Morgunblaðið - 31.07.1964, Side 22
22
MORGU N BLADIÐ
Föstudagur 31. júlí 1964
KJARTAN
VANN TUGÞRAUT
í FYRRAKVÖLD var haldið úl-
tökumót fvrir tugþrautarkappa
okkar og gekk mótið allvel.
Mesti árangur mótsins mun senni
lega vera kúluvarp Guðmundar
Hermannssonar 16,32 en hann
keppti sem gestur. Sem gestur
keppti einnig Jón Þ. Ólafsson í
hástökki og stökk 2 m.
í tugiþrautinni byrjuðu fjórir,
Valbjörn Þorláksson íslandsmet-
hafi, Björgvin Hólm, Kjartan
Guðjónsson og Ólafur Guðmunds
sin. f>eir þrír fyrst töldu eru í
ÍR en hinn síðastnefndi í KR.
Valbjörn og Björgvin hættu
keppninni eftir fyrri daginn enda
hafði hvorugum tekizt vel upp.
Kjartan Guðjónsson ÍR sigraði
með 5905 stigum. Til samanburð-
ar má geta þess að Örn Clausen
setti frægt met í tugþraut 6444
stig sem lengi stóð. Síðar var
stigatöflunni breytt og vteri af-
iek Arnar reiknað eftir núgild-
andi stigatöflu væri það 5651
stig. Er því Kjartan allmiklu
hærri en það fræga met.
Annar í þrautinni var Ólafur
Guðmundsson KR með 5295 stig
sem er nýtt drengjamet.
Afrek Kjartans voru 100 m
11.7, langst. 6,31 - kúluv. 14,32 -
i’.ástökk 1,95 - 400 m hl. 57.7.
Samtals fyrri dagur 3450. Síðan
16.0 í 110 m gr. hl„ 43,96 í kringlu
kasti, 3,15 á stöng, 55,65 í spjótk.
og 5.28.4 í 1500 m - samtals 5905
stig. Afrek Ólafs í sömu röð 11.2,
6.65, 10.63, 1.65, 51.3 og 3341 stig
eftir fyrri dag. Síðari dag 18.2,
33.29, 3.15, 33,68 og 4.26.3
Sem gestir kepptu einnig Þor-
steinn Löve í kringlukasti og
kastaði 47,90 og Þorsteinn Ai-
freðsson 46,80.
Keflavík vann
í GÆRKVÖLDI léku Keflvfk-
ingar við Þrótt í I. deildarkeppn
inni. Leikurinn fór fram á Laug
ardalsvellinum og lauk með sigri
Keflvíkinga senj skoruðu 2 mörk
gegn 1.
Eftir þennan sigur eru Kefl-
víkingar efstir í I. deildarkeppn-
inni með 10 stig að visu hafa
Akurnesingar jafnmörg stig en
lakara markahlutfall og Kefl-
víkingar hafa náð sinni stiga-
tölu í færri leikjum en Skaga-
menn. Sigurkin er i sjónfæri
Kefiví'kingá en KR getur gert
strik í rerkninginn.
Staðan er nú svo í I. deild eftir
leikinn í gærkvöldL
L U J T M S
Keflavík 7 4 2 1 16-10 10
Akranes 8 5 0 3 22-17 10
KR 6 4 0 2 12-8 8
Valur 9 3 2 4 18-17 8
Fram 8 2 2 4 15-18 6
Þróttur 8 12 5 10-21 4
Leikur liðanna í gær var all-
sögulegur því t.d. fengu Þórtt-
arar vítaspyrnu á Keflvíkinga en
mistókst að skora. Nánar verður
sagt frá leiknum síðar.
HSÞ fagnar 50
ára afmæli
HÉR slær Björn í Val knöttinn
frá marki Vals — og bjargar
marki. Valsmenn bíða og horfa á.
Framarar voru næsta nærgöngul-
ir er á leið.
FH vann Fram
Guðmundur Hermannsson, varð-
stjóri, varpar hér kúlunni 16,32
— og getur betur.
Húsavík, 7. júlí.
Á ÞESSU ári er Héraðssamband
Þingeyinga 50 ára og verður
þeirra tímamóta minnzt á ýmsan
hátt. Einn liður í þeim hátíða-
höldum var héraðs-íþróttamót,
sem haldið var sl. laugardag og
sunnudag.
Mótið setti Óskar Ágústsson,
formaður HSÞ, og gat þess að
þetta væri 41. héraðsmótið, sem
sambandið gengist fyrir x frjáls-
um íþróttum.
Mótstjóri var Stefán Kristjáns-
son, íþróttakennari, Reykjavík.
Helztu úrslit í einstökum grein-
um urðu þessi:
100 m hlaup. 1. Sigurður Frið-
riksson, E, 11,4 sek., 2. Jón Beno-
nýsson, E, 11,5, 3. Bergsveinn
Jónsson, B, 11,6.
400 m hlaup. 1. Bergsveinn
Jónsson, B, 57,5 sek., 2. Jón Beno-
nýsson, E, 58,4, 3. Halldór Sig-
urðsson, G, 59.0.
1500 m hlaup. 1. Ármann Ol-
geirsson, B, 4,44 mín., 2. Davíð
Herbertsson, B, 4,53, 3*. Hermann
Herbertsson, B, 4,57.
3000 m hlaup. 1. Davíð Herberts
son, B, 11,06,9 mín., 2. Ármann
Olgeirsson, B, 11,06,9, 3. Ilermann
Herbertsson, B, 11,08,1.
