Morgunblaðið - 02.04.1964, Blaðsíða 2
2
MORCU N BLAÐIÐ
Fimftitudagur 2. april 1964'
SURTSEY-myndir
og greinar á ensku
Glæsilegt hefti ICELAND REVIEW
WISLOK. á stranusíaö í gærmorgun.
Fluttu gúmbátinn
um borð í Wislok
ÚT er komið fyrsta hefti þessa
árgangs af tímaritinu ICELAND
REVIEW. Tilgangur ritsins, sem
nú hefur komið út um nokkurt
skeið, er að kynna á ensku ís-
land og íslenzk málefni. Ritið
birtir að staðaldri margar mynd-
ir. —
Allur frágangur >ess er mjög
góður, uppsetning smekkleg, auk
þess, sem prentun er góð. Marg-
ir eiga að jafnaði greinar í rit-
inu, sem er mjög fjölbreytt.
Surtsey hefur vakið mikla at-
hygli og umtal erlendis að und-
anförnu. Nú birtir Iceland Re-
view greinar uim gosið og fjöl-
margar fallegar myndir af eyj-
unni — og er þetta það fyrsta,
sem hér er gefið úit á ensku um
þetta einstæða náttúrufyrirbæri.
Greinarnar skrifa dr. Sigurður
Þórarinsson og Elín Pálmadóttir,
og myndinar, sem fylgja, eru
bæði svart-hvítar og í litum,
prentaðar á sérstakan mynda-
pappír.
Iceland Review er ársfjórðungs
rit á ensku, fjallar um viðskipta-
mál, atvinnu og þjóðlíf íslend-
inga og hefur hlotið mjög góðar
viðtökur erlendis meðal þeirra,
sem fylgjast með málefnum ís-
lands.
Aflinn 1963
vnrð minni en
nrið óður
HEILDAR fiskaflinn árið
1963 varð 173.602 tonn, þar af
síld 395.166 tonn. Bátamir
öfluðu 701.783 tonn það ár en
togararnir 71.819 tonn.
Aflinn minnkaði nokkuð
frá árinu 1962 en þá var hann
832.084 tonn, þar af síld
478.127 tonn. Bátarnir öfluðu
það ár 781.359 tonn, en tog-
aramir 50.725 tonn.
Bíldælingar æfa
Bör Börson
Dalvík, 1. apríl.
ÆFINGAR hafa staðið yfir á
gamanleiknum Bör Börson og
verður hann væntanlega frum-
sýndur hér um næstu helgi. Leik
stjóri er Kristján Jónsson og er
þetta í 4. sinn sem hann svið-
setur þennan leik.
Bör Börson verður síðan sýnd-
ur í flestum kauptúnum á Vest-
fjörðum. — Hannes.
Sænskur náms-
styrkur
SAMKVÆMT tilkynningu frá
sænska sendiráðinu í Reykjavik
hafa sænsk stjórnarvöld ákveðið
að veita íslendingi styrk til náms
í Svíþjóð skólaárið 1964—1965.
Styrkurinn miðast við 8 mánaða
námsdvöl og nemur 5.600,00
sænskum krónum, þ.e. 700,00
krónum á mánuði. Ef styrkþegi
stundar nám sitt í Sbokkhólmi,
getur hann fengið sérstaka staðar
uppbót á styrkinn. Ætlazt er til,
að styrknum sé varið til frekara
náms í sambandi við eða að af-
loknu háskólanámi á íslandi.
Til greina kemur að skipta
styrknum milli tveggja eða fleiri
umsækjenda, ef henta þykir.
Umsóknir sendist menntamála-
ráðuneytinu, stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg, fyrir 20. apríl
nk., og fylgi staðfest afrit próf-
skírteina og meðmælL
betta nýja hefti Iceland Review
sem er fyrsta hefti þessa árgangs,
er fjöllbreytt og vandað að efni
og útliti. Sigurður A. Magnússon
skrifar grein, sem hann nefnir
„Laxness endurskoðar fortíð
sína“, en þar er fjallað um síð-
ustu bók skáldsins og er þetta
eitt hið fyrsta, sem birtist á
ensku um þessa mjög svo um-
ræddu bók — og verður að lík-
indum kærkomin lesning þeim
mörgu útlendingum, sem fylgjóist
með íslenzkum bókmer ntum.
