Morgunblaðið - 23.06.1965, Síða 2
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 23. júní 1965
22 þús. fonn salt-
fisks flutt út sl. ár
AÐALFUNDUR Sölusambands
Ssl. fiskframleiðenda var haldinn
J>ann 18. þ.m. — Að venju sótti
fundinn fjöldi saltfiskframleið-
«nda víðs vegar að af landinu,
«en félagsmenn S.Í.F. eru talsvert
■á þriðja hundrað.
Á árinu 1964 flutti S.Í.F. út
21.724 tonn af blautsöltuðum
fiski og 1.044 tonn af þurrkuðum
saltfiski. Aðal markaðslöndin
voru Brazilía, Bretland, Grikk-
land, Ítalía, Portúgal og Spánn.
Sala þessa árs framleiðslu hefur
gengið mjög vel og er það af
vertíðarframleiðslunni, sem flutt
verður úr landi blautsaltað þeg-
ar selt og verður afskipunum
lokið um næstu mánaðamót.
Hægt hefði verið að selja veru-
lega meira magn af blautsöltuð-
um fiski síðastliðið ár og á þessu
ári, ef birgðir hefðu verið fyrir
hendi.
Veruleg verðhækkun varð á
saltfiski árið 1964 og talsverð
hækkun aftur í ár. Fundurinn
ræddi ýmis hagsmunamál salt-
fiskframleiðenda og var eftirfar-
andi ályktun um markaðsmál
samþykkt einróma:
GuSmundur
Hulidórsson
lútinn
1 FVRRADAG andaðist Guð-
xnundur Halldórsson, forseti
Landssambands iðnaðarmanna,
að heimili sínu í Reykjavík.
Dánarorsökin var hjartabilun.
Guðmundur var 61 árs að aldri.
Guðmundur Halldórsson var
ættaður frá Gröf í Miklaholts-
Guðmundur Halidórsson
hreppi, en fluttist til Reykja-
víkur 26 ára að aldri til húsa-
smíðanáms. Hann starfaði lengí
hjá Byggingafélaginu Brú og
varð síðar framkvæmdastjóri
þess. Guðmundur var fyrsti for-
maður Meistarafélags húsasmiða
og í stjórn Iðnráðs Reykjavík-
ur. Hann var í stjórn Landssam-
bands iðnaðarmann frá 1952 og
forseti sambandsins frá 1960.
„Aðalfundur S.Í.F., haldinn í
Reykjavík þann 18. júní 1965,
ítrekar fyrri sam/þykktir um
skaðsemi þess, að margir útflytj
endur í hverri grein, fari með
íslenzk markaðsmál erlendis og
varar við þeirri þróun.
Það er álit fundarins, að
markaðsmálum og hagsmunum
fiskframleiðenda sé bezt borgið
með því að sala fiskafurða sé í
höndum sölufélaga framleið-
enda og að það sé til skaða fyrir
framleiðendur i heild að veita
öðrum aðilum en S.Í.F. leyfi til
útflutnings á saltfiski“.
Einnig samþykkti fundurinn
eftirfarandi áskorun til ríkis-
stjórnarinnar um línuveiðar:
„Aðalfundur S.Í.F., haldinn í
Reykjavík 8. júní 1965, beinir
þeim eindregnu tilmælum til
hins opinbera, að gerðar verði
hverjar þær nauðsynlegar ráð-
stafanir, sem þarf til að tryggja
rekstursgrundvöll þeirrar útgerð
ar, sem stunda vill línuveiðar“.
Á fundinum voru eftrtaldir
menn kosnir í stjórn S.Í.F.:
Bjarni V. Magnússon, frkv.stj.
Hafsteinn Bergþórsson, frkv.stj.
Loftur Bjarnason, útg.m.
Margeir Jónsson, útg.m.
Pétur Renediktsson, bankastj.
Sighvatur Bjarnason, útg.m.
Tómas Þorvaldsson, útg.m.
Richard Thors forstjóri, sem
verið hefur formaður samtak-
anna um langt skeið og einn af
fyrstu stofnendum S.Í.F. gaf nú
ekki kost á sér til endurkjörs.
Þakkaði fundurinn honum langt
og vel unnið starf í þágu S.Í.F.
