Morgunblaðið - 30.04.1964, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
I
í’!mmtu(fagur 30. apríl 1964
Myndlistarfélagið
opnar vorsýningu
7. maí
Þrír af listamönnunum sem sýna á Vorsýningu Myndlistarfélagsins. Taiið frá hægrri: Fim. .
Jónsson, formaður félagsins, Helga Weisshappel, formaður sýningarnefndar og Pétur Friðrik.
Myndin var tekin er verið var að koma fyrir sýningarmyndum.
Á FÖSTUDAG opnar Myndlist-
arfélagið þriðju vorsýningu sína
' í Listamannaskálanum, en félag-
ið hefur tekið upp þann hátt að
efna til sýninga félagsmanna á
vorin og bjóða gestum að sýna
hjá sér. í þetta sinn eru gest-
irnir Kjarval, Jón Engilberts og
Kári Eiriksson. AIls eru að þessu
Varnarliðið gaf
Vernd sjónvarps
tæki
STJÓRN Verndar hefur beðið
Miorgunblaðið, að koma á fram
færi þökkum samtakanna til
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli fyrir vandað sjónvarpstæki,
sem varnarliðið færði samtökun
uim að gjöf fyrir vistheimili
Verndar á sumardaginn fyrsta.
sinni sýnd 79 listaverk, högg-
myndir og málverk, flest nýjar
myndir.
Sýningin verður opnuð kl. 5
föstudaginn 1. maí af formanni
menntamálaráðs, Helga Sæ-
mundssyni. Og verður síðan
opin í hálfan mánuð.
20 máiarar og 4 myndhöggv-
arar taka þátt í þessari vorsýn-
ingu Myndlistarfélagsins, auk
gestanna. Þeir eru: Ásgeir Bjarn
þórsson (sem nú er einnig með
sýningu í Róm), Aage Nielsen
Edwin, Eyjólfur Eyfells, Eggert
Guðmundsson, Finnur Jónsson,
Freymóður Jóhannsson, Gunn-
fríður Jórvdóttir, Guðmundur
Karl Ásbjörnsson, Höskuldur
Björnsson, Helga Weisshappel,
Jón Gunnarsson, Nína Sæmunds
son, Ottó Gunnlaugsson, Pétur
Friðrik, Ríkharður Jónsson,
Sveinn Björnsson, Sigurður
Árnason, Þorlákur Haldórsen,
Sigfús Halldórsson. Auk þess er
þar minningarsýning um félaga,
sem lézt í vetur, Höskuld Björns
son frá Dilksnesi, en hann mál-
aði mikið fugla sem kunnugt er.
Finnur Jónsson, formaður
Myndlistarfélagsins, og Helga
Weisshappel, formaður sýningar
nefndar, skýrðu fréttamönnum
frá þessu. Þau voru þá ásamt
fleiri listamönnum að koma lista
verkunum fyrir.
Finnur á þarna sjálfur þrjár
nýjar pastelmyndir á svörtum
grunni, sem heita Fantasía. Úr
gjánni og Næturljóð, abstrakt
myndir með sérkennilegum blæ,
en hann hefur síðan 1921 málað
jöfnum höndum abstrakt og
expressionistískt sem kunnugt
er.
Evrópuráðsfund-
FUNDUR var í sameinuðu
Alþingi í gær og voru þar
18 mál á dagskrá og 10
þeirra afgreidd. Atkvæða-
greiðslur fóru þó ekki fram.
Mestar umræður urðu um
fyrirspurnir út af byggingar
lánum, en þar svaraði Emil
Jónsson félagsmálaráðherra.
Gylfi Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra gaf fróðlegar
upplýsingar í sambandi við
tillögu til þingsályktunar um
ráðstafanir gegn tóbaksreyk-
ingum .Þá var framhald einn
ar umræðu um þingsálykt-
unartillögu um tvöfalda ak-
braut milli Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar. Fjárveitinga-
nefnd hefur skilað áliti og er
samþykk tillögunni. Kvöld
fundir voru í báðum deild-
um Alþingis í gærkvöldi.
