Morgunblaðið - 08.01.1965, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.01.1965, Blaðsíða 11
Föstudagur 8. janúar 1965 MORCUNBLAÐID 11 Hér lifir fólk ánægt í sátt og samiyndi Fréttabréf úr Rauðasandshreppi PRJÓNASTOFUR Viðskiptavinum sínum til hagræðis, hefir umboð okkar ODENSE GARN A/S., Odense nú fyrirliggýandi byrgðir af hinu þekkta ODELON gervi vélprjónagarni, sem við getum afgreitt frá Tollvöru- geymslunni í Reykjavík með mjög stuttum fyrirvara. — Nánari upp- lýsingar hjá umboðsmönnum. Látrum, 31. des. VEÐRÁTTA hér hefir verið af- leit yfir desember, þó sérstak- lega síðari hluta hans, svo nú er kominn allmikill snjór, eða mun rneiri en verið hefir undanfarin ár, fiestir vegir ófærir, en verða opnaðir þegar veður batnar. Sauðfé er ailstaðar komið á gjöf, og mun það einsdæmi hér é Látrum. Fóðurbirgðir munu ailgóðar hér í sveitinni þótt vetur verði gjafafrekari en ver-- ið hefir. Sá galli mun þó víða vera á heyfóðri, að gras var úr sér sprottið, þegar slegið var, og því óhoiiara fóður. Nokkuð hefir borið á því að kýr hafi fengið doða eftir burð, sem trúlegt er «ð stafi af efnaskorti í heyfóðr- inu. Refaveiðar. Óvenjumikið var skotið af ref á síðastliðnu sumri, og það sem af er vetrinum. Mun aðalorsök- in vera sú, að nú er kominn akfær vegur af Látrahálsi og inná Brunnahæð, þótt hann sé að mestu ofaniborinn. Þá er hægt að aka upp á háfjallagarðinn, einnig út á Geldingsskorardal, og víðar er hægt að komast á jeppa. Mörgum finnst þá gaman «ð skreppa þetta, og þreyta við rebba í leiðinni. Hann virðist ekki vera búinn að átta sig á mótJeik gegn þessu bragði of- eóknara sinna, og er stráfelldur, evo þetta er að verða sportveiði, því að að bjarginu sækir rebbi_ meðan nokkur stendur. Einn minkur náðist í vetur, svo hann er setztur að hér í sveitinni. Illa horfir þá hjá þeim, sem voru að koma sér upp æðarvarpi, en til þess eru hér víða allgóð skilyrði. Byggingar. Heimavistarbygging fyrir börn ásamt kennaraíbúð er í byggingu í ÖrJygshöfn. Byggingin á að rúma 20 börn í heimavist ásamt etarfsfólki. Svo er fulJkomin íbúð fyrir kennara, svo og annað tiJheyrandi, en ætlunin er að kennslan fari fram í félagsheim- ilinu eins og verið hefir, en það er á sömu lóð. Búið er að steypa bygginguna upp og plötuna yfir, en þá voru veður orðin váJynd, evo þá varð að nema staðar, og verður ekki unnið við húsið sjálft fyrr en síðari hluta vetrar, eða með vorinu eftir veðurfari. Bygg ingarmeistari er Páll Guðfinns- eon Patreksfirði, en aðalverk- etjóri og yfirsmiður Haraldur Guðmundsson Reykjavik. Verk- ið gekk mjög vel. í Breiðavík voru byggð fjárhús fyrir 150 fjár. Viðbættist á árinu fjögur súg- þurrkunarkerfi í hlöður, tvö með viðtegndum bJásurum, og tv. án blásara. Búskapur o. fl. Ein jörð fór í eyði á árinu. ÓJafur Lárusson hætti búskap á Btökkum á Rauðasandi, og flutt- ist til Reykjavíkur. En annað býli byggðist, Saurbær á Rauða- eandi hið forna höfuðbóJ, á það fluttist ÓJafur Sigurvinsson frá Reykjavík, svo þar tók Reykja- vík ekki meira en hún gaf, og er ekki oft á að minnast í þessu eambandi. Þó hefir þessi sveit þá sögu að segja, að frá Reykja- vík hefir hún fengið ágæta bændur og framúrskarandi bú- konur. Bústofn í hreppnum mun vera um 2.800 fjár, um 140 naut- gripir og nokkuð af hænsnum, svona vel til heimanota. Af þess- um bústofni Jifa um 150 manns sem aðalatvinnuvegi, að viðbætt- um fjölskyldubótum og ellilíf- eyri, svo og ýmsu, sem menn fá eér til dundurs, ef til fellur með búskapnum. Hreppsbúum var gert að greiða yfir 100 þúsund í tekjuskatt, svo ekki mun þar hafa verið undan svikið skattin- um. Útgerð smátóta er með öllu horfin, og skipakostur sá fúnar upp í naustum. Af hverju, þarf enginn að spyrja. Breiðavík. Forstjóraskipti urðu við vist- heimiJið á árinu. Frá fór Hall- grímur Sveinsson og frú hans, Guðrún Steinþórsdóttir. Þau fJuttu að Hrafnseyri við Arnar- fjörð. Við tók Þórhallur Hálf- dánarson skipstjóri og frú hans, Guðmunda HaJJdórsdóttir frá Hafnarfirði. 