Morgunblaðið - 02.04.1964, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.04.1964, Qupperneq 16
16! MORGUNBLAÐID Ffm'mtudágur 2. apríl 1964 f •+* . ' — Oryggi Islanas Framh. af bls. 15 Floiaveldi Sovétríkjanna fer í vöxt bæði að stærð og fjöl- breytni. Risavaxinn kafbáta- f>)oti þeirra, sem í eru meira en 400 kafbátar, hefur að bak- hjarli mikinn fjölda ofansjáv- arskipa, tundurspilla og beiti- skipa. Þá eiga þau öflugan flota- flugher, sem í eru fyrst og íreimst sprengjuþotur. Vernda þarf hafið Kaupskipastóll Sovétríkjanna sem er meira en 1000 skip, er hinn fjórði í heimi, að því er stærð snertir. Fiskiskipastóll þeirra, sem hefur 4000 togara, er hinn stærsti og fullkomnasti í heimi. Þá leggja Sovétríkin meiri stund á hafrannsóknir en allar aðrar þjóðir heims í sameiningiu. Okkur getur reynzt hæittulegt að. virða þessa ögrun að vett- ugi. Þótt svo skyldi fara, að kjarn- orkustyrkur bandalagsins fældi ekki frá árás og bandalagið yrði fyrir meiri háttar atlögu, erum við í flotastjóminni á Atlants- hafi reiðubúnir til að verja það haf. Það er skylda okkar að koma í veg fyrir, að samgöngu- leiðir okkar á sjó verði rofnar. Þetta myndum við framkvæma með því að gera ofansjávarskip- um fjandmannanna óvært á haf- inu og með því tortíma kafbát- um þeirra til þess að skip okkar geti siglt þar örugjg. í þessu sam bandi verður að leggja áherzlu á, að við gerum okkur það full- komlega ljóst, að efnahagur ís- lendinga byggist að mestu leyti á fiskveiðum. Fiskveiðar eru einnig lífsnauðsynlegar öðrum Atlantshafsbandalagslönduim. Hagsmunir okkar fara þess vegna saman — að hæglt sé að stunda fiskveiðar af kappi og við sem mest öryggi. Ég er ekki í vafa um, að þessu er hægt að korna til leiðar í nánu, gagn- kvæmu samstarfi. Til þess að unnt verði að framkvæma hlutverk okkar, hafá þær þjóðir, sem fá flota- stjórninni á Atlantshafi skip til afnota, ætlað stóra flota skipa og flugvéla til nota á styrjald- artímum. Víðtækt net fiota- stöðva, birgðastöðva og sam- göngukerfa til notkunar í stríði verður senn fullgiert. Allur sá herstyrkur, sem þann ig hefur verið ætlaður, myndi verða notaður til að tortíma herstyrk fjandmannanna, annað hvort beint eða óbeint, til þess að inna af hendi frumhlutverk Atlantshafsflotans, sem er að I viðhalda yfirráðum ökkar á höf unum. Flotar þeir, sem eiga að fæla frá árás á friðartímum, það er Folaris-kafbátamir og árás- arflotarnir, myndu gegna hinu mjög mikilvæga hlutverki að eyða feækistöðvum og uppsprett- um flotaveldis Sovétríkjanna, sem ógna yfirráðum okkar á Atlantshafi. f hlut þess herafla, sem á að tortima kafbátum, en það eru flotaflugvélar, flugstöðv arskip, tundurspillar, fylgdar- skip og kafbátar, myndi koma hið mikla ábyrgðahlutverk að eyða, að svo miklu leyti sem unnt er, kafbátum fjandmann- anna, áður en þeir kæmust út á rúmsjó. Halda verður uppi linnulausri leit að þeim, sem kynnu að komast út á Norður- Atlantshafið ,til að hindra ogi draga úr árásum þeirra á líf- æðar okkar á hafinu, og þar verður að beita eldflaugum frá landstöðvum og tundurskeytum skipa