Fyrirspurnir.
Afgreiddar voru tvær fyrir-
spurnir sama eðlis frá þeim Geir
Gunnarssyni (K) og Ingvari
Gíslasyni (F), sem fjöluðu um
hivaða ráðstafanir hefðu verið
gerðar til að afla bygginigarsjóði
ríkisins fjár og hve hárri upp-
hæð mætti búast við úr sjóðnum
till lána í ár og hvenær.
Emil Jónsson félagsmálariáðh.
svaraði þessum fyrirspurnuim.
Hann kvað á þessu þingi hafa
verið flutt frv.
um hækkun á
skyldusparnaði
er næmi 30
millj. kr Þá
hefði verið lagt
fram frv. um
skyldu líftrygg-
ingarfólaga að
kaupa fyrir 25%
af ráðstöfunarfé
sínu skuldabréf lánasjóðsins, —
enn fremur að ráðherra verði
heimilað að skylda öll trygging-
arfélög til að kaupa slík bréf fyr
ir allt að 25% af ráðstöfunarfé
þeirra. Atvinnuleysistryggingar-
sjóður mun kaupa bréf fyrir 37
milljónir. Þá hafa staðið yfir
samningar við lífeyrissijóðina um
kaup þeirra á íbúðalánabréfum
og fleiri fjáröflunarleiðir væru í
athugun.
Ingvar Gíslason (F) benti á,
að allt að 3000 umsóknir Lægju
fyrir sjá húsnæðismálastjórn og
þyrfti því stóraukið fé til að
simna þörfinni. Þá kvað hann
lánsfé nýtast illa hjá okkur fyrir
skipulagsleysi og óhóf í íbúða-
bygingum og sökum undangeng-
inna verðrækkana
Geir Gunnarsson (K) þakkaði
svör ráðherra, en ekki væru þau
upi>örvandi fyrir húsbyggjendur.
Emil Jónsson hvac lítinn vanda
að benda á að mikils fjár væri
þörf í hið almenna veðlánakerfi,
hitt væri meiri vandi að finna
leiðir til að afla þess. Sérfræðing
ar teldu að þörf okkar fyrir íbúða
byggingar væru 1500 á ári. Veð-
lénakerfið annaðist 750, lífeyris-
sjóðir 500, verkamannabústaðir
og íbúðir til útrýmingar heilsu-
spillandi húsnæðis væru 150 og
veðlánakerfi sveitanna stæði und
ir 100 íbúðum. Lánin á síðasta
ári hefðu numið um 110 millj.
kr. úr hinu almenna veðlána-
kerfi, en samkvæmt há'marikslón-
um til 750 íbúða hefði sú upphæð
átt að nema 112 millijónum.
Ráðherrann kvaðst viðurkenna
að lánin væru of lág og fleiri í-
búðir væru nú í byggingu en sér-
fræðingar teldu eðlilegt. Kvað
rann ríkisstjórnina hafa fuLlan
hug á að reyna að greiða fyrir
húsibyggjendum eftir föngum.
Þingsályktunartillögur.
Framhald var einnar umræðu
um þingsályktunartillögu um
varnir gegn tjóni af völdum
Kötluhlaups. Talaði Guðlaugur
Gíslason (S) fyrir nefndaráliti
um tillöguna og mælir nefndin
með samiþykkt hennar.
Einar Olgeirsson (K) talaði
fyrir þál.till sinni um vináttu-
heimsckn fulltrúa Alþingis til
Grænlendinga og Lúðvík Jósefs
son (K) mælti fyrir þál.till.
sinni um ráðstafanir gegn tóbaks
reykingum.
Gylfi G. Gíslason menntamála-
ráðherra, skýrði í því samibandi
frá viðræðufundum sínum við
forystumenn skóla og nemienda
ira þessi mál og
hefðu þeir fund
ir leitt ti-1 að á-
kveðið væri að
efla mjög
fræðslustörf um
skaðsemi tóbaks
reykinga, en í
þál.tilil Lúðvíks
er farið fram á
2 mililj. kr. fjár
veitingu til aukinnar fræðslu og
áróðurs gegn reykingum.