Ákveðið var á fundinum að
gefa kr. 100 þús. til Sambands
hjarta- og æðasjúkdómavarna-
félagsins.
Á fundi stjórnar S.Í.F. þann
19. þ.m. var Tómas Þorvaldsson
útgerðarmaður í Grindavík kos-
inn formaður; Pétur Benedikts-
son bankastj. varaformaður og
Hafsteinn Bergþórsson, frkv.stj.
ritari.
Vilja selja F.I. þotu
FULLTRÚAR frá British Air-
cr.aft Corporation hafa undan-
farna daga verið hér á ferð þeirra
erinda að kynna fyrir forráða-
mönnum Flugfélags íslands nýja
fiugvélategund, B. A. C. 111 þotu,
sem nýlega hefur verið tekin í
notkun. Vilj.a Bretarnir selja F.í.
slíka flugvél, en málið er á um-
ræðustigi og því ekkert vitað um
árangur kynningarinnar.
B.A.C. 111 er þota með tvo
Rolls Royce hreyfla aftan á. Hún
tekur 70 til 80 farþega, vegur 37
tonn og flýgur með 805 km.
Svava Jakobsdóttir
Tólf konur — smásögur
eftir Svövu Jakobsd.
KOMIN er út hjá Almenna bóka
félaginu bókin „12 konur“ eftir
Svövu Jakobsdóttur. Er þetta
fyrsta bók Svövu, en eftir hana
hafa áður birzt smásögur í tíma-
ritum og blöðum.
Eins og nafn bókarinnar ber
með sér er hér um að ræða sögu
safn, frásagnir af tólf nútíma-
konum og vandamáliim þeirra,
og í sumum tilfellum barna
þeirra. Bókin er því skrifuð af
konu um konur. Sögurnar ger-
ast sín í hverju umhverfi, og
þótt þær s.éu ekki efnislega sam
stæðar mynda þær þó innbyrðis
einskonar heild.
Svava Jakobsdóttir hefur lagt
stund á bókmenntanám í Banda-
ríkjunum og Englandi.
Bókin er prentuð og bundin
í Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
hraða á klst. B.A.C. 111 er um
þriðjungi ódýrari en DC-9, sem
er af svipaðri stærð og gerð. Þot
an var fyrst notuð til farþega-
flugs hinn 8. apríl s.l., en siðan
hafa um 70 slíkar vélar verið
seldar bandarískum og evrópsk-
um 'flugfélögum.
Tveir menn frá B.A.C. komu
hingað til lands sömu erinda fyr
ir nokkrum vikum og aðrir þrír
hafa verið hér undanfarna daga.
Einn þeirra héit heimleiðis í gær
en von var á tveimur nýjum í
gærkvöldi.
Uppboð á
Patreksfirði
Patreksfirði, 22. júní.
UPPBOÐ var haldið í Síldar- og
fiskimjölsverksmiðju dánarbús
Þorbjarnar Áskelssonar og hrað-
frystihúsi sama eiganda á sýslu-
skrifstofunni í dag kl. 2. Voru
bæði fyrirtækin lögð Landsbank
anum út fyrir samtals 18,7 millj.
króna.
Veðskuldirnar, sem hvíldu á
fyrirtækjunum, munu hafa num-
ið um 39,5 milljónum króna.
Trausti.
Ekkert sam-
komulag
Neskauipstað, 22. júní
í DAG var haldinn f.undur
með aitvinnurekendium og verka
lýðsfélaginu hér á Neskaupsitað,
en ekkert samjkomuíag varð með
atvinnurekendum, hvort þeir
þeir semdu við verkalýðsfélagi'ð
á grundvelli þess texta, sem fé-
laigið 'hefur auiglýst. Unnið er hér
en ekki hefur enn reynit á taxt-
ann, þar sem laun hafa ekki ver-
ið boTguð út. síðan hann var auig
lýstur. — Ásgeir.
