Morgunblaðið - 21.03.1964, Side 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 21. marz 1964
Polar-bikarinn í Helsingfors:
Þorsteinn bezti maðurinn
í bezta landsleik íslands
NORÐURLANDAMÓXIÐ í
körfuknattleik eða Polar-bik-
arkeppnin svonefnda hófst í
Helsingfors í gaerkvöldi. Tveir
leikir voru þá leiknir. Finnar
gersigruðu Dani með 105 gegn
40 stigum og Svíar unnu ts-
lendinga með 65 stigum gegn
59. Úrslitin koma ekki á óvart
utan það að íslendingar hafa
staðið sig mun betur gegn
Svíum en bjartsýnustu menn
þorðu að vona.
Vegna slitins sæsíma-
strengs fékkst ekki afgreitt
í gær símtal sem blaðið átti
von á við fréttamann sinn í
Helsingfors. í stuttu skeyti frá
Einari Matthíassyni, frétta-
manni Mbl., segir að leikur-
inn hafi sem stig sýna verið
mjög jafn. Þetta var bezti
landsleikur sem ísland hefur
leikið í körfuknattleik. Þor-
steinn Hallgrímsson var bezti
maður á vellinum og skoraði
30 stig.
Vitað er að Finnar gersigr-
uðu Dani þegar í upphafi. í
hálfleik stóð 63—15 en leik
lauk 105—40.
íslendingar og Sviar háðu
mjög jafnan leik eftir úrslit-
um að dæma. í hálfleik stóð
25—23 fyrir Svía og 6 stig
skildu í leikslok 65—59. Þetta
er miklu minni munur en þeir
bjartsýnustu þorðu að vona.
Fyrir tveim árum lyktaði leik
Svía og íslendinga í sömu
keppni með 63—38 fyrir Svía.
Sigurvegarinn í Polarbikar-
keppninni kemst í úrslita-
keppni heimsmeistarakeppn-
innar í körfuknattleik en sá
er verður nr. tvö leikur „auka
Ieik“ við eitthvert annað land
um sæti í lokakeppni um
heimstitil.
Meistaromól í
í frjólsum í dag
Meistaramót íslands í frjáls-
um íþróttum innanbúss fer fram
í KR-húsinu í dag og á morg-
un. Keppnin hefst kl. 16.30 í dag
með keppni í langstökki og þrí-
stökki án atrennu og stangar-
stökki. Stanjjarstökkskeppnin
er jafnframt fyrir drengi og
unglinga en mót þeirra eru að
öðru leyti búin.
Á sunnudag verður keppt í
hástökiki með og án atrennu og
í kúluvarpi. Þá hefst keppnin kl.
15.30.
21 keppandi er skráður til
keppninnar.
Páskadvöl í
Jósepsdal
UM páskahelgina verður að
venju efnt til ferða í skíðaskála
Ármanns í Jósepsdal, og dvalið
þar við skíðaiðkanir, gönguferðir
og aðra skemmtan.
Lagt verður af stað úr Reykja
vík á miðvikudagskvöld og á
fimmtudagsmorgun. Verða síð-
an daglega farnar gönguferðir
frá skíðaskálanum á Bláfjöll, en
þar eru finnanlegir snjóskaflar,
þrátt fyrir óvenjulegt snjóleysi,
og getur fólk brugðið sér á skíði.
Uvalarkostnaði er mjög í hóf
stillt, og sömuleiðis verði á mat
og kaffi, sem selt verður í skál-
anum.
Skíðaskálinn í Jósepsdal hefur
verið stækkaður verulega í vet-
Framhald á bls. 23.
Knattspyrnu-
mynd í síð-
asta sinn
KNATTSPYRNUKVIKMYND
IN England—Heimurinn verð
ur sýnd í Gamla bíó I dag
vegna fjölda áskorana. Sýn-
ingin hefst kl. 3 eJi.
Myndin verður ekki sýnd
oftar hér, og er þetta því síð
asnta tækifærið, sem knatt
spymuunnendu..i gefst til að
sjá bana.
Svínr unnu
Noreg 14:10
Fréttir bárusit í gærkveldi af
fyrsta leiknum í norrænni keppni
unglinga íhandknattleik. Sviar
sigruðu Norðmenn með 14 mörk
um gegn 10. Finnar og Danir
áttu síðari leik kvöldsins en ís-
lendingar sátu hjá. íslendingar
leika tvo leiki í dag, laugardag
og tvo leiki á morgun sunnudag!.
Aðalfundur Vlkings
Aðalfundur Víkings verður
haldinn miðvikudaginn 1. apríl
kl. 8.30 að Lindargötu 9.
Nýr bikar
ALMENNAR tryggingar í
Reykjavík hafa gefið nýjan
bikar sem keppa skal um
á Reykjavíkurmeistaramóti
karla í handknattleik. Bikar-
inn var nokkuð síðbúinn en
mótinu lauk í desember s.l.
Áður höfðu Almennar trygg-
ingar tilkynnt að þær
myndu gefa bikar til verð-
launa.
