Morgunblaðið - 04.02.1965, Side 19

Morgunblaðið - 04.02.1965, Side 19
/■ímmtudagur 4. febrúar 1965 MOkGUNBLADID 19 Jón Þorvaldsson skipstjóri — Minningarorð — í DAG fer fram í Reykjavík út- för merkismanns, sægarpsins Jóns Þorvaldssonar, skipstjóra. Hann lézt í sjúkrahúsi í Ný- fundnalandi sl. laugardag, 30. janúar. Jón skipstjóri var á leið héðan til Bandaríkjanna á skipi sínu, Langjökli, fermdu hraðfrystum fiski. Skall á skipið mikið hvass- viðri með stórsjó, er það nálgað- ist strönd Vesturheims. Þegar hamfarir lofts og lagar ganga yfir, yfirgefur skipstjóri trauðla stjórnpall skips síns með- an veðrið stendur. Beinir hann þaðan skarpri sjón sinni út í sort- ann og þjálfaða athyglisgáfu að því að hagræða stjórn skips- ins, þannig að einskis sé látið ó- freistað til þess að verja það á- föllum. í þessum veðraham skeði það, að Jóni skipstjóra varð fótaskort- ur og hlaut af byltu mikla, sem olli því að hann lærbrotnaði. Var skipinu eftir atburð þennan siglt til hafnar þess staðar, sem næst lá, en það var St. John’s á Ný- fundnalandi. Fékk hann þar sjúkrahúsvist og gert var þar að lærbrotinu. Hafðist það vel við og allt benti til algjörs bata að þeim tíma liðnum, sem til þess þarf að um heilt grói. En eftir tíu daga legu í sjúkrahúsinu stöðv aðist skyndilega blóðrásin um æðar hans, og var þess þá skammt að bíða að dauðann bæri að garði. Þannig endaði þessi víðförla sjóhetja, sem siglt hafði áratugi um höfin á norðurhveli jarðar, líf sitt í fjarlægri heimsálfu. í fyrradag var lík hans flutt heim til fósturjarðarinnar, þar sem honum er búin hinzta hvíla að loknu löngu og farsælu dagsverki. Jón Þorvaldsson var vestfirzk- ur að ætt og uppruna. Hann var fæddur í Hjarðardal í Dýrafirði 24. apríl árið 1900. Voru foreldr- ar hans Þorvaldur Magnússon bóndi þar, ættaður úr Dýrafirði, og kona hans, Kristrún Bjarna- dóttir, ættuð úr Önundarfirði. Var Jón einn af sjö systkinum, sem öll komust á þroskaaldur. Að Jóni standa traustar vestfirzkar ættir, og var honum ríkulega í blóð borinn sá manndómur, kjarkur og karlmennska, sem um langan aldur hefur þróazt í þess- um landshluta. Jón ólst upp í foreldrahúsum. Fór hann ungur, eins og þá var títt, að taka til hendinni til heim- ilisstarfa. Tveimur árum fyrir fermingaraldur var hann farinn að róa á opnu áraskipi. Upp úr fermingu gerðist hann skútusjó- maður, en jafnrramt sjómennsk- unni vann hann á þessum árum að sveitastörfum. Þá var það al- gengt í fjörðum vestra að bænd- ur væru jöfnum höndum sveita- bændur og útvegsbændur. Fór bændum þessi svískipting í störf- um vel úr hendi. Var ungu fólki þroskavænlegt að alast upp við þessar aðstæður. Fékkst þá brátt úr því skorið hvert hugur hins unga manns stefndi. Leið margra lá á sjóinn og þannig var því var ið með Jón Þorvaldsson. Heimilis vist Jóns hjá foreldrum hans lauk er þau brugðu búi, en þá var hann 17 ára gamall. Næstu tíu árin eftir fermingu var Jón skútu sjómaður og á síðari hluta þessa tímabils lærði hann sjómanna- fræði og lauk prófi frá Stýri- mannaskólanum árið 