Morgunblaðið - 14.08.1964, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 14. ágúst 1964
d
Sófasett
Svefnsófar — svefnbekkir.
— Klæði gömul húsgögn.
Bólstrun Ásgríms,
Bergstaðastræti 2.
^ Sími 16807.
1—2 herb. íbúð óskast
1. sept. eða fyrr í Reykja-
vik eða Kópavogi. Hús-
hjálp og barnagæzla kemur
til greina. Uppl. í síma
21194.
Óska eftir að komast að
sem hárgreiðslunemi. Uppl.
í síma 35620 eftir kl. 8 á
kvöldin.
Til sölu
■ ' mótatimbur 7/8x6 og 1x4.
Upplýsingar í síma 51060.
2ja til 3ja herb. íbúð
óskast til leigu í 5—6 mán-
uði, helzt í Vesturbænum
eða Seltjarnarnesi. Uppl. í
síma 12099.
Ryðbætum bíla
með plastefnum. Ársábyrgð
á vinnu og efni.
Sólplast hf
(bifreiðaöeild)
Dugguvog 16.
Mæðgur
Vantar 2ja—4ra herb. fbúð
1. okt. Nokkur fyrirfram-
greiðsla. Algjör reglusemi.
Gjörið svo vel, hringið í
sima 18474 eða 33200.
Sá, sem vill tryggja sér
góða 3ja herb. íbúð 1. okt.,
einnig 2ja herb. íbúð í
kjallara, sendi tilboð Mbl.,
merkt: „Barnlaust - 4329“.
Til sölu góð Grafopress
Upplýsingar í síma 18454.
Nýkomnar
danskar hannyrðavörur
Hannyrðaverzlun
Þuríðar Sigurjónsdóttur
Aðalstræti 12.
Tvíburakerra
óskast. Upplýsingar í síma
14948 milli 19—20 e. h.
Tapazt
hefir svart peningaveski
með peningum og ávísun í.
Finnandi vinsamlegast skili
því í lögreglustöðina.
Volkswagen
Vil kaupa Volkswagen árg.
1955-57. Uppl. í sima 35416
eftir kl. 8 í kvöld og annað
kvöld.
Tækifærisverð
Seljum næstu daga svefn-
stóla og tveggja manna
svefnsófa. Mikill afsláttur.
Valhúsgögn, Skólavörðu-
stíg 23. — Sími 23375.
Vanur bókhaldari
getur tekið að sér bókhald
fyrir lítið fyrirtæki. Tilboð
merkt: „Trúnaðarmál —
1953“ sendist afgr. Mbl.
fyrir 20. ágúst.
Gæsamamma gekk af stað
HONUM bera allir spámennirnir
vitni að sérhver, sem á hann trúir
fái fyrir hans nafn synda fyrirgefn-
ing (Post. 10, 43).
í dag er föstudagur 14. ágúst og er
það 227. dagur ársins 1964.
Eftir lifa 139 dagar. Árdegisháflæði
kl. 11:01. Síðdegisháflæði kl. 23:22.
Bilanatilkynningar Rafmagns-
veitu tteykjavikur. Sími 24361
Vakt ailan sólarhringinn.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki vikuna 20.—27. júni.
Slysavarðstofan i Heiisuvernd-
arstöðinni. — Opin allan sólir-
hringinn — simi 2-12-30.
Næturvörður er í Vesturbæjar-
apóteki vikuna 8.—15. ágúst.
Neyðarlæknir — simi; 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9:15-8 taugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga fra kL
1-4 e.h. SimJ 40101.
Nætur- cg helgidagavarzla
lækna i Hafnarfirði. Nætur-
varzla aðfaranótt 12. þm. Jósef
Ólafsson s. 51820. Aðfaranótt 13.
þm. Kristján Jóhannesson s.
50056. Aðfaranótt 14. þm. Ólafur
Einarsson s. 50952. Aðfaranótt 15.
Eiríkur Björnsson s. 50235. Helgi
varzla laugardag til mánudags-
morguns 15.—17. þm. Bragi Guð-
mundsson s. 50523.
Holtsapótek, Garðsapótok og
Apótek Keflavikur eru opin alla
virka daga kl. 9-7, nema laugar-
daga frá kl. 9-4 o~ helgidaga
frá kl. 1-4. e.h.
Orð tifsins svara t sima 1000%.
Málshœftir
Ekki skal lengi lítils biðja.
Enginn gerir svo öllum líki,
og ekki Guð í himnariki.
Engum vægir vargurinn.
Frá Nesprestakalli
Safnaðarfélög Nessóknar hér í
borg efna til sinnar árlegu kirkju
og skemmtiferðar n.k. sunnudag
16. ágúst. Að þessu sinni verður
ferðast bæði á sjó og landi. Héð-
an verður farið með M/s Akra-
borg til Akraness og þar gengið
til kirkju. Séra Frank M. Hall-
dórsson predikar en séra Jón
Thorarensen þjónar fyrir altari.
Að lokinni guðsþjónustu verður
ekið um Borgarfjarðarhérað. Ætl
ast er til að ferðafólkið hafi með
sér nesti og neyti þess í fögru
umhverfi þar efra.
Til Akraness verður komið aft-
ur um kvöldverðarleytið og
kvöldverður snæddur á Hótel
Akranes.
Eftir kvöldverð verður siglt
heim með Akraborginni aftur.
Öllu safnaðarfólki er heimilt að
hafa með sér gesti. Ferðakostn-
aði er í hóf stillt.