Jón Skaftason (F) mælti fyrir
þáltilil. um tekjuistofna sveitar-
félaga og Ólafur Jóhannesson
(F), mælti fyrir þáltill. u.m með
ferð dómsmála, er hann kvað
nauðsyn að hraða hér á landi
Jóna.s G. Rafnar (S) taiaði
fyrir nefndaráliti fjárveitinga-
nefndar um þáltill., sem þeir
flytja Matthías Á. Mathiesen,
Sigurður Ingimuindarson og
Sverrir Júl'íusson um lagningu
tvöfaldrar akbrautar milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. í
tillögunni er skorað á ríkisstjóm
ina að láta svo fljótt sem auðið
er, hefjast handa
um undirbúning
að staðsetningu
og lagningu tvö-
faldrar akbraut-
ar frá Reykja-
vík um Kópa-
vog og Garða-
hrepp til Hafnar
fjarðar. Fjárveit
inganefnd legg-
ur til að bætt verði við tillög-
una og lagningu nýs vegar ofan
við núverandi byggð í Kópa-
vogi og Garðahreppi í því skyni
að beina umferðinni sem mest
framlhjá þéttbýlinu.
Matthías Á Mathiesen (S)
þakkaði afgreiðslu nefndarinnar
og kvaðst samþykkur breytiing-
unni.
Gísli Guðmundsson (F), hafði
framsögu fyrir allsiherjarnefnd
fyrir þáltill. um fiskiðnskóla og
unglingafræðslu utan kaupstaða,
sem lagt er til að samþykktar
séu.
Loks talaði Rjörn Pálsson (F)
fyrir þáltill. um tunnuverksm.
á Skagaströnd og urðu nokkur
fjörleg orðaskipti milli hans og
Ragnars Arnalds (K) út af til-
lögunni, Ragnar kvartaði yfir því
að hafa 'ekki fengið að vera með
flutningsmaður að tillögunni.
Björn svaraði og sagðist ekki
telja það hyggilegt af músinni
að fara að ráðast á köttinn, en
Ragnari vildi hann segja að hann
hefði talið það öruggt tillögunni
til falls ef Álþýðubandaagsmenn
hefð-u verið meðflutnings.menn að
henni
Efri deild.
Á kvöldfundi efri deildar var
rætt um frumvarp til breytinga
á lögunum um tollskrá o.fl. Gerði
form. fjárragsnefndar, ólafur
Björnsson, grein fyrir nokkrum
breytingartillögum, sem runnar
voru undan rifjum tollsikrár-
nefndar, en samstaða var með
fuiltrúum flokkanna um stuðning
við þær. Þá lýsti Ó1 Bj. afstöðu
sinni til breytingartillagna frá
minni hluta fjárihagsnefndar,
sem hann kvaðst ekki treystast
til að fylgja, m a. vegna þess
tekjumissis er slíkt muindi hafa
í för með sér fyrir ríkissjóð. Þeir
Helgi Bergs og Bjöm Jómsson
tóku einnig stuttlega til máls, en
að því búnu var gengið til at-
kvæða. Vóru breytingartillögur
fjárhaigsnefndar samþykktar sam
hljóða, en hinar felldar með
nokkrum atkvæðamun við nafna
kall. Frumvarpið var að svo
búnu afgreitt til neðri deildiar.
Frumvarp um tekjuskatt og
eignaskatt, sem vera átti til 3.
umræðu á fundinum, var tekið
út af dagskrá — og fundi því
næst slitið.
Neðri deild.
