Morgunblaðið - 20.10.1964, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 20.10.1964, Qupperneq 23
Þriðjudagur 20. okt. 1964 MORCUNBLAÐIÐ 22 — Brezhnev Framh. af bls. 1 myndu vinna ötullega að frið- samlegri sambúð þjóðanna, al- gerri afvopnun og samvinnu og vináttu landa í milli. 1 „Við skulum fagna ykkur í Moskvu og sýna ykkur allan þann sóma, sem þið eigið skil- ið“, sagði Krúsjeff á mánudaginn var, er hann talaði við sovézku geimfarana þrjá, Vladimir Koma rov, Konstantin Feoktistov og Boris Yegorov og óskaði þeim til hamingju með ferðina. I»að loforð Krúsjeffs var og efnt, þó ekki stæði hann að því sjálfur, og kæmi hvergi nærri hátíða- höldunum. Ekki var heldur minnzt á hann einu orði í ræð- um þeim, sem þar voru fluttar. Geimfararnir komu í morgun flugleiðis til Moskvu og tóku á *nóti þeim á flugvellinum Leonid Brezhnev, Kosygin og Mikoyan. Heilsuðust menn með faðmlög- um og kossum að gömlum og góðum sið, Brezhnev fyrstur en eíðan hinir á eftir. Áður var það alltaf í verkahring Krúsjeffs, að taka á móti geimförum Sovét- ríkjanna, er þeir komu til höf- uðborgarinnar. ) - Frá flugvellinum var haldið inn í borgina eftir Leninsky- breiðgötunni, sem nýlokið var við að prýða myndum hinna nýju leiðtoga Sovétríkjanna og til Kreml. Fjöldi fólks fagnaði geimförunum og þjóðarleiðtog- unum á leiðinni til Kreml og er á Rauða torgið kom var þar fyr- ir múgur og margmenni, yfir 50 þúsund manns að því er mönn- um taldist tiL I * Á Rauða torginu fóru svo fram hátíðahöld til heiðurs geimför- unum þrem og voru þau með svipuðu sniði og verið hefur síð an Yuri Gagarin var fyrst fagnað á Rauða torginu 1961. Þar á- varpaði Brezhnev geimfarana, hélt þeim 20 mínútna ræðu og kom víða við. Þá skýrðu geim- fararnir frá ferðum sínum og héldu einnig ræður og síðan fór fram orðuafhending og hlutu geimfararnir Lenin-orðuna og sæmdarheitið „Hetja Sovétríkj- anna“, að því er sovézka frétta- stofan Tass hermir. Var það Mik oyan, sem sæmdi geimfarana orð um þeirra. Þá hefur geimförun um einnig verið veitt sæmdar- heitið „Flugmenn og geimfarar Sovétríkjanna". RÆÐA BREZHNEVS. 1 ræðu þeirri, er Brerhnev flulti af tröppum Leninminnis- merkisins á Rauða torginu í Moskvu í dag, er hann fagnaði sovézku geimförunum úr „Vos- hkod“, sagði hann m.a., að ut- anríkisstefna Sovétríkjanna yrði óbreytt frá því sem verið hefði og gaf í skyn, að reynt yrði að bæta samkomulagið við Kina. Þetta var fyrsta ræða Brezhnevs siðan hann tók við embætti að- alritara kommúnistaflokksins af Krúsjeff sl. fimmtudag og fyrsta skiptið, sem hann kemur fram opinberlega í embætti. Fullviasaði Brezhnev áheyr- endur sína á Rauða torginu og allan heiminn um, að stefna Sov étríkjanna í utanríkis- og innan- ríkismálum yrði í öllum aðalat- riðum eins og hún hefði verið síðan 1956. Hornstein utanríkis- Stefnu Sovétríkjanna kvað Brezh nev vera kenninguna um frið- samlega sambúð ríkja og sagði að Sovétríkin myndu ekki láta af viðleitni sinni til þess að varðveita friðinn í heiminum, stuðla að samvinnu og vináttu landa í milli og draga úr spennu í alþjóðamálum. Bætti Brezhnev því við, að þetta væfl hið eina vituriega eins og á stæði. „Ef 6tjórnir allra landa vinna að því af einhug, að friður ríki í heim- inum og ef tillit er tekið til rétt ar allra þjóða til þess að ráða Sjálfar málum sínum, hvort held i hlut eiga stórveldi eða smá þjóðir, þá er friðurinn tryggður ©g framfarirnar með“, sagði Brezhnev. Brezhnev nefndi ekki Kína á nafn í ræðu sinni en kvað sov- ézka kommúnistaflokkinn myndu gera sitt ítrasta til þess að sigr ast á