1923. Að prófi loknu lá leið Jóns á togara, sem á þeim tima voru að- sópsmestu fiskveiðitæki fslend- inga. Var Jón togarasjómaður um aldarfjórðungsskeið, fyrst háseti, bátsmaður og síðar stýrimaður og skipstjóri. Það var hlutverk Jóns á þeim árum, semh ann var á tog- urum, að sigla með fisk til Bret- lands öll striðsárin. Voru þessar siglingar þrekraun mikil. — Á hverju augnabliki vofði hættan yfir úr lofti frá árásarflugvélun- wn, í sjónum frá kafbátunum. Of an á þetta bættist að sigla varð um úthöfin, ljóslaus í kolamyrkri. Var því ásiglingarhættan gífur- ieg á þeim fjölförnu siglingaslóð- um, sem leið þeirra lá um. En Jón var sá lánsmaður að sleppa framhjá öllum þessum ógnunum og bar gæfu til að sigla jafnan skipi sínu heilu og höldnu í höfn í þessum lífshættulegu ferðum. Reyndi á þessum árum mjög á karlmennsku og hugrekki sjó- manna vorra, sem óx ásnlegin við að bjóða hættunum byrginn og koma styrkari úr hverri raun. Árið 1947 .lét Jón af sjó- mennsku á togaraflotanum. En þótt svo væri var það mjög fjarri því að hann sneri baki við sjó- mennskunni. Sjómannsblóðið svall áfram í æðum hans. Þá var sú þróun í hröðum vexti að fs- lendingar önnuðust á eigin skip- um alla flutninga til og frá land- inu. Óx kaupskipaflotinn ár frá ári. Skipafélagið Jöklar hf. hóf þá göngu sína og gekk Jón Þorvalds son í þjónustu þess, fyrst sem stýrimaður. en síðar skipstjóri, en skipstjórn hefur hann haft þgr á hendi um árabil, lengst af á Drangajökli, sem ber heiti eldra skips, sem helltist úr lestinni frá félaginu fyrir alllöngu síðan.. Jón Þorvaldsson skipstjúóri er, eins og fyrr segir, fæddur alda- mótaárið 1900. Hann er í heim- inn borinn á þeim tímamótum í sögu þjóðar vorrar, þegar segja má að fyrsti morgunbjarmi hins nýja dags; framtaks og framfara brýst fram úr skýjaþykkninu, sem byrgt hafði oss sýn um alda- raðir inn í land framtíðarinnar, land vaxtar og þroska. Þessi straumþvörf 20. aldarinnar fóru hægt á stað, en stefnan var mörk- uð, og til réttrar áttar var stefnt. Þegar Jón Þorvaldsson óx úr grasi á hinni nýju öld og hafði tekið út þroska sinn, biðu hans sem annarra uppvaxandi manna í landi hér, mikil verkefni að reisa á nýjum grunni allt athafna líf vort á sjó og landi, jafnframt því sem hafist var handa um aukna fræðslu og menntun í landi voru, svo að allt héldist í hendur er gengið var með oddi og egg að hinu nýja viðreisnar- og uppbyggingarstarfi með þjóð vorri. Það, sem sagt er hér að framan um lífsstarf Það sem Jón Þor- valdsson kaus sér, sjómennskuna, sýnir að hann hefur komið við sögu á öllum þróunarstigum fisk- veiða og siglinga í landi voru á þessari öld, og haldið þar með dugnaði sínum og árvekni í störf- um, uppi merki umbóta og fram- fara. Jón Þorvaldsson byrjar korn ungur þátttöku ‘í fiskveiðum á árabátum, frumstigi útgerðar á landi hér. Þegar skútuöldin renn- ur upp, þá er hann mættur þar og þegar togaraútgerðin hefst, sem mestum straumhvörfum olli í fiskveiðum hér á sínum tíma, þá fylgdist hann með þeirri þróun og loks þegar efling kaupskipa- floatans hefur innreið sína, þá leggur hann þar ótrauður hönd á plóginn. Þetta sýnir að þjóð vor hefur vaxið með verkefnunum og aldrei orðið úrræðavant til þess að fylgjast með í þróuninni og marka þar djúp framfaraspor. Líf og starf Jóns Þorvaldssonar er gott dæmi um þetta og stað- festing á því. Og aldrei lét hann merkið falla fyrr en dauðinn brá brandi sínum og tók af skarið. Jón Þorvaldsson var greindur maður og hygginn, hann var bók- hneigður mjög og fjölfróður. Hann hafði stálminni og sagði vel frá, svo unun var á hann að hlýða. Hann var viðræðugóður og margt mátti af honum læra. Hann var sjálfstæður í hugsun og hafði góða dómgreind til þess að leiða .að því rök, sem honum lá á hjarta. Hann var maður mjög dul rænn og í innri meðvitund hans fólst hugboð og jafnvel vissa um ýmislegt, sem öðrum er annars dulið. Einn þáttur í hinu dulræna eðli Jóns var draumalíf hans. Hann dreymdi áþreifanlega fyrir daglátunum sem • kallað er, og kom honum engan veginn á ó- vart ýmislegt, sem skeði á leið hans. Hann hafði áður fengið fyrirboða um þetta í draumum sínum. Jón komst nokkrum sinn- um í lífsháska í sjóferðum. En í öll skiptin birtist honum í draumi áður ábending og viðvörun við því sem í vændum var. Ég, sem þessar línur rjta, sigldi með Jóni Þorvaldssyni skipstjóra til ísrael, landsins helga. Ég minnist þess æ síðan að sunnu- dagsmorgun einn snemma er hann j reis úr rekkju og gekk til stjórn- palls, ávarpaði hann mig, en ég bjó með honum í farrými hans, er hann gekk fram hjá þessum orð- um: „Nú hvessir hann í dag“. Lengra var samtalið ekki. Kvöld- ið áður hafði ekki borizt í Ríkis- útvarpinu nein spá um veðra- brigði, og eigi varð merktur á hafinu neinn fyrirboði þess. En hvað skeði, laust fyrir hádegi þennan dag var skollið á fárviðri og sjórinn umhverfðist í einu vet fangi. Meðan ofviðrið stóð vék Jón aldrei af stjórnpalli. Þá þótt- ist ég sjá og skilja þá snilli sjó- farandans, sem beita þarf til þess að halda litlu og þrauthlöðnu skipi ofansjávar á Atlantshafinu í slíkum hamförum. Eigi alls fyrir löngu var rætt um drauma í Ríkisútvarpinu. Leiddu nokkrir draumspakir monn þar saman hesta sína. Ég sagði við sjálfan mig: „Jón vinur minn Þorvalds- son þyrfti að vera kominn til slíks móts“. Það var ekki langt um liðið frá því er ég steig á skipsfjöl hjá Jóni Þorvaldssyni og ferðin til ísrael væri hafin að þar yrði sezt að manntafli. Sýnilegt var að almennur áhugi var hjá skipverjum á taflíþró'ttinni. Þessi þjóðlega list skipaði þarna háan sess. Það leið heldur ekki á löngu að ég yrði þess var, að sjálfur skipstjórinn var lífið og sálin í því að hvetja til iðkun- ar á íþrótt þessari. Þegar ég kynnt ist þessu nánar þurfti ég reyndar ekki að láta þetta koma mér á óvart, því að skipstjórinn var enginn viðvaningur á taflborðinu, því hann væri talfmeistari flot- ans. Og ekki nóg með það, held- ur hefði hann gert tveimur heims meisturum í tafli heitt í hamsi er hann gerði við þá jafntefli er þeir voru hér á ferð og tefldu fjöltefli. Jón Þorvaldsson var mikill smekkmaður um val fallegra hluta til heimilisprýði. Tók það jafnt til útlits þeirra og efnis- gæða. En eigi er mér Ijóst hvers gætti meira á slíku vali, hans eig- ið listrænt eðli, eða áhrif hans frá hans ágætu konu, Ingibjörgu Þórðardóttur frá Laugabóli við ísafjarðardjúp, sem hefur næmt auga fyrir því sem listrænt er. En hið vistlega og fallega heimili þeirra ber þess ótvírætt merki að í sama farveg hefur fallið hjá þeim báðum að prýða það fögrum og verðmætum málverkum og ýms- um gripum úr góðmálmum og kjörviði sem farið hefir verið um snilldarhöndum. Eins og fyrr greinir var Jón Þorvaldsson kvæntur Ingibjörgu Þórðardóttur, sem lifir mann sinn ásamt þremur dætrum þeirra og stjúpsyni. Dætur þeirra eru: Kristrún, gift Nirði Tryggvasyni verkfræðingi, Halla og Ingibjörg, sem lýkur stúdentsprófi í vor, báðar ógiftar, og Þór Halldórsson viðskiptafræð ingur, fulltrúi í Seðlabanka ís- Selfossi, 2. febrúar. UM þessar mundir er Leikfélaig Selfoss að æfa gamanleikinn Jeppa á Fjalli, sem frumsýndur verður föstudaginn 12. febrúar hér á staðnum. Leikstjóri er Gísli Alfreðsson, en með aðalhlutverkið fer Valdi- mar Lárusson, sem er jafnframt — íslenzk tækni- menning Framhald af bls. 15. ina. Hvað skyldu nú þessi seinu .viðbrögð hafa kostað? 7) Þrátt fyrir framangreind dæmi og ótal önnur ónefnd hefi ég víst ekki enn lært nóg af reynslu þeirri, sem ég hefi öðl- ast á Islandi, því að enn er ég að berjast við að finna upp og innleiða nýjar vélar oig tæki. Á ég þar fyrst og fremst við „mall- arann“ sem svo er nefndur og gerður er til að gegnumsjóða síldina, eftir að hún hefur verið hituð upp í hinum venjulega lá- rétta sjóðara. Tveir mallarar eru nú til taks í síldarverksmiðjum: annar í Sandgerði og hinn á Eskifirði. Er nú .svo komið, að ég tel byrj- unarörðugleika yfirunna og ár- amgurinn mjög eftirtek tarverðan og jákvæðan. En þetta er búið að taka mig þrjú ár og geysilega vinnu og útgjöld. Að maður ekki tali um áhyggjur og heílabrot. En ég hlýt að þakka mjög styrkveitingar frá Fiskimálasjóði og aðstoð oig skilning bæði Lands banikans og Framkvæmdabank- ans. Án þessara aðila og góðs vilja Guðmundar frá Rafnkells- stöðum oð Aðalsteins Jónssonar á Eskifirði, hefði ég lent í strandi. Umleitun um tilraunastyrk til Rannsóknarráðs var aldrei svar- að og Vísindasjóður reyndist of léttur til þess að hjálpa, þrátt fyrir góðan skilning og vilja í orði kveðnu. 8) Nú hefi ég allra síðast gert teikningu af nýrri gerð sjóðara, sem er lóðréttur og ávallt sneisa- fullur af síld oig sem eykur suðu- tímann fram yfir það, sem nú gerist í hinum láréttu sjóðurum, sem oft eru ekki nema hálffullir og minna en það og því mjög dýr ir og óhagkvæmir miðað við af- köst. Á ég von á að þessi sjóðari myndi marka talsverðar fram- farir frá núverandi sjóðurum, af fleiri en einni ástæðu. En hvar er fyrir hendi fjármagn og að- staða til að byggja slíkt tæki? Og er svo nokkursstaðar mögulegt að fá það reynt — fremur en mallarann, þeigar til átti að taka. 9) Um sæslöngur til síldar- flutninga er svipaða sögu að segja. Mun ég fyrstur eiga hug- mynd að því að flytja bræðslu- síld í slíkum slöngum, en fé til tilraunanna hvergi fengist. 10) Hér er ég kominn að merg málsins: það er ekki nóg að tala um tækniframfarir og lands, kvæntur Svönu Davíð*- dóttur og eiga þau eitt barn. Línum þessum lýk ég með þvi að færa hinum látna heiðurs- manni hinztu kveðju mína og þakklæti fyrir það sem okkur hefur farið á milli. Pétur Ottesen. gestur félagsins. Alls eru leik- endur átta. Við litum inn á æfingu hjá félaginu á dögunum og voru þá allir í óða önn við æfingar og virtust þær vel á veg komnar. Leiktjöld gerir Lárus Ingólfs- son. — Ó.J. nauðsyn þeirra. Einhverjir verða að standa fjárhagslegan straum af þeim. Hér verður að veita stórfé tH ýmiskonar tilrauna og nýsmíða, ekki síst vegna fiskveiða og fisk- vinnslu og til hverskonar iðn- áðar og styrktar nýjum hugmynd um og hugvitsmönnum. Þá þarf að koma upp fullkomnum verk- námsskólum, eins og ég ritaði um fyrir ca. 20 árum, til að auð- velda t.d. iðnnámið, þá við dauf- ar undirtektir. Loks þarf og að sjá stofnunum eins og rannsókn- ■ardeild Fiskifélagsins fyrir nægu og vel þjálfuðu starfsliði og borga því vel. 11) Að skera Iaun vísinda- manna og verkfræðingá við negl ur sér, verður ekki til góðs fall- ið. Má nefna, að með þeirri ár- legu fjölgun íslenzkra verkfræð- inga, ca. 5-6%, seni gilt hefur undanfarin ár, verða íslendingar ekki búnir að ná hlutfallstölu verkfræðinga miðað við hverja 1000 íbúa eins og hún var í Rúss landi fyrir 5 árum, fyrr en alda- mótaárið 2000! En í Bandaríkjunum líta menn svo á, að útskrifa þúrfi ca. 100- 200 doktora í raunvísindum ár- laga á hverja milljón lands- manna, er svaraði til 20 doktora árlega hér á landi og um það bil 10-falt fleiri verk- og tæknifræð- inga en hér gerist nú, miðað við fólksfjölda. Er um þetta athyglisverð grein í síðasta hefti tímarits verkfræð- ingafélagsins. í Bandaríkjunum, þar sem ég starfaði í mörg ár, sem yfir- verkfræðingur og rannsóknar- stjóri við þekkt vélsmíðafyrir- tæki, er geysileigum fjárfúlguim varið til tilrauna og þykir marg- borga sig. Þannig get ,ég nefnt, að t.d. Pfizer International fyrirtækið, sem hafði hug á að fá mig sem verksmiðjustjóra til Chile, selur framleiðslu fyrir um 400 milljón ir dollara á ári, en eyðir ca. 10% eða 40 milljónum dollara til rann sóknarstarfsemi, ár hvert. Athugandi væri hvort ekki mætti örva íslenzk fyrirtæki til að styrkja rannsóknarstarfsemi 1 þeirra hag, með því að ívilna þeim í sköttum og skyldum uom samvarandi upphæðir og til rann sóknanna var eytt. Hvað sem því líður þarf að örva þá, sem eitthvað geta lagt af mörkum til framfara í tækni og vísinum landsmanna, til þes* að liggja ekki á liði sínu. Þeir eru þjóðinni sízt ónauðsyn legri en aðrir þeir sem atvinnu stunda í landinu, hvort seim þeir erfiða með hug eða höndum. Frá kaffihléi á æfingu hjá Leikfélagi Selfoss. Á myndinni mi m.a. sjá Lárus Ingólfsson. (Ljósm. Tómas Jónsson). Leskfélag Selfoss æiír Jeppa á Fjalli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.