í gær afhenti fulltrúi Al-
menna Birgir Lúðvígson
form. HKRR Jóhanni Ein-
varðssyni bikarinn, en HKRR
mun sjá um afhendingu haiis
til Fram sem sigraði í keppn-
inni.
Almennar tryggingar gáfu
bikar þann sem vannst til
eignar 1962. Var fyrst um
hann keppt 1959 og vann þá
KR, en síðan Fram 3 ár í röð.
Bikarinn sem nú er gefinn
vinnst til eignar sé hann unn-
inn þrisvar í röð eða 5 sinn-
um alls.
Davíð vann í skriðsundi
Guðmundur setti met, en
Hrafnhildur hafði yfirburði / kvennagreinum
GUÐMUNDUR Gíslason, ÍR, hélt
enn áfram metagöngu sinni á
sundmóti Ægis í gærkvöldi. —
Hann setti glæsilegt met í 100 m
flugsundi, synti á 1.03.8 mín.
og bætti eigið met um 9/10 sek.
Hann vann öruggan sigur og
þetta var ein skemmtilegasta
grein þessa langdregna Ægis-
móts.
Davíð Valgarðsson, ÍBK, átti
’einnig sinn góða þátt í mótinu.
Hann veitti Guðmundi harða
keppni í flugsundinu og í 200 m
skriðsundi vann hann verðskuld-
aðan sigur og hjó ískyggilega
nálægt meti Guðmundar. Davíð
er öruggur með metið í þessu
sundi' með því að synda vega-
lengdina oftar og hefur þegar
Þeir háðu „einvígi" tvívegis Davíð og Guðmundur og hlutu
sinn hvorn sigurínn- (Ljósm. Sv. Þorm.)
tekið við „konungstign" í skrið-
sundsvegalengdum á lengri leið-
um. Þar er frábært efni á ferð.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
ÍR, var í sérflokki í kvennagrein-
um og vann með yfirburðum
skriðsund og bringusund og hjó
nærri metunum í báðum grein-
um, þó sérstaklega í bringusundi.
Hrafnhildi skortir ekki annað
en harða keppni til að ryðja met-
unum.
Mikil þótttaka vár í unglinga-
sundunum og að venju sást þar
margt efnilegra unglinga, en
mótið var heldur yfirhlaðið og
langdregið og hlýtur að vera til
athugunar að taka upp forkeppni
í ýmsum greinum þar sem þátt-
taka er mikil í stað þess að halda
sundmót sem stendur á þriðju
klukkustund.
Hér eru úrslit í einstökum
greinum.
Helztu úrslit:
100 m. flugsund:
Guðm. Gíslason, ÍR 1.03,8
(ísl.-met.).
Davíð Valgarðseon, ÍBK 1.05,1
Guðm. Þ. Harðarsson, Æ 1.12,3
Trausti Júlíusson, Á 1.14,5
100 m. bringusunð kvenna:
Hrafn. Guðm. ÍR 1.21,8
Auður Guðjónsd, ÍBK 1,28,7
Dómhildur Sig. Selfossi 1.28,8
Kristín Halldórsdóttir Æ 1.30,3
100 m. bringusund karla:
Erlingur Þ. Jónannss. KR 1.16,3
Einar Sigf. Selfoss 1.20,6
Guðm. Grímsson, Á. 1,20,7
Gestur Jónsson, SH 1.20,8
50 m. skriðsund drengja:
Trausti Júlíusson, Á 28,5
Logi Jónsson, KR 29,1
Kári Geirmundsson, SA 29,2
Þorst. Ing. Á. 29,5
50 m. bringusund telpna:
Dómh. Sigfúsdóttir Self. 40,5
Auður Guðjönsdóttir ÍBK 41,2
Eygló Hauksd. Á. 42,0
Kristín Haild. Æ. 42,6
50 m. bringusund drengja:
Guðm. Grimsson, Á. 36,7
Einar Sigfússon, Self. 37,3
Gestur Jónsson, SH 37,4
Reynir Guðm. Á. 37,5
100 m. baksund telpna:
Ásta Ágústsdóttir, SH 1.25,2
Auður Guðjónsd,, ÍBK 1.30,8
Hrafnh. Kristjánsd. 1.31,4
Drífa Kristjánsd. Æ. 1.32,3
200 m. skriðsund karla:
Davíð Valgarðsson, ÍBK 2,09,2
Guðm. Gíslason, ÍR 2,12,6
Guðm. Þ. Harðarsson, Æ 2.19,0
Trausti Júlíusson, Á. 2.25,8
100 m. skriffsund kvenna:
Hrafnh. Guðm. ÍR 1.06,2
Ingunn Guðm., Self. 1.11,9
Hrafnh. Kristjánsd. Á 1,15,9
Andrea Jónsdóttir Self. 1.19,0
4x50 m. bringusund karla:
Ármann a-sv. 2.27,2
Ármann dr. sv. 2,31,6 dr.-met
Ægir 2.32,5
ÍBK 2.33,5