Morgunblaðið - 20.10.1964, Side 32
bílaleiga
magnúsar
SKípliolt 21
simar: 21190-21185
0 0 0
0 0 0
Z Z Z I
IA (A W
c c c .
r r r I
ooo
0 0 o l
x x x
Enn er þó nægileg síld, en hún er smd
og fólksfæð hamlar vinnslu hennar
ALLS er nú búiff að salta í rúm-
lega 353 Jnisund nppsaltaðar
tunnur af Norður- og Austur-
landssíld. Þetta nægir þó hvergi
nærri til að fylla upp í fyrirfram
gerða samninga um sölu saltsíld-
ar. Til þess að slíkt næðist þarf
| allt að 70—80 þúsund tunnur í
i viðbót. Ekki er gert ráð fyrir að
. það magn náist og kemur þar
j bæði til skortur á nægilega
I MIKIÐ rok gerði hér á laug |
ardaginn með rigningarhryðj
um. Ekki urðu af því miklar '
skemmdir sem blaðið hefir'
haft fregnir af utan hvað arm |
ar á ljósastaurum brotnuðu j
við Suðurlandsbraut. Sveinn
Þormóðsson tók þessa mynd
niðri við höfn á laugardaginn|
síðdegis og gekk þá særokiðí
upp á hafnargarðana og bát-,
arnir dönsuðu á öldutoppun-
um frammi á legunni.
Árongurslaus
sdttoiundur
í GÆR var fundur hjá sátta-
semjara með prenturum og prent
smiðjueigendum og stóð hann
frá kl. 17:00 til 20:00. Ekki náð-
ist samkomulag. Kl. 20:30 í gær-
kvöldi hófst fundur hjá sátta-
semjara með offsetprenturum og
prentmyndagerðarmönnum og at
vinnurekendum þeirra og stóð sá
fundur enn um miðnætti. Prent
myndagerðarmenn lögðu niður
vinnu í gærmogun.
Rússarnir neita að mæta
fyrir rétti á Seyðisfirði
Seyðisfirði, 19. okt.
SUNNUDAGINN 18. október,
kl. 10 var sakadómur Seyðis-
fjarðar settur í bæjarfógeta-
skrifstofu Seyðisfjarðar og
haldinn af Erlendi Björns-
syni, bæjarfógeta. Viðstaddir
dómsrannsókn voru Hallvarð
ur Einvarðsson, fulltrúi sak-
sóknara, Gísli Einarsson, hrl.,
og Arnór Hannibalsson, dóm-
túlkur í rússnesku. Dómarinn
hafði boðað Vladimir Valen-
telis, skipstjóra á Rambinas,
aðstoðar- og dráttarskipi rúss
neska flotans. Skipstjóri neit-
aði að mæta fyrir dóminum.
Einnig voru stýrimaður og vél
stjóri á SRP 4430 boðaðir sem
vitni, en skipstjórarnir svöruðu
fyrir menn þessa, að þeim væri
bannað að fara frá borði til að
mæta við íslenzka dómsrann-
sókn, enda bæri þeim ekki
skylda íil þess. Dómari lagði
fram greinargerð í. Vinnitsenko
konsúls. Flest atriði greinar-
gerðarinnar hafa áður verið rak
in í Morgunblaðinu í fréttum
frá fyrr réttarhöldum. Með grein
argerðinni fylgdi afrit af sím-
skeyti til sovézka sendiráðsins
í Reykj^vík frá yfirmanni sov-
ézka fiskveiðiflotans, félaga
Platonoff. Skeytið er sent þrem
ur timum eftir að Ægir kom að
rússneska flotanum á Loðmund
arfirði og er beiðni um að Ramb
inas fá leyfi til að sigla með bil-
uð skip og til að veita þeim að-
stoð á Loðmundarfirði.
stórri síld og eins vantar fólk til
að vinna að söltuninni. Aflabrögð
hafa hinsvegar verið góð fyrir
austan að undanförnu.