okkar. Leggja ber áherzlu á, að flota- afli sá, sem ætlaður hefur verið yfirstjórn Atlantshafsflotans, er sífellt æfður og þjálfaður í styrj aldarhlutverki sínu við flotaæf- ingar, stórar eða litlar, sem efnt er til með nokikru millibili. Afstaða Islands réð miklu í síðari heimstyrjöldinni réð afstaða íslands og herafla banda- manna miklu um úrslitin í or- ustinni um Atlants'nafið. Af- staða íslands og herafla Atlants- hafsbandalagsins myndi aftur verða mjög mikilvæg, ef við neyddumst til að heyja nýja or- ustu um Atlantshafið. íslend- ingar hafa látið svo um mælt við mig, að land þeirra sé lítið og geti ekki lagt mikið af mörk- Hér sézt hluti fundarmanna á fundinum um sjónvarpsmálið í Vestmannaeyjum á öðrum degi páska. Vestm.eyingar vilja fá notið sjónvarpsins Fundur um nrálið sl. manudag Vestmannaeyjum 31. marz. í GÆR, mánudaginn 30. marz var fúndur haldinn í Samkomu- húsi Vestmannaeyja um sjón- varpsmál og þar gerð eftiríar- andi ályktun: „Fundur áhugamanna um sjón varp, haldinn í Vestmannaeyjum 30. marz 1964, skorar eindregið á fundarboðendur, >á Guðlaug Gislason bæjarstjóra og Magnús Magnússon símstöðvarstjóra, að vinna- að því nú þegar skapist aðstaða til móttöku sjónvarps- sendinga og heitir fundurinn ; tundaiboðendum stuðningi sín- I um í því sambandi". Mættir voru 96 manns og var tillagan einróma samþykkt. Áhugi var almennur og ein- staklega mikill og mun meiri en búast mátti við. Um táu menn stóðU upp og létu áhuga sinn í ljós, auk formælenda. Til fund- arins var aðeins boðað með einni eða tveimur útvarpsauglýsing- um, en þrátt fyrir það var ve) mætt og er hlutfall gott milli fundarins hér og í Reykjavík, Kópavogi og nágrenni. Þar mættu um 300 en hér tæpl. 100. — Fréttaritari. Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði hefir yfir að ráða 43 mönnum til leitar þegar aðstoðar er þörf, svo og sporhundinn góða, Baitjs a, sem oft þarf nú orðið að leita til. Annréki hjá Hjálp- arsveit skáta HAFNARFIRÐI. — Mjög annríkt var hjá hjálparsveit skáta um páskana. Á skírdag var beðið um sporhundinn upp að Arnar- holti, en þar hafði vistmaður, Helgi Salomonsson, ekki komið fram frá því um daginn og farið að óttast um hann. Klukkan hálf eitt um nóttina var því farið með sporbundinn Bangsa á þann stað, sem maðurinn hafði síðast sézt. Tók það hundinn um klukkutíma að finna Helga, sem iþá var örendur. Með hundinum leituðu 25 menn frá Hjálparsveit skáta ásamt sjálfboðaliðum, og var einkum leitað í nágrenni Arnahholts. Að kvöldi föstudagsins langa var beðið um aðstoð Hjálparsveit arinnar vegna níu illa útbúinna unglinga, sem höfðu lagt gang- andi upp frá Grindarskörðum og voru í hrakningr.m vegna slæms veðurs. Voru þeir sóttir og fluttir til bæja. Og á páska- dag var enn beðið um sporhund inn til að leita ungs manns, er saknað var frá Hafnarfirði. En það fór betur en á horfðist, þvi hann kom fram um svipað leyti og leit skyldi hafin. — Á páska dagskvöld var beðið um spor- hundinn Bangsa til Vestmanna- eyja„ og var sagt frá því í blað- inu í gær. G.E. um. Ég svara því, að framlag ykkar er