Morgunblaðið - 02.04.1964, Síða 6

Morgunblaðið - 02.04.1964, Síða 6
6 MORG U N B LAÐIÐ Fimmtudagur 2. april 1964 > ÍSLAKDSMEISTARAR í tví- menningskeppni urðu þeir Símon Símonarson og Þorgeir Sigurðs- son. Röð efstu paranna varð þessi: 1. Símon Símonarson og Þorgeir Sigurðsson 1565 st. 2. Hallur Símonarson og Kristján Kristjánsson 1537 — 3. Hilmar Guðmundsson og Jakob Bjamason 1531 — 4. Mikael Jónsson og Þórir Leifsson 1519 — íslandsmeistarar í bridge í sv eitarkeppni urðu þeir Jóhann J óhannsson, Benedikt Jóhannsso n, Jóhann Jónsson, Sigurður Helgason og Jón Arason. 5. Jóhann Jónsson og Lárus Karlsson 1515 6. Einar Þorfinnsson og Stefán Guðjohiuen 1506 Yngri höfundarnir veigra sér við að fjalla um va ndamál nútímans í I. flokki sigruðu feðgarnir Ásbjörn Jónsson og Jón Ás- björnsson, hiutu 1 49 stig, en í öðru sæti urðu Jón Stefánsson og Þorsteinn Laufdal, með 1555 stig. IIELGI Sæmundsson, formaður Menntamálaráðs, var gestur Blaðamannaklúbbsins síðastlið- inn þriðjudag. Var einkum rætt um bókaútgáfu. Sagði Helgi, að nú væri svo komið, að varla kæmu út árlega meira en 7—8 íslenzk skáldverk, sem hann hefði nokkra ánægju af að lesa. Flestir eldri rithöfundar okkar hefðu snúið sér að öðru en skáld skap. Hinir yngri legðu mestu áherzlu á form, en veigruðu sér við. að fjallá um vandamál nú- tímans eða persónulega og átak- anlega reynslu sína. Hins vegar kvaðst Helgi sannfærður um Rennsli Þjórsár jókst að mun ALLMIKILL vöxtur hljóp í Þjórsá að kvöldi skírdags og föstudagsins langa vegna rign- rennslið við Urriðafoss hefði mælzt aðeins 20 rúmmetrar á sekúndu. það, að aldrei hafi verið ritað eins fallegt íslenzkt mál og ein- mitt nú. Helgi sagði, að vafalaust væri gefið út alltof miikið af bókum á íslandi. Spillti útgáfa lélegs létt- metis og mjög fyrir skáldskap í landinu. Þá kvað Ilelgi útgáfuna hljóta að mótast nokkuð af þeirri staðreynd, að 4 af hverjum 5 bók um á íslandi séu keyptar til þess að gefa þær öðrum. Einnig sagði hann að val bóka til þýðingar á íslenzku væri mjög af handahófi. Um úthlutun listamannalauna sagði Helgi, að honum fyndist þau skiptast milli of margra. Betra væri að hafa þau verulegri og greiða þau listamönnum, sem væru á þýðingarmesta skeiði starfsævi sinnar, 25 til 50 ára. Þetta hefði verið í mun betra horfi fyrr á árum, t. d. hefðu 1 tvímenningskeppni sigruðu þeir Símon Símonarson og Þor- geir Sigurðsson. Einar Benediiktsson og Einar Jóns^on um tíma haft listamanna laun, sem þá samsvöruðu háum prófessorslaunum. Um starfsemi Menningarsjóðs sagði Helgi, að meginhlutverkið væri að gefa út bækur, sem aðrir aðilar réðu ekki \ið. Orðabókin nýútkomna hefði t. d. kostað um 4 milljónir, en þær mundu skila sér aftur að mestu leyti, þótt á nokkrum tíma væri. Þá kvað hann okkur skorta mjög hand- bækur, en úr því yrði Menningar sjóður að bæta. Helgi drap nokkuð á útgáfu kennslubóka fyrir gagnfræða- stigið, sem er frjáls. Kvað hann hættu á því, að kennarar geri með sér samninga um notkun kennslubóka, er þeir hafa samið og noti aðstöðu sína í gróðaskyni. inganna sunnanlands. Á skírdag var rennsli árinnar um 260 rúm- metrar en á föstudaginn langa var rennslið komið upp í 850 rúmmetra. Mbl. átti í gær tal við Sigur- jón Rist, vatnamælingamann. — Sagði hann að síritandi mælar í Þjórsá væru þrír, og einnig væru slíkir mælar við Tungná. Sigurjón kvað þessi snöggu um skipti árinnar raunar vera venju legt fyrirbrigði í íslenzku veður- fari. Komið hefði suðaustan stór- signing á nýfallinn snjó, og við slíkar aðstæður þýtur áin upp á nokkrum klukkutímum. Sigurjón kvað