Morgunblaðið - 04.02.1965, Síða 26
26
MORGUNBLADID
Fimmtudagur 4. febrúar 1965
meistaratitil í knattspyrnu
68
iið
berjast um
heims-
og Englendingar leggfa allt
kapp á að sigra á heimavelli
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í
knattspyrnu — eða undanrásir
hennar — eru stærsta viðfangs-
efni beztu knattspyrnumanna
heims á þessu ári. Landslið 68
landa eru skráð til keppninnar
og barátta þeirra stendur um
14 laus sæti í úrslitakeppninni
sem fram fer i Englandi 1966.
Tvö sæti þar eru þegar skipuð.
Komast Brasilíumenn, núverandi
heimsmeistarar og Englendingar
Guðmundur
fjórfuldur
meisturi
og Hrafnhildur
þrefaldur
SUNDMEISTARAMÓT
Reykjavíkur var haldið í gær-
kvöldi. Keppni var hörð og
1 jöfn í ýmsum greinum ekki
sízt hjá unglingunum. Keppt
var í 8 meistaragreinum karla
og kvenna. Guðmundur Gísla
son ÍR varð fjórfaldur meist-
ari, sigraði í 100 m skriðsundi,
200 m bringusundi, 100 m flug
sundi og 100 m baksundi. Hjó
hann hvergi nálægt metum í
sínum en er þó hvergi ógnað /
enn nema í flugsundi þar sem 1
hann tapaði fyrir Davíð Val-
garðssyni ÍBK sem keppti á
Rvíkurmótinu sem gestur.
Hrafnhildur Guðmundsdótt
ir ÍR varð þrefaldur meistari
í 200 m bringusundi, 100 m
skriðsundi og 100 m baksundi
kvenna og í síðasttöldu grein-
inni var hún 1.1 sek. frá meti
sínu.
Logi Jónsson KR varð t
meistari í 400 m skriðsundi /
karla. Nánar um mótið síðar. »
í úrslitaieik Rvíkurmótsins \
í sundknattleik vann Ármann (
KR með 8—4. Z
sem sjá um keppnina í úrslitin
án þátttöku í undankeppninni.
Hinum löndunum 66 hefur
verið skipt í riðla og ræður þar
mestu hnattlega landanna.
í flestum riðlanna eru 3 lönd en
4 í sumum þeirra. Sigurvegari
í hverjum riðli kemst í loka-
keppnina.
Ef af líkum má ráða kemur
lokabarátta nú sem fyrr til með
að standa mi’lli beztu liða
Evrópu og Suður-Ameríku.
Ýmis lið eru í keppninni sem
ekki hafa nokkrar vinningslíkur
og má þar benda á t. d. lið Kýp-
Ur, Sýrlands og Surinam (hol-
lenzk nýlenda).
Keppt er um bikar sem gefinn
var 1930 og keppt er um á 4 ára
fresti. Til þessa hafa Brasilía,
Uruguay og Ítalía unnið bikar-
inn tvívegis hvert land og Vestur
Þjóðverjar einu sinni.
Riðlar Evrópulandanna eru
þannig skipaðir:
1. riðill: Búlgaría, Belgía,
ísrael.
2. riðill: Kýpur, V-Þýzkaland,
Svíþjóð.
3. riðill: Júgóslavía, Frakk-
land, Luxemborg.
4. riðill: Tékkóslóvakía, Portú
gal, Rúmenía, Tyrkland.
5. riðill: Sviss, N-írland, Hol-
land, Albanía.
6. riðill: Ungverjaland, Austur
ríki, A-Þýzkaland.
7. riðill: Rússland, Danmörk,
Wales, Grikkland.
8. riðill: Ítalía, Skotland, Pól-
land og Finnland.
9. riðill: Spánn, frska lýðveld-
ið, Sýrland.
Englendingar leggja mikið
kapp á undirbúning keppninnar
og undirbúa sitt lið af kappi. Úr-
slit þessarar keppni hafa aldrei
áður verið í Englandi og Eng-
lendingar leggja stolt sitt í að
standa sig í lpkakeppninni. Alf
Ramsey þjálfari enska liðsins
hefur fengið fullt vald til að
velja hvaða leikmenn sem er
ti'l æfinga. Hann er bjartsýnn á
að honum takist að koma sam-
an liði sem vinni bikarinn.
í S-Ameríku eru riðlarnir þrír.
1. riðill: Uruguay, Peru og
Venezuela.
2. riðill: Chile, Colombía og
Ecuador.
3. riðill: Argentína, Paraguay
og Bolivia.
Mexico er talinn viss sigur í
riðli Mið- og N-Ameríku og loks
skipa 19 lönd í Afríku, Asíu og
Ástralíu aðra riðla.
KONUR víða um heim sína
óvenjulegan ílþróttaáhuga og
gefa karlmönnum þar sízt eft-
ir. I hópi kvenna sem stærstu
Með tvíburana á æfingu
afrekin vinna eru margar kon
ur sean hafa um heimili að
hugsa og fyrir börnum að sjá
— en gefa sér samt tíma til að
stunda sitt áhugamál og nota
frístundir dagsins til íþrótta-
æfinga.