stórkostlegt. Mikilvægasita framlag ykkar er vilji lítillar en göfugrar, vin- veittrar, óháðrar þjóðar, sem er staðráðin í að halda frelsi sínu — ásamt öðrum frjálsum þjóð- um — gegn sífelldum og oft lúaleglum tilraunum heimsdrottn unarstefnu kommúnismans til að gera það að engu. Aðild ykkar að Atlantsihafsbandalaginu og staðfastur stuðningur ykkar við þarfir þess fyrir aðstöðu á landi, sem hefur svo geysilega mikla hernaðarþýðingu, eru óræk sönn un fyrir einbeitni ykkar. Ég vil ljúka þessum orðojm með að láta í ljós bjartsýni mína. Það virðist í tízku, að minnsta kosti meðal þeirra, er í blöðin rita, að Atlantshafsbanda lagið sé að riðlast, og að óeining og deilur aðildarþjóðanna dragi úr mætti þess. Það eir skoðun mín, að deilur af því tagi sem fyrir koma, séu oft sönnun fyr- ir lífsþrótti bandalagsins. Ef við nytum ekki þess munaðar að finna til öryggiskenndar, er við stöndum andspænis sameiginleg- um fjandmanni, myndum við ekki geta leyft okkur þann mun að, sem fólginn er í fjölskyldu- erjum. Þeir, sem ögra okkur, mættu gjarnan skilja þetta — ef ógn- arhætta vofði allt í einu yfir frelsi okkar, myndu timabundn- ir örðugleikar verða að engu í samanburði við einingu okkar giagnvart hættunni. Frá stofnun Atlantshafsbanda- lagsins hef ég verið í tengslum við það í ýmsum störfum, og í hvert sinn sem ég tek við nýju starfi í þágu bandalagsins, tek ég sérstaklega eftir vaxandi ör- yggi og styrk, sem hvarvetna er augljós. Það er einlæg sannfæring mín, að frelsi og öryggi íslands, jafnt og allra annarra þjóða innan bandalgsins, verði bezt borgið með áfrmhaldandi aðild að bandalaginu. Höldum styrkri hendi því, sem við eigum. ' Ég þakka áheyrnina! Að Varðbergsfundinum lokn- um ræddi Smith aðmíráll um stund við fréttamenn blaða og útvarps. Gat hann þess í upphafi að hann hefði áður komið til íslands, en því miður ekki séð annað af landinu enn sem kom- ið væri en Reykjavík: og ná- grenni. Undraðist hann veður- blíðuna í Reykjavík í gær, og lét þess getið að veðrið hér væri þessi, ef til kæmi, mundi engin tengsl hafa við ísland. Hann mundi heyra undir höfuðstöðvar betra en í Virginia í Banda- ríkjunum. Smith var inntur eftir sameig- inlegia kjarnorkuflotanum, sem rætt hefur verið um að NATO kæmi sér upp á Atlantshafi. Hann sagði að þessi hugmynd hefði fyrst komið fram fyrir 4 árum, og hafi Norstad hers- höfðingi, yfirmaður alls her- afla NATO átt hugmyndina. Stungið hefði verið upp á eins konar alþjóðaflota NATO-ríkj- anna, sem búinn skyldi kjarn- orkuvopnum. Hefði verið rætt um 25 skip, hvert um 10,000 tonn að stærð, og skyldi hvert þeirra búið 8 Polaris-eldflaug- um. Tilgangurinn væri tvíþætt- ur, í fyrsta lagi að efla varnar- mátt vestrænna þjóða og í öðru lagi að að þessu yrði stjórnmále- legur ávinningiur. Eitt NATO- ríkjanna teldi sig þó sjálft verða að eiga kjarnorkuvopn. Mál þetta væri enn á umræðustigi, og engar endanlegar ákvarðanir hefðu um það verið teknar. Að- spurður sagði Smith að floti NATO í París, en ekki höfuð- stöðvar Atlantshafsfflotans í Nor folk. Keflavíkur flugvöllur heyrði