Morgunblaðið - 21.03.1964, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 21.03.1964, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 K fjaugardagur 21. marr ifl6 ' *■ MBL. átti í gær tal við Mar- gréti Benediktsdóttur, hús- freyju á Saurum á Skaga, til að leita frétta af þeim kyn- legu atburðum, sem hafa ver- ið að gerast þar. — Við getum ekkert sagt um hvað þetta er, sagði Mar- grét. Hér er kominn hópur af fólki, jarðfræðingar, blaða- menn, Stefán fréttamaður o.fl. til að rannsaka þetta. Þeir sitja hér í stofunni og bíða eftir að borðið fari að færast til, en ekkert hefur gerzt þessa tvo tíma sem þeir hafa verið hér. Leirtauið sem brotnaði seinni daginn. Fyrri daginn brotnaði miklu meira en búið var að henda því i sjó fram. Skápurinn í eldhúsinu skall fram Samtal við konuna á Saurum — En borðið hreyfist án þess að nokkur komi við það? — Já, það er eins og það vilji hvorki vera við þil eða útvegg. Það hefur hreýfst einu sinni í dag. — Svo hefur heyrzt að hafi verið skruðningur undir rúmi í nótt hjá ykkur? — Það er ekki rétt. Það er orðum aukið. — Hefur þá ekki annað gerzt en borðið hreyfist? — Jú, í dag um kl. 2.30 fór fram stór skápur í eldhúsinu og leirtauið brotnaði í hon- um. — Var nokkur viðstaddur? — Já, ung stúlka, dóttir okkar, var inni. — Hún hefur ekki orðið undir skápnum? — Nei.nei. Hún leit bara við og sá að skápurinn var að detta. Hún greip útvarp, sem stóð á honum, svo það eyði- leggðist ekki. Þá kom skápur- inn fram og féll. — Hvar varst þú? Fannst þú ekkert? — Nei, ég var að tala í síma inni í stofu og fann ekk- ert. — Eruð þið ekki hrædd við þetta? — Jú, maður er óttalega lé legur við þetta, einkum kven- fólkið. Það er ósköp óviðkunn anlegt. Ég er nú í dag farin að hallast að því uð þetta séu jarðhræringar. Það hlýtur að vera. Maður verður að minn- sta kosti að trúa því. — Hafið þið fundið jarð- skjálfta þarna áður? — Já, í fyrra þegar jarð- skjálftinn var á Skagafirði. Það var ekkert líkt þessu. — Þú ert' búin að búa þarna lengi. Hefurðu nokkurn tíma orðið vör við nokkurt kynlegt? — Nei, aldrei neitt líkt þessu. Ég er búin að vera hér yfir 20 ár. — Og aldrei heyrt sagnir um neytt skrýtið á Saurum? — Nei, ekkert. — Svo þarna situr hópur af fólki og horfir' spekingslega á borðið. En hvað gerið þið? Ykkur verður náttúrulega ek'ki nriikíð úr verki? — Maður vinnur nú lítið. Enda lítið annað að gera en horfa á aðkomufólkið. • KEIMLEIKAR, segir Þórbergur Þórbergur Þórðarson, rit- höfundur, hringdi til okkar í gær og kvaðst, sem aðal- reimleikafræðingur landsins, vilja láta þá skoðun í ljós, að atburðirnir á Saurum séu reimleikar, ekkert annað. Hann skoraði á náttúrufræð ingana að hrista af sér slyðru- orðið, taka höndum saman og athuga þessi fyrirbæri, án ótta við spott og spé. Ættu þeir að skoða þau af nýj- um .sjónarhóli 1 samvinnu við góðan reimleikafræðing. Ekki sagðist Þóibergur samt sjálf- ur vilja taka þátt í þeim at- hugunum. Sokkaverksmíðjan kaup- ir 15 