Þjórsá oft hafa orðið miklu meiri en nú um páskana, og er mest flóð hefði mælzt í henni hefði rennslið numið um 3,500 rúmmetrum. Sigurjón sagði að lokum að Þjórsá hefði vafalaust verið að jafna metin vegna páskanna í fyrra, en þá hefði hlaupið á með norðangadd með þeim afleiðing- um að á skírdag var þá hægt að ganga nær þurrum fótum yfir \ ána hjá Þjórsárbrú, og Á" 1. apríl! Þá er draugagangurinn byrjaður hér sunnan lands, hugsaði ég, þegar ég sá bak- síðu blaðsins í gter. Meðan ég las fréttina var ég að velta því fyrir mér hvort þeir mundu ekki fara með spánska túlkinn á vettvang til þess að reyna að komast í samband við þennan draug að Óskoti. — En svo rann, upp fyrir mér ljós. Það var 1. apríl. Samt var þessi frásögn ekkert ósennilegri en frásögnin af draugaganginum að Saurum. Getur verið, að þeir á Saurum hafi í rauninni ruglazt í tíma- talinu — og þeir hafi byrjað apríl nokkrum dögum á undan okkur hér syðra? Við eigin útför Annars mætti ég draugi á götunni fyrir nokkru, en það var samt ekki Sauradraugurinn. Ég hafði nefnilega lesið andláts fregn þessa manns í blöðunum um það bil viku áður — og þegar ég mætti honum í Lækj- argötunni glápti ég bara og sagði: „Heyrðu, ert þú ekki dauð- ur?“ Hann brosti bara og sagði góðlátlega: „Nei, það var hinn! — Nafni minn“, svaraði hann. Ég gat ekkert sagt, horfði bara rannsakandi á manninn. Ég hafði einmitt verið að hugsa um konuna hans og börn- in, ég vissi að hann átti — eða á — stóra fjölskyldu. „Varst þú við útförina?" spurði hann mig. „Nei, ég fór ekki“, svaraði ég. Hann sagði, að ég hefði verið heppinn. Hann hefði nefnilega farið sjálfur og haft það á til- finningunni, að nokkrir við- staddra hefðu talið hann þann látna — og rekið upp stór augu. Ég er heldur ekkert hissa á því. Það er ekkert viðkunnan- legt að sitja í kirkjunni við hliðina á þeim, sem maður er að fylgja til grafar. •fc Lán í óláni Ég sá það hér í blaðinu í gær, að Hamlet hefði viðbeins- brotnað. Ekki hafði það nein áhrif á sýningar Þjóðleikhúss- ins, sem betur fer. Mér varð hins vegar á orði, þegar ég las þetta, að það hefði verið lán í óláni, að viðbeinsbrotið kom ekki fram á dyraverði eða miða sölukonu leikhússins. Þá hefðu sýningar sennilega lagzt niður til vors. Breyttur afgreiðslutími Nú á að breyta afgreiðslu- tíma sölubúða. Ógemingur er að átta sig á því hvernig þetta breytta fyrirkomulag verður í framkvæmdinni, hvort þjónust- an batnar í rauninni við þetta. Tíminn einn verður að skera úr um það. Ég hélt satt að segja að afgreiðslutími sölubúða væri orðinn það fast mótaður, að hann væri eitt af því, sem ekki væri hægt að breyta. Reyndin er önnur — sem betur fer. Bara að viðskiptavinirnir séu ekki það fast mótaðir í innkaupa- venjunum og þeir geti ekki breytt út af þeim. Annars er þetta ágætt fyrir þá, sem aldrei muna eftir að kaupa nema eitt í einu — hús- mæðurnar sem sífellt eru að stökkva út í búð allan daginn — eftir einu smjörlíkisstykki, nokkrum kartöflum, salti i grautinn o. s. frv. Lengri af- greiðslutími gefur þeim aukið svigrúm — og nú geta þær ver- ið að „stökkva út í búð“ svo að segja allan sólarhringinn. -Á Hundahald Maður nokkur skrifar og kvartar yfir því að slælega sé fylgt eftir reglunum um bann við hundahaldi í bænum. Kvart ar hann yfir óþrifum vegna hundahaldsins og spyr hvers vegna slakað hafi verið á í eftir litinu. Sjálfur rekst ég aldrei á hunda á götunni og veit ekki hve mikið er til j. þessu. ÞURRHLÍÍDUR ERL ENDINUARBEZIAR BRÆÐURNIR ORMSSON hf. Vesturgötu 3. Simi 11467.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.