Þá eru í ritinu fróðleg grein
um þorskveiðar við ísland eftir
Jón Jónsson, fiskifræðing, um
verzlunarviðskipti íslands Og
Þýzkalands eftir Dr. Cassens,
verzlunarfulltrúa þýzka sendi-
ráðsins hér — og Páll Berglþórs-
son skrifar grein, sem hann nefn
ir: Hvemig er veðrið raunveru-
lega á íslandi? en útlendingar
hafa ýmsar hugmyndir um veð-
urfarið hér, eins og kunnugt ér.
Einnig segir frá Eimskipafélagi
íslands og 50 ára þjónustu þess.
Af öðru efni má nefna: Grein
um Friðrik Ólafsson, skákmeist-
ara, um Björn Pálsson og flug-
þjónustu hans, sitfchvað um ferða
lög til íslands á komandi sumri
ásamt ýmsum upplýsingum fyrir
þá, sem hyggjpa á íslandsferð.
Grein er um skíðahótelið á Ak-
ureyri, Fríhöfnina á Keflavíkur-
flugvelli og nokkrar stuttar
greinar um íslenzkan útflutning
og útflutningsafurðir.
Iceland Review hefur þegar náð
töluverðri úfcbreiðslu meðal ein-
staklinga og verzlunarfyrirtækja,
sem áhuga hafa á íslenzkum mál-
efnum eða viðskiptum við landið.
Auk þess er ritinu dreift víða af
íslenzkum útflytjendum og inn-
flytjendum, flugfélögum, skipafé-
lögum, ferðaskrifstofum, börtk-
um o. fl. og sendiráð og ræðis-
menn íslands erlendis dreifa heft
inu líika til fjölmargra aðila.
Ritstjórar Iceland Review eru
Haraldur J. Hamar og Heimir
Hannesson, útlitið hefur Gísli B.
Björnsson séð um, en Sefcberg
prentaði.
Ritgerðarsam-
keppni
SKILAFRESTUR í ritgerðar-
samkeppni þeirri er Heim-
dallur F.U.S. efndi til um
„John F. Kennedy, lif hans og
starf í þagu heimsfriðar“ renn
ur út í kvöld. Félagið veitir
glæsileg verðlaun sem er ferð
til Washington og heim aftur.
Höfrungur III.
með 200 tunnur
Akranesi, 1. paríl.
HEILDARAFLI hjá bátunum
hér í dag varð 170 tonn fiki.
Höfrungur III landaði hér í
gær 200 tunnum af síld, sem
hann fékk i tveim fetrðuiu.
FRÉTTARITARI Morgunblaðs-
ins á Hvolsvelli fór í birtingu i
gærmorgun á strandstað togar-
ans Wisloks í fylgd með björg-
unarmönnunun?., en í gærkvöldi
á.tti að reyna að ná Wislok á há-
flæðinu.
í gærmorgun var hafizt handa
við að reyna að koma hinum
mikla dráttarvír frá dráttarbátn
um Koral í land. Reynt var fjór-
um sinnum í fyrstu, en lína sem
notuð var til að draga dráttar-
vírinn slitnaði tvívegis en komst
ekki í land í hin skiptin. Eftir
að ný lína hafði verið fengin
heppnaðist tilraunin. Stórar jarð
ýtur þarf til að draga dráttar-
vírinn sjálfan frá Koral í land.
Gúmbátur frá Wislok, sem
geymdur hefur verið á Hvols-
velli var fluttur um borð í tog-
arann til ag hafa til taks næðist
hann á flot.
Togarinn snýr skutnum til
Bíldudalsbátar
/......./ .
með 400 tonn
Bíldudal, 1. apríl.
HEILDARAF’LI netabáta hér á
vertiðinni, tveggja talsins, er 400
tonn. Hófu þeir á veiðar 10.
marz og er það óvenju seint.
Bátarnir eru Pétur Thorsteins
son og Andri.
Rækjaveiði hefur gengið vel,
en skortur hefúr verið á vinnu-
afli í landi til að skelflétta rækj
una. Um næstu mánaðamót
rennur út leyfið til rækjaveiða
hér.
Dísarfell var hér í morgun og
tók 61 tonn af fiskimjöli til út-
flutnings. — Hannes.
LAUNÞEGAKLÚBBURINN
Fundur verður í kvöld kl. 8.30
í Valhöll. Guðjón Sigurðsson,
formaður Iðju, félags verk
smið jufólks, mun flytja erindi
um sögu og störf Iðju og mun
hann m.a. rekja hina stórbrotnu
misnotkun kommúnista á sam-
tökunum í stjórnartíð þeirra.