erfiðleikum þeim, sem á- sæktu alheimshreyfingu komm- únismans, styrkja einingu flokk anna og samvinnu þeirra á grundvelli jafnréttis, með fullu tilliti til kenninga Marx og Len ins, hins alþjóðlega eðlis ör- eiganna og ályktana þeirra, sem samþykktar voru á heimsþing- um kommúnista 1957 og 1960. Þá drap Brekhnev á ráðstefnu allra kommúnistaflokka heims, (sem Krúsjeff átti uppástung- una að) og sagði að Sovétríkin væru því mjög fylgjandi, að af henni yrði, það gæti stuðlað að lausn ýmissa vandamála. Brezh- nev sagði ennfremur, að Sov- étríkin teldu það skyldu sína að styðja réttláta baráttu þjóðanna gegn heimsveldisstefnu, nýlendu stefnu og áþekkum stefnum og styðja þær í frelsisbaráttu þeirra og starfi fyrir friði, lýðræði, sjálf stæði og sósíalisma. Einnig vildi Brezhnev stöðva vígbúnaðar- kapphlaupið og mælti með al- gerri afvopnun, svo þjóðirnar slyppu við hinn þunga bagga, sem útgjöld til hernaðarmála væru þeim. Breshnev sagði enn fremur, að Sovétríkin vildu auk inn mátt S.Þ. og traustar varnir Evrópulandanna. í innanríkismálum spáði Brezhnev engum breytingum að heldur og sagði að fram yrði fylgt stefnu flokksins eins og hún hefði verið mörkuð á 20., 21. og 22. flokksþingunum á ár unum 1956, 1959 og 1961, en þá var ákveðið, að afmá áhrif Stal íns, vinna að friðsamlegri sam- búð og bættum lífskjörum al- þýðu manna. Bætti Brezhnev því við að flokkurinn teldi það æðstu skyldu sína að þjóna fólkinu og föðurlandinu. Fyrsta hlutverk stjórnar sinnar sagði Brezhnev myndu vera að auka framleiðslu landsins og bæta lífskjör manna og menningarbrag. Til þess var tekið, að Brezhnev minntist ekki á Krúsjeff einu orði í ræðu þessari, sem hann flutti af blöðum. Oft var gripið fram í fyrir honum með húrra- hrópum og fagnaðarlátum. Ræðu Brezhnevs var bæði útvarpað og sjónvarpað. KOSYGIN flutti stutta ræðu á Rauða torginu við hátíðahöldin og sagði að Sovétríkin myndu vinna ötulléga að því að leysa alþjóðleg vandamál með samn- ingum til þess að auka traust og skilning þjóða í milli. Sagði Kos- ygin, að „sjötta heimshafið", — Kosmos — eða geimurinn yrði alþjóðlegt svið samvinnu landa í milli og kvað Sovétríkin mjög áfram um algera afvopnun. f síðdegisveizlu í Kreml í dag, geimförunum þrem til heiðurs, lét ritstjóri Pravda, Pavel Satjuikov, sem nú er kornin'* aftur til Moskvu úr heimsókn til Frak'klands, þess getið við blaðamenn frá Vest- urlönd'um, a’ð þeir hefðu fyrirgert stéttarsóma sínum með fregninni um að honum hefði verið vikið frá. Er Satjukov sagður hafa ver- ið á skrifstofu sinni á mánu- dag en í fyrri viku var frá því skýrt, að honum myndi vikið frá við heimkomuna, og fyrir þeirri fregn bomar á- reiðanlegar heimildir, að sögn NTB. — Schollander Framhald á bls. 31. heims, sem syndir þá vegalengd á skemmri tíma en mínútu. „4. gull Schollanders“ Einn mesta yfirburðasundsigur inn unnu Bandaríkjamenn á sunnudag í 4x200 m skriðsundi karla. Sá lakasti í sveitinni synti á 2 mín. réttum — og um það er lauk hafði sveitin rúmlega 7 sek. forskot. Næsta sveit var 10 m á eftir. Steve Clarke synti fyrstur á 2 mín. réttum og skapaði iy2 m forskot. Þá tók Saari við og synti á 1.58.1 og nú var bandaríska sveitin orðin 3 metra á undan. II- man synti þriðja sprettinn og teygði forskotið upp í 5 metra. Don Schollander færði sigurinn í höfn og kom um 10 m á undan næsta manni í mark. Með þessu sundi setti Dor Schollander algert ÓL-met, þar sem hann hefur nú unnið fern gullverðlaun — en slíkt hefur engum tekizt á Ólym- píuleikjum fyrr. Úrslit urðu: ÓL-meistari Bandaríkin 7.52.9 2. Þýzkaland 7.59.3 3. Japan 8.03.8 4. Ástralía 8.05.7 5. Svíþjóð 8.08.0 6. Frakkland 8.08.7 7. Rússland 8.15.1 8. Ítalía 8.18.1 Bandarísku stúlkurnar unnu þrefaldan sigur í 400 m skrið- sundi kvenna á lokadegi sund- keppninnar. Þær voru í sérflokki í þessari keppni — en mjóst þó á mununum að þriðja sætið ynnist. Hörkukeppni var um gullið og varð heimsmeistarinn að lúta í lægra haldi. ÓL-metið var stór- bætt. ÓL-meistari Ginny Duenkel Bandar. 