Morgunblaðið - 08.01.1965, Qupperneq 12
12
MORGU N BLADIÐ
Föstudagur 8. janúar 1965
Útgefandi:
Framkvæmdast j óri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
1 lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480,
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið. —
VERUM BJARTSÝNIR,
EN RAUNSÆIR.
k ramótaávarp Bjarna Bene-
diktssonar, forsætisráð-
herra, var mjög athyglisvert,
en út af því hafa hins vegar
spunnizt furðulegar umræð-
ur. Tíminn hefur látið að því
liggja, að forsætisráðherra
hafi sagt, að íslendingar hafi
ekki efni á að byggja upp
sjálfstætt og fullvalda ríki,
og einn af ritstjórum þess
blaðs hefur ráðizt að forsætis-
ráðherra í útvarpsþætti.
Ekkert er fráleitara, en að
túlka megi orð forsætisráð-
herra í áramótaávarpinu á
þann veg, sem Tíminn reynir
að gera. Þvert á móti gætti
Bjarni Benediktsson þeirrar
skyldu sinnar, sem forsætis-
ráðherra, að gera þjóð sinni
sem gleggsta grein fyrir að-
stöðu hennar allri, svo að ljós
ara væri hvað til þess þyrfti
að styrkja hið íslenzka full-
veldi. í niðurlagi" ræðu sinn-
ar sagði forsætisráðherra
m.a.:
„Við höfum sjálfir valið
okkur veglegra og kostnaðar-
samara verkefni en nokkur
annar svo fámennur hópur í
veröldinni við jafnerfið skil-
yrði. það verkefni er að láta
sjálfstætt menningarríki
blómgast á þessu fámenna,
misveðrasama eylandi norð-
ur í höfum, og haga svo með-
ferð mála að hér megi allir
komast til nokkurs þroska.
Að sjálfsögðu hafa fyrir-
ætlanir okkar tekizt misvel,
og margt stendur til bóta. En
hví skyldu menn vera með
vol og víl, þegar við höfum
áorkað því, sem enginn ókunn
ugur á íslandi myndi trúa, að
svo fáir menn fengju fram-
kvæmt við svo erfiðar að-
stæður.“
Þetta segja Framsóknarfor-
ingjarnir að sé til þess fallið
að draga kjark úr mönnum,
og megi jafnvel túlka svo,
að forsætisráðherra telji okk-
ur ekki hafa efni á því að
vera sjálfstæðir. Slíkur mál-
flutningur er ósæmilegur, og
þarf raunar ekki að eyða að
því mörgum orðum. Forsætis-
ráðherra bendir mönnum
einmitt á, að hér þurfi ekk-
ert vol og víl. íslenzka þjóðin
geti verið bjartsýn, og það
eru menn líka almennt, en
samfara bjartsýni verður að
vera raunsæi, ef mönnum á
vel að farnast. Þannig er það
með einstaklinga, og ekki síð-
ur þjóð.
MIKILL
SJÁVARAFLI.
17ins og Davíð Ólafsson fiski-
málastjóri, skýrði frá hér
í blaðinu í gær, hefur sjávar-
aflinn síðasta ár orðið urh
960 þúsund tonn, og er hinn
mesti í sögu þjóðarinnar. Afla
aukningir} og hagstæð verð-
lagsþróun á mörkuðunúm,
hefur leitt til þess, að verð-
mæti framleiðslu sjávaraf-
urða hefur vaxið nokkuð. Tel-
ur fiskimálastjóri að áætla
megi verðmætin nálægt 4.500
milljónum króna, eða nær því
24% meira, en talið var á
fyrra ári. Síðan segir Davíð
Ólafsson, fiskimálastjóri:
„Þau atriði, sem hér voru
nefnd og hafa verið hagstæð,
nægja þó ekki til, ef efnahags-
þróunin innanlands vinnur
þar á móti. Það dylst engum,
sem til þekkir, að svo hefur
einmitt verið undanfarið. Á
árinu 1963 hjifðu orðið mjög
verulegar hækkanir á kaup-
gjaldi og verðlagi og enda
þótt tækist með hinu svo-
nefnda júnísamkomulagi að
hefta þá þróun, og slíkt var
vissulega mjög þýðingarmik-
ið, þá hefur þróun þessara
tveggja ára breytt mjög til
hins verra aðstöðu útflutn-
ingsatvinnuvega, sem verða
að hlíta verðlagi á erlendum
mörkuðum, sem fer að vísu
hækkandi, en er þó verulega
meira hægfara en hækkun
framleiðslukostnaðarins hef-
ur verið undanfarið. Hér er
meginnauðsyn að skapa jafn-
vægi á milli“.