sokkavélar í viðbót Sokkaverksmiðjan á Akranesi er að gera samninga um kaup á 15 nýjum sokkavélum frá Tékkóslóvakiu. Fyrirtækið byrj- aði með 10 sokkavélar og gerði ráð fyrir að framleiða árlega 500 þús. pör af sokkum. En nú Igengur salan á sokkunum svo vel, að búið er að selja fram- leiðsluna fram í júlí, Þessvegna er fyrirtækið nú að færa út kví- arnar. Nýju vélamar eru eins og þær gömlu keyptar frá fyrirtækinu K-ovo í Tékkóslóvakíu og eru örlítið öðruvisi, þ.e.a.s. reima sokkinn meira t.d. vefa hæl og tá og eru hæggengari. Þær tvö- falda því ekki afköst verksmiðj- unnar. Hér er nú staddur for- stjóri Kovo, Zeeman að nafni, og voru hann og Haraldur Jón- asson, formaður Sokkaverksmiðj unnar að gera uppkast að kaup samningi í giær, en reiknað er með að vélarnar komi snemma í sumar. Þeim verður komið fyrir í núverandi húsnæði, en þar verður strax orðið þröngt. Þá munu starfa þar yfir 30 stúlkur. Þá gerir Sokkaverk- smiðjan ráð fyrir að fá enn 5 Haraldur Jónasson, stjórnarformaður Sokkaverksmiðjunnar, hr. Zeeber og Ingi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri semja um kaup á 15 nælonsokkavélum. vélar í janúar næstkomandi. Þær eru öðruvísi og alger nýjung, vefa sérstök mynstur og einkum dýra sokka. — r-etia neiur gengio vei, leiðslan verið skv. áætlun hj; okkur, sagði Haraldur Jónassoi í símtali við blaðið í gær, Sokk unum hefur verið hrósað, ei fyrstu dagana urðu svolitlir byr unarörðugleikar. Stillingin i brennurimum er svo nákvæm, ei við gátum bætt úr þessu. Oj síðan hefur allt gengið skv. á ætlun. SVFR leigir Leirvogsá Reisir brátt veiðihús við ána SAMKVÆMT upplýsingum frá form. Stangjaveiðifélags Reykjavíkur, Óla J. Ólafssyni, kaupm., hefir stjórnin nú sent félagsmönnum sínum umsóknar- eyðublöð ásamt upplýsingum um þau veiðisvæði, sem félagið hefir til úthlutunar á komandi sumri. Á meðal þeirra veiðisvælða sem félagið hefir í sumar eru: Elliðaárnar, Leirvogsá, Laxá og Bugða í Kjós og Norðurá í Borg arfirði, svo og hlutdeild í Víði- dalsá í Húríavatnsisýslu, Grímsá í Borgarfirði, Laxá í Aðaldaþ Stóra Laxá í Hreppum o.fl. Auk þessa silungsveiði í Meðalfells- vatni í Kjós, en þar veiðist einn- ig lax, Kolbeinsdalsá og Hjalta- dalsá í Skagtafirði, en þær ár er félagið með í ræktun, er þar að- allega bleikjuveiði. Einnig mun félagið hafa góðan tíma í Selá í Steingrímsfirði, en þar veiðist bæði bleikja og lax. Af nýjum svæðum má sérstak lega nefna Leirvogsá, sem félag ið hefir nú í fyrsta skipti. Þett er tveggja stanga á, og hefir me alveiði verið um 300 laxar e komizt upp í 450 á sumri. Þa byggir félagið snoturt veiðihú áður en veiðitíminn hefst. Sv hefir félagið nú tvær mjög góð ar vikur í Laxá í Aðaldal, þa er nú veitt með 12 stöngum’ dag, auk þessa hefir félagið 9 sí ustu dagana í byrjun sept. fyri 6 stengur á dag. Almennur félagsfundur verf ur í dag kl. 2 í Þjóðleikhúskjal aranum, og mun stjórnin þ« gefa ailar nánari upplýsingar. SIAKSTEINAR Hinir verst settu Þorvaldur