4.44.3 2. Ramenofy Bandaríkin 4.44.6 3. Strickles Bandaríkin 4.47.2 4. Fraser Átsralíu 4.47.6 5. O. Eves Kanada 4.50.9 6. Long Bretlandi 4.52.0 7. Herford Ástralíu 4.52.9 8. Lipja Svíþjóð 4.53.0 10 m dýfingar karla Bandaríkjamaðurinn Bob Web- ster náði gullinu eftir glæsilegar dýfingar í lokastökkunum. Fram- an af var hann aftarlega í röð- inni og leit út fyrir að hann myndi ekki vinna gullið, sem tal- ið var hans örugga eign. En með þremur mjög vel heppnuðum og erfiðum stökkum hreppti hann það loks. ítalskur 18 ára ungling- ur varð annar. Hann er i dýfinga- æfingum hjá föður sínum, sem eitt sinn var margfaldur meistari í þessari tignarlegu grein. Úrslit urðu: ÓI-meistari stig Bob Webster Bandar. 148.58 2. Dibiasi ftalíu 147.54 3. Gompf Bandaríkin 146.47 4. Garzia Mexikó 144.27 5. Palagin Rússlandi 143.77 6. Phelps Bretlandi 143.18 Leiðrétting f GREINARGERÐ prófessors Þór halls Vilmundarsonar um upp- runa Leifs heppna, og birtist I Mbl. sl. sunnudag, hefur lína fall- ið niður á einum stað. Orðrétt átti setningin að hljóða svo: „Frásögn yngri heimildar, Ei- ríks sögu rauða (frá síðara hluta 13. aldar), sem getur ekki ferðar Bjarna Herjólfssonar, en segir, að Leifur Eiríksson hafi fundið Vínland, er hann var á leið frá Noregi til Grænlands árið 1000, sendur af Ólafi Noregskonungi Tryggvasyni til þess að kristna Grænlendinga, er hins vegar „mjög tortryggileg“, eins og Jón Jóhannesson prófessor hefur vakið athygli á, þar sem þess er ekki getið í elztu heimildum um Ólaf konung Tryggvason, að hann hafi kristnað Grænlend- inga, þótt aðrar þjóðir, sem hann kristnaði, séu þar kirfilega tald- ar, en aftur á móti beinlínis tek- ið fram í hinni fornu Noregs- sögu, História Norwegiæ, að ís- lendingar hafi styrkt Grænland með hinni kaþólsku trú“. Sala áfengis vex um 14,7% FYRSTU níu niánuði þessa árs nam sala áfengis frá Áfengis- og tóbakseinkasölu ríkisins samtals kr. 229.625.429,00, en var á sama 1963 kr. 200.425.080,00. Söluaukn ing 14,7%. Hinn nýi utanríkisráðherra Bret- lands, Patrick Gordon Walker, sem Wilson forsætisráðherra til- nefndi í trássi við þá hefð að ráð- herrar skyldu eiga þingsæti sér að baki, en svo sem kunnugt er, þá féll Walker við kosningar í kjördæmi sínu, Smathwick. Gordon Walker til l)SA London, 19. okt. NTB—AP Tilkynnt hefur verið að hinn nýi utanríkisráðherra Bretlands, Patrick Gordon Walker, muni fara til Bandaríkjanna á mánu dag n.k. til tveggja daga við- ræðna við Dean Rusk, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sem bauð Walker vestur. I tilkynningu brezka utanríkis málaráðuneytisins um vesturför- ina segir, að ráð'herrarnir muni ræða mál þau, sem orðin sé hefð að löndin tvö hafi samráð um og þau heimsmál, sem nú séu efst á baugi, s.s. vald'hafaskiptin i Moskvu; kínversku kjarnorku- sprenginguna, tillöguna um að búa Atlantshafsbandalagið kjarn- orkuvopnum, samvinnu NATO- landanna o.fl. Þá er gert ráð fyrir því, að utanríkisráðherrarnir ræði fyrir- hugaða Bandaríkjaför Wilsons sjálfs, en kunnugir telja, að af henni gæti orðið þegar í nóvem- ber. Jo'hnson forseti hafði ráð- gert að fara til Evrópu eftir for- setakosningarnar í Bandaríkjun- um, en er nú sagður hafa hætt við þá fyrirætlun sína og ekki 'hugsa sér til hreyfings fyrr en um áramót. 