Hinn mikli afli og hagstæð
verðlagsþróun erlendis á
framleiðsluvörum okkar, hef-
ur auðvitað valdið því, að
hagur þjóðarinnar hefur batn
að. Bæði er staðan gagnvart
útlöndum betri en áður, og
eins hafa lífskjör manná batn-
að verulega. Þessum árangri
megum við undir engum
kringumstæðum glata. Þess
vegna er aðvörun fiskimála-
stjóra tímabær.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLANS.
Á rmann Snævarr, háskóla-
rektor, hefur greint blaða
mönnum frá því, að framund-
an sé sleitulaus vísindasókn,
með stórfelldri uppbyggingu
Háskólans, og stefnt sé að því,
að hefja óslitna byggingar-
Egypzkar eldflaugar ógna ísrael
FYRIR rúm-u ári var mikið
um það rætt í blöðum, að í
Egypta-landi væru starfandi
margir vestur-þýzkir vísinda-
menn og ynnu að smíði eld-
flauga fyrir egypzku stjórn-
ina. Minna hefur verið um
þetta rætt undanfarið en það
er ekki vegna þess að nokkurt
lát hafi orðið á starfi vísinda-
manna þeirra og verkfræð-
inga erlendra, einkum vestur-
þýzkra, sem að eldflaugsmíð-
inni vinna. Talið er, að innan
tveggja ára muni Nasser og
stjórn hans eiga 800 til 1000
eldflaugar og auk þess tölu-
verðan flota flugvéla, einkum
rússneskra orustuþota og
sprengjuflugvéla og dágóðan
skipaf-lota.
Nasser dregur enga dul á
það, að allan þennan viðbúnað
ætli hann til höf-uðs Israel,
og hann vinnur líka dyggi-
lega að því á öðrum sviðum
að svo skipist um málefni
landanna að til styrjaldar
dragi. Á fundi Arabaríkjanna
í Kairó sagði Nasser að ísrael
yrði að þurrka %út en sagði
jafnframt, að Arabalöndin
myndu þá fyrst leggja til at-
lögu við þennan erkifjanda
sinn, er a-llar ráðstafanir
hefðu verið gerðar sem til
þyrfti otg þau gætu verið
viss um sigur. Á meðfylgjandi
korti sézt hvernig eldflaugar
frá Egyptalandi myndu geta
náð til skotmarka um nær-
fellt allt Ísraelsríki.
Tónlistarfélag og skóli
á Sauðarkróki
Sauðárkróki, des.
f SEPTEMBER síðastl iðnum
var stofnað Tóniistarféla'g Skaga
fjarðar. Forgönguimenn að stofn
un þess voru ýmsir áhugamenn
uríi tónlistarmál, bæði af Sauð-
árkróki og úr Skagafjarðarsýslu.
Markmið félagsins er fyrst og
fremst að stofna og reka tónlist
arskóla og vinna að því að glæða
áhuga fyrir tónmennt í héraðinu.
Unnið er að því að saifna fé-
lögum og virðist áhugi v-era al-
wennur. Ákveðið hefur verið
að þeir sem ganga í Tónlista-
félagið fyrir n.k. árarnót skuli
teljast stofinendur.