Neðri deild hafði 6 mál til með
ferðar á tæplega klukkustundar
fundi, sem hófst kl 20,30. Var
þar yfirleitt um að ræða mál,
sem samstaða ríkti um og þing-
menn voru sammála um að hraða
afgreiðslu á. Frumvarp um breyt
ingu á sjúkralhúsalögunum var
til 3. umræðu. Matthías Bjarna-
son gerði grein fyrir breytingartil
lögu við 3. gr. Þess efnis, að í
stað orðsi'ns „héraðslæknisbú-
staða“ á tveimur stöðum í grein
inni komi: læknisbústaða. Var
breytingin samþykkt samihljóða
og frumv. síðan afgreitt ti.1 Efri
deildar. Frumvarp um aukningu
skyldusparnaðar úr 6% í 15%
var afgreitt til Efri deildar ó-
breytt samihl. Við afgreiðslu
slu frumvarps um breytingu á
vegalögum, var samþyk'kt sikrif-
leg breytingartillaga frá Ingólfi
Jónssyni, samgöngumálaráð-
herra um að gjalddagi þunga-
Skatts Skuii vera 15. maí — eða
mánuði siðar en gert var ráð
fyrir í frumvarpinu. Tillaga frá
Sigurvin Einarssyni og Birni
Pálssyni um endurgreiðslu inn-
flutningsgjalds af benzíni jeppa
bifreiða var felld, en í umræð-
um um tillöguna vakti ráðherra
athygli á því, að undanlþáguheim
ildir nýju vegalaganna væru í
engu skertar frá eldri lögum.
Frumvarp til laga um Ljósmæðra
skóla íslands var samþykkt sam-
hljóða til 3. umræðu o,g síðan af-
greitt til E.d. á öðrum fundi sem
ihaldinn var strax að þessum
loknuim í gærkvöldi. Þá var af-
greitt sem lög frá Alþingi frum-
varp u-m veitingu rikisiborgara-
réttar til 27 manna.
ur um fræðslumál
HELGI Elíasson, fræðslumála«
stjóri, sat nýlega fund, sem hald-
inn var í Strasbourg í Evrópu-
ráðsnefnd, sem fjallar um al-
menna menntun og tæknimennt-
un. Rætt var um ýtnis atriði, sem
Evrópuráðið hefur látið til sín
taka á þessu sviði. Meðal þeirra
er starfsemi til að auka gagn-
kvæma þekkingu á fræðslumál-
um í ríkjunum í álfunni, m.a.
með útgáfu handbóka. Þá var
rætt um aðferðir við kennslu i
tungumálum og um kennslu i
þjóðfélagsfræði, en Evrópuráðið
hefur beitt sér fyrir ýmsum ráð-
stöfunum til framfara varðandi
þessi atriði. Þá var ennfremur
rætt um aðstoð, sem Evrópuráðið
hyggst veita til að bæta kennara-
menntun í Tyrklandi, svo og um
fræðslu um umferðarmál og Um
athugun á kennslubókum í sögu
og landafræði. Sem kunnugt er
verður haldin ráðstefna í Reykja
vík á sumri komanda um endur-
skoðun kennslubóka í landa-
fræði. (Frá upplýsingadeild Ev-
rópuráðsirts)
Launþegaklúhljur
Fundur verður í launþega'Klúbbn
um í 'kvöld. Mbl. heimsótt undir
leiðsögn og Eyjólfur Konráð
Jónsson, ritstjóri, flytur erindi
uim Blöðin og stjórnmálin.
Helgarrrðstefna í Borgarnesi
Þeir félagsmenn Heimdallar, sem
hyggjast sækja helgarráðstefnu
SUS í Borgarneái 2.-3. maí eru
vinsamlega beðnir að til'kynna
þátttö'ku til skrifstofu Heimdall-
ar, sími 17100.
Fyrirlestur um Þjóðfélagströl
Síðasta erindi í Fyrirlestraflo-kkl
Heimdallar um Þjóðfélagsimál
verður flutt í Valhöl-1 v/Suður-
götu n.k. þriðjudag 5. maí kl.
20j30. Þá ræðir Þorvaldur Garðar
Krist-jánsson, alþm. um Stjórn.
málaflokika.
Félagstíðindi Heimdallar
Félagstíðindi Heimdallar, apríl-
hefti, eru nýkomin út og hafa
þegar verið send félagsmönnum.
Þeir, sem ekki fá þau með skil-
um eru beðnir um að láta skrif-
stofu Heimdallar vita.
Kópavogur
SPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélag-
anna verður föstudgainn 1. mai
kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu.