Morgunblaðið - 24.06.1964, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.06.1964, Blaðsíða 14
24 MOHGU N BLAÐSÐ Miðvikudagur 24. júni 1964 Filippíci Þorsieinsdótffir F. 20. júni 1887. Ð. 16. júni 1964. Þtigar mér barst andlátstfregn Srú Filippiu Þorsteinsdóttiu: Hjálmarsen, rifjaðist upp fyrir mér 30 ára gómul endurminn- ing, sem ég skriíaði þá niður saimdægurs, og er á þessa leið: (sbr. Með góðu ftí ki bls. 110- 112). Á Sölvahamri EJín heíur legið veik í rúm- inu í allan vetur, og er nú held- ur að hressast. Ég hefi stöku sinnum heimsótt hana, haft með mér bók og lesið fyrir hana, því að nú er hún búin að missa sjónina á öðru auganu og orð- in sjóndöpur á hinu. Þrátt fyrir þetta er Elín róleg og möglar aJdrei eða mælir æðruorð, en ber það, sem á hana er 'lagt með þögu li þolinmæði. Hún öf- undar engan og hefur engar á- hyggjur af því, að öðrum liði of vel. — Örðugleikarnir hafa sýnilega þrautreynt andlegt þreik hennar og þjálfað styrk hennar til góðra hugsana. Þeg- ar ég sdt á stólnum fyrir fram- an rúm EJínar og horfi á hana, þar sem hún liggur í rúminu mögur og föl, finnst mér, að yfir henni hviJi einhver óvana- Jeg ró. AndJitið er eins og meitl- að úr hvítuim marmara. Drætt- irnir eru djúþir og reglulegir, en bera raunum vitni. Lífið hef- ur sett merki sin á það. — Per- sóna EJínar er þannig, að ég giet ekki hugsað mér, að hún yrði ráðþrota í nokkurri þraut, en samt er hún viðkvæm og mjúk í Jund. — Elín er forvitin. Þótt lítið beri á, og spurul er hún, og þekkir Jika að afspurn svo að segja hvert mannsbarn í sýslunni. Ef ég fer bæjarleið eða skrepp í næstu sveit, spyr hún mig allt- af, hvort ég hafi elcki eitthvað í fréttuim að segja. Ef ekki er annað, þá er ég vanur að segja henni, hvaða menn ég hafi hitt og taTað við, hvar ég hafi gist o.s.frv. — í fyrra sumar reið ég suður að Amar-stapa í Breiðu vik og var þar á hlutaveltu, sem þar vax haldin með tilheyr- andi dansi, slagsmáJum og gaura gangi. — Þegar ég svo skömmu síðar heimsótti Elínu, dáðist ég við hana að náttúrufeguxðinni fyrir sunnan jökulinn. Sérstak- lega dáði ég hina fögru útsýn á Solvahamri, en yfir hann er farið á leiðinni, rétt áður en kemur að Stapa. Ég fór að lýsa því, hversu vegurinn væri þar erfiður, og þar væri hver upp- sprettulækurinn við annan ó- brúaður. Þarna félJu þeir í þröngum farvegi eftir kiöppum og væru þeir djúpir og illir yf- irferðar, en vegna náttúrufeg- urðaxinnar tæki maður varla eftir þessu. — Elín hlustaði á frásögn mína svo hljóð og alv- arleg, að mér hnykkti við. Þeg- ar ég spurði hana, hvort hún hefði nokkurn tíma farið um Sölvahamar og séð hina fögru útsýn, kvað hún sig oft hafa faxið þarna um, eq bætti við með alvöruþunga: „Ég veit, að Guð hlífir mér við því að þurfa að fara þar um oftar“. — Þegar ég heyrði hreiminn í rödd hennar, fór ég að verða forvitinn og bað gömlu konuna að segja mér orsökina að óhugn- að: þeim, sem hún hafði á Sölva- hamri, og var hún ekJti ófús til þess. Hún lyfti nú hafðinu og lagaði svæfilinn undir því, skaut gleraugunum upp á enuið og hóf frásögn sína: „Það var hart og kalt síðasta vorið á öldinni, sem leið. — Við hjónin áttum þá heima suð ur í Staðarsveit og bjuggum þar í góðum bæ með börnunum okkar. Við vorum hamingjusöm og ánægð, og höfðum nóg fyrir okkur, því að hann hafði alltaf at vinnu við smíðar. Það var þetta vor, að hann vax fenginn tíl að smíða bæ við Hellna undir JöJðri, og þar varð hann veikur, — fékk lungnabólgu og dó. Þeg- ar hann var lagztur, voru mér gjörð þau