Morgunblaðið - 02.04.1964, Page 14

Morgunblaðið - 02.04.1964, Page 14
14 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 2. apríl 1964 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 5.00 eintakið. HÆKKANIR STÖÐVAÐAR Oúsmæðurnar, sem gera dagleg innkaup til heim- ila sinna, hafa orðið varar við verðhækkanirnar að undan- förnu. Fyrst hækkaði allt verðlag um 1Vi% vegna hins nýja söluskatts, sem var bein afleiðing af kauphækkunum í desember, því að söluskattur- inn rennur til að greiða út- vegnum það, sem af honum var tekið umfram greiðslu- getu hans. Síðan hækkaði verðlag að nýju vegna hækkaðra launa verzlunarmanna og verzlunar kostnaðar yfirleitt, og þar að auki varð svo hækkun á inn- lendum afurðum, en verðlag þeirra er tengt launum verka- manna, iðnaðarmanna og sjó- manna og hækkar því sjálf- krafa þegar almennar launa- hækkanir verða. Nú er verðhækkununum, sem leiddu af hinum miklu kauphækunum á síðasta ári, að mestu leyti lokið, og lang- þráðu tækifæri er náð til að hindra frekari hækkanir. Því tækifæri má ekki glata. Um það eru neytendur sammála. Þegar ríkisstarfsmenn fengu kjör sín bætt með úrskurði kjaradóms í fyrra, töldu aðrir launamenn réttmætt, að þeir fengju hækkanir og knúðu þær fram. Nú hefur kröfu opinberra starfsmanna um nýjar launabætur verið hrund ið og með því hefur það jafn- vægi skapazt í launamálum, sem félögin innan Alþýðu- sambandsins töldu sig verða að berjast fyrir í desember- verkföllunum. Þetta jafnvægi í launamál- um gerir það að verkum, að engin stétt getur gert kröfur um hækkuð laun með þeim rökstuðningi, að hún hafi dregizt aftur úr, enda lýstu laúnþegasamtökin því bein- línis yfir í desember, að þau vildu ekki raska því launa- hlutfalli, sem nú er. í kjölfar jafnvægis í launa- málum fylgir einnig jafnvægi og öryggi í efnahagsmálunum almennt. Unnt er að hindra frekari verðhækkanir og sjálf sagt að koma í veg fyrir hugs- anlegar tilraunir, sem póli- tískir ævintýramenn reyndu að gera til þess að raska launa jafnvæginu á ný. Framundan er því tímabil efnahagsöryggis, sem ís- lenzka þjóðin á að nota til stórfelldrar uppbyggingar, sem tryggja mun efnahags- lega velferð hennar í fram- tíðinnL ÓLUNDARLEGIR rkki gátu stjórnarandstöðu- ^ blöðin leynt ólund sinni | út af því, að laun opinberra starfsmanna voru ekki hækk- uð með úrskurði kjaradóms. Enginn skyldi þó ætla, að ó- lund þeirra byggðist á því, að þau bæru sérstaka umhyggju fyrir velfarnaði ríkisstarfs- manna. Að sjálfsögðu sprett- ur skapvonzkan af hinu, að nú er ljóst, að Viðreisnar- stjórninni mun á ný takast að treysta efnahagsöryggið og stöðva verðbólguþróun. Stjórnarandstæðingar hugð- ust nota kauphækkanir, sem þeir vonuðu að kjaradómur ákvæði til handa opinberum starfsmönnum, til þess að knýja fram almennar kaup- hækkanir og stofna á þann hátt til nýrra vandræða, sem þeir héldu að mundu koll- varpa Viðreisnarstjórninni, en sú von brást. Kommúnistar skrifa blað sitt mun klókindalegar en Framsóknarskriffinnarnir og létu þeir sín áform því ekki beint í ljós, en Framsóknar- blaðið glæptist til að