undir Norfölk. Um endurnýjun olíugeym- anna í Hvalfirði sagði aðmíráll- inn, að Atlantshafsflotinn von- aðist til þess að af þeim frarn- kvæmdum yrði, og væru þetta einu framkvæmdir NATO hér- lendis, sem fyrirhuglaðar væru í náinni framtíð. Yrði þarna olíu- birgðastöð til ýmissa nota, og teldi NATO að hún hefði mikla þýðingu, ef til styrjaldar kæmi, á sama hátt og var í síðustu heimsstyrjöld. Sagði hann að þarna yrðu geymdir um 50,000 rúmmetrar af olíu. Þá var aðmírállinn að því spurður, hvort til greina kæmi að kafbátar hefðu bækistöðvar sínar í Hvalfirði. Svaraði hann því algjörlega neitandi, og sagði að ekki væri þörf fteiri Polaris- stöðva. Ráðgerðar hefðu verið fjórar slíkar við Atlantshaf, ein í Skotlandi, tvær á Spáni og ein á austurströnd Bandaríkjanna. Fleiri væri ekki þörf, og því væri það út í bláinn að stað- setja slíka báta hér. Þá giat hann þess, að hann hefði ekki trú á því að Polarisstöðin í Skotlandi yrði lögð niður enda þófct brezki Verkamannaflokkurinn kæmist til valda í næstu kosmingum. Sagði hann lið NATO þar lifa í sátt og samlyndi við Skota. Að- spurður sagði aðmíráHinn einn- ig, að ekki mundi gerast þörf kafbátastöðvar á íslandi enda þótt stöðin í Skotlandi kynni að verða niðurlögð. Slikir kafbátar þyrftu rúmgóðar og kyrrar hafn ir til þess að athafna sig. Allir þekktu kenjar íslenzks veður- fars, og þar að auki væri ekki nægilega stórt athafnasvæði fyr- ir bátana hér. Spurningin um hvort staðsetja ætti kafbáta hér ætti sér enga stoð í veruleikan- um. Þá skýrði aðmírállinn blaða- mönnum frá því að hann hefði ítrekað við íslenzk stjórnar- völd þá skoðun að nauðsyn væri að olíubirgðastöðin í Hval- firði yrði endurnýjuð, og gat þess að lokum að engar breyt- ingar væru fyrirhugaðar varð- andi Keflavíkurflugvöll. Væri engin ástæða til þess að fækka ’mr mönnum eða fjölga; mann- aflinn þar væri miðaður við það lágmark, sem þyrfti til þess að reka flugvöllinn. Hljómleíkar Rögnvalds FYRIR nokkru hélt Tónlistarfé- lag Keflavíkur hljómleika fyrir styrktarfélaga s>ína og gesti þeirra. Rögnvaldur Sigurjónsson, píanósnillingur, lék á hljómleik- um þessum og var efnisskráin sérstaklega vönduð og vel val- in. Leikið var eftir Beethoven 32 tilbrigði í c moll og Sónata op. 57, einnig sónata í b moll op. 35 eftir Chopin og að lokum Nephisto vals eftir Fr. Liszt. Það þarf ekki að dæma af- burða snilli og list Rögnvaldar Sigurjónssonar, það er nóg að geta nafns hans, þá er öllum ljóst að þar er okkar fremsti listamaður á þessu sviði sem hefur borið sóma Islands langt um önnur lönd. Áheyrendur sátu stjarfir og hlustuðu á hvert stórverkið á eftir öðru og að síðustu dunaði Mephisto valsinn af slíkum þrótti og leikni að viðmiðun er engin fyrir hendi. Eini örðug- leikinn á hljómleikum þessum var fyrri listamanninn að sleppa frá hrifnum áheyrendum sínum sem báðu um og fengu mörg aukalög. Tónlistarfélagið á þakkir skil- ið fyrir að gefa Keflvíkingum kost á því að hlýða á þann frá- bæra listamann, sem Rögnvald- ur Sigurjónsson er. — íisj. >

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.