Morgunblaðið - 21.03.1964, Side 17
MORGU N SLAÐIÐ
17
T«
Laugardagur 21- tnarz 19S4
Fræðslulöggjöf þarfn-
ast endurskoðunar
Ályktun SUS-þings um fræðslu-
og menningarmál
UTGEFANDI: SAMBAND UNGRÁ SJALFSTÆÐISMANNA
\ liU
msmm
BITSTJÓRAR: BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON
l.
XVII. þing Sambands ungra
Sjálfstæðismanna telur, að góð
almenn menntun þjóðarinnar sé
öruggasta undirstaða blómlegs
menningarlífs. í»ví telur þingið
að veita beri æsku landsins þá
beztu menntun, sem völ er á og
að verja beri auknum hluta þjóð
arteknanna til betri menntunar.
n.
Þingið telur að núverandi
fræðslulöggjöf sé verulega ábóta
vant. Þarfnast hún gagngerðrar
endurskoðunar og aðlöigunar í
samræmi við nýjar og auknar
kröfur. Leggur þingið til, að
skipulagðar verði víðtækar rann-
sóknir á þessu sviði hið fyrsta og
á þeim grundvelli verði lagðar
fram heildartillögur um nýskip-
an fræðslumála. í rannskóknum
Iþessum beri m.a. að taka til at-
hugunar:
1. Að kenns-luhættir á öllum
stigum skólakerfisins verði end-
urskoðaðir.
2. Að stefnt verði að því að
barnaskólinn nái til loka skyldu-
námsins.
3. Að tekin verði fastari tök-
um fræðsla þeirra, sem lokið
hafa skyldunámi.
4. Að leggja beri áherzlu á
nauðsyn aukinnar iðn- og tækni
fræðslu svo að atvinnulífi þjóð-
arinnar verði séð fyrir vel mennt
uðu starfsliði.
5. Að tekin verði upp víðtæk
fræðsla um þjóðfélagsmál ásamt
ikennslu í framsögn og ræðu-
xnennsku í barna- og unglinga-
akólum til eflingar félagslegs
þroska uppvaxandi æsku.
m.
Þingið telur nauðsynlegt að
stórefla Háskóla fslands m.a.
með stofnun nýrra kennslu-
greina einkum í raunvisindum.
Þingið telur að ekki skuli gefn
ar út á vegum ríkisins aðrar
bækur en þær, sem einkaforlög-
um er um megn að gefa út.
Ríkisútgáfa námsbóka verði
stórbætt.
Að öðru leyti er mótmælt af-
skiptum ríkisvaldsins af bóka-
útgáfu í landinu.
Þingið telur að koma eigi upp
íslenziku sjónvarpi, að undan-
gengnum rannsóknum á starfs-
rækslu og tilgangi slíks sjón-
varps. Álherzla verði lögð á
menningarhlutverk þess í nú-
tíma þjóðfélagi.
IV.
Sambandsþingið fagnar starf-
semi og árangri þeirra menning-
arfélaga sem stöðvað hafa undir-
róður kommúnista á sviði lista
og menningar. Hvetur þingið til
aukins stuðnings við lista og
menningarstarfsemi þjóðarinnar.
Jafnframt skal leitazt við a'ð
þroska með æskunni smekk og
skilning á æðri listum.
Sambandsþingið fagnar því
sem gert hefur verið til íþrótta-
iðkana í landinu og minnir á
þýðingu þess að íþróttamennt og
líkamsrækt sé almenn. Þingið
telur eðlilegt að tekin sé upp
raun'hæf bindindisfræðsla í skól-
um landsins.
V.
Þingið leggur áherzlu á upp-
eldi æskunnar í anda kristilegs
siðgæðis.
Við uppeldi og menntun æsk-
unnar sé lögð áherzla á að
þroska sjálfstæða hugsun og ein-
staklingseðli.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra tók á móti launþegaklúbbi Heimdallar í Alþingis
húsinú s.l. fimmtudagskvöld. Ljósm.: MbL
Launþegaklúbbur Heim-
dallar í Alþingishúsinu
ÞANN 5. marz sl. var stofn-
aður Launþegaklúbbur Heim-
dallar. Klúbburinn hefur hald
ið nokkra fundi. Á stofnfundi
klúbbsins var rætt almennt
um starfsemi hans, sýndar
voru kvikmyndir og drukkið
var sameiginlegt kaffi.
Á öðrum fundi klúbbsins
flutti Gunnar Helgason, for-
maður verkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokksins erindi um þró
un verkalýðshreyfingarinnar
á íslandi. Þriðji fundur klúbbs
ins var haldinn sl. fimmtu-
dag og heimsóttu þátttakend-
ur þá Alþingi, þar sem for-
sætisráðherra, Bjarni Bene-
diktsson, tók á móti hópnum
og Pétur Sigurðsson, alþing-
ismaður, sýndi Alþingishúsið
og skýrði starfshætti Alþing-
is. —
Myndirnar, sem hér birtast
eru frá heimsókninni í Al- Pétur Sigurðsson, alþingisma ður lýsti störfum Alþingis og
þingishúsið. sýndi húsið.
Kvöldráðstefna utu
bæfarmál
NÆSTKOMANDI mánudags-
kvöld kl. 20,30 efnir Vörður, FUS
á Akureyri, til kvöldráðstefnu
um bæjarmál Akureyrar í Sjálf-
Stæiðshúsinu uppi.
Frummælandi verður Gísli
Jónsson menntaskólakennari, en
Stefán Stefánsson, bæjarverk-
fræðingur, mætir á fundinum og
svarar fyrirspurnum.
Gisli / Stefáu
Akureyrar
Varðarfélagar eru hvattir til
að fjölmenna og taka með sér
nýja félaga.
Atferli S.U.F.
fordæmd
Þingið fordæmir tillögur
Framsóknarmanna til þess
að draga börn allt niður í
12 ára aldur inn í flokks-
starfssemi sína undir yfir-
skyni almennrar félags og
tímastundastarfsemi.
Launþegaklúbbur Heimdallar í Alþingisliúsinu.