boð, að hann langaði til að ég kæmi út eftix. Ég átti ekki heimangengt frá börnun- um, en tók mig samt upp og lagði á stað gangandi. Veðrið var sæmilegt, þegar ég fór út eftir, og leið honum eftir von- um, þegar ég kom þahgað. Þar var ég fjóra daga yfir honum, en þá virtist honura vera að Jétta, og kom okkur saman um, að ég skyldi fara heim til barn- anna, — þau þyrftu meira á mér að halda en hann. — Við kvöddumst, og svo fór ég á stað heim, alein og gahg- andi. Það var frost og kuJda- stormur. Ég varð að þræða göt- una á Sölvahamri og vaða gilin djúpu. Fötin mín hJupu í stokk, og var mér afar erfitt um gang, AJJt í einu fann ég á mér, að einhvex var á eftir mér. Ég svip aðist um og sá, að það var unglingspiltur, sem kom hlaup- andi. Hann kallaði á mig, og bað mig doka við, og settist ég því niður. Hann færði mér helfregnina. Maðurinn minn var dáinn. Það sem við héldum bata, var helfróin, — honum haifði þyngt þegar eftir að ég fór. Hann hafði dáið snögglega úr hjartaslagi. — Ég sat lengi hfjóð og grét með hendurnar fyrir andilitinu. LoJís áttaði ég mig og sagði drengn- um að snúa aftur, en méx fannst ég sjálf gjöra bezt skyldu mina með því að halda áfram beim til barnanna. Ég man fyrstu spor in mín, þegar ég stóð upp af þúfunum á Sölvahamri. Þau voru yfri þung. Mér fannst ég ekki geta lyft fótunum, og svo sortnaði mér»fyrir augum. Föt- in mín voru svo klökug, ag mér var svo kalt. Ég setti í mig kjark og gekk heim, svo að segja í einum áfanga, án þess að 9etjast niður eða hvíla mig. — Þegar ég kom heim, hlupu bornin í fangið á mér, lögðu handleggina um hálsinn á mér og spurð-u, hvemig pabba sínum Jiði. Ég duldi haxm minn eins og ég gat og sagði þeim ekki, hvernig komið var, fyrr en þau voru háttuð uim kvöldið og búin að lesa bænirnar sínar. Þá vissi ég að kyrrð var ]«>m- in á hugi þeirra. Þau sofnuðu öll með tár í augum, en um nóttina kom engill guðs og hugg aði þau. Ég sá hann sjálf, þegar hann lagði vængina yfir rúmin þeirra, því að ég vakti. Þessa nótt kom mér ekki dúr á auga.“ — GamJa konan þagnaði og and- varpaði þungan. Það var eins og hún væri sárþjökuð eftir að rifja upp þessa óþægilegu og líklega aJvarlegustu endurminningu Jífs síns. — Hún lá þreytt og hreyfing arlaus. Á andliti hennar var sami fölvinn, en nú var kominn óstyrk- ur og titringur í aJlar taugar þess, Varirnar skulfu. — Ég stóð upp og valdi EJínu þau hlýjustu orð, sem ég átti, ef vera kynni, ag þau gætu orðið henni styrkur. Svo greip ég hönd hennar og hélt um hana þegjandi dálitla stund, og beindi til gömlu konunnar þeirri samúð, sem ég átti mesta. Siðan kvaddi ég hana, en þegar ég fór út um dyrnar, leit ég um öxl, og þá brosti EJin hlý- lega til mín. Ég hefi oft setið fyrir framan rúm EJínar síðan, en varast að neína hvað íaUegt er á Sölva- hamri. — ★ EJín sem segir frár hér að fra,m an, hét reyndar EJínborg og var Aradóttir, en maður hennar var Þorsteinn Hjálmarsen, sem var mesti þjóðhagi. Hann var sonur Hjálmarsens, hins merka prófasts í Hítardal, en Elínborg var ættuð af Skarðsströnd. Hún var heitin. 