Morgunblaðið - 20.10.1964, Síða 16

Morgunblaðið - 20.10.1964, Síða 16
16 MORCUNB LAÐIÐ Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Ú tbreiðslus t j óri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. OTRAUST VIÐSKIPTI Oér í blaðinu var sl. sunnu- dag birt grein um kapp það, sem Rússar leggja á að stórauka flota sinn, ekki sízt fiskiskipaflotann, sem þegar er orðinn geysimikill eins og kunnugt er, enda áætlað að Rússar eyði árlega hvorki meira né minna en sem svar- ar 13 þúsund milljónum ís- lenzkra króna í fiskveiðar og fiskveiðiiðnað sinn. Rússar nota allar tegundir veiðiskipa og eru við fiskveið- ar á öllum höfum heimsins. Þeir smíða nú fjölda fullkom- inna togara, síldveiðiskipa og stórra móðurskipa, sem bera allt að 35 þúsund lestir og geta verið meira en 6 mánuði á opnu hafi. Þar eiga að vera fiskvinnslustöðvar, sem geta dagléga framleitt 300 tonn af frystum fiski o.s.frv. Þessi tíðindi hljóta að vekja mikla athygli hér á landi, því að stundum hefur því verið haldið fram, að markaðir fyr- ir fiskafurðir væru öruggir í Rússlandi og öðrum komm- únistaríkjum. Sannleikurinn er sá, að það er mjög langt -írá því að þessir markaðir séu öruggir í dag og ennþá ólík- legra að þeir verði það á næstu árum. Árið 1961 fluttu Rússar út fimm sinnum meira af fiski og fiskafurðum en þeir fluttu inn. Þeir keyptu þá fiskaf- urðir fyrir aðeins 8,4 millj. dollara, en á sama tíma fluttu Bandaríkin inn fisk fyrir nærri 400 millj. dollara. ís- lendingar voru þá megininn- flytjandi fisks til Sovétríkj- anna, og eru raunar enn lang stærstir, því að Rússar flytja inn sáralítið af fiskafurðum miðað við það gífurlega magn, sem þeir veiða sjálfir. Auðvitað er engin ástæða til að ásaka Rússa fyrir það að þeir haga viðskiptum sín- um á þann hátt, sem þeim sjálfum er hagkvæmast. Þess vegna er líka skiljanlegt, hve erfiðlega hefur oft gengið að selja fisk til Ráðstjórnarríkj- anna, og þess vegna virðist líka fyllsta ástæða til að ætia, að enn erfiðara verði að selja afurðir þangað í framtíðinni, því að auðvitað segir hin gíf- oirlega aukning fiskiskipa- flota þeirra á öllum heimsins höfum til sín. í nefndri grein er að því vik ið, að fiskveiðar Bandaríkja- manna hafi dregizt saman. Af því leiðir að sjálfsögðu að innflutningur til Bandaríkj- anna fer vaxandi, enda hefur sala þangað gengið vel að undanförnu. Sömuleiðis er ástæða til að ætla, að við getum aukið útflutning fisks og fiskafurða til Vestur-Ev- rópu og raunar á aðra mark- aði. Engin ástæða er þess vegna til svartsýni fyrir íslendinga, þótt Rússlandsmarkaðurinn dragist saman eða ógerlegt verði að selja fisk til Ráð- stjórnarríkjanna, sem eru sjálf miklu meiri fiskútflytj- andi en fiskinnflytjandi nú þegar, þótt auðvitað sé ekki nema að einhverju leyti um sömu tegundir fiskafurða að ræða. Hitt segir sig sjálft, að kapp verður að leggja á markaðs- öflun og auka sölu sem mest má verða á frjálsum mörk- uðum, því að ekki er hægt til langframa að treysta því, að Rússar kaupi fiskafurðir af okkur af pólitískum ástæðum, fremur en af öðrum. Sem betur fer er líka mik- ið og gott starf unnið af ís- lenzkum fiskútflytjendum til þess að afla öruggra markaða, og hafa samtök fiskframleið- enda þegar unnið stórvirki á því sviði, eins t.d. sá mikli markaður, sem Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur unn- ið í Bandaríkjunum, er ljóst vitni um. FÉLAGl BREZHNEV að var Leonid Brezhnev, sá sem nú er mestur ráða- maður í Kreml, sem átti við- ræðurnar við félaga Einar Olgeirsson og hina „félag- ana“ héðan frá íslandi fyrir skemmstu. Félagi Einar sagði, að hann hefði lofað að kaupa niðurlagða síld fyrir einar 100 millj. kr. Síðan hafa íslenzk stjórnarvöld gengið hart eftir því að koma slíkum samning- um á, en erfiðlega hefur geng ið að fá viðhlítandi svör. En það er svo sem engin furða, þó að félagi Brezhnev hafi haft lítinn tíma til að hugsa um félaga Einar Ol- geirsson og erfiðleika ís- lenzkra sjávarþorpa í atvinnu málum. Hann hefur vissulega haft öðrum hnöppum að hneppa síðustu vikurnar. Félagi Brezhnev var sá, sem menn töldu að Krúsjeff vildi gera að eftirmanni sínum, en