinn söng án undir
leiks fjögur lög og þrjú lög með
undirleik Árna Arinbjarnarson-
ar organleikara og undir stjórn
Páls. Frú Inga María Eyjólfs-
dóttir söng fjögur lög með undir-
leik Páls Kr. Pálssonar.
Arni Arinbjarnarson lék ein-
leik á kirkjuorgelið bæði á und-
an og eftir.
Tónleikar þessir voru öllum
þátttakendum til sóma og gleði-
légt að fá tækifæri til að hlusta
aftur, því það er ekki oft sem
tækifæri gefst til að heyra jafn
fágaðan tónlistarflutning.
Tónleikarnir verða endurteknir
á Pálmasunnudag kl. 5 í Hafn-
arfjarðarkirkju, og þarf ekki að
efa að þeir verða vel sóttir.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn. — B.J.
vinnslu. Ekki hefur veiðzt mikið
af ýsu síðan, en Njáll sagði að
vonzt væri til að þetta gæfi
góða raun.
Reykjavíkurbátarnir langt í land
Njáll kvaðst búast við að
sama þyrfti að gera með þorsk-
inn, fyrirskipa að farið yrði inn-
an í hann strax, ef hann er
veiddur langt frá löndunarhöfn.
Reykjavíkurbátarnir hafa verið
á annan sólahring í túrnum, þar
af 12 tíma með fiskinn á- leið
heim. Þetta er mikill munur eða
hjá Vestmannaeyjabátunum. T.d.
voru Vestmannaeyjabátarnir
komnir með aflann, sem veiddist
á þriðjudag, heim kl. 11 um
kvöldið. En Reykjavíkurbátarnir
ekki fyrr en 12 timum seinna.
Auk þess eru erfiðleikar með
fólk í landi og því ekki hægt
að vera fljótur að slægja, þegar
fiskurinn loks kemur í land.
Tekið var mat úr þremur bát-
um á miðvikudag í Reykjavík
og var það ekki gott.
— Nótaveiðar eru svo nýtil-
komnar, að maður hefur ekki
getað metið fiskinn enn, sagði
Njáll, En þetta mál þarf að leysa.
Það er ekki hægt að drepa svona
stóran fisk og láta hann svo
skemmast. Við erum þeirrar
skoðunar að það þurfi að fara
innan í hann um borð.
Hvað netafiskinn snertir kveð-
ur Njáll hann góðan í ár, betri
en í fyrra. En nú er versti tím-
inn framundan, þegar síldin fer
að grotna innan í honum.
Úthlutunor-
ncfnd lista-
munnaluunu
í GÆR fór fram í sameinuðu
Alþingi kosning 7 manna
nefndar til að skipta fjár-
veitingu í fjárlögum fyrir ár
ið 1964, til rithöfunda, skálda
og annarra listamanna, sam-
kvæmt þingsályktun, nýaf-
greiddri frá Alþingi um út-
hlulun listamannalauna. —
f úthlutunarnefnd voru kosn-
ir:
Sigurður Bjarnason, ritstj.
Bjartmar Guðmundsson,
alþingismaður
Þórir Kr. Þórðarson,
prófessor
Helgi Sæmundsson, form.
Menntamálaráðs
Halldór Kristjánsson,
bóndi, Kirkjubóli
Andrés Kristjánsson, ritstj
Einar Laxness, kennari.
Hin nýja hússtjórn á Hótel Sögu vígir nýja barinn, ásamt hótelstjóra, framkvæmdastjóra bygging-
amefndar og fulltrúa stéttarsambands bænda. Talið frá vinstri: Ólafur Stefánsson, settur búnaðar-
málastjóri, Kristján Karlsson frá Stéttasambandi nu, Einar Ólafsson í Lækjarhvatnmi, Sæmunduf
Friðriksson, framkvæmdastjóri. Þorsteinn Sjgurðsson á Vatnsleysu, Halldór Jónsson, arkitekt og
Þorvaldur Guðmundsson, forstjórL
Mímisbar opnar í Sögu
í GÆR var opnaður viðbótarsal
ur við anddyri Hótel Sögu svo og
nýr bar, Mímisbar, þar innar af,
og er þar með lokið innréttingu á
neðstu hæð hússins. Er viðbótar-
húsnæðið 140 fem. að stærð, þar
af barinn 90 ferm. Er hann hinn
vistlegasti, með sætum fyrir 80
mönns og hugsaður sem staður
þar sem hótelgestir og gestir ofan
frá matsalnum geta fengið :
kaffi eftir mat eða drykk, og tek
ið sér snúning á litlu dansgólfi
við píanóundirleik. Og aðrir kom i
ið þá daga sem ekki er opið í
Súlnasalnum.
Nú er lokið innréttingu á hús-
næði Hótel Sögu. Þar hefur ver-
ið sett upp rakarastofa, hár-
greiðslustofa, gufubaðstofa og
snyrtistofa. Tvær verzlanir hafa
opnað, minjagripaverzlun og
blómaverzlun og þarna verða
einnig smávöruverzlun, ferðaskrif
stofa og útibú Búnaðarbankans.