1 höfuðið á hinni göfugu konu, frú EJínborgu Magnúsen frá Skarði (siðan prestsfrú á Staðar- hrauni) og alin upp í skjóJi henn ar. — En eitt barnanna, sem eng- íllinn vakti yfir og huggaði nótt- ina eft.ir að faðir þeirra dó, var FiJippia, konan, sem ég minnist hér að nokkru. — Filippia ólst upp hjá móður sinni á Búðum á Snæfellsnesi, og giftist ung Ólafi Guðmundssyni formanni á Kvíabryggju við Grúndarfjörð. En þau örlög Jágu íyrir henni, eins og móður herm- ar, að missa mann sinn á miðj- um aldri frá ungum börnum. —. Ólafur heitinn var dugnaðar for- n:aður og eignaðist einn fyrsta vélbátinn við Grundarfjörð. Hann var talinn uppgangsmaður, sem mikill mannskaði þótti að, —* Á þeim árum voru hvorki fjöl- skyldu — eða ekkjubætur komn- ar í lög á íslandi. Fyrstu dánar- bætur sjómanna voru þá að vísu komnar í lög og fékk hver sjó- mannsekkja 100 kr. á ári í 4 ár eí maður hennar fórst af slysför- urr á sjó, og voru þessar 100 kr. sem svaraði hálfu barnsmeðlagi, sem þá var 200kr. á ári. — En Filippia gat ekki fengið þessar bætur, því að Ólafur maður hennar dó úr lungna.bólgu á sóttarsæng. Efni hennar voru ekki mikil þegar hún missti mann sinn, en henni tókst samt meg ráðdeild og dugnaði, að 'h&lda heimili sínu og koma börnunum á legg með aðstoð góðra skydmenna . Ég hefi notið vináttu frú Fil- ippiu úm áratug, og er því íær um að lýsa henni. Hún var óvenju gáfuð kona og gædd mikiUi göfgL Hún átti mikla fórnarlund og hjartahlýju svo að af bar. Hún gat gefið mikið, oft af litlum efn- um. Henni leið bezt þegar hús hennar var fulit af gestum. I dag verða jarðneskar leifar frú Filippiu lagðar til hvíldar í faðm fósturjarðarinnar. — Við bneigjum höfuð vor og biðjum Guð að bJessa minningu þessarar göfugu konu og þökkum honura fyrir lif hennar. Oscar Clausen Innilegt þakklæti færum við öllum þeim er sýndu okk ur velvild og vinarhug, og sendu okkur gjafir og heilla- óskir á gullbrúðkaupsdegi okkar hinn 9. júní. — Guð blessi ykkur öll. Kristin Theodora Pétursdóttir, Lúther Jónsson, Grenimel 20. Innilegt þakklæti færi ég öHum þeim, sem glöddu mig á áttræðisafmælinu mínu, með skeytum, blómum og öðrum gjöfum. — Guð blessi ykkur öll. Þórður Eiríksson. Lokað Sölubúðum, heildsöluafgreiðslum og skrifstofum félagsins verður lokað í dag kl. 2 e.h. vegna jarðarfarar. SLÁTURFÉLAG SUÐURLAND5 Faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS JÓNSSON andaðist 23. þessa mánaðar. Ólafur S. Magnússon, Gerda Magnússon og böm. Sólveig J. Magnúsdóttir, Guðm. Eyjólfsson og börn. Útför eiginkonu minnar VALGERÐAR PÁLSDÖTTLR frá Vík , Mýrdal, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. júní kl. 10:30 árdegis. — Blóm eru vinsamlegast afþökkuð. — Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Fyrir roína hönd og barnanna. . Sigurður Einarsson. Kveðjuathöfn um fóstuxmóður roina, tengdamóður og systur ÞÓRUNNIJÓNSDÓTTUR Lengju, Stykkishólmi, • fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. júní kl. 1,30 e.h. — Jarðsett verður frá Stykkishóimskirkju laug ardaginn 27. júní kl. 2 e.h. — Fyrir hönd vandamanna. Jóhanna Halldórsdóttir, Vigfús Vigfússon, Halldór Jónsson, Mel. Móðir mín SVANBORG KNUDSEN andaðist að Elli- og hjúkrunarheimiiinu Grund 22. þ.m. Vilmundína Lárusdóttir. Austin vörubíll (1947) til sölu. Ámesingafélagið í Reykjavík Jónsmessumót Árnesinga verður haldið að Félagslundi Gaulverjabæ, laugar daginn 27. júní nk. og hefst kl. 21,30. Meðal skemmti atriða verður ieikþáttur, söngkvartett o. fl. Að lok ' um mun RONDO-tríóið leika fyrir dansi. — Heiðursgestir mótsins munu verða frú Kristin Andrésdóttir og frú Bjarnveig Bjarnadóttir. BíJferð verður frá BSÍ kl. 17. Kvöldverður verður snæddur i Féiagslundi kl. 19 og eru væntanlegir þátt takendur að borðhaldiml vinsamlega beðnir að láta vita fyrir fimmtudagskvöld í sima 24737 og þar eru einnig nánari upplýsingar veittar. Árnesingafélagið i Reykjavik. Bezt ú auglýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.