Morgunblaðið - 02.04.1964, Page 5

Morgunblaðið - 02.04.1964, Page 5
Fimmtudagur 2. apríl 1964 MORGUNBLADIÐ 5 Gegnum kýraugað ER það ekki furðulegt, hvað erfitt er að venja íslendinga af því að henda öllu drasli, sem til fellur á bíl- ferðum beinustu leið út um gluggann og út á þjóðveginn? Fyrir utan flöskur og mjólkurhyrnur, sem virðast vera sérgrein þessara sóða, þá dettur þeim í hug að henda notuðum nælonsokkum út í vegkantinn! Eg held, að landið okkar verði aldrei fagurt og frítt með þessu móti. Kýrauganu var sagt frá því, að í Banda- ríkjunum sé stórlega refsað fyrir svona lagað. Iívernip væri nú að taka þetta upp í umferðarlög? Hvað munar annars fólkið um, að hafa með sér á ferða- lögum, einn eða tvo tóma ruslapoka, sem það svo getur sett í ruslatunnuna, þegar heim er komið? Er ekki kom ið nóg af svo góðu? JÓN Sýningu Jóns E. Guðmunds- sonar í Bogasal þjóðminjasafns- ins er lokið. Hana sóttu nærri 3000 manns og af 28 myndum, sem til sölu voru seldust 18 myndir. Jón E. Guðmundsson er fjöl- hæfur listamaður, og má enn minna á hið merka starf hans í sambandi við Brúðuleikhús á ís- landi. Verður Jóni vafalaust seint þökkuð forganga hans í því máli. f leiðinni má minna á sýn- ingu þá í glugga Morgunblaðs- ins, sem nú stendur yfir, en Jón kom henm upp með aðstoð nemenda sinna í Miðbæjarskól- anum. Sýningin er vel þess virði að fólk staldri við stundarkorn við gluggann. Æska íslands er sannarlega ekki gengin fyrir ætt ernisstapann ennþá, hvað sem öllum hrakspám líður. Að leiðarlokum Nú eru aðeins eftir nokkrar sýn ingar á hinni ágætu mynd Ing- mars Bergmans, Að leiðarlokum, sem sýnd er í Hafnarfjarðarbíói og hlotið hefir mjög góða dóma gagnrýnenda. — Hún verður sýnd í bíóinu í kvöld. ER búið að f jarlægja stöðu mælinn frá brunahanan- um? 9 Fimmtudagsskríflan Það er nú meira hvað þessi brú sveiflast til, sagði fíllinn, sem var á leið yfir smábrú og varð samferða mús. „Já, en við erum nú tvö“. Orð spekinnar Öll veröldin er leiksvið og allir menn og konur aðeins leik- endur. — Shakespeare Spakmœli dagsins Rauðhærð kona er svo sem ekki hættulegri en aðrar. En maður kemur auga á hana lengra að. Tekið á móti tilkynningum í DAGBÓKINA frá kl. 10-12 f.h. Læknar fjarverandi Árni Guðmundsson er fjarverandi frá 1. til 14. þm. Staðgengill er Haukur Árnason. Grímur Magnússon: Fjarverandl aprílmánuð. Staðgengill: Bjöm Önundarson Klapparstíg 25 sími 11228 Gunnlaugur Snædal verður fjar- verandi óákveðinn fima. Viktor Gestsson verður fjarverandi frá 15/3—25/3. Staðgenglar: Guðmund- ur Eyjólfsson og Stefán Ólafsson. Eyþór Gunnarsson fjarverandi óákveðið. Staðgenglar: Björn Þ. þórðarson, Guðm. Eyjólfsson, Erling- ur Þorsteinsson, Stefán Ölafsson og Viktor Gestsson. Gísli Ólafsson læknir verður fjar- verandi í nokkra daga. Staðgengill: Ragnar Arinbjarnar. Páll Sigurðsson eldri fjarverandi um óákveðinn tíma. Staðg. Hulda Sveinsson, sagði! að hann hefði brugðið sér í páskafrí upp í sveit, og dvalizt þar innan um gott fólk alveg frá skírdegi og þangað til í gær. Að vísu hefði veðrið ekki ver- ið upp á það bezta alla dagana, en upp