Brezhnev leiddist biðin og tók til við að grafa undan Krúsjeff, er hann var f jarver- andi frá Moskvu og árangur þeirrar iðju er nú kominn í ljós. Honum var vorkunn, þótt hann gleymdi síldarsölu- Þriðjúáagur 20. okt. 1964 = Wilson og kona bans koma úr kosningaferðalagi. = |Mary Wilson leiðist að fiytja úrj jlitla raðhúsinu fyrir utan London] 1| AÐ kvöldi sl. föstudags H flutti hinn nýi forsætisráð- | herra Bretlands, Harold H Wilson, ásamt fjölskyldu S sinni í forsætisráðherrabú- S staðinn við Downing s Street. En vinir fjölskyld- | unnar segja, að einn með- | limur hennar, að minnsta H kosti, sé dapur vegna bú- g staðaskiptanna. Það er H eiginkona forsætisráðherr- S ans, Mary Wilson. Þegar H sigur Verkamannaflokks- H ins í kosningunum var vís 3 á fimmtudaginn, sagði hún: „Ég er svo þreytt. Það verð ur ekki skemmtiiegt að yf- irgefa húsið og garðinn“. Frú Wilson stóð við hlið manns síns í kosningabarátt- unni og ferðaðist með honum þúsundir kílómetra á mánuð- unum fyrir kosningarnar. Frú Mary Wilson er prests- dóttir. Hún er mjög hlédræg og yfirlætislaus kona, sem kunni mjög vel við sig í litla raðhúsinu í Hampstead Gard en, þar sem fjölskyldan bjó. Hjónin tóku lán til þess að kaupa húsið og verður greiðsl um ekki lokið fyrr en eftir tíu ár. Kona Wilsons er dæmi- gerð húsmóðir. Hún hefur sjálf annazt uppeldi tveggja 3 sona þeirra hjóna, hugsað um 3 heimilið og garðinn og beðið § eftir manni sínum með mat- 3 inn þegar hann kom heim. 3 Lítið var um veizluhöld í 3 húsi þeirra. Bæði er húsbónd- 3 anum lítið um þær gefið og 3 svo vinnur hann oft 16 klukku 3 stundir á sólarhring. En nú ræður frú Wilson 3 ríkjum í Dawning Street 10, 3 þar sem þjónar ganga um 3 beina og íburður samsvarar 3 hinu háa embætti manns 3 hennar. Hún er gáfuð og 3 skyldurækin kona og enginn 3 vafi leikur á því, að hún mun 3 gegna hinu nýja hlutverki 3 sínu með sóma. íuiiiiiiiiiiiiKitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiitttiriiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiniiiimiiiiiiuiiiiiiiiuiita samningunum svona rétt á meðan. ALÞÝÐU- SAMBANDSÞING 17'osningum til Alþýðusam- bandsþings er nú lokið. Þær hafa ekki verið eins rammpólitískar og oft áður, þótt hörð barátta hafi verið í einstökum félögum. Og ekki er á þessu stigi vitað, hvort pólitísk átök muni blossa upp á Alþýðusambandsþingi eins og svo oft hefur hent áður. Hér í blaðinu hefur marg- sinnis verið bent á þá póli- tísku misnotkun, sem komm- únistar hafa gert sig seka um í verkalýðshreyfingunni. Þeir hafa yfirleitt ekki hugs- að um hag meðlimanna held- ur einbeitt orkunni að því að nota samtökin til pólitísks framdráttar. Innan verkalýðshreyfingar- innar sjá menn nú betur og betur, að það er henni ekki í hag að slík vinnubrögð séu látin viðgangast áratugum saman og einmitt þess vegna hefur mikið dregið úr hinum pólitísku átökum. Að sjálfsögðu eiga verka- lýðsfélögin fyrst og fremst að gæta hagsmuna félagsmanna og reyna að haga aðgerðum þannig að þjóðarheildinni sé til heilla, enda eru flestir landsmenn launþegar í einni eða annarri mynd. Vonandi verður næsta Al- þýðusambandsþing með meiri menningarbrag en stundum áður, þegar pólitísk átök hafa yfirgnæft heilbrigðar umræð- ur og ályktanir, sem miðuðu að því að finna heilladrjúga lausn þeirra vandamála, sem við hefur verið að glíma I hveri u sinnL Russor smíða rlso-eldflaug HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum, nákomnura Bandaríkjastjórn, að henni berist fleiri sannanir fyrir því, að Sovétmenn vinni nú að smíði risa-eldflaugar, sem nota eigi til tunglferða. Fylgir fregn þessari, að ekkert sé vitaff um ytri gerð eldflaugar- innar né hvenær hún niunl reynd. Á hinn bóginn hafi nýaf- staðin ferð geimfaranna þriggja í „Voskhod“ fært bandariskum vísindamönnum heim sanninn um, að Rússar leggi alit kapp á að verða fvrstir til að lenda á tunglinu. Fórust í skriðföltum. Istanbul, 14. okt AP. • Þrettán konur fórust og fjórar særðust hætbulega í gær, er þær urðu undir skriðu fölluim í Ahatöliu. Hefur geng ið þar á með sbórrignimguni aíðlustu d,aipíina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.