Frétt Fiskifélagis fslands um
aflann siðustu viku er sem héí
segir:
Mjög góð síldveiði var s.I. viku
enda veður gott alla vikuna.
Veiðisvæðið var á sömu sló'ðum
og áður 60—70 sjómílur ASA frá
Dalatanga.
Vikuaflinn nam 142.438 mál-
um og tunnum og var þá heildar-
afli á miðnætti s.l. lauigardag
orðinn 2.737.244 mál og tn., sem
skiptist þannig eftir verkunarað-
ferðum.
í salt 353.348 upps. tn.
I frystingu 41.062 uppm. tn.
í bræðslu 2.342.834 mál
Helztu löndunarhafnir eru þess
ar: (mál og tn.)
Siglufjörður
Raufarhöfn
Vopnafjörður
Seyðisfjörður
Eins og frá hefur verið skýrt i Neskaupsta'ður
Brezkir togaraeigendur mót-
mæla og hóta íslendingum
Töf togarans Prince Philip
varnaraðila sjálfum að kenna
MORGUNBLAÐIÐ fékk í
gær einkaskeyti frá AP í Lon-
don þar sem skýrt er frá mót-
mælum brezkra togaraeig-
enda út af töf togarans Prince
Philip vegna réttarhalda hér
á landi. Blaðið sneri sér til
viðkomandi ráðuneytis hér og
fékk skýr svör um ástæðu
þessarar tafar og ennfremur
að engin mótmæli hefðu enn
borizt hingað/
Einkaskeytið hljóðar svo:
„London, 18. okt.
Félag brezkra togaraeigenda
hefur lagt fram harðorð mótmæli
við íslendinga,. gegnum brezka
utanrikisráðuneytið, vegna þess
að togaranum Prince Phillip var
haldið í 8 daga vegna ákæru um
ólögiegar fiskveiðar.
Það var A.J. Lewis forstjóri
Boston Deep Sea útgerðarfyrir-
tækisins, sem tilkynnti þetta í
kvöld, en fyrirtæki hans á hið
442 tonna skip, sem kom úr hinni
sögufrægu för hingað, til Bret-
lands í gær.
Lewis sagði að töfin á íslandi
hefði orsakað skemmdir á 35
tonnum af fiski, sem þýddu úm
860 þús. ísl. króna tjón, að við-
Miðar að samsæti
til heiðurs Maríu
Maack
AÐGÖNGUMIÐAR að samsæt-
inu til heiðurs Maríu Maack
verða afhentir í anddyri Sjálf-
stæðishússins í dag kl. 2-4 e.h.
Fólk er vinsamlegast beðið að
athuga að miðamir verða aðeins
afhentir í dag, þriðjudag.
bætum sektum, en næmu 602 þús.
krónum. Hann bætti því við, að
fyrirtæki hans hefði verið reiðu
búið að leggja fram 1204 þús.
kr. tryggingu, en íslenzk yfir-
völd 'hefðu neitað að leyfa skip-
inu að yfirgefa ísafjarðarihöfn.
Yfirmenn togarans voru reiðu-
búnir að vera eftir á meðan á
réttarhöldunum stóð, sagði hann
ennfremur. William Radcliffe
skipstjóri hefði neitað ákæru og
kvaðst hafa verið fyrir utan 12
mílna markanna er hann var tek
inn.
Lewis sagði að ef svipaðar taf-
ir hentu fleiri brezka
togara í framtíðinni, myndu skip
verjar þeirra reyna að komast
hjá handtöku og gæti það leitt
til alverlegra árekstra („nasty
incidents“), eins og hann komst
að orði.“
Morgunblaðið sneri sér í gær
til Baldurs Möllers ráðuntytis-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu og
spurði hann álits á þessu máli.
Komst hann að orði á þessa leið:
— Þetta mál er í rauninni mjög
Framh. á bls. 23
hefir dómsmálaráðuneytið fyrir
skipað að rannsókn málsins
haidi áfram.
