Morgunblaðið - 20.10.1964, Page 5
5
Þriðjudagur 20. okt. 1964
MORGU NBLAÐIÐ
Svona má ekki leggja
Á miðri Hverfisgötunni á umferðartíma lagði einn bílstjórinn bílnum sinum svona. Sveinn Þormóðs-
*on tók þessa mynd um daginn. Eins og allir vita, er Hverfisgatan ein mesta umferðaræð borgar-
innar, og er það furðulegt, að menn skuli gera annað eins og þetta. Svona menn eiga ekki að
hafa ökuskirtein;, nema að læra upp á nýtt allt um bifreiðastöður og þá ekki síður um háttvísi í
umferð. Svona má alls ekki leggja bíl, þótt ekki sé á Hveríisgötunni.
Hjálprœðisherinn
Samkomur fyrir unga og eldri
á Hjálpræðishernum.
Kl. 6 e.h. á hverjum degi í þess-
ari viku eru bamasamkomur á
Hjáilpræðishernum . Brigader
Rudoif Rompren frá Noregi sýn-
ir litskuggamyndir og kvikmynd-
ir. Hann syngur einnig og leikur
á hljóðfæri. Margir, bæði ungir
og eldri notuðu tækifærið til að
hlusta á Romoren á sunnudaginn,
svo salurinn var fullsetinn mörg
um sinnum þann dag. Örugglega
koma mörg börn á Heriun í
kvöld og á samkomurnar sem
eftir eru í vikunni. Efnisskráin
verður fjölbreytt. í kvöld kl. 8.30
er æskulýðssamkóma og mikill
söngur og hljóðfæraleikur.
Brigader Rompren, Auður Eir
Vilhjálmsdóttir cand. theol. og
fleiri taka þátt. Fimmtudag kl.
S.30 er söng og hljómleikasam-
koma. Brigader Romdren, Deild-
arstjórinn majór Driveklepp o.
fl.
Á ferð og flugi
Akranesferðir með sérleyfisbílum
P. Þ. Þ. Afgreiðsla hjá B.S.R. Frá 1
Reykjavík alla virka daga kl. 6 Frá
Akranesi kl. 8, nema á laugardögum
farið frá Akranesi kl. 8 og kl. 2 frá
Reykjavík kl. 2 og kl. 6 Á sunnudög-
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Sólfaxi fer til Glasgow og Kaupmarkna
hafnar kl. 08:00 í dag. Vélin er væntan
Xeg aftur til Rvíkur kl. 23:00 í kvöld.
Sólfaxi fer til Glasgow og Kaupmanna
hafnar kl. 08:00 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), ísa-
fjarðar, Vestmannaeyja, Egilsstaða,
Sauðárkróks og Húsavíkur. Á morgun
er áætlað að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), íseifjarðar, Vestmannaeyja,
Kópaskers og Þórshafnar.
Bimskipafélag Reykjavíkur H.f.:
Katla kom tii Rvíkur í gærkvöldi frá
Spáni. Asikja fór frá Kaupmannahöfn
».l. laugardagskvöld áleiðis til Rvíkur.
H.f. Jöklar: Drangajökull fór 13. l>m.
frá Sommerside til Grimsby og Great
Yarmouth. Hofsjökull kom í nótt til
Gautaborgar og fer þaðan til Len-
ingrad, Helsingfors og Hamborgar.
Langjökull fór frá Hamborg 17. þm.
til Rvíkur. Vatnajökull kom í gær-
morgun til Relfast og fer þaðan til
Liverpool, Cork, London og Rotter-
dam.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell er á
Akureyri. Jökulfell fór 1 gær frá
Reyðarfirði til London og Rotterdam.
Disarfell er á Blönduósi, fer þaðan
til Breiðafjarðarhaí la og Rvíkur.
Litlafell er væntanlegt til Hafnarfjarð
ar á morgun. Helgafell fór 18. frá
Seyðisfirði til Helsingfors, Aabo og
Vasa. Hamrafell fór 14. frá Aruba til
íslands. Stapafell fór í gær frá Rvík
til Austfjarða. Mælifell fór 10. frá
Archangelsk til Marseilles.