birta eftirfarandi: „Það er nú fyrirsjáanlegt að til nýrra átaka muni koma í kaupgjaldsmálum í vor, þegar kaupsamningar renna út“. Þannig er Tíminn þegar tekinn til við að reyna að æsa menn til verkfalla, og er þess vegna ekki að furða þótt blaðinu hafi brugðið í brún, þegar það í fyrrakvöld varð þess áskynja, að nú mundi takast að stöðva víxlhækkan- ir kaupgjalds og verðlags. KOMMÚNISTAR ÓSAMSTARFS- HÆFIR 17'ramsóknarmenn gera kröf- * ur til þess, að samstarf sé haft við stjórnarandstöðuna um fyrirhugaðar stóriðju- framkvæmdir. Morgunblaðið hefur lýst þeirri skoðun sinni, að eðlilegt og sjálfsagt sé að hafa samstarf við Framsókn- arflokkinn í því efni, en Framsóknarmenn vilja fyrir alla muni innvígja kommún- ista í þessi mál eins og önnur. Þeir flytja tillögu um það, að 7 manna þingkjörin nefnd fylgist með slíkum frarh- kvæmdum, augljóslega í i Nokkrir norskir línuveiðarar komu hingað til Reykjavíkur íyrir páskahelgina. Sum skipin eru | á þorskaveiðum, en önnur á iúðuveiðum. Þau eru öll írá Álasundi. Skipstjórinn á einum lúðu- bátnum sagði það mjög ábatasama vinnu að stunda lúðuveiðar við ísland. Þeir fengju 4—45 kr. nor.skar fyrir hvert kg. og hásetahlutur gæti farið upp í 10 þús. kr. norskar fyrir þriggja mán- aða úthald. Einn þeirra, sem þorskveiðar stundar, var spurður að því, hvers vegna hann veiddi ekki lúðu. „Það reynir allt of mikið á þolinmæð ina," var svarið. Fyrirmyndarskip í norska fiskiflotanum NORÐMENN sem fisikveiði jtunda eru á eimi máli unri, að mikill hluti flota þeirra sé orð- inn úreltur og verði ao endur- nýjast ef útgerðin eigi að svara kostnaði. Og þeir eru líka sam- mála um, að hin stærri fiskiskip verði að vera þannig úr garði gerð, að þau geti stundað veiði sem lengst af árinu og flutt sig á fjarlæg mið þann tímann sem fiskirí er óarðbært heima fyrir. En ekki eru þeir sammála um hvernig þessi skip eigi að vera, til þess að gefa sem beztan arð — eða minnst tap. Síðastliðið ár fékikst nok/kur reynsla af nýju skipi, M/S „Vest- bas“, sem margir telja hið mesta fyrirmyndarskip. Eigendur þess eru þaulreyndir fiskimenn og heita Alf Vestre og Arthus Fran- sen. Fyrir tveim árum sömdu þeir um smiði á 328 lesta skipi í Brattvág. Það hefur 600 hesta hreyfil og gengur 12 mílur. Lest- in rúmar 240 lestir af saltfiski og frystirúm er fyrir 50 lestir og hægt að framleiða 35—40 stiga kulda þar. í vélarúminu eru tæki til að eyma hreint vatn úr sjó. 1500 lítra á sólarhring, svo að skipið þurfi ekki a leita hafnar til að taka vatn. Og í brúnni rat- sjá og loran, miðunarstöð, ek/*ó- lóð og asdik. Skipstjóri, nótabassi og vél- stjóri hafa hver sinn klefa en önnur áhöfn er í 2—4 manna klefum, með baði og heitu \atni. í eldihúsinu er vélin oliukynt, þar er frystiklefi ög öll eldihúsáhöld fullkomin. Állt samk' æmt allra nýjustu tízku. Áhöfn skipsins er allt að 22 manns. Og hvað kostar gripurinn? Tvær milljónir 130 þús. norskar krónur. Útgerðarkostnaðinn gátu þeir félagar reiknað út fyrirfram. Hann var 1,1—1,2 miltjón n. kr. að meðtalinni fyrningu og vöxt- um og afborgunum af