4x100 m boðhlaup. 1. Efling
48,9 sek., 2. Gaman og alvara
50,4 sek.
Langstökk. 1. Sigurður Frið-
riksson, E, 6,75 m, 2. Ófeigur
Baldursson, GA, 6,16, 3. Berg-
sveinn Jónsson, B, 6,01.
Þrístökk. 1. Sigurður Friðriks-
son. E, 14,01 m, 2. Bergsveinn
Jónsson, B, 12,85, 3. Ófeigur
Baldursson, GA, 12,78.
Hástökk. 1. Ófeigur Baldurs-
son, GA, 1,65 m, 2. Tryggvi Valde
marsson, EI, 1,60, 3. Páll Dag-
bjartsson. M, 1,60.
Stangarstökk. 1. Sigurður Frið-
riksson, E, 3,28 m, 2. Ófeigur j
Baldursson, GA, 3,28, 3. Ásgeir
Daníelsson, V, 2,81 (14 ára).
Kúluvarp. 1. Guðmundur Hall-
grímsson, G, 14,84 m, 2. Ásgrím- |
ur Geirsson. M, 10,05, 3. Örn Sig-
urðsson, GA, 9,91.
Kringlukast. 1. Guðmundur
Hallgrímsson, G, 39,47 m, 2. Páll
Dagbjartsson, M, 30,01, 3 .Har-
aldur Karlsson, E, 29,50.
Spjótkast. 1. Guðmundur Hall- 1
grímsson, G. 42,30 m, 2. Arngrím- 1
ur Geirsson, M, 40,59, 3. Kristján
Yngvason, M, 36,45.
KONUR:
100 m hlaup. 1. Lilja Sigurðar-
dóttir, E, 13,2 sek., 2. Þorbjörg
Aðalsteinsdóttir, G, 13,4, 3. Krist-
jana Friðriksdóttir, E, 13,8.
4x100 m boðhlaup. 1. Efling
57,8 sek., 2. Geisli 59,4, 3. Magni
61,0.
Langstökk. 1. Sigrún Sæmunds
dóttir, MA, 4,53 m, 2. Lilja Sig-
urðardóttir. E, 4,49, 3. Þórdís Jóns
dóttir, B, 4,29.
Hástökk. 1. Sigrún Sæmunds-
dóttir, MA, 1,36 m, 2. Lilja Sig-
urðardóttir, E, 1,30, 3. Hólmfríð-
FH og Fram háðu harða keppni
í handknattleiksmótinu í gær-
kvöldi og mátti lengi vel ekki
á milli sjá hvort félagið sigur
fengi.
Fram tókst að komast í 2—0
forystu og þótti ýmsum stuðn-
ingsmönnum liðsins sem leikur-
inn væri unninn, en svo fór að
FH vann 19—16.
En baráttan átti eftir að jafn-
ast og verða afar hörð þannig að
áhorfendur voru jafnvel staðnir
upp og hrópuðu og hrópuðu.
FH náði í fyrri hálfleik for-
ystu 11—6 en á það forskot sax-
aðist mjög í síðari hálfleik
þannig að eitt sinn munaði ekki
nema einu marki.
En hinir reyndú landsliðsmenn
FH sýindu hvað þeir geta ef á
reynir og áttu létt með að Ijúka
leiknum með hagstæðri stiga-
tölu fyrri FH.
ur Friðbjörnsdóttir, MA, 1,30.
Kúluvarp. 1. Helga Hallgríms-
dóttir. G, 9,08 m, 2. Hanna Stef-
ánsdóttir, V, 8,58, 3. Hólmfríður
Friðbjörnsdóttir, MA, 8,30.
Kringlukast. 1. Kristjana Jóns-
dóttir, V, 27,64 m, 2. Lilja Sigurð-
ardóttir, E, 25,04. 3. Hanna Stef-
ánsdóttir, V, 23,97.
Stig félaganna
1. Efling, Reykjadal, 57 Ya
2. Bjarmi, Fnjóskadal, 36
3. Geisli, Aðaldal, 29%
4. Gaman og alvara, Kinn, 19
5. Magni, Höfðahverfi, 17
6. Mývetningur, Mývatnssv. 15
7. Völsungur, Húsavík, 13
8. Einingin, Bárðardal, 4
Úrslitaleikur í héraðskeppni í
knattspyrnu fór þannig, að Völs-
ungar unnu Mývetninga með 3:2.
Ómar Ragnarsson, ÍR, keppti
sem gestur á mótinu og varð
fyrstur í 100 og 400 m hlaupi á
11,3 og 53,8 sek. — Einnig keppti
Marino Eggertsson úr Norður-
Þingeyjarsýslu sem gestur. Varð
hann fyrst1”- í 1500 og 3000 m
hlaupi.
Eldur hjá Slátur-
f élagi Suðurlands
Á TÓLFTA tímanum á miðviku-
dagskvöld kom upp eldur í húsi
Slátunfélags Suðurlands við
Skúlaigötu. Eldurinn mun hafa
kviknað vegna hita í reykklefa,
og komst hann í klefaveggina og
meðfram reyklháfi. Eldurinn
faafði verið slökktur á öðrum
tímanum aðfaranótt fimmtudags,
en hann gaus aftur upp um kl.
átta um morguninn. Varð að
rjúfa gat á þekjuna, til þess að
vinna á eldinum. Töluverðar
skemmdir urðu á húsinu.