Garðar Kristjánsson, alþingismaður, ritaði nýlega grein í Vesturland, blað Sjálf- stæðismanna á Vestfjörðum, und- ir fyrirsögninni: „Þannig leika þeir hina verst settu“. Kemst hann þar m.a. að orði á þessa leið: „Á hinu mikla kaupkröfuári 1963 gerði verkalýðsforysta kommúnista og Framsóknar aldrei kröfur um sérstaka kaup- hækkun og kjarabætur fyrir hina lægst launuðu, heldur var jafnan þess gætt að gera kröfur um almennar kauphækkanir sem fyrirsjáanlegar yrðu að mestu leyti uppétnar i vaxandi verðbólgu, án þess að hinir lægst launuðu bættu hag sinn gagn- vart öðrum. Ríkisstjórnin hefur hinsvegar haft önnur viðhorf til málanna. Þegar hún lagði fram tillögur 3. desember til lausnar á kjaramál- um, var þar gert ráð fyrir að hinir lægst launuðu fengju raun- verulegar kjarabætur, um 8% kauphækkun og lækkun útsvars sem jafngilti 4—5% kauphækk- un. Þessi hækkun skyldi koma á dagvinnu en ekki eftirvinnu og var gert ráð fyrir því, að iðnaðar menn og hliðstæðir starfshópar fengju kauphækkun um 4%.“ Raunhæf tilraun Þorvaldur Garðar lýkur grein sinni á þessa leið: „Þessar tilraunir voru raunhæf tilraun til að bæta hag hinna lægst launuðu. Annars vegar með því að veita þeim kauphækkun, án þess að aðrar stéttir fengju samsvarandi kauphækkun og bæta þannig hag þeirra í hlut- falli við aðra. Hinsvegar miðuðu þessar tillögur að því að stytta vinnutímann með því að láta kauphækkun ekki ná nema til dagvinnukaups. Þessum tillögum var hafnað af verkalýðssamtök- unum, bættur hagur hinna lægst launuðu er ekki það sem bezt hentar í baráttunni gegn viðreisn arstefnunni. Hér hefur verið vikið að ein- um þætti þessa hráskinnaleiks, sem kommúnistar og Framsókn- armenn iðka í launamálum. Þannig leika þeir hina verst settu. Hvað geta þeir þá gert fyrir aðra?“ Skyldusparnaður unglinga Alþýðublaðið birti í gær for- ystugrein um skyldusparnað og kemst þá m.a. að orði á þessa leið: „Telja verður skyldusparnað ungs fólks eðlilegan við þær að- stæður sem hér ríkja. Vegna mik ils skorts á vinnuafli hafa ungl- ingar óvenjuleg tækifæri til fjár- öflunar. Hinsvegar ríkir yfirleitt ekki sá andi á íslenzkum heimil- um, að lagt sé fast að unglingun- um að safna sparifé (þótt margir geri það), og er því hægt að safna fé með skyldusparnaði þegar um leið fæst réttur til lána á þeim tíma, er unga fólkið þarf þeirra mest með. Jafnframt þessu fæst mikið fé í þá sjóði, sem húsnæðismála- stjórn hefur til útlána í íbúða- byggingar. Hefur eftirspurn þeirra lána aukizt ört síðustu misseri og brýn nauðsyn að afla fjár til að auka lánin. Verðbólga gerir hverri ríkisstjórn erfitt að fullnægja öllum óskum um íbúða lán, enda er ibúð það sparifé, sem íslendingar vilja liclzt eiga. Þannig tryggir hver fjölskylda sér bæði húsaskjól og nokkurt fjárliagsöryggi. Því hefur ávallt verið reynt að greiða fyrir hús- næðismálum eftir mætti og aukn- ing skyldusparnaðar er einn lið- ur í þeirri viðleitni“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.