Er þá aðeins eftir að innrétta
þriðju hæð hússins, þar sem
Bænasamtökin munu hafa skrif-
stofur sínar.
Halldór Jónsson teiknaði innrétt
ingar í anddynð og Mímisbarinn,
sem er fjórði barinn í hótelinu.
Skreyting í barnum er í b!áu,
hvítu, og gylltu og gólfteppi
rautt, og járnskúlptúr er þar efb-
ir Jón og Guðmund Benedikts-
syni. í anddyrinu er parkettgólf,
lítil austurlenzk teppi og þægi-
leg húsgögn. Er þetta allt með
notalegum blæ, enda tilgangux-
Aðalíundur
Sálarrannsókna
féla$
íslands
AÐALFUNDUR Sálarrann-
sóknarfélags íslands verður
haldinn í Sigtúni þriðjudag-
inn 24. marz kl. 8.30. Fundar
efni: 1. Venjuleg aðalfundar-
störf. 2. Miðillinn Hafsteinn
Björnsson gefur skyggnilýs-
ingar. Félagar eru hvattir til
að fjölmenna stundvíslega.
Skemmtun í Ás-
prestakalli í da«
KVENFÉLAG Ásprestakalls held
ur skemmtun í dag í Laugarás-
bíói til ágóða fyrir kirkjubygg-
ingu í prestakallinu. Sýnd verð-
ur kvikmynd, en áður flytur Ein
ar Magnússon, menntaskóla-
kennari ávarp. Samkoman hefst
kl. 3 e.h.
í /*“ NA 15 hmifor i / SV50hnúfsr Sn/óiema » OS/m* 7 Skúrir £ Þrumur y////RagA^yj KuUoM H Hmt | ///.rmlt/S HitsM L La*i 1
Mikið læg/ðarsvæði en kraft NV-Grænlandi. Þar er víða
lítið er suður af íslandi, en 36-38 stiga frost. Hár á landi
óvenjulega mikili loftþrýst- er góðviðri og 4-8 stiga hiti.
ingur yfir Norður-Klanada og
Gt«jið er úr vistlegu og rúmgóðu anddyri hótelsins inn í Mimis-
barinn. Ljósm. Ól. K. Mag.
Flugvél skotin niðusr
í Suðiir-Vietnam
Kambodíustjórn telur hana hafa verið
yfir Kambodíu
Phnompenlh, Kamíbodia, 20. marz
(NTB-AP)
SKÝRT var frá því í Phnom-
penh, höfuðborg Kambodíu, að
könnunarflugvél frá Suður-Víet-
nam hafi verið skotin niður
innan landamæra Kambodíu.
í Saigon var sagt að banda-
rískur flugstjóri hafi verið í vél-
inni. Hafa bandarískir talsimenn
þar sagt að samkvæmt fyrirliggj
andi upplýsingum bendi allt til
þess að flugvélin hafi enn verið
yfir Suður-Vietnam, þegar hún
var skotin niður.
Sihanouk prins, landsstjóri í
Kambodíu, segir að flugvélin
hafi flogið inn yfir landamærin
á sama tíma og hermenn frá
Suður-Vietnam réðust á þorpið
Ohantrea í Kambodíu. Féllu 16
menn í þesari árás á þorpið en
14 særðust. Prinsinn sagði að að-
gerðir þessar væru sízt til þess
að leysa landamæradeilu Suður-
Vietriam og Kamibodíu, en nefnd
frá Suður-Vietnam er nú í
Phnompenh til viðræðna við rík-
isstjórnina um lausn landamæra
deilunnar. Þá heldur prinsinn
því einnig fram að bandarískir
hermenn hafi stjórnað skriðdrefe
um, er fyigdu herliði Suður-
Vietnam.
Ríkisstjórnin í Kamlbodíu hef-
ur sent aliþjóða eftirlitsnefnd-
inni þar í landi mótmælaorðsend
ingu vegna árásarinnar. Segir
ríkisstjórnin að flugvélin, sem
skotin var niður, hafi einnig
varpað sprengjum á Chantrea.
Bandaríski flugmaðurinn ærð-
ist alvarlega þegar vélin var
skotin niður, og aðstoðarflugmað
urinn, sem var frá Suður-Viet-
nam, lét lífið. Segja yfirvöldin
í Saigon að mál þetta verði rann-
sakað ítarlega til að komast að
raun um hvort flugvélin hafi i
rauninni nokkurntíma farið inn
fyrir landamæri Kambodía. Sjón
arvottur, hermaður frá Suður-
Vietnam, segir að flugvélin hafi
verið kotin niður meðan hún var
að leiðbeina 'hersveitunum við
hæðardrag innan landamæra
Suður-Vietnam. Skyndilega hafi
tvær flugvélar birzt og ráiðzt
með skothríð á könnunarvélina,
Mun fréttamönnum verða boðið
að koma til svæðisins þar sem
flugvélin lenti, en það er innan
landamæra Suður-Vietnam.