Þú rœður hvort
þú trúir því
Niels Pálsson í Uppsalaborg í
Svíþjóð, sem dó á'rið 1907 og var
þá 160 ára að aldri, lét eftir sig
tvo syni, annan 9 ára en hinn
103 ára!
GAIVIALT oc goti
Það er svo margt í þokunni býr,
ég þori ei einn að ríða,
misjöfn dýr
mörg um skóginn skríða.
Málshœttir
Löngum hlær lítið vit.
Lýist fiskur er lengi er barinn.
>f Gengið >f
Gengið 29. september 1964
Kawp Sala
1 Enskt pund .... 119,64 119,94
1 Banoarik.iadollar _ 42 95 43.06
1 Kanadadollar ....... 39,91 40,02
100 Austurr.. sch. 166.46 166,83
100 Danskar krónur .. 620,20 621,80
100 Norskar krönur 600,30 601.84
100 Sænskar krónur ... 384.52 836.67
100 Finnsk mork..» 1.335.72 1.339.14
100 Fr franki ____ 874.08 876.32
100 Svissn. frankar .. 992.95 995.50.
1000 ítalsk. lí^’ir ... 68.80 68.98
100 Gyllini ... 1.191.40 1.194.46
100 V-þýzk mörk 1.080,86 * .083 62
100 B*Jg. frankar .... 86.34 86,56
Þriðjudagsskrítla
Tveir meðlimir í „alþýðulög-
reglunni“ stóðu vörð við Berlín-
armúrinn.
— Hvernig lízt þér á ástandið
í Austur-Þýzkalandi, spur'ði ann
ar.
— Mér lízt á það eins og þér,
svaraði hinn varfærnislega.
— >á verð ég víst, því miður,
að taka þig fastan.
Við aliarið
eftir
Sigfús EBíasson
SIGFÚS ELÍASSON hefur nýlega gefið út ljóðaflokk: VIÐ
ALTAR.IÐ í tilefni af fundi Lútherska heimssambandsins í Reykja-
vík. Flokkurinn er í 6 hlutum í 6. flokknum er þetta erindi:
Hann biitist oss í bjarma dags,
í bláma skyggndra ósa,
í seiði fagurs solarlags,
í sálum hvítra rósa,
í barnsins auga-hjarta hljótt
það helgast marga vetrarnótt
í nálægð Norðurljósa. —
s«* NÆST bezti
Gunnar bóndi í Seljatungu er mikill Sjálfstæðismaður, svo sem
ýmsir kannast við. Eitt siiin fyrir nokkrum árum brá hann þó á
það rá’ð að sækja árshátíð framsóknarmanna í Árnessýslu. Er ekki
af því útaf fyrir sig frekar aö segja nema hvað þarna var meðal
annara rétttrúaðra framsoknarmsnna Eyþór Einarsson nú bóndi í
Kaldaðarnesi, en þeir eru kurmingjar góðir, Gunnar og hann.
Mörgum þótti nýstárlegt að sjá Gunnar í þessum hóp og Eyþór,
sem er maður vígreifut og oft orðheppin víkur sér að Gunnari og
segir: „Jæja hvernig kanntu nú við þig í vorum hóp kunningi".
Gunnar svarar, áð heldur virðist sér nú andrúmsloftið þúngt. Þá
segir Eyþór: „Það er ekkert að marka það, svona ku það alltaf
vera fyrst, þegar menn koma í himnaríki“.
Tek að mér
dúklagningar og allt sem
að því lítur.
Ólafur Ingimundarson,
veggfóðrarameistari.
Sími 51895.
Silfurplast
einangrun í öllum þykkt-
um, til á lager.
Þakpappaverksmiðjan
Silfurtúni. - Sími 50001.
íbúð
Hjón með stálpaðan dreng
óska etfir 2—3 herb. íbúð.
Sími 20974, eftir kl. 5.