1964 1963 Selt í og frá Reykjavík .... kr. 67.826.796,00 kr. 58.055.280,00 — - — — Akureyri .... kr. 10.152.075,00 kr. 10.256.403,00 — - — — ísafirði kr. 2.206.580,00 kr. 2.040.521,00 Siglufirði .... kr. 2.374.660,00 kr. 2.599.402,00 — Seyðisfirði .. kr. 4.852.405,00 kr. 3.776.640,00 87.412.516,00 kr. 76.728.246,00 Tvö nýstofnuð veioiielog a Héraði Egilsstöðum, 17. október.: —. Á SÍÐASTLIÐNU sumri hafa tvö veiðifélög verið stofnuð á Flj ótsdalshéraði. Veiðifélag fyrir vatnasvæði Lagarfljóts og Jökulsár á Dal. í stjórn þessa félags eru: Sveinn Jónsson, Egilsstöðum, formaður; Þorsteinn Jónsson, Reyðarfirði og Jóhann Magnús- son, Breiðavaði. Hitt er veiðifélag fyrir vatna- svæði Selfljóts. í stjórn þess félags eru: Þorsteinn Sigfússon, Sand- brekku; Stefán Sigurðsson, Ár- túni og Snæþór Sigurbjörnsson, Gilsárteigi. Bæði þessi félög hafa nú ný- lega ákveðið á stjórnarfundum sínum að auglýsa í útvarpi eftor leigutilboðum í þessi vatnasvæði. Ppplýsingar um vatnasvæðin og væntanlega leikuskilmála, fást hjá formönnum félaganna. — S. E — Wilson Framhald af bls. 1 eftir því. Heilbrigðismálaráð- herra í stjórn Wilsons hefur ver ið skipaður Kenneth Robinson. Þegar tilkynnt var um fyrir- hugaða vesturför Gordon Walk- ers, utanríkisráðherra, sat hin nýja ríkisstjórn Wilsons á sínum fyrsta fundi. Stóð fundurinn í tvo tíma og voru einkum rædd efna- hagsmál, en Wilson hefur oftlega lýst áhuga sínum á að efla efna hag landsins til þess að skapa grundvöll fyrir þjóðfélagsumbæt ur þær, er hann vill fá þingið til þess að samþykkja. Þá steðja að stjórninni erfið- leikar varðandi launamál innan þriggja fjölmennra atvinnuhópa og fær atvinnumálaráðiherrann nýskipaði, Ray Gunther, ærnu að sinna á næstunni. Flutningaverka menn, járnbrautarverkamenn og verkamenn í rafmagnsiðnaðin- um standa nú í samningaviðræð um um launamál, sem gætu end að með verkfalli 550.000 manna, ef illa tækizt til og 4.500 hafnar verkamenn í London hafa þegar hótað eins dags verkfalli til á- herzlu kröfum sínum, og heitið á 65.000 samstarfsmenn sina sér til fulltingis. Frank Cousin, tæknimálaráðherra, átti að sjá um samningana við hafnarverka menn en það mál hefur nú verií fengið öðrum til úrlausnar. Meðan stjórn Wilsons hélt fyrsta fund sinn komu meðlimir stjórnarandstöðunnar saman til fundar með fyrrverandi forsætis ráðherra Sir Alec Douglas-Home í forsæti. Ekkert hefur verið látið uppi um það hvað rætt var á fundinum, en sagt að þar miyndu hafa verið rædd úrslit undangeng inna kosninga og ályktanir þær, sem af þeim mætti draga. — Brezkir Framhald af bls. 32 einfalt. Töfin varð vegna fram kominnar kröfu verjanda skip- stjórnas í Prince Philip um að afihugun færi fram á ratsjá varð skipsins. — Sá athugun tafðist vegna þess að veður hamlaði því að sér fræðingur gæti farið vestur til ísafjarðar. En athugunin fór fram þegar er hægt var og leiddi í ljós að ratsjáin var í fullkomnu lagi og krafa þessi gerð að til- efnislausu. Töfin var því alger- lega sök varnaraðila. Þá skal þess getið að þáð hefur aldrei verið fallizt á að sleppa brotlegu skipi fyrr en rannsókn í málinu hefur farið fram. Loks má geta þess að afli skipsins var með dómi gerður upptækur. Blaðið sneri sér einnig til ráðu neytisstjóra utanríkisráðuneytis- ins, Agnars Kl. Jónssonar, og sagði hann að mótmæli þau er um ræðir hér í fréttinni, hefðu ekki borizt utanríkisráðuneytinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.