Morgunblaðið - 02.04.1964, Side 3
FimmlrKlafíiir 2. apríl 1964
MORGUNBLAÐIÐ
3
EINS og skýrt var frá í
Morgunblaðinu í gær, brann
skíðaskáli VÍKINGS í Sleggju
beinsdal að kvöldi páska-
dags, eftir að sprenging varð
í kyndiklefa skálans. Rúm-
lega 40 unglingar, sem voru
að undirbúa kvöldvöku,
sluppu við illan leik út úr
skálanum, sem varð alelda á
örskammri stundu. Urðu ung-
lingarnir að ganga yfir að
Valsskálanum, sumir fáklædd
ir.
Blaðamaðux Monguniblaðs-
ins ræd-di í gær við tvær
stúlkur, sem lent höfðu í áð-
urnefndum hrakningum. Ingi
björgu Jónsdóttur og Guðríði
mm
Víkingar hreinsa til í rústunum morguninn eftir brunann
Víkingabrenna í
Slegg jubei nsdal
þarna, svefnpoka, föt, og
töskur. Við erum öreigar.
Ætli við förum ekki á bæinn.
Það gerir samt ekkert til,
þótt við eigum ekki fyrir bíó-
miðum. Við fáum nóg af bíó-
um hérna ókeypis.“
Ágúst Friðriksson. formað-
Tómasdóttir, sem báðar eru í
Verzlunardeild Hagaskólans
og vísa gestum Háskólabíós
til sætis.
„Við vorum heppin að
vera öll í setustofunni,"
sagði Ingibjörg,“ annars hefði
okkur ekki gengið svona vel
að komast út. Það var nýbúið
að reka oflakur út úr kojunum.
Við höfðum setið inni í svefn-
herberginu og verið að syngja
og tala saman.“
„Þetta skeði svoleiðis" sagði
Guðríður", að við heyrðum
bara allt í einu sprengingu
og einhver hrópaði eldur,
eldur. Þá ruku allir upp til
handa og fóta að reyna að
komast út úr kofanum. Við
höfðum ekki neina hugsun á
að taka neitt með okkur, én
htupum út eins og við vor-
um klædd. Ég var í erma-
lausri peysu. Við Ingibj örg
voi'um með þeim síðustu út
og það varð að halda við
vegginn, sem var orðinn al-
elda, til þess að hann félli
ekki yfir okkur. Það sviðn-
aði svolítið á okkur hárið, en
ekki mikið. Við vorum ekki
fyrr komin út en kofinn stóð
í björtu báli.“
„Nokkrir af strákunum voru
að undirbúa skemmtiatriði í
öðru herbergi," sagði Ingi-
björg,“ þeir voru berir að of-
an, en í buxum einum fata.
Þetta átti að verða fegurðar-
samkeppni. Svona klæddir
urðu þeir að ganga alla leið
út að Valsskála."
„Ég fékk sæng, sem ein-
hvernveginn hafði bjargazt,
til að hafa yfir mér á leið-
inni,“ sagði- 1 Guðríður. „Við
misstum allt, sem við áttum
Ingibjörg og Guðríður í anddyri Iláskólabíós
Agúst Friðriksson
ur skíðadeildar Víkings, sagði
Mbl. svo frá í gær:
„Þetta skeði mjög skyndi-
lega, enda varð öllum bilt við.
í fyrstu voru margar stelp-
umar alveg lamaðar af skelf-
ingu. Svo voru fáeinir með
smávitglóru og brutu rúðurn-
ar í gluggunum, til þess að
hægt væri að komast þar út
líka. Ég held að flestir hafi
farið út um gluggana. Heil-
miklar ryskingar urðu, þegar
við vorum að flýta okkur út.
Eg nefbrotnaði og annar strák
ur skarst á úlnliðnum. Að
öðru leyti stuppu menn með
skrámur. Það hlýtur að hafa
orðið mikil sprenging í kyndi-
klefanum, því að skálinn
varð alelda á skömmum tíma.
Hann var ekki hátt vátryggð-
ur og heilmikið glataðist af
fötum oig öðru af eignum
krakkanna.“
Aðalíundur
Málarafélags
Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Málarafélags
Reykjavíkur var haldinn 25.
noarz 1964. 1 skýrslu stjórnar
kom fram að hagur félagsins er
góður, hrein eign félagsins er
tæp 1 milljón króna.
Lárus Bjarnfreðsson sem ver-
ið hefur fonmaður sáðan 1963,
gaf ekki kost á sér til kjörs aft-
ur.
Tillaga fráfarandi stjómar og
trúnaðanmannaráðs um skipan
stjórnar fyrir næsta ár voru sam
þykktar með samhljóða atkvæð-
um, en hana skipar nú:
Formaður Sigursveinn H. Jó-
hannesson, varaformaður Leifur
Ólafsson, gjaldkeri Magnús Step
ensen, ritari Jón D. Jónsson, rit-
ari stjórnar Rúnar Ágústsson.