Ekki er óalgengt að kon-
urnar hafi þá börnin með sér
á æfingarnar og krakkagreyin
taka þátt í æfingunum af lífi
og sál. Margar konur hafa við
slíkar æfingar unnið mikil og
stór afrek og má þar t. d.
nefna Fanny Blankers-Koen
frá Hollandi, Mary Rand Eng
landi, sem vann bæði gull- og
silfurverðlaun í Tokíó s.l.
haust o.fl. Hér á íslandi er
þetta sama ekki óáþekkt fyrir
brigði. Er skemmst að minnast
að „Iþróttamaður ársins 1964“,
Sigríður Sigurðardóttir á fyr-
ir heimili að hugsa og á eina
dóttur. Samt vinnur Sigriður
fulla vinnu utan heimilis —
og gefur sér samt tíma til að
æfa íþrótt sína með þeim frá-
bæra árangri sem allir vita
um.
Hér á myndinni er eitt
dæmi um eina slíka afreks-
konu og reyndar sjaldgæft
dæmi. Þýzka stúlkan Zenta
Kopp-Gastl hefur náð frábær
um árangri í 80 m. grindahl.
og var í Olympíuliði Þýzka-
lands í Tokíó. •
Á árunum 1955, 1956, 1958,
1959 og 1960 var hún i fremstu
röð í sinni grein í heiminum.
Síðan kom hlé meðan hún
fæddi tvíbura og hugsaði um
þá fyrstu árin. En ekki
gleymdi hún íþróttum og hóf
að æfa á ný þegar tækifæri
gafst. Og hér er hún á æfingu
með tvíburana, sem una glað-
ir og kátir við grindurnar
sem móðir þeirra æfir sig að
stökkva yfir.
Hún gerði sér vonir um
mikinn frama í Tokíó — jafn
vel verðlaun. Sú von brást,
en svo framarlega stendur
þessi þrítuga tvíburamóðir í
sinni grein að hún var meðal
þeirra fyrstu kvenna sem vald
ar voru í Olympíulið Þýzka-
lands.
Skotar hindra
ekki innrásina
FÉLAG knattspyrnumanna sem atvinnu hafa af íþróttinni
í Skotland hélt fund á dögunum og ræddi um „innrás“
norrænna leikmanna í skozka knattspyrnu. Fundurinn
ákvað að aðhafast ekkert að svo stöddu til að hindra
þennan innflutning norrænna leikmanna.
Framkvstj. félagsins, Johnny Hughes sagði að fundar-
lokum.
— Málið var rætt frá öllum hliðum og stjórn félagsins
samþykkti einróma, að aðhaf ast ekkert að svo stöddu til að
koma í veg fyrir að skozk félög getið tekið norræna leik-
menn í sína þjónustu. Máli ”-
millibili og skoðað í ljósi j eirrar þróunar sem á sér stað
á hverjum tíma.
Johnny Huges bætti við, ð sjónarmið félagsstjórnarinn-
ar málið varðandi yrðu t. nd skriflega til atvinnumála-
ráðuneytis Breta.
Enska knattspyrnan
Úrslit leikja í ensku bikar-
keppninni, sem fram fór fyrri
hluta þessarar viku, urðu þessi:
Middlesbrough—Charlton 2—1
Everton—Leeds 1—2
Rotherham—Wolverhamton 0—3
Rurnley—Reading 1—0
Dregið hefur verið um, hvaða
lið mætast í 5. umferð bikar-
keppninnar, sem fram fer 20.
febrúar n.k. Liðin eru þessi:
Peterborough—Swansea
Chelsea—Tottenham
Crystal Palace — N. Forest
Middlebrough—Leicester
Leeds—Shrewsbury
Aston Villa—Wolverhampton
Stoke eða Manch. U.— Burnley
Bolton—Liverpool eða Stockport
6. umferð keppninnar fer fram
6. marz, undanúrslit hinn 27.
marz og úrslitaleikurinn 1. maí.
Aðalleikurinn í 5. umferðinni
verður án efa milli Ohelsea og
Tottenham. Báðum þessum lið-
um hefur verið spáð sigri í bik-
arkeppninni að þessu sinni og
má vel vera að hér verði um að
ræða úrslitalik keppninnar, þótt
leiðin til Wembley verði erfið
fyrir sigurvegarann.
BDUARD Matusevich 27 ára
gamall verkfræðingur rússnesk-
ur varð Evrópumeistari í skauta-
hlaupi. Mótið var haldið í Gauta-
borg um helgina. Þetta er fyrsta
sinn sem hann sigrar á alþjóða-
móti.
— Útlitið hefur oft á undan-
förnum árum verið gott á mót-
um, en alltaf hefur einhver kom-
ið og tekið sigurinn frá mér. Ef
það hefði ekki gengið nú, held
ég að ég hefði bara hætt, sagði
hinn nýbakaði EvrópumeistarL
Matusevich var í sérflokki
í GÆRKVÖLDI fóru fram auka-
leikir í 4. umfarð ensku bikar-
keppninnar. Manch. Utd. vann
Stoke City með 1—0 og mætir
Manch. Utd. næst Burnley.
Liverpool vann Stockport
County 2—0 og mætir næst
Bolton.
eftir 500 og 5000 m hlaupið á
laugardag og virtist ekkert ógna
sigri hans. En í 1500 m hlaupinu
á sunnudag kom Per Ivar Moe
á óvart og nú óx tvisýnan fyrir
síðustu grein mótsins, 10 km
hlaupið.
En Rússinn hafði kraftinn og
skipulagið og sigraði örugglega.
Per Ivar Moe hlaut silfurverð-
launin eftir samanlögð úrslit.
Rússinn Kositsjkin varð nr. 3 og
Hollendingurinn Liebrechts varð
fjórði
Sigraði / fyrsta sinn
og varð EM-meistari