Að loknu erindi Guðjóns verða
sýndar kvikmyndir, þ. á. m. um
vinnurannsóknir og vinnuhag-
ræðingu.
Félagar klúbbsins eru eindreg-
ið hvattir til að mæta og taka
* með sér nýja þátttákendur.
hafs og á háflæði í gærmorgun
var hann umflotinn sjó fram fyr-
ir miðju og hreyfðist til hlið-
anna á bárunni.
Þar sem undirbúningsvinnan
var tafsöm var búizt við, að
ekki yrði hægt að draga Wislok
út á flóðinu í gærkvöldi en hins
vegar talið öruggt að það yrði
hægt á flóðinu í morgun.
1. APRÍL gekk sumaráætlun
millilandaflugs Flugfélags ís-
lands í gildi. Sumaráætlunin er
umfangsmeiri en nokkru sinni
fyrr. Flognar verða fjórtán ferð
ir frá íslandi á viku eftir að áætl
unin hefir að fullu tekið gildi.
• BRETLANDSFERÐIR
Nýmæli í sumaráætluninni
eru þrjár beinar ferðir milli
Reykjavikur og London á viku
hverri. Hér er um mikla aufcn-
ingu að ræða, því auk fleiri ferða
en áður, verða Cloudmaster-flug
vélar notaðar á þessari flugleið
en hver þeirra tekur um 80 far-
þega. í>á verða eins og undanfar-
in sumur, daglegar ferðir um
Glasgow, þannig að til Bretlands
verða tíu ferðir á viku frá ís-
landi. Viscount-flugvél mun
fljúga flestallar Glasgow-Kaup-
mannahafnar ferðirnar.
• NORÐURLANDAFERÐIR
Til Kaupmannalhafnar verða
ellefu ferðir á viku, þar af sjö
um Glasgow sem fyrr segir,
tvær um Oslo, tvær um Bergen,
þar af er önnur beint flug frá
Reykjavífc til Bergen, en hin er
með viðkomu á Vogey í Færeyj-
um. Færeyjaflug Flugfélags ís-
lands hefst að nýju 19. maí n.k.
og verður ferðum hagað þannig,
að á þriðjudögum verður flogið
frá Reykjavífc til Vogeyjar í Fær
eyjum og þaðan til Bergen og
Kaupmannahafnar. Á fimmtudög
um frá Kaupmannahöfn til Berg
en og Færeyja og þaðan til
Glasgow. Á föstudögum frá
(Ljósm: Otto Eyfjörð).
„Sagan af Hjalta
litla44 gefin út
á rússnesku
SAMKVÆMT upplýsingum frá
endiráði íslands í Moskvu kom
nýlega út í rússneskri þýðingu
unglingabók Stefáns Jónssonar
„Sagan af Hjalta litla."
Þýðingin er gerð af þeim
Vladimir Yakub, norskukennara
í Moskvu, og Birgi Karlssyni
(ísfeld), en hann er nemandi 1
Moskvu.
Bókin er gefin út í 65000 ein-
tökum, og er hún prýdd 65 mynd
um eftir listmálarann Orést
Veireiski.
Gla9gow til Færeyja og Reyfcja-
vikur.
• GRÆNLANDSFERÐIR
Á sumri komanda ráðgerir
Flugfélag íslands tólf skemmti-
ferðir til Grænlands, þar af sex
fjögurra daga ferðir til hinna
fornu íslendingabyggða við Ei-
ríksfjörð og sex eins dags ferðir
til eyjarinnar Kulusufc við aust-
urströnd Grænlands.
Nú eru fimm ár síðan slíkar
skemmtiferðir til Grænlands hóf
ust og njóta þær sívaxandi vin-
sælda ferðafólfcs. Fyrsta ferðitl
til Kulusuk verður frá Reykja-
vík 5. júlí, en lagt verður af
stað í fyrstu ferðina til hinna
fornu íslendingabyggða 17. júlí,
Min jasýning um
sjálfstæðisbar-
áttuna
GUNNAR Hall opnar i dag sýn-
ingu í glugga Verzlunarbankana
í Bankastræti á ýmsu varðandi
sjálfstæðisbaráttu íslendinga á
tímabilinu 1888 og fram undir
1915.
Þarna verður ýmislegt að
heiman og erlendis sem minnir
á sjálfstæðisbaráttu þessa ára
svo sem myndir, fregnmiðar,
pésar og greinar úr islenzkuitt
og dönskuna blöðum.
Sumaráætlun
Flugfélagsins
Tíu ferðir til Bretlandseyia á viku —
11 til Norðurlanda