skipsverð- inu. Smíðastöðin í Brattvág afhenti skipið 10. febr. og 16. febr. og fór það á stórsíldveiði við Mæri, og stundaði hana til 26. .narz. Þá var haldið til Grænlarvds á línuveiðar og þær stundaðar á Fredriiksháb og Banabanka fram í júní. Þá var haldið á íslands- mið og veidd síld í bræðslu til ágústloka. Og 3. sept. hélt „Vest- bas“ til Grænlands á ný og kom ekiki hei-m fyrr en í desember. „Vestbas“ var heppið á vor- sílidarveiðunum, — með afía- hæstu skipunum. Fyrri Græn- landsferðin var rýr. Veiðin við ísland léleg, vegna óhagstæðrar veðráttu. En önnur Grænlands- ferðin ágæt, enda stórhækkaði verð á saltfiski um þær mundir. Hún skilaði 640.000 n. kr. — Og samtals aflaði skipið fyrir eina milljón 510 þúsund norskar kr. Það þykir góð útkoma í Noregi nú á dögum. En þess verður að gæta að skipið var nýtt, og engar frátafir vegna viðgerða eða af öðrum ástæðum. En norskir útvegsmenn hafa veitt afköstum „Vestbas'* athygli og líklegt að slíkum skip- um fjölgi mikið á næotunni. — Esská. Óboðnir gestir misþyrma skepnum AÐ KVÖLOI föstudagsins langa var farið í heimildarleysi inn í hesthús að Svignaskarði í Borg- arfirði. I húsinu voru 15 hross í fjórum króm. í sambyggðum fjárhúsum var á annað hundrað fjár og hænsnahús með nokkr- um tugum hænsna. Hús þessi standa sunnan vegarins gegnt bænum á Svignaskarði. í einni hesthússkrónni voru 6 hestar, allir bundnir. Innstur stóð moldgrár stóðhestur 4 ra vetra, ótaminn og viðkvæmur. Er í hús ið var komið á la ugardagsmorg- un stóð sá moldótti aftur í flór, beizlaður og með hnakkfar á baki. Hafði sýnilega verið farið að honum og hann handsamað- ur. Aðgangur hefir verið svo harður i húsinu að hin fimm hrossin, sem öll voru bundin og tamin, höfðu slitið sig upp. Stóðu hrossin frísandi í hnapp, er að var komið. Hér er uot einstakt óþokkabragð að ræða £g aðeins gert í þeim eina til- gangi að kvelja skepnurnar, Ekki hafa aðfaramenn getað tek ið út úr þeim moldótta, haf« sennilega verið búnir að fá nóg af viðureigninni við hann. Það sem er enn alvarlegra er að mennirnir hafa farið inn 1 hæsnahús, tekið þar olíul-ukt og farið með hana í hesthúsið. Hún fannst á hliðinni í jötu hross- anna í heyinu. Hrossin höfðu ekki lokið við að éta kvöld- gjöfina, sem þau eru þó alla jafna búin með fyrir miðnætti og hafa gestirnir, eða gesturinn, verið á ferð fyrir þann tíma. Það er ekki þessum ól-ukku>- mönnum að þakka að þarna varð ekki stórtjón af eldi auk þesa sem slíkur fantaskapur við dýr- in, sem þarna er framinn, er óf y rirgef a nlegur. þeim tilgangi að tryggja kommúnistum þar sæti, en þeir mundu ekki fá mann kjörinn, ef til dæmis væri um 5 manna nefnd að ræða. Kommúnistar eru ósam- starfshæfir í stóriðjumálum eins og öðrum málum; eini stuðningurinn, sem hægt er að vænta af þeirra hálfu, er sú andstaða þeirra, sem sann- ar ágæti fyrirætlananna. Sam starf við Framsóknarflokkinn á hinsvegar að reyna, ef hann fæst til að láta málefnin ráða, en auðvitað hlýtur forystan í þessum málum eins og öðrum að vera hjá ríkisstjórninni. t

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.