14 drengir vorú á heimiJinu um jólin. Mörg fyrir- tæki sendu þeim jólagjafir, og einnig heimilinu gjafir oftar á árinu. Sýnir þetta vaxandi skiln- jng þjóðarinnar á þörfinni fyrir slikt heimiJi í okkar nútíma þjóð félagi. Kennari heimilisins er í vetur Eiríkur Hjartarson, ungur og efnilegur kennari. Ferðafóík. Fjöldi fólks lagði leið sína á Látrabjarg á síðastliðnu sumri, ég held úr flestum landshlutum. Fer sá hópur stöðugt vaxandi, einnig útlendingar. Virðist eng- inn verða fyrir vonbrigðum með að sjá þann stað, en óneitanlega er það leiðinlegt, svo ekki sé meira sagt, fyrir okkur sem þarna búum, hvað þá fyrir hina, sem í því Jenda að sjá fjölda biJa sitja fasta í sandinum á leið- inni frá Látrum, og útá bjargið, og fá ekkert aðgert í þeim efn- um nema rétta fólkinu hendi við að ná bilunum upp. Ekki mundi það stóran mínus gera í vegafé Jandsmanna þótt þessi stutti spotti væri Jagfærður, en það mundi stóran plús gera í ánægju þess fólks, sem leggur á sig að sækja þennan stað. Ósköp væri það nú ánægjuleg hugdetta, svona í ársbyrjunina, ef alJir háttvirtir þingmenn vjJdu hugJeiða, hvaða ánægju- auka og greiðasemi hver þeirra gerði sínum kjósendum, með þvi að láta lagfæra þennan spotta. Ég veit ekki heJdur hvort það teJst vansalaust, á svo fjölfar- inni leið að sumrinu, að láta vita vörðinn halda við fyrir eigin reilming því af þessum vegi, sem er orðinn góður vegur, en það hefir hann gert til þessa, af þeirri einföldu ástæðu, að hann þarf stundum að fára í bíl til vitans. Lokaorð. Yfirleitt er alit gott að frétta úr þessari vestustu sveit Jands- ins. Fólkið Jifir hér ánægt með- an það er, og í sátt og samlyndi, innbyrðist og út á við. Hér hefir ekki verið stefna Jesin í áratugi, eða Jögtak tekið. Þannig á líka samfélag siðmenntaðs fóJks að vera. GleðiJegt nýtt ár! Þóröur Jónsson. Samningur um landbúnaðar- rannsóknir London, 6. jan. NTB. STJÓR.NIR BretJands og Sovét- rikjanna hafa undirritað sam- komulag til 5 ára um samvinnu á sviði landbúnaðarrannsókna. Samkvæmt því munu stjórnirn- ar skiptast á sendinefndum Jand búnaðarvísindamanna þegar á næsta ári. STEINAVÖR hi. Norðurstíg 7, Reykjavík. — Sími 24123 VAÐSTÍGVÉL flestar stærðir — margar gerðir — Góð/r skór glebja góó börn Skóhúsið Hverfisgötu 82. Sími 11-7-88. T 4 ÖSKAST í EFTIRTALDAR VÖRUR, SEM ÖSELDAR ERU FRÁ ÞVÍ ELDUR KOM UPP í VÖRUGEYMSLU SÍS: Tréskrúfur, margar gerðir Límbætur, Continental Rennilásar Jakkafóður Plastsvuntur Skyrtuflúnel, bútar Fiðurhelt léreft Flauel, hvítt Kragaklæði Skjalatöskur Smellur Teyjur og silkiborðar Tvinni Blek o. fl. Plast í nillum Tölur, ýmsar gerðir Prjónar og ýmsar fleiri vörur Niðursuðuglös Bómullarsokkar, barna Bómullarsokkar, kvenna Vinnubuxnaefni Pönnur Gastæki Auglýsingastafir Register Skólakrít Prófpappír Bókhaldsbækur Cellophanepappír Flísalím Þvottasnúrur Kosangasþvottapottar Gardínulykkjur og krókar Skóflur og hakar Framangreindar vörur eru flokka ðar niður og verða til sýnis að Hall- veigarstöðum, Garðastræti til hádegis í dag. — Tilboð óskast í hvern flokk fyrir sig og skal þeim skilað á sama stað fyrir kl. 3 í dag, föstudaginn 8. janúar 1965. Tilboðin miðist við staðgreiðslu. SAMVINNUTRYGGINGAK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.