íbúð til leigu
4ra herb. íbúð til leigu í
Kópavogi. Þeir sem áhuga
hefðu á þessu, sendi nöfn
sín í lokuðu umslagi til
Mbl., fyrir 25. okt., merkt:
„Goð íbuð—9109.
Ung stúlka
óskar eftir vellaunuðu
skrifstofustarfi. Tilboð
merkt: „Stundvís—9110.
Tveir páfagaukar
og búr til sölu. Upplýsing
ar í síma 10134.
Takið eftir!
Mjög fallegar og sérkenni
legar kápur til sölu; einn-
ig fermingarkápa og grá
tweed dragt með skinn-
kraga, ódýr. Upplýsingar í
síma 51711.
Herbergi til leigu
fyrir reglusama stúlku,
gegn húshjálp tvisvar í
viku. Uppl. á Laugarás-
vegi 64.
Prjóna
„model“-kjóla.
Astrid Ellingsen
Dunhaga 21
Sími 12774
Valhúsgögn
Svefnbekkir, svefnstólar,
svefnsófar, sófasett. Munið
5 ára ábyrgðina.
Valhúsgögn
Skólavörðust. 23. S. 23375.
Bókhaldsskrifstofan
(Ó. H. Matthiasson)
Sími 36744
Tökum að okkur bókhald
fyrir stærri og smærri fyrir
tæki.
Hárgreiðslustofan Venus
Grundarstíg 2 A. Lagning-
ar, permanent, litamr, hár-
skol, við allra hæfi. Gjörið
svo vel að ganga inn eða
panta í síma 2177L
Kópavogur
1—2 herbergi og eldhús
óskast til leigu. Uppl. 1
síma 11974 eftir kl. 6.
Ævisaga
' Helen Keller fæst 1 öllum
bókabúðum og í skrifstofu
félagsins. Ingólfsstræti 16.
Blindravinafélag
íslands.
Permanent litanir
geislapermanent, — gufu-
permanent og kalt perma-
nent. Hárlitun og hárlýsing
Hárgreiðslustofan PERLA
Vitastíg 18A - Sími 14146
4—5 herb. íbúð óskast
til leigu. Uppl. í síma 10883
eða 20172.
Nýinnréttuð 4ra herb.
kjallaraíbúð, ásamt bílskúr
til sölu, milliliðalaust. Laus
strax. Tilboð sendist Mbl.
fyrir fimmtudagskvöld,
merkt: „55—9107“.
Stýrishjól
af Chevrolet, árg. 52 eða
47, óskast til kaups. Sími
37642.
Ráðskona óskast
Sér íbúð, góð kjör. Upplýs
ingar í síma 24366, og eftir
kl. 1830 í síma 10135.
Gardínuefni
(Rayon),
Sterk, fjölbreytt litaval, —
Ódýr.
Haraldur Sveinbjarnarson
Snorrabraut 22.
Sniðkennsla
Næsta kvöldnámskeið í
kjólasniði hefst mánud.
26. október.
Sigrún Á. Sigurðardóttir,
Drápuhlíð 48 Sími 19178.
Útvarpsvirkjun
Ungur maður 17—20 ára,
getur fengið vinnu við út-
varpsvirkjun strax. Náms-
samningur kemur til
greina. Uppl. í síma 23220,
eftir kl. 6.
Frímerki
Allstórt frímerkjasafn til
sölu, elzt 1873. Væntanleg
ir kaupendur sendi nöfn og
símanúmer til Mbl. . fyrir
25. þ. m., merkt: 1873 —-
9100“.
íslenzk frímerki
Mikið af fágætum íslenzk-
xxm frímerkjum fyrirliggj-
andi. Ennfremur frímerkja
album af ýmsum stærðum
og fleira.
Frímerkjasalan,
Njálsgötu 23.
Ráðskona
Ráðskona óskast til að sjá um heimili fyrir
2 karlmenn. — Upplýsingar í síma 50782.
____________________________
íbúð óskast
2—4 herb. íbúð óskast.
Upplýsingar í síma 35365.