Morgunblaðið - 02.04.1964, Side 21

Morgunblaðið - 02.04.1964, Side 21
Fimmtudagttr 2. apríl 1964 MORGUNBLAÐID 21 Um páskana hvolfdi fiskibátnum „Two Georges“ út af Florida- strönd. 20 manns voru á bátnum, og drukknuðu fjórir, en sá fimmti hvarf og fannst ekki. Mynd þessi er af skipstjóra báts- ins þegar hann var dreginn í land. Þetta er líkan af tunglskipi, sem fyrirhugað er að senda út í geiminn einhverntíma á næstu árum. Skipið er rúmlega sjö metra hátt og þrir metrar í þvermál. Á það að flytja tvo geim- fara til tunglsins. Þar eiga geimfararnir að vera í einn sólar- hring, en fara síðan aftur um borð í geimskip, sem bíður þeirra úti í geimnum og flytur þá til jarðar. Arleg róðrarkeppnl Cambrldge og Oxford háskólanna i Bret- landi vekur jafnan mikla athygli þar. Keppni þessi var háð í 110. sinn á laugardag fyrir páska og sigraði Cambridge. Róin er nærri 1 km. vegalengd, og v»r Cambridge áböfnin iuk sex báts- lengdum á undan í mark. Meriel, dóttir sir Alec Douglas-Home, forsætisráðherra Bretlands, og Adrian Darby, hagfræð- ingur við Oxford-háskóla, voru gefin saman í hjónaband á annan dag páska. Var mynd þessi tekin þegar brúðhjónin komu úr kirkjunni, en á bak við þau sjást foreldrar brúðurinnar. f FRÉTTAMYNDIR ÚR ÝMSUM ÁTTUM Á páskadag sýndi rússneska sjónvarpið myndir af nýrri farþegaflugvél, sem nefnist Ilyushin 62. Vél þessi tekur 186 farþega og flýgur með um 1.000 km. hraða á klukkustund. Það var flug- vélasmiðurinn Sergey V. Uyshin, sem teiknaði nýju farþegaþotuna. Á þriðjudag, 31. marz, átti Uyushin 70 ára afmæli, og var hann i því tilefni sæmdur Lenin-orðunni fyrir framlag sitt til flugvélasmíða. Sendiherra Finna í Stokkhólmi, Sakari S. Tuomioja, var nýlega skipaður sáttasemjari á Kýp- ur, og á hann að reyna að sætta Tyrki og Grikki á eyjunni. Hér sést sendiherrann (lengst til hægri) ræð» við XJ ThanC framkvæmdastjóra SÞ, og Pier Spinelli, sérstakan fulltrúa U Thants á Kýpur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.