Varamenn: Símon Konráðsson
Róbert Gestsson.
Trúnaðarmannaráð: Þorsteinn
B. jónsson, Guðmundur J.
Bjömsson, Lári Hentinen, Kristj
án Magnússon.
Varamenn: Ingólfur Jökulsson
Sæmundur Bæringsson, Þórir
Skúlason, Hans A. Clausen.
Endurskoðendur: Grímur Guð-
mundsson, Gestur K. Árnason.
Varamenn: Haukiur Sigurjóns
son, Kristján Guðlaugsson.
Frá Málarafélagi Reykjavíkur.
STAKSTEIMAR
Amerískt þjóðvarnar-
félag
APRÍLGABB blaðanna í gær
var með ýmsum hætti. Alþýðu-
blaðið birti til dæirós þá frétt,
að stofnað hefði verið „ameriskt
þjóðvarnarfélag“ á Keflavíkur-
flugvelli. Komst blaðið þar m.a.
orði á þessa leið:
.Laugardaginn fyrir páska
vu stofnað á Keflavíkurflug-
velli amerískt þjóðvarnarfélag,
eða „Society for the Preservation
of Amrican Culture“ og voru
stofnendur 61 varnarliðsmaður.
Er tilgangur félagsins að vernda
unga og óharðnaða Ameríku-
menn, sem hér dveljast, gegn of
miklum íslenzkum, áhrifum. For-
maður félagsins er Lt. Cmdr. T.
Jefferson, en hann var kvik-
myndahúseigandi og menningar-
frömuður í Texas, áður en hann
gekk í flotann.
Hið nýstofnaða félag gerði
harðorða samþykkt á fyrsta
fundi sínum og mun félagið
senda kröfur sína til MacNamara,
landvarnarráðherra Bandarikj-
anna. Aðalkröfurnar eru þessar:
1) Að gerðar verði ráðstafanir
til að sendingar Ríkisútvarpsins
heyrist ekki á Keflavíkurflug-
velli.
2) Að settir verði tvöfaldir
lásar á alla peningakassa á flug-
vellinum,, sem Islendingar koma
nálægt.
3) Að gerðar verði ráðstafanir
til að halda amerískri tungu
hreinni á Keflavikurflugvelli og
bjarga henni frá. íslenzkum
áhrifum“.
Tíminn er sárgramur
„Tíminn“ er í gær sárgramur
vegna úrskurðar kjaradóms um
að laun opinberra starfsmanna
skuli ekki hækka. Er auðsætt að
Framsóknarm.snn hafa bundið
miklar vonir við það að opin-
berir starfsmenn fengju nú kaup
hækkun og-nýtt kapphlaup hæf-
ist milli kaupgjalds og verðlags.
Svo sárhryggur er Tíminn á
svipinn, að í forystugrein sinni
heimtar þetta höfuðmálgagn
Framsóknarflokksins að ríkis-
stjórnin segi af sér og efni til
nýrra kosninga.
Traustsyfirlýsing
þjóðarinnar
Þessi krafa Framsóknarmanna
um að ríkisstjórnin segi af sér
er hin fáránlegasta og sýnir
greinilega hversu ráðvilltir leið-
togar Framsóknarflokksins eru
nú i stjórnarandstöðu sinni. Eins
og kunnugt er fóru fram al-
mennar alþingiskosningar á s. L
sumri. Niðurstöður þeirra kosn-
inga urðu eins og alþjóð eru í
fersku minni, að Viðreisnar-
stjórnin hlut eindregna trausts-
yfirlýsingu kjósenda. Nær 56%
kjósenda greiddu flokkum Við-
reisnarstjórnarinnar atkvæðl
sitt. Stjómarandstæðingar,
kommúnistar og Framsóknar-
menn, fengu hinsvegar um 44%.
Það var vitanlega stefna Við-
reisnarstjórnarinnar í efnahags-
málum, sem þjóðin var að votta
trausts sitt. Þjóðin krafðist þess
að framkvæmd jafnvægisstefn-
unnar yrði haldið áfram. Hún
heimtaði ekki taumlaust kapp-
hlaup milli kaupgjalds og verð-
lags eins og Frarr. ;óknarmenn og
kommúnistar hafa beitt sér fyrir.
Hún krafðist þess þvert á móti,
að gengi krónunnar yrði haldið
stöðugu og framförum og npp-
byggingu haldið áfram í landinu,
í skjóli viðreisnarstefnunnar.
Þetta urðu Framsóknarmönn-
um. og kommúnistum mikil von-
brigði. En Framsóknarmenn
verða að gera sér það ljóst, að
þeir verða nú aðeins að athlægi
með þvi að heimta nýjar kosn-
ingar. Viðreisnarstjórnin hlaut
ótvíræða traustyfirlýsingu «g
hún mun halda áfram ai <rw
kvæma stefnu sína.