til fjaila og fram til stranda er ekkert verið að „súta“ slíkt. storkurinn sagðist hafa flogið á eftir fólki nokkru, þegar það var að grafa mörg hundruð þús- und ára gamlar skeljar úr sjá- varleir, sem myndast hefur rétt eftir síðustu ísöld. Fólkið hefði fundið margar tegundir skelja og kuðunga og séð að auki margar og merkar menjar um ísaldir þær, sem gengu yfir ísland fyrir æva löngu. Storkurinn sagðist hafa heyrt einn manninn segja, að skólarnir ættu að fara með nemendur á svona staði, segja þeim frá undr um náttúrunnar og sýna þfeim þetta. Leyfa þeim að safna sér minjum frá þessum timum, og myndi þá kennslan verða miklu lífrænni. Storkurinn sagði, að þetta hefði verið hérna upp með Hval- firðinum, varia steinsnar frá höfuðborginni, svo að þetta þyrfti ekki að taka nema dags- stund, og henni væri vel varið. Að lokum óskaði Storkurinn lesendum sínum gleðilegrar páskaleyfar, og fíaug upp í Nátt úrugripasafn til að tala við dr. Finn. Öfugmœlavísa Eitur er bezt í augna rann ýrt með dropa feitan, Það er hoít fyrir þyrstan mann að þamba kopar heitan. Bílskúr óskast til leigu, helzt í Vesturbænum. Tiiboð send ist afgr. Mbl., merkt: „Geymsla — 3147“. Vil kaupa lítinn vel með farinn bíl. Engin útborgun en öruggar mánaðargreiðslur. Uppl. í síma 37776 eftir kl. 7. Til sölu Nýtízku 3ja herb. íbúð ásamt góðu aukaherbergi i kjallara. íbúðin er á 4. hæð í fjölbýlishúsi við Stóra gerði. Staðsetning er mjög góð og útsýnið vítt og fag- urt. HÚSA- og ÍBÚÐASALAN Laugavegi 18, 3. hæð. Sími 18429. Starfsmenn öskast í gosdrykkjaverksmiðju vora við Þverholt. — Upplýsingar hjá verkstjóranum. Hf. Ölgerðin Egill Skallagrímsson Deildarlœknisstaða Staða deildarlæknis við Fæðingardeild Landspítal- ans er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjara- samningum opinberra starfsmanna. Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil og fyrri störf send ist til stjórnarnefndar ríkisspítalanna fyrir 2. maí næstkomandi. Reykjavík, 31. marz 1964. Skrifstofa ríkisspítalanna. Yfirhjúkrunarkonustaða Staða yfirhjúkrunarkonu við Flókadeild Klepps- spítalans er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Umsóknir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf sendist til stjórnarnefndar ríkisspítalanna, Klapp arstíg 29, fyrir 20. apríl nk. Reykjavík, 31. marz 1964. Skrifstofa ríkisspítalanna. Skurðgröfur Get útvegað með stuttum fyrirvara skurðgröfur í mjög góðu standi af Priestman Wolf 1956—1959. Krónur 350—400 þúsund. Af Priestman Cub 1958 250—300 þúsund. HARALDUR ÞORSTEINSSON. — Sími 18459 — Verzlun Matvöruverzlun í næsta nágrenni Reykjavíkur, mjög vel arðbær í eigin húsnæði til sölu. 4ra herb. 1. fl. íbúð getur fylgt. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 5. apríl, auðkennt: „Góð kjör — 9377“. STÚLKA óskast strax til afgreiðslu í sælgætissölu. Ennfremur tvær stúlkur til þess að vísa til sætis. Upplýsingar í Háskólabíó. Vandaðir norskir plastbátar til sölu. — Hagkvæmt verð. — Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Uppl. í síma 24210.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.