Morgunblaðið - 24.06.1964, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 24. júní 1964
MORGUNBLAÐID
9
Oslóarbréf
GRF.FSEN, 12. m a.í: — Það er j
byrjað að skyggja. Silkimjúkt
rökkrið hjúpar umhvérfið. Borg
in teýgir sig upp um skógivaxn-
ar • hæðirnar í glitrandi ljósa-
dýrð. Þar sera ljósin þrengja
eér gegnum trjálimið, líta þau
út eins og ljómandi perlur á
grænu teppi. Það verður allt
að ævintýralegum myndum í
6Vona umhverfi, og fjörðurinn
liggur þarna langt niðri eins
og fögur umgjörð um listaverk-
ið. Efitir að ég er sezt inn í veit-
ingahúsið, við borð út við glugg
enn, nýt ég útsýnisdns engu síð
vtr yfir rjúkandi kaffinu.
Nokkrir bl ar standa fyrir ut-
an. Borgarbúinn þykir gott að
ieita hingað í kyrrðina, etftir erf
iði dagsins. Þjóðfánarnir standa
í röð á hillunni beint á
móti dyrunum. Einn ber af þeim
öllum — svo himinblár með
rauðuim og hvítum krossi. Ég
veit ekki fyrr en ég er farinn
eð raula fyrir munni mér: „Eitt
landið ægigirt, yzt á norðurslóð-
um‘V Veitingahúsið stendur hátt
uppi á ásnum. Það er byggt úr
bjálkum, í fremur þunglamaleg-
um stíl, en traustum og viðkunn
anlegum. Efnið í það hefur ekki
verið iangsótt. Þéttur skógur
er þarna allt í kring, og nær
lengra en augað eygir um dæildir
og ása. Það sér ekki högg á
vatni þótt nokkur tré séu höggv
in upp.
Fyrir neðan etfstu brekltubrún
ina að austan liggur lítið stöðu-
vatn. Fyrst sýndist mér sem það
væri fullt aí silungi, eða smá-
fiski, en þegar ég gái betur að
sé ég hvers kyns er. Þama hafa
froksax tekið sér bólfestu og
brátt mun yfirborð vatnsins
verða hvítt atf eggjum þeirra.
Þama lóna þeir í vatnsskorp-
unni og synda alveg upp að
fótum mínum. Undirskáleaugu
þeirra glápa á mig á meðan
þeir teygja úr afturfótxmum og
buda milli steinanna. Þeir bera
sig til eins og smá mann verur
á sundi. Þannig koma þeir mér
fyrir sjónir þama í hálfrökkr-
inu. Kvak þeirra lætur í eyrum
sem veikt fjarlægt undirspil
sumarsintfóníunnar. Aldrei hetfi
ég hluistað á svo margbreytileg-
an fuglasöng fyrr. Lotftið og
skógurinn kveður við af vængja
þyt og kvaki. Ég sezt niður á
vatnsbakkann sem er þakin af
bláum og hv.'tum simáblómum
og ilmandi. lyngi, og nýt kvölds-
ins í ríkum mæli án endur-
gjalds. En sá reginanunur að
leita eftir tilbreytingu og gleði
út í náttúrunni, eða að sitja inni
á skemmtistað þar sem músíkin
ætlar að æra mann og óhollur
reykur fyllir lungun, þar sem
pyngjan léttist og andinn finn-
pr engan frið eða fuXnægju.
Uti í náttúrunni fæst varanlég
gleði ókeypis fýrir þá sern hafa
tækifæri til þéss að nottfæra sér
hana"
Hér í borg er rnikill iindir-
búningur fyrir 17. mai-hátíða-
höldin. Fólkið flykkist í búð-
irnar til þess að kaupa fána
og annað tilhejrrandi. Eftir rúm
an mánuð verður íslands stóri
dagur 1964 haldinn hátíðleguri
Tíiminn líður. Árin detta' eins
og dropi í hafið, eitt etftir ann-
að og koma aldred tdl baka ....
Hugrún
Fordæmið meircs virði
en allar umvandanir
Frá ársþingi Unglingareglu IOGT
Arsþing unglingareglu IOGT
hið 39. í röðinni, var haldið í
samikamuhúsinu BJARGI á Ak-
ureyri föstudaginn 12. júní síð-
astl iðinn. Þingið aóttu 69
manns, gæzlumenn, þingfulltrú-
ar og gestir. Þing þetta var því
fjölsótt og á allan hátt hið á-
nægjulegasta. Óáfur Þ. Kristj-
énsson heimsótti þingið og flutti
etutt ávarp. Sérstakan svip setti
það á þing þetta, að allmörg
börn úr barnastúkum Akureyr-
ar sátu flesta fundina, en þau
voru klædd hinum nýja ein-
kennisbúningi, sem Akureyrar-
etúlkurnar hafa gert tilraun með
í vetur. Vakti búningurinn, með
hinu stóra og fagra merki Regl-
unnar, almenna atíhygli.
Aðalmál þiugsins að þessu
einni voru tvö:
1) Arlegur kynningar- og
tj áröJ.unardagur Unglingaregl-
unnar, ög
2) Einkennisbúningur og hæfn
lspróf.
Bæði þessi mál, sem snerta
tnjög framtíð Unglingareglunn-
er, höfðu komið til framkvæmda
é síðasta ári, ýmist að nokkru
leyti eða öllu og urðu um þær
tniklar umræður, sern allar
hnigu á einn veg. Var stór-
gæzlumanni einróma falið að
halda áfram á þeirri braut, sem
mörkuð hafði verið.
Stórgæzlumaður; Sigurður
Gunnarsson, var endurkjörinn.
Una.ingaregluþing þáði mjög
rausnarlegt katfiboð hjá Þing-
stúku Eyjatfjarðar. Einnig bauð
Þingstúkan fulltrúum í skemmti
ferð um kvöldið fram að Grund.
Var í för þessari komið við á
ýmsum merkum stöðum, svo
sem Kristnesi, Grund og Frið-
bjarnarhúsi, þar sem viðdvölin
var að sjálfsögðu lengst. Veður
var hið bezta og tókst farðin
því á allan hátt ákjósahlega. í
fararlok flutti stórgæzlumaður,
Þingstúku Eyjafjarðar og farar-
stjóri, Jóni Kristinssyni, hug-
heilar þakkir fyrir ánægjul ega
ferð og Akureyringum fyrir ó-
gleymanlegar móttökur. Tóku
þátttakendur undir það með
lóíaklappi.
Þingið gerði ýmsar ályktanir
og var þessi veigamest:
Unglingaregluþing 1964 harm-
a>r það, að til skuli vera hópur
ungs fólks í landiniu, sem frem-
ur slík spjöl! af völdum drykkju
skapar og þau, sem gerðust ný-
lega á Hreðavatni, í Þjórsér-
dal og víðar.
Hins vegar mótmælir þingið
því kröftuglega, að ungt fólk
sé nokkuð spilltara að eðlisfari
nú en áður, þótt ýmsir telji svo
vera og hafi hátt um mikla spill
ingu æskunnar.
Þingið hikar ekki við að stað-
hæ£a, að hinir ful lorðnu eigi
langotftast meginorsök á ávirð-
ingum unga fólksins, meðal ann
ars með vítaverðu fordæmi á
ýmsum sviðum, og þá ekki sízt
um neyzlu áfengis og tóbaks.
Þingið átelur sérstaklega þi
háttu forráðamanna þjóðarinna:
að veita áfengi í veizium o;
móttökum hins opinbera, þót
vitanlegt sé, að þar er um aí
| ræða áhrifamikið og hættuleg
| fordæmi öllum landslýð, ekk
sízt æskunni. Mættu þeir gjarru
j rifja upp hið sígilda spekimá
séra Hallgríms Péturssonar:
j „Hvað höfðingjamir hafast að
hinir ætla sér leyfist það.“
| Þingið beinir því til ritstjórí
blaða og tímarita, að þeir forð-
ist að birta myndir og frásagn
ir, sem líklegar eru til að efls
drykkjutízkuna. Á þingið þí
einkum við myndir af samkvæirr
isdrykkju, seim þvi miður geras
hér æ tíðari í blöðum, og tel-
ur, að þeim megi að ýmsu leyt
jafna til; áfengisauglýsinga seor
bannaðar eru með lögum.
Loks minnir þingið á þau upj:
eldislegu sannindi, að fordæmif
er meira virði en allar urr.vand
anir.
Nýju Delhi, 20. júní A1
® TALSMAÐUR stjórna
Pakistans sagði í dag, að inn
an skamms muni hefjast við
ræður þeirra Ayub Khan:
forseta Pakistan, og La
Bahadar Shastri, forsætisráð
herra Indlands, um brottfluti
ing indverskra múhameðstrú
armanna frá Pakistan. Mui
hér einkum um að ræð;
flóttamenn er fiúið hafa lam
í blóðugum trúarbragðadeil
um.
Nýjasfa tízka
Svartar
regirkápur
Verð aðeins kr. 418,00.
Til sölu
Mack International dráttarbill með G.M. dieselvél
og 4 tonna vökvakrana Aústin Werstern.
Upplýsingar í símum 1644 og 2075 Akureyri.
PEUGEOT
BIFREIÐIR
eru þekktar um allan heim fyrir traustleika og vand
aðan frágang, og eru því heppilegir fyrir okkar vegi.
Gerð 403 (6 manna).
I þolraunakeppninni í Suður-Ameríku á siðasta
hausti voru 6 PEUGEOT bifreiðar á meðal fyrstu
10 bifreiðanna, sem komu að marki.
Gerð 404 (5—6 ntanna).
Við getum útvégað þessar traustu frönskú bifreiðar
með stuttum fyrirvara, og höfum nú á lager bif-
reiðir af gerðinni 403, sem eru 6 manna og heppileg
ar til leiguaksturs.
Gerð 404 Station (5—7 manna).
Gerðin 403 kostar til atvinnubílstjóra 137 þúsund
krónur og til einkaafnota 172 þúsund krónur.
Höfum okkar eigin varahluta- og viðgerðaþjónustu
í Bílaniarkaðnum Brautarholti 22.
Hafrafell hf.
Brautarholti 22. —- Sínrar 20986 ogr 34560.