Vinnuveúfendur o g Vinnumálcasam-
band SÍS viðurkenna ekki „taxf ann"
I MORGUNBLAÐINU í dag
birtist tilkynning frá Vinnuveit-
endasambandi íslands, þar sem
bann er lagt við því að ráða
fólk til starfa á öðrum kjörum
en þeim, sem gert er ráð fyrir
í samkomulagimi sem gert var
fyrir Norður- og Austurland
7. júní s.l. og gildir þetta um þá
staði er auglýst hafa önnur kjör
en í því samkomulagi felst. Þá
hefur Vinnumálasamband Sam-
vinnumanna sent verkalýðsfélög
unum á Vopnafirði, Norðfirði og
Breiðdalsvík, skeyti fyrir hönd
kaupfélaganna á þessum stöðum,
þar sem skýrt er tekið fram, að
Vinmimálasambandið geti ekki
viðurkennt hinn auglýsta „taxta“
verkalýðsfélaganna á þessum
stöðum, að því leyti, sem hann
sé óhagstæðari vinnuveitendum
en samkomulagið frá 7. júní s.l.
Tilkynning Vinnuveitendasam
bands íslands er svohljóðandL.
„Að gefnu tilefni tilkynnir
Vinnuveitendasamband íslands
að félagsmönnum þess er bannað
að ráða til sín fólk á öðrum kjör
um. en um var samið milli vinnu
veitenda og verkalýðsfélaganna
á Norður- og Austurlandi 7. júní
s.l. Gildir þetta um þá staði er
auglýst hafa önnur kjör en í
þeim samningi felast“.
Skeyti það er Vinnumálasam-
band samvinnufélaganna sendi
Verkalýðsfélögunum á Vopna-
firði, Neskaupstað og Breiðdals-
vík, fyrir hönd kaupfélaganna á
þessum stöðum var efnislega á þá
leið, að Vinnumálasamband sam-
vinnuféiaganna væri aðili að
samkomulagi því, sem gert var
fyrir milligöngu sáttasemjara
7. júní s.l. og sáttasemjari hafi
fengið þá kjaradeilu til meðferð
ar skv. tilmælum beggja aðila.
Þar sem kjaradeilan sé enn ekki
til lykta leidd varðandi þessi
félög, sé hún ennþá til meðferð
ar hjá sáttasemjara.
Að svo vöxnu máli geti Vinnu
málasambandið því ekki viður-
kennt taxta þessara verkalýðsfé-
laga, að því leyti sem hann sé
vinnuveitendum óhagstæðari en
samkomulagið sem gert var 7.
júni sX
Síldveið-
in treg
SÍLDVEIÐI var treg í gær. 14
bátar fengu um 6000 tunnur 100
til 105 mílur NA af Raufarhöfn
og komu flest skipin þangað með
afla sinn inn í gær. Hin efstix
voru með innan við 1000 tunnur.
Var þar saltað á hverju plani og
útlit fyrir vinnu fram á nótt.
Síldarleitarskipið Hafþór til-
kynnti um kl. 8 í gærkveldi, að
það hefði fundið allmikla rauð-
átu (30 til 67 millilítra) á svæði
nokkru vestan við veiðisvæðið i
gær. Þykir mörgum það spá held
ur góðu um veiði, þar sem síld-
in kynni að leita þangað og verða
þar ekki eins stygg og hún hefur
verið að undanförnu.
Austan kaldi var á miðunum I
gær og útlit fyrir rigningu og
kuldagjóstur áfram í dag.
Ásgeir G. Stefánsson.
Ásgeir G.
Steíónsson
látinn
ÁSGEIR Stefánsson, fyrrverandi
forstjóri í Hafnarfirði, lézt i gær.
Hann hafði átt við langvarandi
vanheilsu að stríða.
Ásgeir var fæddur í Hafnar-
firði 28. marz 1890 og bjó þar
alla ævi. Hann lauk sveinsprófi
í trésmíði, stundaði um hríð fram
haldsnám í Þýzkalandi og hóf síð
an starf sem byggingameistari í
Hafnarfirði og víðar um land.
Hann var forstjóri Bæjarútgerð-
ar Hafnarfjarðar frá upphafi 1931
og til 1954. Jafnframt var hann
um tíma í bæjarstjórn og stofn-
aði ýms útgerðarfélög í Hafnar-
firði og veitti þeim forstöðu. Ás-
geir var um árabil í stjórn Eim-
skipafélags íslands, eða til ársins
1963 og var í orðunefnd frá 1961
til 1963.
Asgeir G. Stefánsson lætur eft
ir sig eiginkonu, Sólveigu Björns
dóttur, og 3 uppkomin börn.