Það mun hafa komið fram í
réttarhöldunum sl. föstudag að
dómarinn teldi sennilega sektar-
upphæð kr. 26 þúsund, ef réttar-
sætt yrði.
Þá má bæta því við að lög-
regluþjónn sá, sem var á vakt
í rússnesku skipunum í gær,
varð fyrir því að vera vísað í
land af skipverjum og gerðu
þeir sig líklega til að sigla skip
unum á brott, en lögregluþjónn
inn neitaði að fara frá borði og
varð þá ekki af frekari aðgerð-
um.
Þess skal að síðustu getið að
rússneski konsú.llinn, fulltrúi
saksóknara, lögmaður landhelgis
gæzlunnar og dómtúlkur eru all
ir farnir til Reykjavíkur og munu
réttarhöld því liggja niðri þar
til þeir koma aftur, eða a.m.k.
þar til dómtúlkur kemur á stað-
inn.
Rússnesku skipin svo og varð
skipið Ægir liggja hér í Seyðis-
fjarðarhöfn. — Sveinn.
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
282.833
429.566
254.369
478.523
415.535
219.213
174.530
144.955
Bláðið sneri sér í gær til Jóns
Stefánssonar framkvæmdastjóra
Síldarútvegsnefndar á Siglufirði
og spurði hann um hvernig gengi
að saita upp í samninga.
— Til þess að fylla upp í gerða
samninga tel ég að salta þurfi í
70 — 80 þúsund tunnur enniþá
en vitáð er að það magn, sem
á land er komið, rýrnar við á-
pökkun. Það er fyrst og fremst
cut-síld, sem vantar og stafar
það af því að síldin hefir verið
svo misjöfn og ekki nógu stór til
að fullnægja þeim kröfum, sem
til cut-síldar eru gerðar. Ég tel
engar líkur til að það takist að
salta upp í gerða samninga, bæði
vegna þess að síldin fer minnk-
andi, (þ. e. að stærð til), þótt
magn sé mikið af henni ennþá.
og svo er fólksfæðin svo mikil
fyrir austan að það er lítið meira
en söltunarstöðvamar ráði við að
verka þá síld, sem þagar er kom-
in á land, saigði Jón Stefánssoa
að lokum.
Komúnistar tapa
iðn
nemasam
bandi
inu
LÝDRÆÐISSINNAR unnu
glæsilegan sigur í stjórnarkjöri
á þingi Iðnnemasambands ís-
lands, sem haldið var í Breið-
firðingabúð nú um helgina.
Þingið sóttu rúmlega 30 full-
trúar frá samtökum iðnnema
víðsvegar af landinu og fjallað
var um ýmis hagsmunamál iðn-
nema, m.a. var kjörin nefnd til
þess að gera tillögur um breyt-
ingar á iðnfræðslunni .
Deilt var harðlega á fráfarandi
stjórn, sem skipuð var kommún-
istum, fyrir léleg vinnubrögð í
málefnum iðnnema.
Hin nýja stjórn I.N.S.Í. er skip-
uð þessum mönnum:
Formaður Gylfi Magnússon
húsasmíðaneimi og varaformaður
Kristján Kristjánsson hiúsa-
smíðanemi. Með þeim í stjórn:
Hafsteinn Hjaltason prentnemi.
Ólafur Emilsson prentnemi og
Örlygur Sigurðsson járnsmíða-
nemi. Varastjórn skipa: Hjalti
Sigurbergsson, Sigurður Jónsson,
Pétur Grímarsson og Árni
Markússon.
John Watkins
látinn í Kanada
JOHN WATKINS, fyrrum sendi
herra Kanada hér á landi um
nokkurra ára skeið, lézt í Montr-
eal í Kanada 13. október sl., sjö
tugur að aldri.
Watkins, sendiherra, átti hér
marga vini, enda mikill íslands-
vinur og vel látinn.
Engar líkur til að
takist að salta
upp í samninga