Á s.l. sumri fóru safnaðarfélög-
in slíka ferð að Skálholti og var
þátttaka þá mjöig mikiL Er því
safnaðarfólki ráðlagt að tryggja
sér far í tíma.
Allar upplýsingar um þessa
ferð eru gefnar í síma 16783. Sjá
nánar í auglýsingum.
Gæsamamma gekk af stað með gæsabömin smáu, mætti svo sann-
arlega kalia þessa mynd, sem Sveinn Þórmóðsson tók við Tjömina
einn góðveðursdaginn á dögunum. Myndin þarfnast raunar engra
skýringa, en það mætti máski í lokin minna fólk á að muna
eftir því, að endur, gæsir og álftir á Tjöminni eru þakklátar fyrir
hvem brauðmola, sem gott fólk færir þeim.
sá N/EST bezti
Björn Schram á Höfðastiönd var greindur maður og góður hag-
yrðingur.
Einu sinni var hann samnátta manni sunnan úr Skagafjarðar-
dölum, sem þottist ská:d mikið og lét Björn heyra mikið af visum
og kvæðum eftir sig.
Bjöm fann, að skáldsk&pui hans var leirburður hinn mesti, og
hafði þessi orð um kveðskap hans:
„Hann er líkastur því, að njaður skrúfi áfram hjólbörur með
ferköntuðu hjóli".
...............................................
GAMALT og GOTT |
Jón Jónsson frá Gilsbakka í =
Skagafirði kvað um Símon Dala- S
skáld: =
Tekið á móti
tilkynningum
í DAGBÓKINA
trá kl. 10-12 f.h.
Hneyksli og synd í heimsins
giaum
hygg ég Símon efli.
Fyrir lífsins flökkustraum
flýtur hann eins og kefli.
Vinstra hornið
Farðu ekki á uppboð, ef þú ert
auralaus.
Spakmœli dagsins
Ófarir flestra má rekja til
einhverra tómstunda.
G. S. Hillard.
Öfugmœlavísa
Skatan á að skrýða prest,
skrifað er það í bókum,
kmmmi oft í krónum sést,
kálfurinn á við stýrið bezt.
3 MARGT merkilegt er að sjá
3 í Mývatnssveit, en Dimmu-
M borgir taka öllu öðru fram.
S Þær eru eitt af náttúruundr-
S um íslands. Þetta eru djúpar
H hrauntraðir, sem víxlast og
S greinast allavega, svo að þær
= eru engu líkari en Völundar-
jí húsi. Milli þeirra eru háir
= hraunklettar og koma fram í
f§ þeim óteljandi furðumyndir.
E Víða eru göt í gegnum þessa
H kletta og gera þá einkenni-
= legri. Þarna eru drangar og
H strípar, djúpar gjótur og kyn
S legir heliar. En á milli klett-
3 anna, fram og aftur og sitt á
S hvað, eru vandrötuð göng og
3 sums staðar einstig á milli
= þeirra. Þar eru og jarðföll,
s grasi og kjarri gróin, en sums
= staðar er ægisandur. •.—
s Skemimst er i Dimmuborgir
S frá Geiteyrarströnd og er nú
S komirm bílvegur upp að þeim,
= en um borgirnar sjálfar verða
j| menn að fara fótgangandi. En
= þar er villugjarnt mjög. Menn
p þykjast halda nokkurn veg-
S inn beinni stefnu eftir göngun
um, en skyndilega eru þeir 3
komnir á slóð sína aftur, hafa =
villzt og gengið í kringum =
einhverja hrauneyna, án þess =
að taka eftir því. En verra er s
þó að villast þannig að ganga =
lengra og lengra inn í Völ- 3
undanhúsið og vita ekki hvert 3
menn eru að fara. Slíkt gebur =
komið fyrir í þoku. Og enginn 3
er öfundsverður af því að vera =
þar á ferð i náttmyrkri að =
haustlagi, því að hann mun 3
fljótt verða áttavilltur og likt 3
og bergnuminn. Er því ráð- jf
legast fyrir ókunnuga að hafa 3
kunnugan leiðsögumann með =
sér í Dimmuborgir, enda er 3
það framandi mönnum ofætl- =j
un að finná af sjálfdáðum þá S
staði í borgunum sem ein- 3
kennilegastir eru og mest 3
gaman er að skoða.
ÞEKKIRÐU |
L/VNDIÐ 1
=a
ÞITT? I
FRÉTTIR
Kvenfélag Langholtssóknar fer
skemmti- og berjarferð þriðjudaginn
10. ágúst í Þjórsárdal. Upplýsingar í
símum 35853, 3439° og 34095. Þátttaka
tilkynnist fyrir sunnudagskvöld.
80 ára er í dag frú Halldóra
Sigurðardóttir frá Siglufirði Aust
urbrún 4. Reykjavík. Hún dveist
í dag á heimili dóttur sinnar
Rauðalæk 40.
80 ára er í 'dag, Rannveig Páls
dóttir, Miðhúsum . Sandgerði.
Rannveig dvelst í dag á heimili
sonar síns Drápuhlíð 15.
70 ára er í dag frú Jóhanna
Einarsdóttir, Baldursgötu 23.
Hún er að heiman í dag.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Valgerður Kristjóns-
dóttir, Reynimel 23, og Björn
Theodórsson,
Réykjavík.
VÍSIiKORN
Léttan anda, ef iífið á
í lukkustandi er sálin.
Fyrir handan fjöllin blá
fyrnast vandamáJin.
S. S.