Tónlistarskóli á veguim fð'.ags
ins tekur til starfa á Sauðár-
króki upp úr áramótunum og
eru þegar skráðir allmargir
nemendur.
Skólastjóri verður Eyþór
Stefánsson, tónskáld en aðal-
kennari við skólann, frú Eva
Snæbjömsdóttir.
Kvenfélag Sauðárkróks hefluir
fært hinu nýstofnaða Tónlistar
félaigi að gjöf 10.000 krónur og
heitið stuðningi sínum á næstu
árum. Jafnframt hefur Skaga-
fjarðasýsia styrkt skólastofnun-
ina með 20.000 króna framilagi.
oig bæjarráð Sauðárkróks sam-
þykkt að bæjarsjóður leggi einn
ig fram 20 þúsund krónur.
Þ-ess má geta að hafin er fjár
söfnun meðal ali.mennin.gs í
Skagafirði og hefur sú málaleit
an mætt sérstökum skilningi.
Stjórn Tónlisitarfélagsins er
skipuð þessum mönnum:
Stefán Ól. Stefánsson, Eyþór
Stefánssjon og Jón Karlsson,
starfsemi í þágu skólans.
Byggingu raunvísindastofnun
unar Hásklóans verður að
líkindum lokið á þessu ári, og
þá hefst þar starfsemi í eðlis-
fræðideild, efnafræðideild,
stærðfræðideild og jarðeðlis-
fræðideild.
Næsta stórátak Hásklólans
er bygging handritastofnunar
íslands og Háskólans, sem
þessir tveir aðilar reisa í sam
vinnu, og þriðja byggingin,
sem farið er að undirbúa,
verður í þágu kennslu og
rannsókna í læknisfræði, en
mjög aðkallandi er að koma
upp slíkri byggingu.
Tekjur af happdrætti Há-
skólans renna til þessara fram
kvæmda, og er rétt að leggja
áherzlu á það, að sérhver sá,
sem kaupir miða í happdrætti
Háskólans, styrkir þar með
vísindi og menntir, jafnframt
því sem menn fá von um stór-
fellda vinninga, en vinnings-
líkur í happdrætti Háskólans
munu vera með því hæsta, ef
ekki þær hæstu, sem gerast í
slíkum happdrættum, hvar
sem er í veröldinni.
Sauðárkróki Maignús Gíslason,
Frostastöðuim og Jón Björns-
son, Haflsteinsstöðmm.
Héraðsbúar munu almennt
fagna því framitaki, sem hér hef
u.r verið sýnt og óslka hinu ný-
stofnaða félagi al.Ira heilla, ja.n
fraimt því, sem þeir vænta hins
bezta af verðandi skóllastarfi
undir stjórn Eyþórs Stefánsson-
ar, sem hefur um áratugia skeið
verið leiðandi mað-ur í söng- og
tónristarlífi Sauðárkróks. — Joa.
Stykkishóímsvöl!-
völlur tepptist
aldrei
Stykkislhólmi, 6. jan.
VERTÍÐ er ekki hafin enn. Ekki
er vitað, hvenær hún byrjar.
Veður hafa verið ákaflega um-
hleypingasöm, og snjór hefur
verið mikill. Þó hefur flugvöll-
urinn við Stykkishólm aldrei
teppzt, og er fiugbrautin nijög
góS.
Sæmilegt veður var um ára-
mótin, norðankaldi. Tvær brenn-
>ur stórar voru gerðar, sem log-
uðu fram undir morgun. Lú’ðra-
sveit Stykkishólms stóð fyrir
áramótadansleik, og var þar mik
ið fjölmenni samankomið.
Skemmti fólk sér hið bezta.
— Fréttaritari.
Bonn, 6. jan. (AP)
• LUDWTG Erhard, kanzlari
V-Þýzkalands hyggst heim-
sækja Indland á næstunni,
sennilega þegar í næsta mán-
uði, — að því er sendiherra
Indlands í Bonn upplýsti í
dag.